Akureyri - 30.01.2014, Blaðsíða 6
6 30. janúar 2014
Vonir bundnar
við Magnús Geir
Pétur Halldórsson útvarpsmaður
sem sagt var upp í síðustu upp-
sagnarhrinu Ríkisútvarpsins bindur
fyrir samfélagsins hönd vonir við
nýjan útvarpsstjóra, Magnús Geir
Þórðarson sem gegndi
stöðu leikhússtjóra á Ak-
ureyri áður en hann tók við
Borgarleikhúsinu. Pétur
var eini dagskrárgerðar-
maður Rásar eitt, búsettur
utan höfuðborgarsvæðisins
sem eftir var áður en hann
fékk reisupassann í nóvem-
ber ásamt tugum annarra.
Pétri hefur sviðið hvernig
samdráttur og áherslu-
breytingar innan Rúv hafa
leikið landsbyggðina.
„Ég tel mjög brýnt að
horfið verði frá þeirri
niðurskurðarstefnu sem
gengð hefur yfir t.d. Norð-
urland síðari ár. Ég held
t.d. að Magnús Geir ætti
að skilja þýðingu svæðisút-
varps, hann notaði mikið svæðisút-
varp þegar hann bjó hér fyrir norðan
og hefur lýst hvað svæðisútvarp er
gagnlegur miðill.“
Pétur segir að innan Ríkisút-
varpsins fari nánast engin dag-
skrárgerð núna fram utan höfuð-
borgarinnar. Fréttahliðin sé einnig
veik, minni umsvif á Akureyri en
áður, einn maður á Austurlandi og
enginn á Vestfjörðum. „Svo er ekk-
ert verið að tala við fólk og safna í
hljóðritasafnið en það er þó
skylda og hlutverk stofn-
unarinnar. Ríkisútvarpið
á ekki bara að miðla til
nútímans, það á að safna
upplýsingum og heimild-
um líka. Hlutverk Ríkis-
útvarpsins er svolítið eins
og hlutverk minjasafna,
Þjóðarbókhlöðunnar og
Þjóðminjasafns, það á að
safna til framtíðar.“
Pétur segist ekki útiloka
að nýr útvarpsstjóri endur-
reisi svæðisútvörp, það
mætti gera í gegnum netið.
„Það var mjög niðurdrep-
andi að hlusta á fráfarandi
útvarpsstjóra tala um að
útvarp væri deyjandi mið-
ill. Allt eins mætti segja að
sjónvarpið sé dauður miðill þar sem
myndefni er að færast á netið en það
verður örugglega alltaf útvarp, enda
er miðillinn svo aðgengilegur,“ segir
Pétur sem starfaði tæp sextán ár hjá
Rúv og er því í hópi reynslumeiri
útvarpsmanna. a
ESB-aðild bjargi verslun
„Þetta lagast ekki nema við skiptum
um gjaldmiðil og göngum í ESB,“
segir Ragnar Sverrisson, formaður
Kaupmannafélags Akureyrar um
fækkun verslana á Akureyri.
Eins og fram hefur komið hefur
hátt í tugur búða á Akureyri lagt
upp laupana. Ragnar segir það vond-
ar fréttir og aðalorsökin sé að eftir
hrun krónunnar þurfi innflytjendur
að greiða allt að tvöfalt meira fyrir
hverja evru eða danska krónu. Evran
hafi kostað 80 krónur ekki alls fyrir
löngu og danska krónan 11 krónur.
Nú þurfi að greiða 160 krónur fyrir
hverja evru og 22 krónur fyrir þá
dönsku. Þetta hafi orðið til þess að
verð á innfluttri vöru hafi hækkað
mjög mikið en þó ekki tvöfalt, því
kaupmenn hafi tekið á sig miklar
byrðar til að vega gegn hækkunum.
Þær fórnir hafi orðið til þess að sumir
gefist upp. Hrunið gengi þýði hærra
verð til neytenda, minni sölu hjá
kaupmönnum og minni tekjur.
„Já, ég vil að Ísland gangi í ESB og
ég hef verið þeirrar skoðunar í 10 ár.
Ég er búinn að starfa í verslun í 50 ár
og fylgjast með stjórnmálum mest-
allan þann tíma. Það er alltaf sama
sagan. Það eru gerðir kjarasamn-
ingar, svo kemur verðbólga, gengið
er fellt. Mín skoðun er að ástandið
lagist aldrei nema við skiptum um
gjaldmiðil og við fáum ekki nýjan
gjaldmiðil nema með því að ganga
í ESB.“ Formaður Kaupmannafé-
lags Akureyrar segir ótrúlegt að
menn loki enn augunum fyrir því
að endalaust fall íslensku krónunn-
ar sé mesta kjararýrnun Íslendinga
en samt vilji sumir ekki einu sinni
sjá hvernig samningur við ESB líti
út og tækifærin sem felist í að taka
upp evru. Hins vegar sé ekki nýtt að
búðir komi og fari á Akureyri. Eftir
breytingar standi þó eftir um 150
verslanir þannig að þótt átta eða tíu
hætti kallist það ekki hrun.
Stjórn Akureyrarstofu hefur
fjallað um fækkun verslana og hef-
ur Rúv haft eftir stjórnarformanni
Akureyrarstofu að stjórnin vilji að
atvinnumálafulltrúi bæjarins heyri
hljóðið í kaupmönnum og rannsaki
nánar skýringar vandans. a
PÉTUR HALL-
DÓRSSON
MAGNÚS GEIR
ÞÓRÐARSON
HÖFUÐSTÖÐVAR RÚV Á AKUREYRI. Völundur
GALTÓM MÚRBÚÐ Á AKUREYRI – lokar von bráðar. Völundur