Fréttablaðið - 30.03.2015, Blaðsíða 58
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
24.900 kr.
DÚNMJÚKUR
DRAUMUR
QOD dúnsæng
· 90% dúnn
· 10% smáfiður
Fullt verð: 25.900 kr.
QOD dúnkoddi
· 15% dúnn
· 85% smáfiður
Fullt verð: 4.900 kr.
Aðeins 69.900 kr.
NATURE’S REST
heilsurúmFERMINGAR
TILBOÐ
Shape Comfort
koddi fylgir með
að verðmæti
5.900 kr.
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
Nature’s Rest heilsudýna með Classic botni.
Fáanlegt í svörtu og hvítu.
Stærð: 120x200 cm.
Fullt verð: 79.900 kr.
FERMINGAR
TVENNA
Fyrir þínarbestu stundir
Holtagarðar | Akureyri | www.dorma.is
Dormabæklinginn
finnur þú á dorma.is
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Fyrir fólk sem
stækkar og stækkar
ÚRSLIT
UNDANKEPPNI EM 2016
A-RIÐILL
KASAKSTAN - ÍSLAND 0-3
0-1 Eiður Smári Guðjohnsen (20.), 0-2 Birkir
Bjarnason (32.), 0-3 Birkir Bjarnason (90.+1).
HOLLAND - TYRKLAND 1-1
0-1 Burak Yilmaz (37.), 1-1 Klaas-Jan Huntelaar
(90.+2).
TÉKKLAND - LETTLAND 1-1
0-1 Aleksejs Vibsjakovs (30.), 1-1 Vaclav Pilar (90.).
Staðan: Tékkland 13 stig, Ísland 12, Holland 7,
Tyrkland 5, Lettland 3, Kasakstan 1.
B-RIÐILL
ÍSRAEL - WALES 0-3
0-1 Aaron Ramsey (45.), 0-2 Gareth Bale (50.), 0-3
Gareth Bale (77.).
ANDORRA - BOSNÍA 0-3
BELGÍA - KÝPUR 5-0
Staðan: Wales 11 stig, Ísrael 9, Belgía 8, Kýpur 6,
Bosnía 5, Andorra 0.
H-RIÐILL
ASERBAIJAN - MALTA 2-0
KRÓATÍA - NOREGUR 5-1
BÚLGARÍA - ÍTALÍA 2-2
Staðan: Króatía 13 stig, Ítalía 11, Noregur 9,
Búlgaría 5, Aserbaijan 3, Malta 1.
D-RIÐILL
GEORGÍA - ÞÝSKALAND 0-2
0-1 Marco Reus (39.), 0-2 Thomas Müller (44.).
SKOTLAND - GÍBRALTAR 6-1
ÍRLAND - PÓLLAND 1-1
Staðan: Pólland 11 stig, Þýskaland 10, Skotland
10, Írland 8, Georgía 3, Gíbraltar 0.
F-RIÐILL
NORÐUR-ÍRLAND - FINNLAND 2-1
RÚMENÍA - FÆREYJAR 1-0
UNGVERJALAND - GRIKKLAND 0-0
Staðan: Rúmenía 13 stig, Norður-Írland 12, Ung-
verjaland 8, Finnland 4, Færeyjar 3, Grikkland 2.
I-RIÐILL
ALBANÍA - ARMENÍA 2-1
PORTÚGAL - SERBÍA 2-1
1-0 Ricardo Carvalho (10.), 1-1 Nemanja Matic
(61.), 2-1 Fabio Coentrao (63.).
Staðan: Portúgal 9 stig, Danmörk 7, Albanía 7,
Armenía 1, Serbía -2.
Óskar Ó.
Jónsson
ooj@frettabladid.is
Friðrik Þ.
Halldórsson
Frá Astana
UTAN VALLAR
Óskar Ófeigur
Jónsson
segir sína skoðun
FORMÚLA 1 Kappaksturinn í Malasíu í gær var
æsispennandi og stórskemmtilegur. Svo fór
að lokum að Sebastian Vettel á Ferrari kom
fyrstur í mark. Úrslitin komu mörgum á óvart.
Mercedes-strákarnir Lewis Hamilton og
Nico Rosberg fylgdu í kjölfarið og Kimi
Raikkonen á Ferrari varð fjórði.
Ferrari virðist ætla að berjast af
krafti á tímabilinu miðað við þessi
úrslit en yfirburðir Mercedes voru
yfirvofandi.
Hamilton hefur enn forystu í
stigakeppninni en hann er með 43
stig. Vettel er með 40 og Rosberg
með 33. Massa er svo með 20. - hbg
Vettel hraðastur allra í Malasíu
FÓTBOLTI Hver vill ekki fá annað
tækifæri þegar mikilvægt mark-
mið klikkar? Karlalandsliðinu
í fótbolta varð að ósk sinni með
frammistöðunni í Astana um
helgina. Eftir sigra í þrem fyrstu
leikjunum ætluðu íslensku strák-
arnir sér mikið í toppslagnum við
Tékka í nóvember. Tapið í Plzen
var því vonbrigði en strákarnir
sáu til þess með sigrinum á Kasök-
um í Astana um helgina að EM-
brautin er enn greiðfær.
Eiður Smári Guðjohnsen kom
íslenska liðinu í 1-0 og Birkir
Bjarnason bætti síðan við tveim-
ur mörkum og íslenska liðið vann
sinn þriðja 3-0 sigur í fyrstu fimm
umferðunum.
„ Þ et ta var fagma nnleg
afgreiðsla skulum við segja. Þetta
var engin flugeldasýning en við
gerðum það sem þurfti að gera og
það er kúnst að kunna það líka,“
sagði Heimir Hallgrímsson, annar
þjálfara íslenska liðsins.
Heimir og Lars settu Eið Smára
Guðjohnsen beint inn í byrjunar-
liðið eftir sextán mánaða fjarveru
og hann hoppaði strax inn í hetju-
hlutverkið með því að skora mjög
mikilvægt mark.
„Markið hans Eiðs Smára
breytti svolítið leiknum því leikur-
inn var allur þægilegri eftir það.
Fram að því fannst mér þeir vera
betri ef eitthvað var og stjórna
svolítið leiknum,“ sagði Heimir.
Íslenska liðið hefur nú hald-
ið hreinu fjórum sinnum í fyrstu
fimm leikjum sínum í riðlinum og
íslenskt landslið hefur aðeins einu
sinni haldið oftar hreinu í heilli
undankeppni. Miðverðirnir Kári
Árnason og Ragnar Sigurðsson
hafa spilað saman alla keppnina og
þar er komið draumamið varðapar
fyrir landsliðið.
„Það er ávísun á gott gengi ef þú
getur haldið hreinu. Við erum með
markatöluna 12-2 sem er óvanalegt
fyrir Ísland. Við megum ekki fara
fram úr okkur og næst er mikil-
vægur leikur við Tékka,“ sagði
Heimir og íslenskt knattspyrnu-
áhugafólk getur strax farið að
undir búa föstudaginn 12. júní.
„Við vorum ekki ánægðir með
frammistöðu okkar í Tékklandi og
viljum bæta fyrir hana heima. Við
viljum koma okkur í efsta sætið
því það er okkar markmið að vera í
öðru af tveimur efstu sætunum. Þá
þurfum við að vinna Tékka til að
tryggja okkur það,“ sagði Heimir.
Reyndar voru úrslitin ekki eftir
bókinni í leikjum laugardagsins
því íslenska liðið var það eina sem
fagnaði sigri. Holland er nú fimm
stigum á eftir því íslenska þegar
riðlakeppnin er hálfnuð.
Aron Einar Gunnarsson og
Eiður Smári Guðjohnsen settu
báðir íslenska landsliðið í for-
gang fyrir þennan mikilvæga
leik. Aron Einar varð faðir í fyrsta
sinn skömmu eftir að hann kom út
og Eiður Smári er að verða faðir
í fjórða sinn. „Fyrst við unnum
leikinn 3-0 þá förum við ekki að
halda nýjum feðrum eða tilvon-
andi. Sennilega leyfum við þeim
bara að fara ef þeir vilja,“ sagði
Heimir en liðið spilar æfingaleik
í Eistlandi á morgun. „Þeir fara
brosandi heim. Annars hefðum við
aldrei leyft þeim að fara,“ sagði
Heimir brosandi.
Taka tvö gegn Tékkum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fær annan leik við Tékkland um efsta sætið í
A-riðli undankeppni EM 2016 eft ir fagmannlegan 3-0 sigur á Kasakstan.
FRÁBÆR ENDURKOMA Strákarnir fagna hér marki Eiðs Smára en hann braut ísinn
í leiknum og eftir það varð allt auðveldara. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Íslenska þjóðin hefur
ekki eignast mikið betri knatt-
spyrnumenn en þá Eið Smára
Guðjohnsen og Gylfa Þór Sig-
urðsson og að sjá þá spila hlið við
hlið með íslenska landsliðinu í dag
eru sannkölluð forréttindi fyrir
íslensku þjóðina.
Gylfi er kóngurinn á miðjunni,
alltaf í jafnvægi með boltann og
alltaf tilbúinn að búa eitthvað til
fyrir liðið. Hann hefur verið frá-
bær alla undankeppnina og kom
að enn einu markinu í sigrinum á
móti Kasakstan á laugardaginn.
Eiður Smári sneri aftur í lands-
liðið eftir sextán mánaða fjarveru
og hefur sjaldan spilað betur en í
leiknum á Astana-leikvanginum.
Það sem best er að þarna fara
klókir og skapandi knattspyrnu-
menn sem kunna greinilega mjög
vel við það að spila saman. Um leið
og annar hvor þeirra fær
boltann er líka von á ein-
hverju góðu. Hvort sem
það er veggspil eða annað
þá virðast oft varnir
andstæðinganna opn-
ast eins og bók þegar
annarhvor þeirra
hefur komist í tæri
við boltann.
Gylfi á nóg
eftir með lands-
liðinu en það er
ómetan legt fyrir
hann og íslenska
landsliðið að njóta góðs af reynslu
og yfirvegun Eiðs Smára á mögu-
lega stærsta og mikilvægasta
landsleikjaári sögunnar.
Eiður Smári spilaði stóran
hluta landsleikjaferils síns án
þess að hafa mann eins og Gylfa
með sér. Eiður veit því örugg-
lega sjálfur hversu gott er að vita
af Gylfa nálægt sér og þeir eru
ósparir á það að finna hvor annan
í fæturna.
„Eiður er með flottar hreyfing-
ar og mjög klókur. Það er gott að
spila boltanum á hann, því hann
heldur honum svo vel. Það er auð-
velt að spila með góðum leikmönn-
um,“ sagði Gylfi um félaga sinn.
Það er auðvitað fullt af fleiri
frábærum knattspyrnumönnum
í íslenska landsliðinu, metnaðar-
fullum leikmönnum sem hafa allir
sem einn sameinast um að koma
íslenska landsliðinu í sannkall-
aðan EM-gír. Vinnusemin, sam-
vinnan og samheldnin fer langt
með landsliðið á þessu ferðalagi
en það eru samt menn eins og
Gylfi Þór Sigurðsson
og Eiður Smári Guð-
johnsen sem koma
með þetta extra
og óútskýranlega
sem gerir út um
leikina.
Ég held að það
sé komið á óska-
lista nær allra
íslenskra knatt-
spyrnuáhuga-
manna að sjá
mikið meira af
Gylfa og Guð-
johnsen.
Meira af Guðjohnsen
og Gylfa, takk fyrir
SPORT
2
9
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
0
-7
0
F
0
1
4
5
0
-6
F
B
4
1
4
5
0
-6
E
7
8
1
4
5
0
-6
D
3
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K