Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 ATORKUSAMUR Elías situr við og prjónar. Hann ætlar að eiga nóg fyrir jólin. MYNDIR/AUÐUNN AKUREYRI Elías er uppalinn í Hafnarfirði en þegar faðir hans, Valgeir Berg-mann Magnússon, fékk vinnu við Vaðlaheiðargöng flutti fjölskyldan norður á Akureyri. Elías ákvað að klára tíunda bekkinn í Hafnarfirði og býr því hjá frænku sinni. Hann var þó í vetrar- fríi heima á Akureyri þegar blaðamaður náði tali af honum og hafði prjónað all- nokkrar slaufur. Elías hefur vakið athygli fyrir slaufu- gerðina, síðast í Áslandsskóla þar sem nemendur söfnuðu fyrir útskriftarferð með ýmsum hætti. Hann seldi slauf- urnar sínar sem hann prjónar úr ullar- og akrýlgarni. Slaufurnar eru í öllum mögulegum litum og hægt að panta sér uppáhaldslitinn. Vel gekk að safna fyrir ferðinni. SUMARVINNAN Það er ekki langt síðan hann byrjaði að gera slaufur. Hugmyndin kviknaði í júlí í sumar en þá hafði Elías ekki fengið neina vinnu. Hann sat fyrir utan Eymundsson á Akureyri og prjónaði slaufur af krafti sem ferðamenn féllu fyrir. Slaufurnar eru ódýrar og mestur hluti ágóðans fer í efniskaup. „Báðar ömmur mínar kenndu mér að prjóna þegar ég var 8 ára. Mér hefur alltaf þótt þetta skemmtilegt. Ég hef prjónað bæði húfur og trefla en nú eru það slaufurnar,“ segir Elías. „Ég hef verið að nota vetrarfríið til að prjóna, það er ágætt að eiga lager fyrir jólin,“ segir stráksi. „Ég vonast til að selja einhverjar í jólapakkana. Mig langar til að útbúa fallegar umbúðir utan um þær. Fólk getur skoðað slaufurnar á Facebook-síðunni minni Slaufusmiðjan,“ segir Elías, sem vakti sérstaka athygli erlendra ferðamanna á Akureyri í sumar fyrir prjónaskapinn. SAFNAR FYRIR BÍL „Mér finnst mjög skemmtilegt að prjóna slaufurnar og er orðinn fljótur með hverja og eina. Ég nota síðan buxna- teygju sem ég klippi til og set tölu á endann. Það má lengja í teygjunni eftir því sem þarf,“ útskýrir Elías sem langar til að safna sér fyrir bíl, enda styttist í bílprófið. Hann segist vera orðinn svo þjálfaður í prjónaskapnum að hann getur horft á sjónvarp og prjónað um leið. „Ég reyni samt að vanda mig eins og ég get. Ég vil hafa slaufurnar vel prjónaðar.“ Elías segist hafa gaman af allri list og hefur gaman af því að skoða myndlist. Hugurinn stendur þó ekki til listsköpun- ar í framtíðinni því hann ætlar að verða verkfræðingur. „Ég er samt ekki búinn að ákveða hvort ég fari í menntaskóla hér á Akureyri eða í Reykjavík,“ segir þessi vinnusami strákur. ■ elin@365.is NOTAÐI VETRARFRÍIÐ TIL AÐ PRJÓNA SLAUFUR LISTAMAÐUR Elías Bergmann Valgeirsson er fimmtán ára nemandi í tíunda bekk við Áslandsskóla í Hafnarfirði. Þegar hann er ekki að læra situr hann og prjónar slaufur í öllum regnbogans litum. ÚRVAL Hér má sjá að slaufurnar eru í öllum litum. Icons & Idols í Los Angeles selur hluti sem hafa verið í eigu stórstjarna. Í byrjun nóvember verða föt og fylgihlut- ir sem verið hafa í eigu Madonnu boðnir upp. Þar er bæði um að ræða fatnað sem hún hefur notað á tónleikaferðalögum og í bíómyndum, til dæmis Evitu frá árinu 1996. Einnig fötin sem hún klæddist í myndbandi við lagið Material girl árið 1984. Þá er í boði brúðarkjóll sem hún klæddist þegar hún giftist leikar- anum Sean Penn árið 1985. Reiknað er með að uppboðið muni skila söngkon- unni milljónum. Uppboðshúsið Icons & Idols er með ótrúlegt safn hluta frá fræg- um persónum og má þar nefna klæðnað frá Beyoncé og Lady Gaga. Einnig er safn hljóðfæra en þar á meðal er frægur gítar frá David Bowie. Þarna er einnig safn þar sem gefur að líta gripi úr eigu Marilyn Monroe, Johns Lennon, Elvis Presley og fleiri. FÖT FRÁ MADONNU Á UPPBOÐI BLEIKUR FIMMTUDAGUR Sjá fleiri myndir á Allar peysur á 5000 kr. Mikið úrval Skokkar 5.000 kr. Margar gerðir OPIÐ TIL KL 21. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 www.rita.is NÝ TT KO RTA TÍM AB IL Við erum á Facebook RÍTA BÆJARLIND 15 ára Af því tilefni er 15% afsláttur af öllum fatnaði hjá okkur fimmtudag, föstudag og laugardag Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.