Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 10

Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 10
10 18. tölublað 4. árgangur 15. maí 2014 Verslunarhúsið á Kópaskeri er til leigu undir rekstur dagvöruverslunar. Í húsinu eru til staðar kælar, hillurekkar og ýmiss annar búnaður sem þarf til rekstrar slíkrar verslunar. Húsnæðið er rúmgott og gefur möguleika á að setja upp veitingasölu samhliða verslunarrekstri. Fyrir liggur ítarleg greining og rekstraráætlun fyrir slíka verslun, sem m.a. er byggð á eldri gögnum um rekstur í þessu húsi. Fleira er hagstætt við að hefja reksturinn og byrjunin auðveldari en margan gæti grunað. Allar nánari upplýsingar fást hjá eftirtöldum: Jón Grímsson: 894-0033 Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir: 465-2169 Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Reinhard Reynisson: 464-0418 Verslunarhúsið á Kópaskeri e.h.f. Spennandi tækifæri fyrir duglegan einstakling eða fjölskyldu - góðar forsendur fyrir rekstri Atvinnutækifæri á Kópaskeri Viltu fara í eigin rekstur? Landsins mesta úrval af girðingarefni Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar Lynghálsi, Reykjavík Lónsbakka, Akureyri Efstubraut, Blönduósi Sími 540 1125 Lífland, Brúarvogi 1-3 Sími 540 1150 Sími 540 1155Sími 540 1100 lifland@lifland.is www.lifland.is Þræðir og borðar RafgirðingaspennarJarðleiðslur Þráðspólur Staurar, net, gaddavír og þanvír Atvinnustarfsemi að hverfa úr Hrísey Hvammur hf. hefur sagt upp öllu starfsfólki við fiskvinnslu sína í Hrísey. Í minnisblaði frá Byggðastofnun til ráðherra kemur fram að forvarsmenn fyrirtækisins hyggjast að óbreyttu hætta rekstri í lok yfirstandandi fiskveiðiárs. „Staða fyrirtækisins er mjög erfið og verulegt tap á rekstri þess, fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Þá hefur hráefnisöflun verið erfið en fyrir- tækið á sjálft innan við 200 þorskí- gildistonn, kaupir allt að 200 tonn- um á markaði og að öðrum bátum, og fékk á yfirstandandi fiskveiði- ári um 170 tonn í byggðakvóta. Þá henta bátar sem landa hjá fyrirtæk- inu illa og eykur það enn á vanda við hráefnisöflun. Loks er óeining meðal eigenda um áframhaldandi rekstur,“ segir Byggðastofnun. Hvammur hf. er langstærsti vinnuveitandinn í eynni en sára- lítið er um að íbúar sæki vinnu til lands. „Leggist þessi litla vinnsla af er líklegt að Hrísey verði í fram- tíðinni fyrst og fremst sumarhúsa- byggð. Eyjan er hins vegar hluti Akureyrarbæjar sem er stærsta sveitarfélag landsins utan suð- vesturhornsins og stærsti aðilinn að öflugasta atvinnuþróunarfélagi landsins. Forstjóri og stórnarfor- maður Byggðastofnunar hafa rætt ítarlega við forsvarsmenn Akur- eyrarbæjar, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og hverfisráðs Hríseyj- ar um þessi mál.“ Þótt staðan sé flókin eru sagðar talsverðar líkur á því að með stuðn- ingi Byggðastofnunar sé hægt að viðhalda lítilli bolfiskvinnslu í Hrísey. „Miðað við þann samning sem þegar hefur verið gerður um eflingu fiskvinnsla á Drangsnesi og yfirstandandi samninga vegna Bakkafjarðar væri raunhæft að stefna að því að tryggja 10-20 störf við vinnslu á u.þ.b. 500 tonnum á bolfiski á hvorum stað gegn 150 þorskígildistonna mótframlagi Byggðastofnunar.“ a Gert að beisla heita vatnið Vinnueftirlitið hefur ítrekað brugð- ist við málum sem upp hafa komið inni í Vaðlaheiðargöngum. Alrangt er að óánægja starfsmanna með aðbúnað sé fálæti stofnunarinnar um að kenna, að sögn Sigurgeirs Á. Stefánssonar, svæðisstjóra Vinnu- eftirlitsins á Norðurlandi. Í síðustu viku greindi Akur- eyri vikublað frá ýmsum vanda sem skapast hefur inni í göngun- um. Kvartað var undan ónógum viðbrögðum Vinnueftirlitsins og verkalýðsfélaga en Sigurgeir segir að Vinnueftirlitið hafi samkvæmt reglum farið fram á öryggis- og heilbrigðisáætlun í upphafi verks- ins. Eins og í öllum verkum komi upp ófyrirséðir atburðir. Eftir að vatnshitinn kom upp í Vaðlaheiðar- göngum hafi kröfur um úrbætur verið gerðar sem brugðist hafi ver- ið við. Þar á meðal krafðist Vinnu- eftirlitið aukinnar loftræstingar inni í göngunum, auk þess sem hámarks viðverutími starfsmanna næst hitasvæðinu inni í göngun- um var að kröfu Vinnueftirlitsins styttur úr tólf klukkutímum í átta. Ekki séu til beinar reglur um vinnu í hita inni í jarðgöngum, enda sé þetta í fyrsta skipti sem menn komi niður á mjög heitt vatn þótt berg- hiti sé kunnur. „Við höfum gert þeim grein fyr- ir að það gangi ekki til lengdar að láta heita vatnið buna svona niður og það er búið að ákveða að setja upp kælikerfi og reyna að láta loka fyrir vatnið. Ef það tekst ekki verða lagnir e.t.v. nýttar til að beisla vatn- ið,“ segir Sigurgeir. „Þetta eru aðstæður sem men hafa aldrei lent í að fá svona heitt vatn inni í jarðgöngum hér. Menn hafa fengið berghita á sig en aldrei neitt í líkingu við þetta. En við höf- um ekki setið aðgerðarlausir. Við höfum átt fundi með bæði verk- kaupum og verktökum, við höfum lýst áhyggjum og við höfum þrýst á úrbætur. Ég vil líka benda á að almennir starfsmenn hafa aldrei hringt beint í okkur til að kvarta en vissulega eru þetta erfiðar aðstæð- ur.“ a

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.