Akureyri - 20.02.2014, Side 10
10 7. tölublað 4. árgangur 20. febrúar 2014
AUGLÝSINGASÍMINN ER 578-1190
Fjáröflunarátak
Fjáröflunarátakið Út að borða fyr-
ir börnin er nú hafið í fjórða sinn
og stendur yfir til 15. mars. Barna-
heill – Save the Children á Íslandi
standa að átakinu í samvinnu við 22
veitingastaði sem gefa andvirði, eða
hluta andvirðis, af völdum réttum.
Með því að taka þátt í átakinu styður
fólk verkefni Barnaheilla gegn of-
beldi og börnin fá að gera eitthvað
skemmtilegt með fullorðna fólkinu.
Átakið nýtur vaxandi vinsælda,
en á síðasta ári tóku 16 veitingastað-
ir þátt. Nú eru þeir 22 talsins, þar
af nokkrar keðjur sem starfa víða
um land.
Á Akureyri leggja nokkrir
veitingastaðir málefninu lið. 35%
af sölu Domínós fara til Barna-
heilla, 25% af sölu Hamborgarafa-
brikkunnar, 25% af sölu Striksins
og 25% af sölu Subway.
Samkvæmt barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna eiga öll börn rétt á
vernd gegn hvers kyns ofbeldi; lík-
amlegu, andlegu og kynferðislegu
- og þau eiga rétt á vernd gegn einelti
og vanrækslu. a
KEA-mótaröðin
fer vel af stað
Einu kvöldi í KEA mótaröðinni í
hestaíþróttum er lokið. Knapar í
flokknum 17 ára og yngri sýndu
mikla takta að sögn mótshaldara
og nýir keppendur settu svip sinn á
mótið. Keppendur komu víða að allt
frá Reyðarfirði í austri, norður fyrir
að Reykjavík í suðri.
KEA mótaröðin hófst fimmtu-
dagskvöldið 13. febrúar en hún
er með breyttu sniði í ár því nú er
liðakeppni. Fimm lið keppa og eru
liðsstjórar þau Anna Catharina Gros,
Baldvin Ari Guðlaugsson, Guð-
mundur Hjálmarsson, Viðar Braga-
son og Þorbjörn Hreinn Matthíasson.
Mikil spenna er á milli liða
og meðal hestamanna hafa verið
skemmtilegar vangaveltur um úrslit.
Sjaldan hafa jafnmargir komið að fé-
lagsmóti hjá Létti í langan tíma sem
sýnir að sögn forráðamanna grósku
og uppgang. Stjórn mótaraðarinnar
hafi verið mjög samstíga í að gera
viðburðinn sem hátíðlegastan.
Næst verður keppt í Reiðhöllinni
í mótaröðinni næsta fimmtudags-
kvöld. a
VESTNORD LÖGMENN ER lögmannsstofa sem Gísli Tryggvason, sem Akureyringum er
vel kunnur, og Eyjólfur Ármannsson hdl. stofnuðu í upphafi árs. Vinum og velunnur-
um var boðið í opnunarhóf af því tilefni á dögunum.
SIGURVEGARAR Í FLOKKNUM 17 ára og yngri sl. fimmtudagskvöld
VETRARRÁÐSTEFNA SÁLFRÆÐINGA
Vetrarráðstefna Félags sálfræðinga á Norður- og Austurlandi, í samstarfi við
Sálfræðibraut Háskólans á Akureyri, verður haldin föstudaginn 28. febrúar
næstkomandi, kl 13:30-17:30 í húsakynnum Háskólans á Akureyri á Sólborg.
Á dagskrá eru fjölbreytt erindi um ýmis viðfangsefni sálfræðinnar og
eru erindrekar ýmist fræðimenn og/eða klínískir meðferðaraðilar.
Steinunn Gestsdóttir fjallar um þýðingu sjálfstjórnar barna fyrir farsælan
þroska; Halla Helgadóttir segir frá Kötlu greiningaraðferð, þ.e. heilaritum
sem notuð eru til að greina ADHD hjá börnum; Margrét Bárðardóttir talar
um núvitund í sálfræðilegri meðferð; Hjalti Jónsson flytur tónlistaratriði;
Ársæll Már Arnarssson greinir frá vímuefnanotkun 10. bekkinga á Akureyri
skólaárið 2013-2014; og Alice H Björgvinsdóttir og Sigrún V. Heimisdóttir
fjalla um áhrif sérhæfðar félagsfærnimeðferðar í hópi á sjálfsmat.
Verð er kr. 4000 og fer skráning fer fram á netfanginu fsnaust@gmail.
com til og með 24. febrúar.
Margvísleg störf í boði.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar: www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt
Sumarstörf hjá Akureyrarbæ
Umsóknartímabil sumarstarfa
2014 er hafið
10 | SÓKNARFÆRI
Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður
Símar:
467 1205 - 467 1203 - 692 5060 - 869 4441
„Þróun á veiðarfærum er mikilvægur
þáttur í starfi netaverkstæða Ísnets.
Þegar veiðarfæri er þróað, annað-
hvort frá grunni eða eldri gerðir
veiðarfæra endurbættar, þá er í öll-
um tilfellum unnið með skipstjórum
fiskiskipa annars vegar og birgjum
félagsins hins vegar. Það er megin
markmið okkar að prófa þau veiðar-
færi sem við þróum í tilraunatanki
til að fá sem bestar niðurstöður um
veiðarfærin áður en þau eru fram-
leidd í raunstærð,“ segja þeir Birkir
Agnarsson framleiðslustjóri og Kári
Páll Jónasson rekstrarstjóri hjá Ísneti
en í október fór um 50 manna hóp-
ur frá Ísfelli til Hirtshals í Dan-
mörku þar sem ný dragnót og
rækjutroll frá fyrirtækinu voru
kynnt. Í hópnum voru innlendir og
erlendir viðskiptamenn félagsins,
ásamt fulltrúum frá Selstad, Mor-
gére og Garware Wall-Ropes og
starfsmönnum Ísfells. Hægt er að
segja að hópurinn hafi verið fjöl-
þjóðlegur þar sem gestir voru frá Ís-
landi, Grænlandi, Færeyjum, Dan-
mörku, Noregi, Frakklandi, Þýska-
landi, Kanada og Indlandi.
Ný dragnót lítur dagsins ljós
Starfsfólk Ísnets hefur undanfarna
mánuði þróað nýja gerð dragnótar.
Á meðan á þróunarferlinu stóð var
verkefnið unnið í samstarfi við skip-
stjóra á dragnótabátum. Megin
markmiðið var að hanna alhliða
dragnót sem væri létt í drætti og fari
vel í sjó. „Í hönnuninni var lögð
áhersla á góða lárétta og lóðrétta
opnun, styrk og góða endingu sem
og einfaldleika í allri meðhöndlun.
Meðal nýjunga í dragnótinni er ný
gerð af neti frá Garware sem heitir
SNG. Netið er ný kynslóð af Safír
neti sem er mun sterkara og nún-
ingsþolnara en hefðbundið PE net.
Með þessu neti er hægt að hafa efnið
grennra án þess að skerða styrk og
endingu. Þá var möskvastærð einnig
breytt frá hefðbundnum dragnótum
til þess að létta hana í drætti og gera
hana fisknari,“ segir Birkir en meðal
annarra nýjunga má nefna breyting-
ar á lögun á dragnótinni, fiskilínu,
höfuðlínu og fótreipi.
„Viðbrögð skipstjóra, sem voru
viðstaddir tankprófun á dragnótinni,
voru strax jákvæð og nú þegar er bú-
ið að panta hjá okkur dragnætur af
þessari gerð. Það var samdóma álit
viðstaddra að um vel heppnaða
hönnun væri um að ræða sem von-
andi á ft r að kila sér í auknu og
hagkvæmara fiskiríi,“ segir Birkir.
Ísnet 2967 Lukkutroll
Á undanförnum árum hefur Ísnet
unnið að þróun á svokölluðu Luk-
kutrolli til rækjuveiða í samstarfi við
Ómar Þorleifsson, skipstjóra á Sig-
urborgu SH frá Grundarfirði. Sigur-
borgin hefur notað Lukkutroll frá
árinu 2005 með ýmsum breytingum
sem gerðar hafa verið frá upphaflega
trollinu sem var 2512 möskva.
Nýjasta útfærslan af trollinu var
svo skoðuð í áðurnefndri tankferð til
Hirtshals en um er að ræða 2967
möskva troll og segja þeir Birkir og
Kári að mönnum hafi borið saman
um að trollið liti mjög vel út í
tanknum. Lukkutrollið hefur lengst
af verið eingöngu úr Safírneti, en í
nýja trollinu er auk þess notað
hnútalaust Dyneema net til að létta
það enn frekar í drætti. Í upphafi var
Lukkutrollið tveggja grandara og er
það ennþá valmöguleiki þó nýjasta
útgáfan sé þriggja grandara.
„Ísnet kynnti þetta troll á síðasta
ári fyrir öðrum viðskiptavinum og
hafa nokkur slík verið afhent undan-
farið, bæði úr Safírneti, Dyneema og
einnig venjulegu PE neti. Kúlurnar,
sem við mælum með á trollið, eru
svokallaðar Hydro kúlur frá Castro á
Spáni sem er nýjung hjá Ísneti. Þær
líta út eins og golfkúlur á yfirborð-
inu og eru hannaðar til að veita
minna togviðnám.
Þess má geta að trollið hefur ekki
einungis gefist vel við rækjuveiðar
heldur veiðir það grálúðu einnig vel
en núorðið má hirða þann fisk sem
kemur í rækjutroll með svokölluð-
um yfirpoka. Það má því segja að
Lukkutrollið sé alhliða troll sem tek-
ur bæði hátt og breitt og hægt er að
fá í öllum stærðum,“ segir Kári.
Ísnet 4200 Gigantus
„breiðskafa“ til rækjuveiða
Gigantus troll er einnig nýjung frá
Ísneti og var það hannað í samstarfi
við Selstad í Noregi. Meginmark-
miðið við hönnunina segja Birkir og
Kári að hafi verið hönnun á trolli
sem væri fyrst og fremst breitt og
létt í drætti en þyrfti ekki að taka
neitt sérstaklega hátt.
„Ísnet hefur þegar framleitt tvö
Gigantus troll fyrir grænlenska
rækjutrogarann Qaqqatsiaq og þau
voru að stærstum hluta gerð úr Saf-
írneti en þó var notað hnútalaust
Dyneema í hluta af yfir- og hliðar-
byrðum. Qaqqatsiag hefur náð góð-
um árangri með þessi troll og en
skipið dregur tvö 3960 möskva troll.
Við veiðarnar hafa bæði verið notað-
ir hefðbundnir botntrollshlerar eða
flottrollshlerum.“
isfell.is
Fylgst með prófunum á Lukkutrolli í tanknum í Hirtshals og áhuginn leynir sér ekki.
Rækjutroll Gigantus, 4200 möska.
Dragnót, 38 faðma.
Rækjutroll (Lukkutroll), 2967 möskva.
Dragnót, 38 fm í köstun.
Ísnet:
Ný hönnun á dragnót og Lukkutroll
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Háþrýstidælur
Vi nuþjarkar ætlaðir til
daglegra nota
HD 10/25-4 S
■ Vinnuþrýstingur
30-250 bör
■ 500-1000 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
■ Vinnuþrýstingur
30-160 bör
■ 230-600 ltr/klst
■ 15 m slönguhjól
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%