Akureyri - 29.05.2014, Qupperneq 11
28. maí 2014 20. tölublað 4. árgangur 11
AÐSEND GREIN HJÖRLEIFUR HALLGRÍMS
Stefna Bjartrar framtíðar
Það eru tíðindi að Björt framtíð á
Akureyri er á móti viðhaldi menn-
ingarminja og verðmæta eins og
kom berlega í ljós þegar þingkona
þeirra á alþingi, Akureyringurinn
Brynhildur Pétursdóttir, ásakaði
forsætisráherra Sigmund Davíð
fyrir að úthluta styrkjum til slíkra
verkefna að eigin geðþótta. For-
sætisráðherra hefði veitt styrki
um allt land til hinna ýmsu menn-
ingarverðmæta ýmist til viðgerða
eða endurbygginga. Þingkonan
kvartaði undan því að einhverj-
ir framsóknarmenn hefðu fengið
þessa styrki til ráðstöfunar í sínum
heimabyggðum, en erfitt mun að
komast fram hjá þeim, því enn er
töluvert til af framsóknarmönnum
í landinu.
Styrkirnir, sem komu til Akur-
eyrar voru annars vegar til að gera
upp og viðhalda gamla Apótekinu
(Aðalstræti 4) byggt 1859 og
hinsvegar til flutnings Gæruhúsinu
gamla til Siglufjarðar og
uppbyggingu þess fyrir Síldar-
minjasafnið þar. Nokkur fleiri ver-
kefni fengu styrki hér fyrir norðan
svo sem Ungo hús leikfélags
Dalvíkur og Kvíabekkshúsið á
Húsavík. Allir styrkir hvert,sem
þeir fóru um landið voru veittir af
forsætisráðherra auðvitað í fullu
samráði við Minjastofnun Íslands,
Húsfriðunarnefnd og
Þjóðminjasafn íslands. Slíkt var nú
pukrið.
FLUGVÖLLINN ÚR VATNSMÝRINNI
Þess má einnig geta að Björt
framtíð á Akureyri vill flugvöllinn
burt úr Vatnsmýrinni í Reykjavík,
þessa lífsnauðsynlegu samgöngu-
miðstöð við Akureyri og lands-
byggðina. Engar tillögur frekar en
í öðrum málum um hvert eigi að
flytja flugvöllinn eða hvernig á að
afla peninga til að byggja nýjan
Flugvöll, því þeir eru ekki til og
verða ekki, því það mun kosta tugi
milljarða.
Það, sem kannski er hvað alvar-
legast ef satt reynist, er að kona sú
er skipar 2. sæti á lista Bjartrar
framtíðar hér á Akureyri er sögð
á förum úr bænum og þykir mörg-
um þetta ekki mjög heiðarlegt af
framboðinu ef satt er og þykir þetta
bera keim af að verið sé að villa á
sér heimildir.
En svo er auðvitað spurning um
hvort þetta hafi nokkuð að segja.
því ekki hefur orðið vart ennþá við
stefnuskrá Bjartar framtíðar á Ak-
ureyri og stutt í kosningar.
AÐSEND GREIN SIGURLAUG HANNA LEIFSDÓTTIR
Eyjafjarðarsveit og Akureyri
– sameiginlegir hagsmunir
Göngu og hjólastígur milli Hrafna-
gils og Akureyrar er eitthvað sem
koma skal. Gerð þessa stígs stækk-
ar útivistarsvæði beggja þessara
byggðalaga mikið og væri frábær
leið fyrir fjölskyldufólk á Akureyri
til að skreppa hjólandi með börnum
sínum t.d.í sund í Hrafnagilslaug,
Eyfirðinga til að hjóla í Kjarnaskóg
eða í bæinn, hlaupara og hjólreiða-
fólk til að iðka sitt sport eða bara
fyrir þá sem vilja ganga skemmti-
lega leið sér til heilsubótar.
Mikið er um að hlaupa og hjóla-
fólk á Akureyri noti Eyjafjarðar-
veginn til að iðka sína útivist en
auðvitað er það alls ekki ásætt-
anlegt að fólk þurfi að hlaupa og
hjóla á veginum innan um bíla á 90
km. hraða í öllum veðrum og ekki
ásættanlegt fyrir þá sem aka veg-
inn að eiga á hættu að aka fram á
gangandi eða hjólandi fólk í mis-
góðu skyggni, enda hafa því miður
orðið þar alvarleg slys.
Það eru því sterk rök fyrir því
að Akureyrarbær taki þátt í þessari
framkvæmd þó stígurinn verði nán-
ast allur í landi Eyjafjarðarsveitar,
hann er sameiginlegt hagsmuna-
mál beggja.
O-listinn í Eyjafjarðarsveit
leggur áherslu á gerð þessa göngu-
stígs og vil beita sér fyrir lagningu
fyrsta hluta hans frá Hrafnagili í
Kristnes á næsta kjörtímabili og
tengja þannig þessa tvo byggða-
kjarna. Hvernig væri að Akureyr-
ingar byrjuðu hinum megin frá
og kæmu á móti okkur og flýttu
þannig fyrir þessari framkvæmd
sem gagnast okkur öllum.
Höfundur skipar 1. Sæti O-list-
ans í Eyjafjarðarsveit.
um aldri og tvö yngstu börnin. Við
ræðum um stund að þegar hópur-
inn hittist skipti ekki öllu hver er
kallaður pabbi eða afi, fólk sé bara
fólk og hver eigi að hafa rétt á að
lifa því lífi sem fólk kýs svo fremi
að brjóti ekki á öðrum.
Mikið skjól í heimavinnandi
Í tengslum við þessa umræðu seg-
ir Sigrún að hún hafi alist upp
með heimavinnandi foreldri inn-
an veggja uppeldisheimilsins. Hún
hafi fundið mikið skjól í því hlut-
skipti. Þau Hjalti segjast sammála
um mikilvægi þess að ræða kosti
þess að börn fái að vera mikið með
foreldrum sínum. Sú umræða megi
þó aldrei snúast um að konum
beri að færa fórnir umfram karla.
Blaðamanni skilst að jafnrétti ríki
á heimili Sigrúnar og Hjalta. Það
mun væntanlega sjást vel í Grímsey
þar sem hefðbundin verkaskipting
hins gamla kynjakerfis verður látin
lönd og leið með því að karlinn eltir
starfsferil konunnar.
„Það er líka ekkert auðvelt fyr-
ir lögfræðinga að fá vinnu í dag.
Ágætt svona í eitt ár eftir útskrift-
ina að spá í spilin og velta fyrir
mér hvort ég þreifi fyrir mér á at-
vinnumarkaði lögfræðinga næsta
ár eða skelli mér í doktorsnám. Ég
er nefnilega ekki alveg búinn að
ákveða það ennþá hvað ég ætla
að verða þegar ég verð stór,“ segir
Hjalti.
Kvíða helst nýjum hættum
Spurð um áhugamál segja bæði
Sigrún og Hjalti að ef maður ákveði
að flytja til Grímseyjar kalli slík
ákvörðun á virka samfélagsþát-
töku. Hjalti íhugar hvort honum
bjóðist innganga í Kiwanisklúbb-
inn í eynni. Sigrún segir kvenfélag
á staðnum. „Okkar helsti styrkleiki
er kannski að við erum kamelljón
sem eigum auðvelt með að lagast að
aðstæðum.“
Að vakna saman á morgana, leið-
ast saman út á morgnana til sama
vinnustaðar og fara svo saman
heim á lítilli eyju sem er stendur
óvarin fyrir veðri og vindum á vet-
urna, auk skammdegis komandi
vetrar, er líka eitthvað sem hjónin
hafa hugsað út í. Þau eru sammála
um að svarið geti ekki fengist með
öðru en raunverulegri upplifun.
„Maður kvíðir helst nýjum hættum
eins og björgunum þarna, það eru
hættur þarna sem maður þekkir
illa sjálfur.“
Við ræðum hættur Grímseyjar
um stund en sá sem býr í Grímsey
þarf á hinn bóginn ekki að óttast
að barn á leið í leikskólann slasist í
árekstri. Kannski summan af hætt-
um í lífinu sé meira og minna sú
sama, burtséð frá umhverfi.
Strákur í pilsi
Við ræðum kynjafræði og femín-
isma. Skarphéðinn hefur fengið að
mæta í pilsi á leikskóla barnanna,
Hólmasól á Akureyri, í pilsi síð-
an hann bað fyrst um það. Systur
hans fannst þetta ótækt en meðan
Skarphéðinn vill vera í pilsi í leik-
skólanum fær hann að vera í pilsi,“
segir Hjalti.
Sigrún bætir við: „Mér finnst að
samfélagið þurfi að komast yfir að
það sé eitthvað vandræðalegt að
halda að börn séu af öðru kyni en
þau eru. Stundum heldur einhver
ókunnugur að stelpa sé strákur eða
öfugt og þá er eins og að allir fari á
taugum. Maður er beðinn óteljandi
oft afsökunar, hvers vegna er þetta
svona mikilvægt?“
Viðtalinu lýkur. Þegar ég kveð
hjónin og óska þeim góðs gengis úti
í Grímsey finn ég að samræðan hef-
ur skerpt á mikilvægi þess að við
látum ekki stjórnast af fyrirfram
gefnum hugmyndum. Til nokkurs
er unnið ef fólk sem er óhrætt við
að taka ný skref í lífinu getur kennt
okkur hinum sem sitjum jafnvel
föst á sömu hundaþúfunni allt lífið,
slíka lexíu.
TEXTI Björn Þorláksson
MYNDIR Völundur Jónsson
AÐSENT
Hjörleifur
Hallgríms
AÐSENT
Sigurlaug Hanna
Leifsdóttir
X KOSNINGAR 2014
Tónleikar á morgun
Kvennakórinn Embla er nýkom-
inn úr tónleikaferð til Finnlands
þar sem kórinn tók þátt í norrænu
kvennakóramóti ásamt 400 öðr-
um konum. Kórinn hélt tónleika í
kirkjum og víðar og söng sig inn í
hjörtu áheyrenda með íslenskum
söngperlum Sigfúsar Einarssonar
og Eyþórs Stefánssonar ásamt lög-
um eftir Grieg og Schumann.
Á fimmtudag, morgun, uppstign-
ingardag, mun kórinn gefa Akur-
eyringum og nærsveitamönnum
kost á því að hlýða á þessa tónlist í
Hofi kl. 17:00
Í tilkynningu segir: „Þetta er
yndisleg og aðgengileg tónlist,
söngvar um vorið, náttúruna, ástina
og mannlegar tilfinningar.“
Píanóleikari er Helga Kvam,
stjórnandi Roar Kvam. a