Akureyri - 29.05.2014, Síða 6
6 20. tölublað 4. árgangur 28. maí 2014
Veikleiki að hafa ekki meiri metnað
Akureyri vikublað birtir nú
lokasvör allra oddvita flokkanna
við spurningum sem blaðið sendi
forsvarsmönnum stjórnmálaafl-
anna. Orð og verk frambjóðenda
verða lögð í dóm kjósenda næsta
laugardag í kosningum til bæjar-
stjórnar. Þar verður barist um 11
stóla, áherslur og völd. Akureyri
vikublað óskar kjósendum góðs
gengis í leitinni að sannfæringu
sinni. Nýtum atkvæðisréttinn!
HELSTU SÓKNARFÆRI AKUR-
EYRAR OG VEIKLEIKAR?
GUÐMUNDUR
BALDVIN GUÐ-
MUNDSSON ODDVITI
FRAMSÓKNAR
„ S ó k n a r f æ r i
Akureyrar eru að
mínu mati mörg.
Mikill uppgangur
hefur verið í þjónustu við sjávar-
útveg bæði innlendan og erlendan
og hér hefur skapast mikil sér-
þekking sem skapar sóknarfæri.
Þá liggja sóknarfæri í Norður-
slóðaverkefnum og uppbyggingu
á Dysnesi. Í ferðaþjónustu eru
mikil sóknarfæri og millilanda-
flug frá Akureyri getur stór-
breytt möguleikum í greininni.
Bættar samgöngur með tilkomu
Vaðlaheiðarganga munu gjör-
breyta samgöngum sem felur í sér
sóknartækifæri, ekki bara fyrir
okkur hér á Akureyri heldur norð-
austurland allt. Þá felast sóknar-
færi í þeim mikla mannauð sem
við eigum m.a. í listgreinum og
Akureyringar hafa alla burði til að
sækja enn frekar fram á því sviði.
Veikleikar okkar,og mögulega
landsbyggðarinnar allrar, liggja
helst í því að sífellt sogast meira af
íbúum og atvinnutækifærum á suð-
vesturhornið og þannig heldur bilið
á milli höfuðborgar og landsbyggð-
ar áfram að aukast. Kostnaður við
samgöngur hefur líka stóraukist
sem hefur áhrif á samkeppnisað-
stöðu framleiðslufyrirtækja hér á
svæðinu.“
GUNNAR GÍSLASON,
ODDVITI SJÁLFSTÆÐ-
ISFLOKKSINS
„Helstu sóknar-
færin felast í auk-
inni ferðaþjónustu
og uppbyggingu
iðnaðar sem byggir á þekkingu,
tækni og umhverfisvænni orku.
Stóru tækifærin í ferðaþjónustu
liggja í uppbyggingu í Hlíðar-
fjalli, beinu millilandaflugi og
fjölbreyttri afþreyingu. Stóru
tækifærin í iðnaði liggja í frekari
þróun og útflutningi í tæknigrein-
um sem byggja á þjónustu við
sjávarútveg og landbúnað. Þá þarf
að skapa umhverfi fyrir frekari
uppbyggingu til framtíðar í iðnaði
á svæðinu við Dysnes.
Helstu veikleikarnir liggja í
of mikilli nægjusemi og hófsemi
Akureyringa. Við þurfum að horfa
lengra fram á veginn og móta
okkur stefnu til langs tíma sem
er hvorutveggja í senn stórhuga
en raunhæf. Þetta var gert upp úr
síðustu aldamótum og hefur gefið
góða raun.“
HLÍN BOLLADÓTTIR,
ODDVITI DÖGUNAR
„Stærstu tæki-
færin felast í tæki-
færum til nýsköp-
unar og ekki síst
í ferðaþjónustu,
sem er að verða aðal atvinnu-
greinin. Það er mikilvægt að auka
gæði ferðaþjónustu og góð leið til
þess er að samtvinna hana menn-
ingunni.
Helstu veikleikar eru að Akur-
eyri er hluti af láglaunasvæði og
það þarf augljóslega að skoða frá
grunni. Það þarf að huga sérstak-
lega að skólakerfinu og heilbrigð-
iskerfinu.“
LOGI MÁR EINARS-
SON, ODDVITI SAM-
FYLKINGARINNAR
„Helstu sóknar-
færin felast í sterk-
um innviðum og
miklum mannauði.
Hér eru mörg öflug fyrirtæki sem
hafa og geta stuðlað að vexti ýmis
konar virðisaukandi hátæknistarf-
semi. Skólar, félags- og öldrunar-
þjónusta eru vel mönnuð fagfólki.
Reyndar hefur niðurskurður síð-
ustu ára bitið svo illa að ekki verð-
ur lengur við unað. Við þurfum að
skila peningum tilbaka þangað
inn nú þegar hagur okkar vænkast.
Framboð af íþróttum, menningu og
afþreyingu er aðdáunarvert og þar
eigum við enn að bæta í. Loks erum
við rík af vistvænum orkugjöfum
og getum þróað bæinn okkar að
aukinni sjálfbærni. Okkar sókn
getur m.a. falist í því að laða til
okkar nýja íbúa og halda í einstak-
linga sem kjósa fjölbreytileika
borgarlífsins og rólegheit smábæj-
arlífsins, í bæ þar sem vistvænn
lífsstíll er raunverulegur valkostur.
Helstu veikleikar eru að við
teiknum ekki upp nægilega skýra
og metnaðarfulla framtíðarsýn.
Hana þurfum við að sameinast um.
Í kjölfarið eigum við setja okkur
tímasett og mælanleg markmið og
vinna af einurð eftir þeim.“
MARGRÉT KRISTÍN
HELGADÓTTIR, ODD-
VITI BF:
„Sóknarfæri Ak-
ureyrar eru mörg.
Þau felast m.a. í
því að búa í eins-
konar borgarsamfélagi þar sem
þjónustustig er hátt en vegalengdir
eru stuttar. Mikil sóknarfæri eru í
ferðamennsku á okkar fagra svæði
en það hefur að nokkru setið eftir
í samanburði við Suðvesturhornið
þrátt fyrir að hafa mikið að bjóða.
Sóknarfæri felast í að ýta undir
nýsköpun í bænum, ýta undir at-
vinnustarfsemi í þekkingargrein-
um. Einstakt sóknarfæri felst í
því að geta byggt upp enn fallegri
og öflugri miðbæ án þess að rífa
nema örfá hús sem fyrir eru. Það
tengist bæði ferðamennsku og upp-
byggingu þekkingargreina.
Helstu veikleikar eru að hér er
of lítið um atvinnutækifæri. Alltof
mikið er um það að fólk er að flytj-
ast búferlum vegna vinnu. Flutn-
ingskerfi raforku hefur eins reynst
vera veikleiki fyrir Akureyri og því
þarf að breyta. Á Akureyri þyrfti að
vera boðið upp á fast millilandaflug
og opnunartímar ýmissa þjónustu-
fyrirtækja mættu vera lengri og
samhæfðari. Að sama skapi mætt-
um við hugsa meira fram í tímann
þegar við hugum að skipulagsmál-
um. En sem betur fer eru styrk-
leikar Akureyrar margfalt fleiri en
veikleikar!“
MATTHÍAS RÖGN-
VALDSSON, ODDVITI
L-LISTANS
„Akureyri hef-
ur alla möguleika
að skara framúr á
öllum sviðum og
á að leggja metnað sinn í að vera
leiðandi í öllum þeim þáttum sem
snúa að þjónustu við sitt starfs-
fólk og bæjarbúa. Við eigum að
tryggja framþróun og stuðning við
atvinnulíf og nýsköpun. Með því
að tryggja öflugt og fjölbreytt at-
vinnulíf tryggjum við getu okkar til
að bjóða upp á það samfélag sem er
stolt okkar allra.
Helstu veikleikar Akureyrar eru
ónógt fjármagn með málaflokkum
sem ríkið og sveitarfélög hafa samn-
ing um þar sem að ríkið uppfyllir
ekki gerða samninga. Með þessu
veikir ríkið okkur í að standa við
bakið á okkar fólki með fullnægj-
andi hætti. Okkar sjóðir eru notaðir
til að borga þjónustu sem á alfarið
að vera greidd af ríkinu. Með því
skerðum við aðra þjónustuþætti.“
SÓLEY BJÖRK STEF-
ÁNSDÓTTIR, ODDVITI
VG
„Sóknarfæri fel-
ast helst í því að
nýta sem best þann
mannauð sem hér
er til staðar. Smæð samfélagsins
gerir það að verkum að hér er hægt
að framkvæma ýmis nýsköpunar-
og tilraunaverkefni en þó erum við
nógu stór til að hér er flest þjónusta
til staðar, mannlífið fjölbreytt og
menntunarstig nokkuð gott. Akur-
eyri getur tekið forystu fyrir hönd
Norðurlands og í raun landsbyggðar-
innar allrar við að berjast fyrir rétti
landsbyggðarfólks til þjónustu sam-
bærilegri og á höfuðborgarsvæðinu.
Helstu veikleikar eru skortur á
fjölbreyttum atvinnu- og menntun-
artækifærum.“ a
Kvennakórinn Embla
Vortónleikar 2014
Göngum inn í vorið með
tónum meistaranna.
Við syngjum verk eftir Schumann, Grieg,
Eyþór Stefánsson og Sigfús Einarsson
Helga Kvam, píanó Roar Kvam, stjórnandi
Hšmrum ’ HoÞ, Þmmtudaginn 29. ma’ kl.17.00
Aðgangur kr. 3.500, kr. 3.000 fyrir eldri borgara, fr’tt fyrir 12 ‡ra og yngri
X KOSNINGAR 2014
SKOÐANAKÖNNUN GALLUP Í síðustu
viku sýndi að Sjálfstæðisflokkurinn naut
þá mests stuðnings kjósenda en öll fram-
boðin sjö mældust með bæjarfulltrúa
nema Dögun. Barist verður um þessa 11
stóla fyrir næstu fjögur árin.