Fréttablaðið - 23.10.2014, Side 66
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46
FÓTBOLTI „Það var mjög skemmti-
legt og mjög sérstakt fyrir mig
að fá að taka við bikarnum, sér-
staklega þar sem ég var ekki við-
stödd þegar við tryggðum okkur
titilinn,“ sagði Sara Björk Gunn-
arsdóttir sem tók við bikarnum
á sigurhátíð sænsku meistar-
anna í FC Rosengård um síðustu
helgi. Íslenska landsliðskonan var
drottningin í Rósagarðinum og er
að öllum líkingum fyrsti íslenski
knattspyrnumaðurinn sem tekur
við stórum titli sem fyrirliði síns
meistaraliðs.
Sara Björk hefur byrjað
atvinnumannsferilinn á nær sam-
felldri sigurgöngu en hún varð nú
sænskur meistari í þriðja sinn á
fjórum árum. Þetta tímabil var þó
ólíkt hinum þremur því nú var hún
komin með fyrirliðabandið.
Þjálfarinn spurði hana
„Ég var varafyrirliði í fyrra og
svo tók þjálfarinn þá ákvörðun
að ég yrði fyrirliði liðsins. Hann
spurði mig fyrir tímabilið hvort
ég vildi það og ég tók því,“ sagði
Sara Björk.
„Það eru eldri leikmenn í lið-
inu en ég veit ekki hvort þeir eru
mikið reyndari. Ég hef spilað
marga leiki og mikið með lands-
liðinu og þetta var því ekkert mál
fyrir mig,“ segir Sara Björk sem
er þrátt fyrir ungan aldur (24 ára)
komin með 78 A-landsleiki fyrir
Íslands og búin að vera byrjunar-
liðsleikmaður hjá stórliði í Svíþjóð
í fjögur tímabil.
„Við berum allar mikla virðingu
hver fyrir annarri,“ segir Sara
Björk spök, aðspurð hvort stór-
stjörnur liðsins eins og hin brasil-
íska Marta, hin þýska Anja Mittag
og hin svissneska Ramona Bach-
mann hlusti eitthvað á hana.
Ekki minni leiðtogi án bandsins
„Ég var ekki minni leiðtogi þótt
að ég væri ekki með bandið. Ég
er ekki búin að breyta mér mikið
en maður þarf náttúrlega að taka
meiri ábyrgð. Mér finnst þetta
hlutverk hafa komið til mín og ég
hef alltaf verið hvetjandi og mik-
ill leiðtogi inni á vellinum,“ segir
Sara og bætir við:
„Ég er samt meira svona leikmað-
ur sem sýnir þetta inni á vellinum
og er ekki með neinar svaka ræður
fyrir eða eftir leik. Ég sýni það á
æfingum og inni á vellinum. Ég
geri miklar kröfur til mín og allra
leikmannanna um að hafa mikil
gæði á æfingunum og í leikjun-
um. Ég hef alltaf gert það og það
er helsta hlutverk mitt sem fyrir-
liði,“ segir Sara.
„Ég spila framarlega á miðjunni
og er búin að vera að spila þar allt
tímabilið. Það hefur gengið vel.
Ég var smá vonsvikin með að hafa
skorað lítið í sumar. Ég set mér
alltaf markmið fyrir hvert tíma-
bil og ég var ekki með tvö mörk í
huga. Ég er því ekki alltof sátt með
það en á meðan við erum að skora
mörk og vinna leiki þá skiptir það
ekki máli,“ sagði Sara Björk.
Skrítið að sjá á eftir Þóru
Sara Björk byrjaði tímabilið með
annan Íslending með sér í liðinu
en Þóra Björg Helgadóttir yfirgaf
félagið um mitt sumar og fór heim
til Íslands. „Það var rosalega skrít-
ið að sjá á eftir Þóru. Öll lið myndu
sjá á eftir henni því hún er heims-
klassaleikmaður og maður finn-
ur fyrir miklu öryggi þegar hún
er í markinu. Það var smá munur
þegar hún fór og maður fann alveg
fyrir því,“ segir Sara.
Tímabilið er ekki búið þótt sænski
titillinn sé í höfn því liðið spilar
tvo Meistaradeildarleiki í nóvem-
ber. „Seinustu ár höfum við verið
smá svekktar að hafa ekki komist
lengra í Meistaradeildinni. Ég veit
ekki hvort við höfum verðskuldað
að komast mikið lengra en mér
finnst við hafa alla burði til þess
í ár. Það yrði draumur að komast í
úrslitaleikinn og það er markmið-
ið okkar. Það væri síðan toppurinn
að vinna úrslitaleikinn í Meistara-
deildinni,“ segir Sara en Rosen-
gård mætir danska liðinu Fortuna
Hjörring í sextán liða úrslitunum.
Mörg önnur augnablik
Sara Björk tók við bikarnum á
sunnudaginn umkringd stór-
stjörnum liðsins. „Þetta er í þriðja
sinn sem við vinnum bikarinn
og í fyrsta skiptið sem ég tek við
bikarnum sem fyrirliði. Auðvitað
var það sérstakt og þetta er sú til-
finning sem maður vill fá og ég
er alltaf að vinna að því sem fót-
boltakona að fá að upplifa svona
augnablik. Það eru mörg önnur
augnablik sem mig langar líka til
að upplifa,“ segir Sara.
Er ennþá ung
Sara Björk fór út 19 ára gömul og
var orðin meistari í þriðja sinn
fyrir 24 ára afmælið í lok septem-
ber. „Það var frábært skref fyrir
mig að fara beint í svona stórlið.
Ég er enn þá ung og þegar búin að
vinna þessa þrjá titla,“ segir Sara
og leynir því ekki að hún ætlar sér
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
sem verður í Berlín í maí.
„Ég hef mikla löngun í þá til-
finningu sem fylgir því að spila
úrslitaleik í Meistaradeildinni.
Við erum með það góðan hóp að
við getum gert það en við erum
jafnframt einu leikmennirnir sem
hindra okkur í að komast svona
langt. Við þurfum bara að hafa trú
á því að við getum komist svona
langt,“ sagði Sara Björk að lokum.
ooj@frettabladid.is
Íslensk drottning í Rósagarðinum
Sara Björk Gunnarsdóttir tók við Svíþjóðarbikarnum um helgina sem fyrirliði FC Rosengård en hún hefur þrisvar orðið meistari á
fyrstu fj órum árum sínum í atvinnumennskunni. „Hef mikla löngun til að spila úrslitaleik í Meistaradeildinni,“ sagði Sara Björk.
Það eru eldri leik-
menn í liðinu en ég veit
ekki hvort þeir séu mikið
reyndari. Þetta var því
ekkert mál fyrir mig.
Sara Björk um fyrirliðahlutverkið.
SÖGULEG STUND Í MALMÖ Sara Björk Gunnars-
dóttir tekur hér við bikarnum við mikinn fögnuð
liðsfélaga sinna en hún er inni í miðjum hópnum.
MYND/ROSENGÅRD/URSZULA STRINER
HANDBOLTI ÍR-ingurinn Björgvin
Þór Hólmgeirsson er markahæsti
leikmaður Olís-deildar karla í
handbolta að loknum sjö fyrstu
umferðunum en Björgvin hefur
skorað 61 mark í 7 leikjum eða 8,7
mörk að meðaltali í leik.
Björgvin Þór er 27 ára vinstri
skytta sem hefur unnið sér sæti
í íslenska A-landsliðinu með frá-
bærri frammistöðu í upphafi móts.
Björgvin Þór lét sér nægja að
skora fjögur mörk í síðasta leik
en er engu að síður með sjö marka
forskot á markalistanum enda með
samtals 42 mörk í fjórum leikjum
þar á undan.
Það er helst einn leikmaður sem
Björgvin er ekki alveg búinn að
stinga af en það er Eyjamaður-
inn Theodór Sigurbjörnsson sem
er kominn með 54 mörk í sjö leikj-
um. Theodór er 22 ára örvhentur
hornamaður sem stimplaði sig vel
inn á síðasta tímabili þegar ÍBV
varð Íslandsmeistari. Hann er
yngri bróðir knattspyrnumanns-
ins Eiðs Arons Sigurbjörnssonar.
Theodór skoraði tíu mörk í síð-
asta leik og vann þar með upp sex
mörk á Björgvin í 7. umferðinni.
Þriðji maðurinn til að rjúfa 40
marka múrinn í fyrstu sjö umferð-
unum var Akureyringurinn Sigþór
Árni Heimisson.
Sjö félög af tíu eiga fulltrúa á
topp tíu listanum þar af eiga ÍR og
Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH
tvo menn.
Topplið Aftureldingar á ekki
leikmann á topp tíu listanum en
Jóhann Gunnar Einarsson situr í
11. sætinu. Jóhann Jóhannsson er
eini annar leikmaður Mosfellsbæj-
arliðsins á topp 30 en liðið á síðan
þrjá leikmenn til viðbótar með 18
eða 19 mörk.
Þrír leikir fara fram í Olís-
deildinni í kvöld. Þeir hefjast
allir klukkan 19.30 og eru: Fram -
Valur, FH - Stjarnan og Aftureld-
ing - HK. - óój
Theodór hangir enn í Björgvin
Björgvin Þór Hólmgeirsson er markahæstur eft ir sjö umferðir í Olís-deild karla.
THEODÓR SIGURBJÖRNSSON, ÍBV
Í FYRSTU SJÖ LEIKJUNUM
29-29 jafntefli við FH 8 mörk
24-29 tap fyrir ÍR 4 mörk
22-24 tap fyrir Aftureldingu 8 mörk
33-32 sigur á Akureyri 9 mörk
29-28 sigur á Stjörnunni 6 mörk
34-22 sigur á HK 9 mörk
24-30 tap fyrir Val 10 mörk
BJÖRGVIN ÞÓR HÓLMGEIRSSON, ÍR
Í FYRSTU SJÖ LEIKJUNUM
23-23 jafntefli við Val 7 mörk
29-24 sigur á ÍBV 8 mörk
26-22 sigur á Fram 13 mörk
28-24 sigur á FH 8 mörk
28-28 jafntefli við Hauka 10 mörk
23-25 tap fyrir Aftureldingu 11 mörk
30-28 sigur á HK 4 mörk
Björgvin Þór Hólmgeirsson, ÍR 61
Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV 54
Sigþór Árni Heimisson, Akureyri 42
Ragnar Jóhannsson, FH 38
Árni Steinn Steinþórsson, Haukum 38
Adam Haukur Baumruk, Haukum 35
Egill Magnússon, Stjörnunni 35
Ásbjörn Friðriksson, FH 33
Guðmundur Hólmar Helgason, Val 33
Arnar Birkir Hálfdánsson, ÍR 32
Jóhann Gunnar Einarsson, Aftureldingu 31
Kristján Orri Jóhannsson, Akureyri 31
Andri Hjartar Grétarsson, Stjörnunni 31
Þorgrímur Smári Ólafsson, HK 31
Sigurður Örn Þorsteinsson, Fram 29
Benedikt Reynir Kristinsson, FH 28
Magnús Óli Magnússon, FH 28
Einar Sverrisson, ÍBV 28
Finnur Ingi Stefánsson, Val 27
Heiðar Þór Aðalsteinsson, Akureyri 27
MARKAHÆSTIR Í
OLÍS-DEILD KARLA: