Akureyri


Akureyri - 30.01.2014, Blaðsíða 13

Akureyri - 30.01.2014, Blaðsíða 13
1330. janúar 2014 Norðlendingar fjölmenntu á alþjóðlegt bridgemót Síðastliðinn fimmtudag voru allar Fokker vélar Flugfélags Íslands frá Akureyri til Reykjavíkur meira og minna fullar af norðlenskum íþrótta- mönnum sem sátu með kerfiskort eða sagnþrautir og tuldruðu upphátt eða í hálfum hljóðum ýmsar stöð- ur þar sem spaðar, hjörtu, tíglar og lauf komu við sögu. Fjölmennur hópur bridgespilara hafði ákveðið að skella sér suður til Reykjavíkur á firnasterkt alþjóðlegt bridgemót. Mótið er árvisst, kennt við Icelanda- ir, en gengur jafnan undir nafninu Bridgehátíð meðal Íslendinga. Urm- ull erlendra stórspilara kom saman á Hotel Natura sem áður hét Hótel Loftleiðir en alls kepptu á fimmta hundrað spilara í bridge frá fimmtu- degi til sunnudags í síðustu viku. Þar af komu um tveir tugir spilara frá Eyjafirði og úr Þingeyjarsýslum þetta árið. Hafa Norðlendingar e.t.v. aldrei verið fleiri á þessu stórmóti. VITSMUNALEG GLÍMA Greinarhöfundur er í hópi bridgeá- hugamanna. Tók þátt í tvímenningn- um og spilaði við Steina Fríðu eins og hann var alltaf kallaður þegar hann bjó á Dalvík. Fullu nafni heitir hann Þorsteinn Helgi Guðbjörnsson og er drengur góður. Þorsteinn býr í Reykjavík og starfar sem smiður. Ekki var eyfirsk-þingeyska hersingin fyrr lent á Reykjavíkurflugvelli en Þorsteinn kom hlaupandi úr miðri húsbyggingu með hamarinn, nýbú- inn að negla í spýtu. „Ertu líka með bridgehamarinn á þér?“ spurði ein- hver. Vitandi vel að í keppnisbridge vinnast ekki mótssigrar nema að barið sé á andstæðingnum. En bar- smíðin verður að eiga sér stað með raffíneruðum hætti. Engum líkam- legum hnefahöggum má beita, ekki heldur hamarshöggum. HRAÐNÁMSKEIÐ Í SPILINU Í bridge er á stórmótum notast við keppnisform sem gerir þátt heppn- innar eins léttvægan og hægt er. Samanburður fólks sem fær sömu spil og spilarar á næstu borði tryggir að hvort sem spilari fær góð eða vond spil mun gengi ráðast af því hvernig farið er með löku spilin, ekki síður en þau góðu. Að segja 6 grönd og fá 13 slagi getur þýtt að sagnhafi fáir ekki eitt einasta stig í tvímenningi ef allir hinir hafa tækni eða þor til að segja og standa 7 grönd. Í grandi er ekkert tromp en annars eru spilaðir tromp- samningar. Lægstu samningar eru eitt lauf/einn tígull og fyrir svoleiðis fást 70 stig fyrir sjö slagi. Galdurinn felst í því að lýsa spilunum í sam- vinnu við meðspilara (makker) og spila þá samninga sem best hæfa spilunum. Hvati er fyrir áhættu þannig að spilin nýtist að fullu. Að segja lítið með mikil spil þýðir að jafnaði laklegt skor. En það er hægt að refsa andstöðunni ef manni sýnist sem hún hafi klifið of hátt og of hratt eins og fuglinn Fönix sem flaug of nálægt sólinni. Vængir geta sviðnað og spilarar fallið til jarðar. Stund- um er legan í spilunum banvæn, stundum fara spil dobluð niður sem hefðu unnist alla aðra daga ársins, í venjulegu leguárferði. En það gerir ekkert til. Spilin liggja þá eins illa á hinum borðunum. Leikurinn snýst um minni, talningu, rökvísi, virðingu og dálitla sálfræði. Blekkisagnir eru leyfðar en þær þarf að brúka spar- lega eins og í pókernum. ERFIÐUR HÚMOR! En aftur þá að tvímenningnum. Mótið hófst á því að forsætisráð- herra þjóðarinnar, Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson, setti mótið. Hann spilar sjálfur ekki bridge en hyggst læra íþróttina, að sögn. Hann hafði skroppið á Internetið og flett upp nokkrum bridgebröndurum til að létta spilurum spennuþrungið and- rúmsloftið við upphaf mótsins. En bridgeheimurinn er afar sérhæfður heimur. Forsætisráðherra upplýsti að við þaulskoðun bridgebrandaranna hafði hann ekki skilið sjálfur einn einasta bridgebrandara og tók ekki sénsinn á því að segja eitthað sem hanngat ekki vitað hvort væri fyndið eða ekki. Þetta fannst bridgespilur- um býsna fyndið hjá forsætisráð- herra. Þetta var brandari sem stóðst, enda eru bridsarar hálfgerðar geim- verur í hugra margra. SORGIR OG SIGRAR Svo hófst mótið. Snemma tóku Pakistaninn Zia Mahmood og Andrew Robson frá Bretlandi for- ystuna. Zia er fræhasti spilari í heimi eftir að Omar Sharif leikari lagði spilin á hilluna. Zia lét forystuna aldrei af hendi og vann mótið með yfirburðum ásamt Robson. En fleiri gerðu það gott, a.m.k. tímabundið. Að loknum fyrri kepnnisdegi höfðu Stefán Vilhjálms- son og Gylfi Pálsson frá Akureyri skorað helling af stigum og voru í toppbaráttunni. Síðari dagurinn gekk ekki eins vel en þeir náðu að upplifa það sem margan Íslendinginn dreymir um. Að vera í fremstu röð á sterku alþjóðlegu stórmóti um tíma. Margan dreymir um minna. Sumir voru sorgmæddir í mótslok eftir að hafa spilað langt undir væntingum. Ekki við Steini Fríðu þó. Við vorum bara hressir. DÆMIGERÐ RUNA Þegar upp var staðið stóðu Anton Haraldsson og Pétur Guðjónsson frá Akureyri sig best norðlenskra para. Að tvímenningi loknum slógu Akureyringar upp veislu á hóteli í borginni þar sem flestir höfðu kosið að gista saman. Þá gerist það sem fæstir botna í að menn fara milli veislufanga að þylja upp langar run- ur af spilum sem þeir hafa spilað í mótinu: Dæmigerð runa er: „Þú átt kónginn fimmta, drottningu aðra, tvo hunda og ásinn annan, hvað ætlarðu að melda í fjórðu hendi eftir að sagn- ir ganga 1 spaði, dobl, pass? Allir á hættu og þú ert að spila gegn Fred- in á vinstri hönd sem hefur unnið Bermúdaskálina...“ ALLIR KOMU ÞEIR AFTUR... Þannig liðu fjórir dagar við leik og störf. Sjálfur hafði ég ekki tök á að taka þátt í sveitakeppninni heldur sneri aftur snemma á laugardag norður til Akureyrar þar sem sólin baðaði bæinn birtu við heimkomu. En hinum megin, í borginni við sund- in, voru bridsarar að fram á sunnu- dagskvöld. Seinni tveir dagar stór- mótsins fóru í sveitakeppni þar sem fjórir til sex eru saman í liði í stað tveggja í tvímenningi. Mörgum finnst mikill auður í samveru af þessu tagi. Sumir eru reyndar þeirrar gerðar að njóta þess að rífa andstæðingana á hol, svona rökfræðilega. Aðrir njóta þess fyrst og fremst að lifa líðandi stundu og kynnast mótleikurum, erlendum sem innlendum spilurum. Sumir segja að innræti fólks komi í ljós við spilaborðið. Og ólíkt sumum öðrum íþróttum er meiðslahætta í bridgeíþróttinni hverfandi. Enda sneru Una Sveinsdóttir, Ragnheiður Haraldsdóttir, Ólína Sigurjónsdóttir, Reynir Helgason, Þórhallur bóndi og Sigurður Marteinsson, aldurshöfð- ingi Norðlendinga, eins heil aftur norður að rimmunni lokinni og þau höfðu farið suður. Eru þá aðeins örfá nefnd af bridgeferðalöngum norð- lenskum, sem reynslunni ríkari halda nú áfram iðju sinni til vors, að telja hunda, mannspil og annað það líf sem hrærist í spilunum hverju sinni. Bridge er fyrst og fremst vetraríþrótt. Geta má þess að Bridgefélag Ak- ureyrar spilar vikulega á þriðjudags- kvöldum og er vel tekið á móti ný- liðum og aðstoðað við myndun para. Formaður er Stefán Vilhjálmsson. Björn Þorláksson ÞRÍR AKUREYRINGAR. Þeir Stefán Stefánsson, Skúli Skúlason og Pétur Gíslason eru allir Akureyringar. Þeir láta sig ekki vanta á Bridgehátíð. Bergur Reynisson frá Reykjavík er lengst til vinstri. ZIA MAHMOOD OG ROBSON. Rúlluðu upp tvímenningnum. Bridgesamband Íslands. GYLFI PÁLSSON ÍBYGGINN í bridsinum. Datt í stuð á Bridgehátíð.

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.