Fréttablaðið - 23.10.2014, Síða 69

Fréttablaðið - 23.10.2014, Síða 69
400 ára afmæli Hallgríms Péturssonar Afmælishátíð í Hallgrímskirkju 24. - 31. október 2014 Listvinafélag hallgrímskirkju 32. starfsár - Hallgrímssöfnuður Aðgangur er ókeypis að öllum viðburðum hátíðarinnar nema annað sé tekið fram. Kaffihús til styrktar starfi Listvinafélagsins verður í suðursal kirkjunnar. www.listvinafelag.is www.hallgrimskirkja.is 24. október föstudagur 18.00 Afmælishátíð Hallgríms Péturssonar hringd inn Hörður Áskelsson leikur á klukknaspil Hallgrímskirkju 18.15 Opnun myndlistarsýningar „360 dagar í Grasagarðinum“ Sigtryggur Bjarni Baldvinsson sýnir myndlistarverk unnin sérstaklega í tilefni 400 ára afmælis Hallgríms. Sýningin samanstendur af um 80 ljósmyndum sem mynda saman eitt verk sem sprettur upp úr hugleiðingum eða umþenkingum um líf Hallgríms Péturssonar. Ljósmyndirnar eru allar teknar í frjósömum bakgarði í Brighton á suðurströnd Englands. Þar er líf Hallgríms sett í samhengi við þá hringrás náttúrunnar sem sjá má myndgerast í skrúðgarði á 360 dögum. Þar renna saman myndir venjulegs skrúðgarðs, Getsemane og Edens, Hallgríms Péturssonar, Jesú og óbreyttrar mannskepnunnar. Sýningarstjóri: Þóra Sigurðardóttir. 20.00 Sálmar Hallgríms í nýjum búningi Brot úr Passíusálmum og öðrum sálmum Hallgríms Péturssonar og sálmalög, bæði gömul og ný. Flutt verða lög eftir m. a. Sigurð Sævarsson, Tryggva M. Baldvinsson, Smára Ólason og Kirstínu Ernu Blöndal. Flytjendur: Kirstín Erna Blöndal, söngur, Gunnar Gunnarsson, orgel, Sigtryggur Baldursson, slagverk, Guðmundur Vignir Karlsson - Kippi Kaninus, raftónlist. Miðaverð: 2500/1500 kr. 25. október laugardagur 12.00 „Fögnuður“ Orgelinnsetning eftir Wayne Siegel prófessor í raftónlist við Konunglega tónlistarháskólann í Árósum. Verkið er samið sérstaklega fyrir Klaisorgelið í Hallgrímskirkju í tilefni af 400 ára afmæli Hallgríms og flutt af tölvu tónskáldsins með aðstoð veðurgervitungls. Miðaverð: 2000/1000 kr. 13.15 Mótettukór Hallgrímskirkju flytur kórtónlist tengda Hallgrími Mótettukór Hallgrímskirkju sem nýverið vann til fernra gullverðlauna í alþjóðlegri kórakeppni á Spáni flytur sálma eftir Hallgrím í búningi íslenskra tónskálda. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. 14.00 Hver var Hallgrímur? Málþing á Hallgrímshátíð Dr. Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor: Hallgrímur og alþýðan. Rímur til skemmtunar og kvæði ætluð ungum og ófróðum. Dr. Þórunn Sigurðardóttir bókmenntafræðingur: Hallgrímur og elítan. Hvað geta kvæði Hallgríms sagt okkur um félagslegt tengslanet hans? Dr. Sveinn Yngvi Egilsson prófessor: „Að þínum krossi, Kriste kær, kem ég sem einn framandi“. Líkamsmyndir Passíusálma í augum nútímalesanda. Fyrirspurnir og umræður, Ingibjörg Eyþórsdóttir íslenskufræðingur kynnir og stýrir umræðum. 15.15 Kaffihlé 16.00 Átta skáld yrkja með Hallgrími Skáldin frumflytja ljóð sín ort í tilefni 400 ára afmælis Hallgríms: Dagur Hjartarson Halla Margrét Jóhannesdóttir Hrafnhildur Þórhallsdóttir Magnús Sigurðsson Ragnar Helgi Ólafsson Sigurlín Bjarney Gísladóttir Snæbjörn Brynjólfsson Soffía Bjarnadóttir Kristín Steinsdóttir rithöfundur og dr. Sigurður Árni Þórðarson völdu skáldin. „Við strjúkum þitt enni“ Frumflutningur verks eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur skáld og tónskáldið Oliver Kentish. Flytjendur: Kammerkórinn Hljómeyki ogBjörn Steinar Sólbergsson orgelleikari. Stjórnandi er Marta Guðrún Halldórsdóttir. Verkið var pantað af Tónmenntasjóði kirkjunnar í tilefni af 400 ára afmæli Hallgríms. 26. október sunnudagur Vígsludagur Hallgrímskirkju 11.00 Hátíðarmessa. Bein útsending á Rás 1 Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir prédikar, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson sóknarprestur og sr. Sigurður Pálsson fyrrverandi sóknarprestur þjóna fyrir altari. Flytjendur tónlistar: Drengjakór Reykjavíkur–Hallgrímskirkju, stjórnandi Friðrik S. Kristinsson, Mótettukór Hallgrímskirkju, Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson trompetar og Eggert Pálsson pákur, stjórnandi og organisti Hörður Áskelsson. Afmælismessukaffi í suðursal að messu lokinni. 14.00 Ensk messa Sálmar Hallgríms Péturssonar sungnir í enskri þýðingu. Prestur sr. Bjarni Þór Bjarnason. 17.00 „Passíusálmar“ fyrir söngrödd og orgel eftir Michael Jón Clarke Flytjendur: Michael Jón Clarke barítón og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari. Tónlistin var frumflutt í Akureyrarkirkju fyrir tveimur árum við frábærar undirtektir og er væntanleg á geisladiski á næstunni. Miðaverð: 2500/ 1500 kr. 27. október mánudagur Hallgrímsdagurinn í Hallgrímskirkju 20.00 Hallgrímsmessa á 340. ártíð Hallgríms Péturssonar Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni sóknarpresti Hallgrímskirkju. Messan er sungin með gamla Grallaratóninu, svipað og tíðkaðist á tímum Hallgríms. Kammerkórinn Schola cantorum syngur, stjórnandi Hörður Áskelsson, organisti er Björn Steinar Sólbergsson. 31. október föstudagur Siðbótardagurinn 13.00–17.00 Siðbótarmaðurinn Hallgrímur – málþing á siðbótardegi Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor: „Krossferli að fylgja þínum...“ Eftirfylgd um stef í Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor: Hallgrímur Pétursson og 23. Davíðssálmur. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur: Sköpun og blessun í hugvekjum Hallgríms Péturssonar. Ævar Kjartansson stýrir umræðum að erindum loknum. Málþingið er samstarfsverkefni Nefndar um fimm alda afmæli siðbótarinnar 2017 og Listvinafélags Hallgrímskirkju.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.