Fréttablaðið - 30.03.2015, Page 15

Fréttablaðið - 30.03.2015, Page 15
MÁNUDAGUR 30. mars 2015 | SKOÐUN | 15 Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur FRÍSKLEGT ÚTLIT. BMW 2 lína Active Tourer www.bmw.is Hrein akstursgleði BMW 2 ACTIVE TOURER ER RÚMGÓÐUR OG NÝSTÁRLEGUR FJÖLSKYLDUBÍLL MEÐ FRAMHJÓLADRIFI. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is BMW 2 Active Tourer 218d, Less emissions. More driving pleasure. Fyrst hugsar maður: Af hverju endar íslensk mannréttindabar- átta alltaf í einhverju þvargi um að fá að nota nafn sem enginn bann- ar þér að nota? Fyrst Þorgeir með þetta óskiljanlega eina s í föður- nafninu; og núna Jón Gnarr búinn að fá viðurkennt með ærinni fyrir- höfn fyrir bandarískum dómstóli að hann heiti Jón Gnarr en ekki eitthvað sem enginn kallar hann nema Hagstofan og forstöðumaður eineltissviðs Sjálfstæðisflokksins. Málið er samt ekki alveg einfalt. Það eru þau aldrei. Það er smá- vægilegt og þess vegna mikilvægt. Spurðu ekki Hagstofuna hvað hún geti gert fyrir þig … Kannski spurningin ætti heldur að vera: Af hverju þarf að vera að standa í þvargi um það hvað maður vill heita gagnvart Keisaranum, guði og samfélaginu. Af hverju á nefnd valinkunnra einstaklinga að fjalla um það hvað þú heitir á bréfum Hagstofunnar til þín, og samþykkja hugmyndir þínar eða synja þeim? Fólk gefur sér ýmis nöfn, stundum á svokölluð hliðar- sjálf og stundum á þá persónu sem það telur sig einkum vera og vill sýna umheiminum. Fólk gefur sér listamannsnöfn án þess að mannanafnanefnd sjái ástæðu til að hafa afskipti af því: „Nefndin hefur fjallað um umsókn þína að fá að heita MC Gauti en getur því miður ekki fallist á hana vegna þess að stafirnir MC samræmast ekki íslensku beygingarkerfi …“ Hver er í rauninni munurinn? Ætti ekki heldur að hafa áhyggjur af opinberum nöfnum fólks – þeim sem samfélagið þekkir og notar – en kennitölunöfnum? Af hverju þurfa nöfn á umslögum frá Hag- stofunni fremur að samræmast íslensku beygingarkerfi en nöfn sem öllum erum töm? Tungumáli verður ekki stjórnað með lögum og lagabókstaf. Tungumál er lífið sjálft, óstýrilátt og streymandi í ótal farvegum. Og þegar landið er fullt af fólki sem kemur með annars konar nafnavenjur úr fyrri samfélögum hljóta lög sem takmarka rétt fólks til ákvarðana um nöfn sín og sinna að falla um sjálf sig. Nema við vilj- um aftur neyða það fólk sem hing- að flyst til að kalla sig Kára og Jar- þrúði. Eða snýst þetta að einhverju leyti um þarfir Hagstofunnar? Við munum þá tíð þegar Hagstof- an bannaði of löng nöfn, vegna þess að það hentaði ekki þáver- andi tölvukosti stofunnar, eins og þjóðin þyrfti að laga sig að tölv- unum en ekki öfugt. Sá hugsunar- háttur minnir dálítið á umræður á facebook-vegg Hallgríms Helga- sonar um daginn þegar hann sýndi einn af þessum ólystilegu íslensku ostum sem eru svo linir að þeir fara í klessu við minnstu snert- ingu ostaskera; þá urðu ýmsir til að segja að hann hafi ekki verið með rétta ostaskerann. Þanka- gangurinn er með öðrum orðum sá að manni beri að laga sig að hroðanum fremur en að mótmæla honum og krefjast mannsæmandi varnings. En það á maður að gera. Maður á kröfu á því að fá að borða ætan ost á viðunandi verði. Og maður á kröfu á því að mega skilgreina sjálfan sig eins og maður kýs og koma fram fyrir annað fólk eins og maður hefur skilgreint sig, svo fremi sem almennt samkomulag ríki um að manni sé sjálfrátt. Vald yfir eigin mannhelgi Þessi þrá eftir valdi yfir eigin mannhelgi – eigin áru – eigin merkingu fyrir öðru fólki – braust fram í síðustu viku með dæmi- gerðu alíslensku „æði“ sem geta verið svo skemmtileg, þegar þús- undir kvenna beruðu brjóst sín á eigin forsendum og með frelsið að gunnfána: frelsi undan markaðs- væðingu mannslíkamans, frelsi undan glápmerkingu karlveldisins. Sú hugmynd að maður eigi sjálf- ur að ráða yfir sér – og þar með því hvaða nafni maður nefnist gagnvart sjálfum sér, öðru fólki og samfélaginu í heild – þetta er grundvallarhugmynd. Vissulega getur nafnið manns verið sam- vinnuverkefni – stundum heilt þorp sem tekur þátt í því – og ekki alltaf jafn indæl nöfnin sem fólk situr uppi með í viðurnefnalandinu Íslandi. Ekki hefur löggjafinn séð ástæðu til að láta slíkt til sín taka, enda vandséð hvernig því verði við komið. Aðrar hefðir hafa verið líf- seigar hér á landi – til dæmis að kenna sig við staði og bæi: Bólu- Hjálmar … Sigríður Einars frá Munaðarnesi … Davíð frá Fagra- skógi. Allt hefur þetta lifað ein- hvern veginn í þessum hálfgerða hrærigraut sem mannleg tilvera getur orðið þegar hún verður sem indælust og býr við hæfilegt afskiptaleysi af hálfu hins opin- bera. Þar með er ekki sagt að samfélagsleg ábyrgð skipti engu máli; eða að samfélagið beri ekki ábyrgð á velfarnaði einstakra þegna. Samfélagið þarf hins vegar ekki að hafa vit fyrir ein- staklingunum nema í undantekn- ingartilvikum. Eftir stendur þá einkum tvennt: að löggjafinn hafi, af menningar- legum og sögulegum ástæðum, tekið að sér að vernda ævafornt mannanafnakerfi Íslendinga, að kenna sig við föður eða móður; og þetta viðkvæma kerfi sé í hættu og geti horfið með öllu á nokkrum mannsöldrum. Og svo hitt: Að það geti verið börnum erfitt að alast upp með nöfnum þar sem þörf for- eldranna til að tjá sig gengur út í öfgar, og þau þurfi að vernda. Hið síðarnefnda er fyrst og fremst barnaverndarmál og ætti eigin- lega að vera hluti af ungbarna- eftirlitinu þegar gætt er að því að sómasamlega sé búið að barninu, að það fái ekki of skrípaleg nöfn; það er í rauninni ekki málfræðileg spurning heldur siðferðileg. Hitt atriðið er erfiðara. En sé svo komið að eina vernd tungu- máls og menningararfs séu laga- þvingunarúrræði – þá er sú menn- ing feig. Sjálfur er ég ekki viss um að sá góði siður að kenna sig við foreldra muni hverfa sjálfkrafa, jafnvel þótt Jón fái að heita Gnarr. Hvað felst í nafni? Og þegar landið er fullt af fólki sem kemur með annars konar nafnavenjur úr fyrri sam- félögum hljóta lög sem takmarka rétt fólks til ákvarðana um nöfn sín og sinna að falla um sjálf sig. Nema við viljum aftur neyða það fólk sem hingað flyst til að kalla sig Kára og Jarþrúði. AF NETINU Alveg kýrskýrt Þótt menn hafi á ein- hverjum tímapunkti keypt kvóta til nýt- ingar var seljandinn ekki aðili sem hafði rétt eða umboð til að selja hann til frambúðar. Auðvitað hljóta kaupendurnir að hafa gert sér grein fyrir því. Það stendur í lögum um fiskveiðar að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign þjóðarinnar. Þetta er alveg kýrskýrt og það eru engar líkur á að þessu verði breytt. Mikill meirihluti þjóðar- innar er þessarar skoðunar– stjórn- málamenn sem reyna að einka- væða fiskistofnana til frambúðar munu ekki hafa erindi sem erfiði. Í kosningu um tillögur stjórnlaga- ráðs greiddu 74 prósent atkvæði með því að náttúruauðlindir sem eru ekki í einkaeigu verði lýstar þjóðareign. Skoðanakannanir hafa sýnt svipaðar niðurstöður. Egill Helgason á eyjan.is Einn maður í feðraveldinu Það hefur ekki frá því að ég man eftir mér verið amast við því að konur stunduðu sólböð berbrjósta ef þær vilja í sundlaugum á Íslandi. Það er ekki bannað og þykir ekki ósiðlegt að gefa börnum brjóst á almannafæri á Íslandi. Ég man eftir einni frétt um það að konu hafi verið bannað að gefa brjóst á veitingastað hér á landi. Einn stjörnugalinn veitingamaður. Það var nú allt „feðraveldið“, hið íslenska Kabúl, sem nýfemínistar leita að með logandi ljósi. Það er ekkert stigma í kringum ber brjóst kvenna á Íslandi. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir á kvennabladid.is 2 9 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 5 0 -3 A A 0 1 4 5 0 -3 9 6 4 1 4 5 0 -3 8 2 8 1 4 5 0 -3 6 E C 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.