Akureyri - 30.01.2014, Blaðsíða 8
8 30. janúar 2014
AÐSEND GREIN ÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIR
Veljum konur í forystusætin
Fjölmargar mætar konur bjóða sig nú
fram til að taka sæti á framboðlistum
Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórn-
arkosningar í vor. Öll hljótum við að
vera sammála um að sá hópur
sem valinn verður til forystu
þarf að endurspegla samfé-
lagið sem við búum í til þess
að þjóna því sem allra best.
Konur eru helmingur þjóðar-
innar. Það er því mikilvægt að
þær komi að ákvörðunum og
stefnumótun í sveitarstjórnum
í forystusætum listanna eins
og karlar. Konur búa einnig yfir gríðar-
legri reynslu, þekkingu og menntun, sem
samfélagið hefur einfaldlega ekki efni
á að nýta ekki.
Sóknarfæri með konum
Við sjálfstæðisfólk höfum mikið rætt
það undanfarið hvernig við getum eflt og
styrkt flokkinn okkar, hvernig við náum
til fleiri kjósenda og þannig tryggt að
stefna Sjálfstæðisflokksins verði höfð
að leiðarljósi við ákvarðanir
í sveitarstjórnum. Stærsta
sóknarfærið er að kjósa konur.
Með því að fleiri konur verði í
áhrifastöðum í stjórnmálum og
forystusætum framboðslista
eru meiri líkur á því að stefna
Sjálfstæðisflokksins höfði til
beggja kynja. Þannig sýnum
við í verki breiddina í Sjálf-
stæðisflokknum, sem er flokkur allra
stétta, flokkur karla og kvenna.
Þátttaka beggja kynja skilar betri
árangri
Nú er ég ekki að halda því fram að konur
séu gáfaðri, sterkari, hugmyndaríkari
eða ábyrgari en karlar – heldur að þær
eru engu síðri. Því ætti ekki að vera nein
ástæða til þess að kjósa þær ekki, heldur
fagna fjölbreytninni og því að konur og
karlar nálgast verkefnin á ólíkan hátt en
þannig verði betri niðurstaða með þátt-
töku beggja kynja. Að greiða atkvæði í
prófkjöri er mikil ábyrgð, atkvæðið er
yfirlýsing um það hverjum við treystum
best til þess að leiða lista Sjálfstæð-
isflokksins. Atkvæði okkar ræður úr-
slitum um það hversu sigurstranglegur
listi flokksinns verður í kosningunum
í vor. Með því að raða í forystusæti –
bæði körlum og konum – tryggjum við
fjölbreytni, trúverðugleika og öflugan
Sjálfstæðisflokk í sveitarstjórnum á
næsta kjörtímabili.
Höfundur er formaður
Landssambands sjálfstæðiskvenna.
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem
sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í
blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu-
póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856.
LOF OG LAST VIKUNNAR
LOF fær Ríkissjónvarpið fyrir að sýna
hinn stórmerka þátt, Aldamótabörn. Karl
á Brekkunni hefur þessa skoðun og skrifar
hana í pósti til blaðsins. Segir karlinn að allt
efni frá BBC sé mikilvægt að sýna hér á landi.
Stundum detti honum í hug að betur væri
komið fyrir oss að þýða bara BBC og slökkva
á innlendum stöðvum.
LAST fær ökukennarinn sem ekur um á
gamalli Mözdu og leggur bílnum sínum alltaf
upp á gangstétt við tiltekna götu á Akureyri.
Svo ritar kona í pósti til blaðsins. Segir konan
að ökukennaranum þyki greinilega erfitt
að keyra inn í götuna sína. Hann sé fína
fyrimyndin!
LOF fá Húsvíkingar og nærsveitungar
í Framsýn fyrir að kolfella kjarasamning
óhræddir við að standa uppi í hárinu á
atvinnurekendum og láta ekki fara illa með
sig. Svo mælir kona úr Þingeyjarsýslum sem
hafi samband við blaðið.
LOF fær Eyþór Ingi Jónsson, organisti í
Akureyrarkirkju, fyrir magnaðan húmor
auk annars. Þetta segir vinur blaðsins sem
rak nýverið augun í facebook færslu frá
organistanum þar sem hann lýsti ótta sínum
við heilsukvilla. Hann var búinn að verja
tugum þúsunda í rannsóknir eftir að hann
varð var við að eigið þvag hafði dökknað
mjög svo minnti á rauðvín. Vinkona hans
reddaði honum þó daginn áður en hann
átti að fara í þvagblöðruskimun þegar hún
uppgötvaði að Eyþór Ingi drakk rauðrófusafa
á hverjum degi. „Ég hlakka til að afpanta
tímann í þvagblöðruskimuninni í fyrramálið.
Vegna þessarar reynslu get ég miðlað þessu
til ykkar: Ef þið drekkið rauðrófusafa, ekki
fara á taugum ef ykkur sýnist gott Shiraz
vera í klósettskálinni,“ skrifar húmoríski
kórstjórinn og organistinn Eyþór Ingi.
LAST fær Hanna Birna fyrir hroka og
djöfulgang í hinu svokallaða lekamáli. Svo
mælir karl á Siglufirði. Hann segir ráðherrann
verjast með offorsi sem bendi til að hún hafi
ekki hreina samvisku.
AKUREYRI VIKUBLAÐ 4. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2013
ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is.
AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193.
RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri.
UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING
14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND
ÞÓREY VIL-
HJÁLMSDÓTTIR
ÞAU ERU MÖRG handtökin hjá starfsmönnum Akureyrarbæjar og eins gott að brosa bara í dagsins önn. Völundur
Ljóta
leikritið!
Það hefur ekki verið neinn útvarpsstjóri fyrir Akur-eyringa síðustu ár. Eitt af flaggskipum stofnunar-
innar, svæðisstöðin á Akureyri, var lögð af eftir hrun.
Áður höfðu daglegar fréttir og stundum oft á dag birst
í sjónvarpi að norðan. Innslög voru unnin um hitt og
þetta, jafnvel heilu þættirnir. Landsfréttatímar í útvarpi
voru fullir af norðlensku efni. Á Akureyri var búsettur
dagskrárstjóri Rásar 2, einn umsjónarmanna Síðdegis-
útvarpsins á Rás 2 var búsettur hér og keyrði þáttinn í
beinni héðan. Dagurinn byrjaði á Rás 2 á morgunþætti
héðan að norðan. Dagskrárgerðarmenn á Rás 1 störfuðu
hér í fullum stöðum og voru menningarvakar. Ónefnt er
svæðisútvarpið, vettvangur frétta og forvitnilegheita úr
héraði, allt vestur frá Hrútafirði austur að Vopnafirði.
Þetta var mikil útgerð en ekki varð maður var við
annað en að Reykvíkingar kynnu vel að meta framleiðsl-
una, ekki síður en flestum Íslendingum finnst Landinn í
dag forvitnilegur, gildir einu hvaðan fjallað er um fólk.
Fréttamenn búsettir á Akureyri fóru um allt Norðurland
á þessum árum. Stundum fór útsending svæðisútvarpsins
fram utan Akureyrar. Það var mikil dýnamík á starfstöð
Rúvak á þessu tímabili og metnaðarfull stefna. Stofnunin
var ekki bara gleðigjafi og menningarfarvegur heldur
veitti hún líka heimaríkum ráðamönnum aðhald. Skaði
Norðlendinga varð því mikill þegar svæðisútvörpin voru
lögð af og í raun var það skref fáheyrð móðgun við alla
og allt ef tekið er tillit til þess hve mikil fagreynsla
hafði safnast upp á þessu svæði. Þess má til dæmis geta
að heimilisvinir eins og Gestur Einar Jónasson leikari
höfðu verið höfundar vinsælustu útvarpsþátta landsins.
Einn góðan veðurdag kom svo sendinefnd að sunnan í
heimsókn. Norðlensku starfsfólki var sagt upp og skrúfað
fyrir svæðisútvarpið. Miklu starfi og menningarsögu var
hent á haugana. Því var borið við að krafa um sparnað
kallaði á slíkt andlegt og veraldlegt blóðbað fyrir Norð-
lendinga en fjölmiðlastörfum fækkaði mjög á Akureyri
í kjölfar niðurskurðarins.
Forgangsröðun fjármuna og höfuðborgarmiðuð sýn
yfirstjórnenda Ríkisútvarpsins þýddi mikið tjón ekki
bara fyrir landsbyggðirnar heldur Ísland allt. Þróunin
hefur smám saman færst út í það að fyrir utan einn
starfsmann í erlendum fréttum sem starfar á Akur-
eyri, sem er vel, hefur frekast legið fyrir akureyrskum
starfsmönnum Rúv að búa til í innslög í Landann auk
takmarkaðrar fréttavinnslu, enda fólkið fátt. En nú
hefur tekið við nýr útvarpsstjóri hjá Ríkisútvarpinu.
Hann er Akureyringum að góðu kunnur, fyrrum leik-
hússtjóri Leikfélags Akureyrar. Magnús Geir Þórðarson
gæti haft meiri skilning á skyldum almannaútvarps og
þeim menningarlega fjölbreytileika sem því er ætlað að
standa fyrir en sumir yfirmenn Ríkisútvarpsins fram til
þessa. Norðlendingar bíða spenntir eftir verkum hins
nýja stjóra. Norðlendingar bíða bjartsýnir og spenntir.
Það er orðið tímabært að nýr útvarpsstjóri starfi fyrir
Akureyri og Norðurland eins og aðrar byggðir landsins.
Annað yrði ljóta leikritið!
Björn Þorláksson