Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 23. október 2014 | LÍFIÐ | 41 Kate Bush segir að endurkomu- tónleikar hennar í London hafi verið ein „ótrúlegasta upplifun“ lífs síns. Á heimasíðu sinni þakk- aði hún öllum sem komu að horfa á hana og „urðu hluti af þessari sameiginlegu upplifun“. Bush, sem er 56 ára, kom fram á 22 tónleikum sem seldist upp á í höllinni Hammersmith Appolo í London. Á síðunni talaði hún ekkert um hvort hún ætlaði að koma aftur fram á tónleikum en þetta var í fyrsta sinn í rúma þrjá áratugi sem hún steig á svið. Tæplega 78 þúsund miðar seldust á tónleikaröðina sem stóð í fimm vikur. Bush þakkar aðdáendum KATE BUSH Það seldist upp á 22 tónleika sem söngkonan hélt í London. NORDICPHOTOS/GETTY Listamennirnir Aðalsteinn Eyþórs- son, Jón Pálsson og Brynjólfur Óla- son tóku nýverið höndum saman og stofnuðu samtökin Höfundaútgáf- an og í tengslum við hana vefsíð- una hofundur.net. „Markmiðið er að vera vettvang- ur höfunda skáldverka, fræðirita, tónlistar og sjónrænna lista sem vilja gefa verk sín út sjálfir milli- liðalaust,“ segir Aðalsteinn og bætir við að vitaskuld sé meining- in að höfundar fái sem mest í sinn hlut af andvirði seldra verka. Auk þess að halda úti heimasíð- unni þar sem verk höfunda eru kynnt og boðin til sölu, aðstoðar Höfundaútgáfan listamenn við útgáfu verka sinna. Í því felst að hafa milligöngu um prentun, próf- arkalestur, kynna verkin á sam- félagsmiðlum og hvetja til umræðu um þau. „Við miðlum þjónustunni, en sjáum ekki um framkvæmdina sem slíka. Til að standa straum af tilfallandi kostnaði gerum við ráð fyrir félagsgjöldum. Höfundaút- gáfan er ekki fyrirtæki heldur samtök höfunda, sem rekin eru af hugsjón en ekki vegna hagnaðar- sjónarmiða.“ Aukinheldur er hofundur.net kynningar- og söluvettvangur fyrir þá sem þegar hafa gefið út verk sín á eigin kostnað. Á síðunni eru verk eftir stofnendur henn- ar og fleiri. Til að mynda er þar Söngbók – Libretto Ragnheiðar óperu eftir Friðrik Erlingsson og ljóðabókin Kysstu kysstu steininn – küsse küss den stein eftir Egil Ólafsson. - vþj Farvegur fyrir frjálsa og milliliðalausa útgáfu listamanna Þeir Aðalsteinn Eyþórsson, Jón Pálsson og Brynjólfur Ólason eru forsprakkar vefsíðunnar hofundur.net og Höfundaútgáfunnar. LISTAMENN Brynjólfur Óla- son, grafískur hönnuður, Aðal- steinn Eyþórs- son myndlistar- maður, og Jón Pálsson rithöfundur. Django Unchained-leikkonan Daniele Watts og kærasti hennar, Brian James Lucas, hafa verið kærð fyrir ósiðsamlega hegðun á almannafæri en Watts var hand- tekin í Los Angeles í september eftir að lögreglu barst tilkynn- ing um ungt par í ástaratlotum í kyrrstæðum bíl. Watts sakaði lögregluþjónana um kynþáttahatur en hún sagðist ekki hafa gert neitt af sér. Lög- regluþjónarnir neituðu þessu en vitni hinum megin við götuna sögðust hafa séð parið í ástar- leikjum. Lögregluþjónninn sem hand- tók Watts segir að hún hefði getað sloppið við allt vesenið ef hún hefði aðeins sýnt skilríki eins og hún var beðin um. Hann bætti við að hann teldi ásakanir um kyn- þáttahatur vera „kaldhæðnisleg- ar“, meðal annars í ljósi þess að hann sjálfur væri samkynhneigð- ur. - þij Kærð fyrir ósiðsemi HANDTEKIN Í SEPTEMBER Watts ásakaði lögregluna um kynþáttahatur. Frá og með 1. nóvember þurfa vetrarhjólbarðar bifeiða að hafa minnst 3 mm mynstursdýpt yfir vetrartímann. Þannig aukum við öryggi í umferðinni og greiðum okkur öllum leið við erfiðar aðstæður. Samgöngustofa - Ármúla 2 - 108 Reykjavík - Sími 480 6000 - samgongustofa.is Standast hjólbarðarnir þínir breyttar reglur? Aukin mynstursdýpt – okkar allra vegna 1. nóv. til 14. apríl - mynsturdýpt a.m.k. 3 mm 15. apríl til 31. okt. - mynsturdýpt a.m.k. 1,6 mm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.