Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 66
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46 FÓTBOLTI „Það var mjög skemmti- legt og mjög sérstakt fyrir mig að fá að taka við bikarnum, sér- staklega þar sem ég var ekki við- stödd þegar við tryggðum okkur titilinn,“ sagði Sara Björk Gunn- arsdóttir sem tók við bikarnum á sigurhátíð sænsku meistar- anna í FC Rosengård um síðustu helgi. Íslenska landsliðskonan var drottningin í Rósagarðinum og er að öllum líkingum fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn sem tekur við stórum titli sem fyrirliði síns meistaraliðs. Sara Björk hefur byrjað atvinnumannsferilinn á nær sam- felldri sigurgöngu en hún varð nú sænskur meistari í þriðja sinn á fjórum árum. Þetta tímabil var þó ólíkt hinum þremur því nú var hún komin með fyrirliðabandið. Þjálfarinn spurði hana „Ég var varafyrirliði í fyrra og svo tók þjálfarinn þá ákvörðun að ég yrði fyrirliði liðsins. Hann spurði mig fyrir tímabilið hvort ég vildi það og ég tók því,“ sagði Sara Björk. „Það eru eldri leikmenn í lið- inu en ég veit ekki hvort þeir eru mikið reyndari. Ég hef spilað marga leiki og mikið með lands- liðinu og þetta var því ekkert mál fyrir mig,“ segir Sara Björk sem er þrátt fyrir ungan aldur (24 ára) komin með 78 A-landsleiki fyrir Íslands og búin að vera byrjunar- liðsleikmaður hjá stórliði í Svíþjóð í fjögur tímabil. „Við berum allar mikla virðingu hver fyrir annarri,“ segir Sara Björk spök, aðspurð hvort stór- stjörnur liðsins eins og hin brasil- íska Marta, hin þýska Anja Mittag og hin svissneska Ramona Bach- mann hlusti eitthvað á hana. Ekki minni leiðtogi án bandsins „Ég var ekki minni leiðtogi þótt að ég væri ekki með bandið. Ég er ekki búin að breyta mér mikið en maður þarf náttúrlega að taka meiri ábyrgð. Mér finnst þetta hlutverk hafa komið til mín og ég hef alltaf verið hvetjandi og mik- ill leiðtogi inni á vellinum,“ segir Sara og bætir við: „Ég er samt meira svona leikmað- ur sem sýnir þetta inni á vellinum og er ekki með neinar svaka ræður fyrir eða eftir leik. Ég sýni það á æfingum og inni á vellinum. Ég geri miklar kröfur til mín og allra leikmannanna um að hafa mikil gæði á æfingunum og í leikjun- um. Ég hef alltaf gert það og það er helsta hlutverk mitt sem fyrir- liði,“ segir Sara. „Ég spila framarlega á miðjunni og er búin að vera að spila þar allt tímabilið. Það hefur gengið vel. Ég var smá vonsvikin með að hafa skorað lítið í sumar. Ég set mér alltaf markmið fyrir hvert tíma- bil og ég var ekki með tvö mörk í huga. Ég er því ekki alltof sátt með það en á meðan við erum að skora mörk og vinna leiki þá skiptir það ekki máli,“ sagði Sara Björk. Skrítið að sjá á eftir Þóru Sara Björk byrjaði tímabilið með annan Íslending með sér í liðinu en Þóra Björg Helgadóttir yfirgaf félagið um mitt sumar og fór heim til Íslands. „Það var rosalega skrít- ið að sjá á eftir Þóru. Öll lið myndu sjá á eftir henni því hún er heims- klassaleikmaður og maður finn- ur fyrir miklu öryggi þegar hún er í markinu. Það var smá munur þegar hún fór og maður fann alveg fyrir því,“ segir Sara. Tímabilið er ekki búið þótt sænski titillinn sé í höfn því liðið spilar tvo Meistaradeildarleiki í nóvem- ber. „Seinustu ár höfum við verið smá svekktar að hafa ekki komist lengra í Meistaradeildinni. Ég veit ekki hvort við höfum verðskuldað að komast mikið lengra en mér finnst við hafa alla burði til þess í ár. Það yrði draumur að komast í úrslitaleikinn og það er markmið- ið okkar. Það væri síðan toppurinn að vinna úrslitaleikinn í Meistara- deildinni,“ segir Sara en Rosen- gård mætir danska liðinu Fortuna Hjörring í sextán liða úrslitunum. Mörg önnur augnablik Sara Björk tók við bikarnum á sunnudaginn umkringd stór- stjörnum liðsins. „Þetta er í þriðja sinn sem við vinnum bikarinn og í fyrsta skiptið sem ég tek við bikarnum sem fyrirliði. Auðvitað var það sérstakt og þetta er sú til- finning sem maður vill fá og ég er alltaf að vinna að því sem fót- boltakona að fá að upplifa svona augnablik. Það eru mörg önnur augnablik sem mig langar líka til að upplifa,“ segir Sara. Er ennþá ung Sara Björk fór út 19 ára gömul og var orðin meistari í þriðja sinn fyrir 24 ára afmælið í lok septem- ber. „Það var frábært skref fyrir mig að fara beint í svona stórlið. Ég er enn þá ung og þegar búin að vinna þessa þrjá titla,“ segir Sara og leynir því ekki að hún ætlar sér í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem verður í Berlín í maí. „Ég hef mikla löngun í þá til- finningu sem fylgir því að spila úrslitaleik í Meistaradeildinni. Við erum með það góðan hóp að við getum gert það en við erum jafnframt einu leikmennirnir sem hindra okkur í að komast svona langt. Við þurfum bara að hafa trú á því að við getum komist svona langt,“ sagði Sara Björk að lokum. ooj@frettabladid.is Íslensk drottning í Rósagarðinum Sara Björk Gunnarsdóttir tók við Svíþjóðarbikarnum um helgina sem fyrirliði FC Rosengård en hún hefur þrisvar orðið meistari á fyrstu fj órum árum sínum í atvinnumennskunni. „Hef mikla löngun til að spila úrslitaleik í Meistaradeildinni,“ sagði Sara Björk. Það eru eldri leik- menn í liðinu en ég veit ekki hvort þeir séu mikið reyndari. Þetta var því ekkert mál fyrir mig. Sara Björk um fyrirliðahlutverkið. SÖGULEG STUND Í MALMÖ Sara Björk Gunnars- dóttir tekur hér við bikarnum við mikinn fögnuð liðsfélaga sinna en hún er inni í miðjum hópnum. MYND/ROSENGÅRD/URSZULA STRINER HANDBOLTI ÍR-ingurinn Björgvin Þór Hólmgeirsson er markahæsti leikmaður Olís-deildar karla í handbolta að loknum sjö fyrstu umferðunum en Björgvin hefur skorað 61 mark í 7 leikjum eða 8,7 mörk að meðaltali í leik. Björgvin Þór er 27 ára vinstri skytta sem hefur unnið sér sæti í íslenska A-landsliðinu með frá- bærri frammistöðu í upphafi móts. Björgvin Þór lét sér nægja að skora fjögur mörk í síðasta leik en er engu að síður með sjö marka forskot á markalistanum enda með samtals 42 mörk í fjórum leikjum þar á undan. Það er helst einn leikmaður sem Björgvin er ekki alveg búinn að stinga af en það er Eyjamaður- inn Theodór Sigurbjörnsson sem er kominn með 54 mörk í sjö leikj- um. Theodór er 22 ára örvhentur hornamaður sem stimplaði sig vel inn á síðasta tímabili þegar ÍBV varð Íslandsmeistari. Hann er yngri bróðir knattspyrnumanns- ins Eiðs Arons Sigurbjörnssonar. Theodór skoraði tíu mörk í síð- asta leik og vann þar með upp sex mörk á Björgvin í 7. umferðinni. Þriðji maðurinn til að rjúfa 40 marka múrinn í fyrstu sjö umferð- unum var Akureyringurinn Sigþór Árni Heimisson. Sjö félög af tíu eiga fulltrúa á topp tíu listanum þar af eiga ÍR og Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH tvo menn. Topplið Aftureldingar á ekki leikmann á topp tíu listanum en Jóhann Gunnar Einarsson situr í 11. sætinu. Jóhann Jóhannsson er eini annar leikmaður Mosfellsbæj- arliðsins á topp 30 en liðið á síðan þrjá leikmenn til viðbótar með 18 eða 19 mörk. Þrír leikir fara fram í Olís- deildinni í kvöld. Þeir hefjast allir klukkan 19.30 og eru: Fram - Valur, FH - Stjarnan og Aftureld- ing - HK. - óój Theodór hangir enn í Björgvin Björgvin Þór Hólmgeirsson er markahæstur eft ir sjö umferðir í Olís-deild karla. THEODÓR SIGURBJÖRNSSON, ÍBV Í FYRSTU SJÖ LEIKJUNUM 29-29 jafntefli við FH 8 mörk 24-29 tap fyrir ÍR 4 mörk 22-24 tap fyrir Aftureldingu 8 mörk 33-32 sigur á Akureyri 9 mörk 29-28 sigur á Stjörnunni 6 mörk 34-22 sigur á HK 9 mörk 24-30 tap fyrir Val 10 mörk BJÖRGVIN ÞÓR HÓLMGEIRSSON, ÍR Í FYRSTU SJÖ LEIKJUNUM 23-23 jafntefli við Val 7 mörk 29-24 sigur á ÍBV 8 mörk 26-22 sigur á Fram 13 mörk 28-24 sigur á FH 8 mörk 28-28 jafntefli við Hauka 10 mörk 23-25 tap fyrir Aftureldingu 11 mörk 30-28 sigur á HK 4 mörk Björgvin Þór Hólmgeirsson, ÍR 61 Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV 54 Sigþór Árni Heimisson, Akureyri 42 Ragnar Jóhannsson, FH 38 Árni Steinn Steinþórsson, Haukum 38 Adam Haukur Baumruk, Haukum 35 Egill Magnússon, Stjörnunni 35 Ásbjörn Friðriksson, FH 33 Guðmundur Hólmar Helgason, Val 33 Arnar Birkir Hálfdánsson, ÍR 32 Jóhann Gunnar Einarsson, Aftureldingu 31 Kristján Orri Jóhannsson, Akureyri 31 Andri Hjartar Grétarsson, Stjörnunni 31 Þorgrímur Smári Ólafsson, HK 31 Sigurður Örn Þorsteinsson, Fram 29 Benedikt Reynir Kristinsson, FH 28 Magnús Óli Magnússon, FH 28 Einar Sverrisson, ÍBV 28 Finnur Ingi Stefánsson, Val 27 Heiðar Þór Aðalsteinsson, Akureyri 27 MARKAHÆSTIR Í OLÍS-DEILD KARLA:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.