Akureyri


Akureyri - 30.01.2014, Blaðsíða 20

Akureyri - 30.01.2014, Blaðsíða 20
20 30. janúar 2014 AÐSEND GREIN MARGRÉT KRISTÍN HELGADÓTTIR OG ÁSHILDUR HLÍN VALTÝSDÓTTIR. Björt framtíð Akureyrar „Nei, veistu, ég hef bara engan áhuga á stjórnmálum. En ég hef sterkar skoðanir á því hvort leikskólinn eigi að vera skólaskyldur, hvort næga at- vinnu sé að fá í bænum, hvort leigu- verð sé of hátt eða hvort göturnar séu saltaðar en ekki sandaðar.“ Flest allt sem við gerum í okkar daglega lífi tengist stjórnmálum. Við höfum öll einhverju hlutverki að gegna í þessu stjórnmálaneti sem Akureyri er; við erum hér starfsmenn, sækjum hér skóla, eigum hér börn í leikskóla og/ eða skóla, búum hér og svo framvegis. Flest sem viðkemur okkar daglega lífi eru ákvarðanir sem einhverntímann hafa verið teknar af einstaklingum í stjórnmálum. Einstaklingum sem vita ekkert endilega meira en hinir. Venju- legum mannlegum einstaklingum. Það sem fær fólk til að segjast ekki hafa áhuga á stjórnmálum er oftar en ekki umgjörð þeirra. Hug- myndin sem fólk fær er að stjórnmál séu leiðinleg og að ekki sé reynandi að taka þátt í þeim þegar málinu er einmitt öðruvísi háttað – stjórnmál eru skemmtileg og þú getur haft áhrif. Forgangsröðum rétt Staðreyndin er sú að bæjarbúar Ak- ureyrar eru upp til hópa vel meðvit- aðir einstaklingar. Við höfum okkar skoðanir á hlutunum og viljum að á okkur sé hlustað. Við vitum sem er að bærinn okkar er ekkert öðruvísi en heimili, og flest höfum við komið að rekstri heimilis með einum eða öðrum hætti. Við þurfum að for- gangsraða rétt; vantar okkur hlut- inn núna eða má það bíða? Eru aðrir og mikilvægari liðir í heimilisbók- haldinu sem þurfa að ganga fyrir? Stundum eru til peningar til fram- kvæmda og stundum ekki, stundum er réttlætanlegt að taka yfirdrátt eða lán fyrir nýjum bíl, stundum ekki. Heimilismeðlimir þurfa all- ir að koma að ákvörðunartökunni því það er augljóst að ef bíllinn er keyptur þarf væntanlega að skera niður annars staðar og um það þarf að ríkja sátt. Við vitum, og kennum börnunum okkar, að ef við viljum ná ákveðnu markmiði þá þarf að vinna fyrir því. Gerum okkar besta Við viljum að borin sé virðing fyrir bæjarbúum, að meira sé hlustað og minna talað. Við viljum að við getum öll unnið saman að því að ná mark- miðum samfélagsins okkar, bæjarins okkar, heimilisins okkar. Við trúum því að samvinna sé svarið. Bjarta Framtíð. Margrét Kristín Helgadóttir og Áshildur Hlín Valtýsdóttir. 108 sóttu um 6 störf Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að flytja þjónustuver sem rekið hef- ur verið í Reykjavík til Akureyrar og Siglufjarðar. Með flutningnum fjölgar störfum á svæðinu um fimm til sex og verður nýja þjónustuverið opnað í dag, Hafnarstræti 95. Í grein Gunnars Karlssonar sem birtist í Tíund segir að Ríkisskatt- stjóri hafi frá árinu 2008 rekið þjón- ustuver þar sem öllum símtölum til stofnunarinnar sé svarað. Með því sé leitast við að liðsinna framtelj- endum og öðrum viðskiptamönnum í gegnum síma og eftir atvikum með tölvusamskiptum. Um leið er slíku álagi létt af öðrum starfsmönnum stofnunarinnar og eykst þannig framleiðni. Eftir sameiningu skatt- yfirvalda varð hlutverk þjónustu- versins mikilvægara en áður og það eflt með fjölgun starfa. Þá var ákveðið að hluti af þjónustuveri rík- isskattstjóra yrði staðsettur á Siglu- firði og síðar einnig Akureyri. Með þeim breytingunum nú sé skilið á milli þjónustuvers og nærþjónustu á Laugavegi 166, en fram að þessu hafi sömu starfsmenn sinnt afgreiðslu og þjónustuveri og skipt þeim ver- kefnum á milli sín. Hvort tveggja sé jafn mikilvægt, að sinna símsvörun og að afgreiða þá viðskiptavini sem koma á staðinn. Á annatímum geti skapast mikið álag á starfsmenn og til þess að leysa þessi mál betur varð úr að skipta störfunum upp og reka þjónustuverið alfarið á Norðurlandi. STERK EINING BYGGÐ UPP Með breytingunum sé einnig verið að byggja upp sterka einingu á Ak- ureyri til mótvægis við starfstöðv- arnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki spilli að á Akureyri sé gott framboð á stöðugu og vel menntuðu vinnuafli. Glöggt dæmi um það er að 108 hæfir einstaklingar sóttu um 5-6 stöður sem auglýstar voru í október sl., þar af langflestir af Eyjafjarðarsvæðinu. Þeir starfsmenn sem hafa til þessa starfað í þjónustuveri á Laugavegi munu ýmist starfa áfram í afgreiðsl- unni þar eða flytjast í önnur störf. BYLTING Í RAFRÆN- UM SAMSKIPTUM Gunnar Karlsson segir að á undan- förnum árum hafi krafa samfélagsins um bætta þjónustu opinberra aðila aukist. Markmið ríkisskattstjóra hafi verið að vera í fararbroddi við að bæta þjónustu við einstaklinga og atvinnulíf án þess að það leiddi til aukins kostnaðar og þar hafi bylting í rafrænum samskiptum skipt sköp- um. Leggja þurfi enn meiri áherslu á að einstaklingar og fyrirtæki geti í sem ríkustum mæli afgreitt sig sjálfir hvenær og hvar sem er. Það gildi um ýmsar umsóknir, tilkynningar, vott- orð, afrit af framtölum, gagnaskil og fleira sem snýr að samskiptum við stofnunina. Meginreglan ætti að vera að hægt væri að fylla eyðublöð út á netinu, senda inn, fylgjast með afgreiðslu og fá úrlausn mála. Heimsóknum myndi fækka, bið í afgreiðslu myndi styttast og sama myndi gilda um símtöl. Í samræmi við það er verið að þróa enn frekar farveg fyrir rafræn erindi, kærur og leiðréttingarbeiðnir einstaklinga og lögaðila á þjónustusíðunni skattur. is og gera hana enn aðgengilegri en nú er. Þegar erindi og annað er sent í gegn um þjónustusíðuna er það ígildi undirskriftar þar sem farið er inn á síðuna með veflykli eða rafrænum skilríkjum. AÐ EINFALDA MÁLIN „Markmiðið er að gera framtalsskilin og allt sem þeim tengist eins auðvelt og kostur er. Stóraukin áritun upp- lýsinga inn á framtalið er stór liður í því, auk þess að gera viðmótið eins þjált og hægt er. Auðveldara er að nálgast leiðbeiningar við útfyllingu eða yfirferð rafræna framtalsins inni í framtalinu sjálfu og stöðugt er unnið að því að bæta upplýs- ingavefinn rsk.is og þjónustuvefinn skattur.is. Jafnframt þarf að stefna að því að fólk geti nálgast sem mest af þeim upplýsingum um sig sjálft sem geymdar eru í kerfum stofn- unarinnar og að á þjónustusíðu hvers og eins verði að finna samskiptasögu hans við embættið. Huga þarf vel að þörfum allra samfélagshópa, t.d. má ekki gleyma innflytjendum, þeim sem búa í dreifbýli, aðilum erlend- is, eldri borgurum og þeim yngstu,“ segir Gunnar. VERKEFNI ÞJÓNUSTUVERSINS Auk símsvörunar svarar þjónustu- verið öllum tölvupósti sem ekki er stílaður á einstaka starfsmenn, fyr- irspurnum úr SOS (spurt og svarað) og fyrirspurnum af Norræna skatta- vefnum, Nordisk eTax. Starfsfólk í þjónustuveri aðstoðar einnig við ýmis önnur verkefni, t.d. varðandi beiðn- ir einstaklinga um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna aðkeyptrar vinnu. Nokkrum sinnum á ári mynd- ast verulegir álagspunktar, bæði í afgreiðslum ríkisskattstjóra og við símsvörun. Þetta verður einkum við staðgreiðslu- og virðisaukaskattsskil, fyrirframgreiðslu vaxta- og barna- bóta, á framtalsfresti í mars, við út- sendingu á tilkynningarbréfum eftir miðjan júlí í tengslum við álagningu á einstaklinga og svo þegar álagning einstaklinga er birt undir mánaða- mótin júlí-ágúst. MESTA ÁLAGIÐ Í MARS Mest er álagið í mars ár hvert en þá berast um 50.000 símtöl, flest í tengslum við umfangsmikla aðstoð í tengslum við framtalsskil einstak- linga. Í afgreiðsluna á Laugavegi koma allt að 1.000 manns dagana þegar mest er við lok almenns framtalsfrests einstaklinga, að sögn Gunnars. a BOÐIÐ VERÐUR UPP á móttöku og kaffi í tilefni tímamótanna í dag klukkan 15:30, í húsnæði RSK á 6. hæð, Hafnarstræti 95. Leikfélagið gerir samning Leikfélag Akureyrar, Flugfélag Ís- lands og Icelandair Hótel Akureyri hafa gert með sér samstarfssamninga. Í tilkynningu segir: Flugfélag Íslands hefur verið einn af öflug- ustu bakhjörlum LA um árabil og hafa félögin endurnýjað samstarf sitt. Með stuðningi flugfélagsins hef- ur leikfélaginu reynst mögulegt að vinna með listamönnum hvaðanæva af landinu. Einnig hafa félögin boðið upp á leikhúsferðir til Akureyrar í tengslum við uppsetningar LA nú síðast Gullna hliðið sem fengið hefur fádæma góðar viðtökur.“ Icelandair Hótel Akureyri og leikfélagið efla nú samstarf sitt enn frekar. Með því að gista á Icelandair Hótel Akureyri geta gestir nýtt sér gisti- og leikhústilboð. Auk þess munu listamenn frá Leikfélagi Ak- ureyrar koma fram reglulega í and- dyri hótelsins gestum og gangandi til upplífgunar og yndisauka. Öllum þessum aðilum er umhug- að að stuðla að fjölgun ferðamanna og eflingu menningartengdrar ferða- þjónustu á Akureyri yfir vetrartí- mann og taka nú höndum saman í þeim tilgangi. a SAMSTARF HANDSALAÐ Á frumsýningu Gullna hliðsins: Sigrún Björk Jakobsdóttir, hótelstjóri Icelandair Hótel Akureyri, Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri LA, Gróa Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri FÍ. Auðunn Níelsson Flest sem viðkem- ur okkar daglega lífi eru ákvarðanir sem einhverntímann hafa verið teknar af einstaklingum í stjórnmálum.

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.