Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Qupperneq 20

Akureyri - 15.05.2014, Qupperneq 20
20 18. tölublað 4. árgangur 15. maí 2014 Akureyri brennur Frá desember 1901 til, og með, des- ember 1912 urðu a.m.k. sextán hús- brunar á Akureyri. Þótt ótrúlegt megi virðast varð ekkert manntjón í eldsvoðunum en eignatjón var gíf- urlegt. Á meðal húsa sem brunnu til kaldra kola voru glæsilegar hót- elbyggingar og stór einbýlishús. Var tilviljun ein sem réði því að svo margir brunar urðu í bænum á svo stuttum tíma eða var mögulega um glæpsamlegt athæfi að ræða? Grenndargralið stiklar á stóru og skoðar hvernig umhorfs er í dag á fjórum stöðum þar sem eldar log- uðu í upphafi 20. aldarinnar á Ak- ureyri. Við sögu kemur merkilegt hús dansks kaupmanns, þrjóskur Íslandsmálaráðherra og óheppnar systur. FYRSTA ÍBÚÐARHÚSIÐ Á AKUREYRI BRENNUR Fyrsti stórbruninn varð þann 19. desember árið 1901. Gestir á Hótel Akureyri við Aðalstræti vöknuðu upp að næturlagi við mikil köll og læti þar sem eldurinn átti upptök sín. Hótelið brann til kaldra kola ásamt fimm íbúðarhúsum. Eitt þeirra var fyrsta íbúðarhúsið sem byggt var á Akureyri. Smíði þess hófst árið 1777 en lauk árið eft- ir. Maður að nafni Friðrik Lynge, en hann var danskur kaupmaður í þjónustu konungs á Akureyri, bjó fyrstur manna í húsinu. Frá því að einokunarverslun Danakonungs á Íslandi hófst árið 1602 og til ársins 1776 höfðu danskir kaup- menn í hans þjónustu aðeins dvalist yfir hásumarið á Akureyri sem og annars staðar á landinu. Frá og með árinu 1776 skyldaði konungur alla sína kaupmenn á Íslandi til að að hafa þar vetursetu og afgreiða úr búðum sínum allan ársins hring. Þar með var komin þörf fyrir að byggja fyrsta íbúðarhúsið í bænum. ÍBÚAR ÁLASUNDS KOMA TIL HJÁLPAR Í upphafi árs 1905 eignuðust Ak- ureyringar vísi að slökkviliði, hinu fyrsta í sögu bæjarins. Keypt voru tæki og tól erlendis frá svo sem slökkvidæla á hjólum, brunahan- ar, axir, brunahjálmar og slöngur. Slökkviliðið kom þó litlum vörnum við þann 18. október árið 1906 þegar einhver örlagaríkasti bruninn varð, hinn svokallaði Oddeyrarbruni. Talið var að eldur hefði kviknað út frá olíulampa í kjalla eins hússins. Á u.þ.b. tveimur klukkustundum náði einhver mesti bruni Íslands- sögunnar að eyða fimm stórum verslunar- og íbúðarhúsum af yfir- borði jarðar og gera hátt í hundrað manns heimilislausa. Húsin fimm sem fuðruðu upp stóðu við Strand- götu 3,7,9,11 og 13. Oddeyrarbrun- inn vakti mikla athygli, jafnvel út fyrir landssteinana. Hannes Haf- stein Íslandsmálaráðherra skýrði konungi frá eldsvoðanum og notaði tækifærið til að tilkynna að ekki stæði til að leita fjárhagsaðstoðar utan kaupstaðarins. Akureyringar sjálfir ætluðu sér að endurreisa Oddeyrina án aðstoðar annarra. Þrátt fyrir þetta fékkst óvænt að- stoð frá útlöndum m.a. frá íbúum Álasunds í Noregi. Þeir höfðu frétt af brunanum og vegna svipaðrar reynslu sem þeir höfðu orðið fyrir tveimur árum fyrr þegar um 800 hús brunnu vildu þeir koma Akur- eyringum til hjálpar. Það gerðu þeir með því að gefa bænum einingar til að setja saman tvö hús auk þess sem þeim fylgdi töluvert af húsbúnaði svo sem diskar, bollar og hnífapör. ÓHEPPNAR MÖLLERSYSTUR Árið 1912 varð annað svæði á Akur- eyri illa fyrir barðinu á eldi. Þar var um tvo bruna að ræða, þann fyrri 27. apríl en þann seinni 15. desem- ber. Brunarnir tveir urðu í nágrenni við þann stað þar sem Ísbúðin Brynja stendur í dag. Í aprílbrun- anum brunnu þrjú hús. Í desem- ber urðu tólf hús eldinum að bráð. Í apríl brann m.a. húsið sem hýsti fyrsta apótek bæjarins á sínum tíma. Í því bjuggu systurnar Jón- ína og Nanna Möller þegar brann. Þar misstu þær systur heimili sitt í bruna í annað sinn því í brunan- um mikla 1901 brann hús þeirra til kaldra kola. Eftir aprílbrunann 1912 fluttu þær Jónína og Nanna í nýtt húsnæði. Það brann í desember sama ár. Það var eina íbúðarhúsið sem brann en auk þess brunnu 11 önnur hús. Möllersystur misstu því heimili sitt þrisvar sinnum í jafnmörgum eldsvoðum. Þannig brunnu samtals 15 hús á nánast sama blettinum í tveimur brunum á einu og sama árinu. SÖGUSAGNIR KVEÐNAR NIÐUR? Í kjölfar brunanna á Akureyri lögðu bæjaryfirvöld sífellt meiri áherslu á að efla brunavarnir í bænum. Mesta vægi hefur þó sjálf vatnsveitan haft í þeim efnum en hún var tekin í notkun árið 1914. Nálægt 40 brunahanar voru settir við vatnsleiðsluna á víð og dreif um bæinn. Þeir komu að góðum notum mánuði síðar þegar slökkviliðinu tókst að slökkva eld í brennandi húsi á Oddeyri. Sögusagnir um mögulegar ástæður brunanna 1901-1912 fóru fljótt af stað; bæjarbúum hlyti að standa á sama þó húsin þeirra brynnu, Akureyringar kynnu ekki að halda á eldspýtum og þar fram eftir götunum. Jafnvel var óttast að brennuvargur gengi laus - slíkur væri fjöldinn af brunum að ekki gæti verið um tilviljun að ræða. Aldrei var þó hægt að sýna fram á annað en að brunarnir á Akureyri ættu sér eðlilegar skýringar og að ekkert glæpsamlegt lægi þar að baki. a GRENNDARGRALIÐ HÚSIÐ Á MYNDINNI stendur á þeim stað þar sem fyrsta íbúðarhúsið á Akureyri var byggt. HÉR STÓÐ HÚSIÐ þar sem eldur kom upp að kvöldi fimmtudagsins 18. október árið 1906. TVEIMUR ÁRUM EFTIR Oddeyrarbrunann, þann 18. október 1908, brann eitt tignarleg- asta hús bæjarins Hótel Oddeyri. Húsið á myndinni stendur þar sem Hótelið stóð. Á BÍLASTÆÐINU VIÐ Brynju stóðu áður hús sem brunnu til kaldra kola árið 1912.

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.