Fréttablaðið - 30.03.2015, Side 26

Fréttablaðið - 30.03.2015, Side 26
Páskakrimmi MÁNUDAGUR 30. MARS 20154 Oddný G. Harðardóttir þingkona „Ég hef því miður ekki haft mikinn tíma til að sökkva mér í góðan krimma nýlega en ég hef alltaf verið frekar höll undir norrænu krimmahefðina. Ég er hrifin af sænskum krimmum, fyrst Sjöwall og Wahlöö og svo Henning Mankell, Cam- illu Läckberg og Lisu Marklund. Arnald- ur okkar Indriðason er einnig góður og ég á eftir að lesa Kamp Knox eftir hann sem ég fékk um jólin. Þótt Náðarstund eftir Hönnu Kent sé ekki dæmigerður krimmi þá myndi ég vilja taka hana með um páskana. Sagan af Agnesi hefur alltaf heillað mig. Svo væri ég til í að lesa Dans- að við björninn eftir Roslund og Thun- berg, aðallega vegna þess að ég heyrði viðtal við höfundana í Kiljunni og bókin virðist áhugaverð og ógnvekjandi. Ætli fjórða bókin yrði ekki eitthvað eftir Ian Rankin. Maðurinn minn er mikill Skot- landsvinur og talar stundum eins og hann þekki Rebus lögreglumann pers- ónulega. Ég reyni að gera honum til geðs og kynnast þeim sem honum líkar við.“ Egill Helgason fjölmiðlamaður „Áhugi minn á spennusögum er mjög þröngur og nánast eingöngu bundinn við sögur sem fjalla um njósnir og launráð á tímum nasista og komm- únista í Evrópu. Það er til nokkur hópur höfunda sem skrifar um þennan heim, þeirra frægastur er John Le Carré, en ég nefni líka höfunda eins og Alan Furst og Philip Kerr. Ég er einmitt að bíða eftir nýjustu bók Kerrs sem nefnist The Lady from Zagreb. Hún er í flokki bóka sem hann skrifar um Bernie Gunther, þýskan lögreglumann, sem er fyrst kynntur til sögunnar á tíma Weimarlýð- veldisins en fer víða í heimsstyrjöldinni og á tíma kalda stríðsins. Spennubækur sem gerast í Rúss- landi, helst í Sovétríkjunum, les ég líka, eins og bækur Martins Cruz Smith um lögreglumann- inn Arkady Renko. William Ryan er annar sem skrifar um þennan tíma og er ansi góður. Ekki má gleyma bókum Boris Akunins um Erast Fan- dorin, rússneskan leyniþjónustumann á tíma keisaranna sem líkist James Bond ansi mikið. Við skandinavísku spennusöguna hef ég aldrei náð að tengja, nema við frumkvöðlana Sjövall og Wahlöö. Þá vil ég frekar hinn franska Simenon, en ein aðferðin sem ég notaði til að læra frönsku var að lesa nær allar bækur hans um Maigret. Guðfinnur Sigurvinsson upplýsinga- fulltrúi og teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun. „Ef ég ætti að velja mér krimma til að lesa í páskafríinu þá veldi ég DNA eftir Yrsu Sigurðardóttur. Ég hef heyrt margt lofsamlegt um þá bók og söguþráðurinn á kápu lofar vægast sagt góðu. Annars er ég að lesa Náðarstund eftir Hönnuh Kent í framúrskarandi þýðingu Jóns St. Krist- jánssonar og ég er alveg límdur við þá bók. Kannski ég klári hana um páskana? Þótt hún sé ekki eiginlegur krimmi þá er þarna auðvitað fjallað um morð og aftöku en undirtónninn er þó frekar harmrænn en drungalegur eins og ein- kennandi er fyrir dæmigerða glæpa- sögu. Svo er bara að sjá hvað páskafrí- ið gefur. Sennilega fer mestur tími, eins og svo oft áður, í að þeytast á milli staða til að hitta fólk og gera eitthvað markvert til að sýna öðrum á Facebook, maður er jú alltaf að drífa sig í frí.“ Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunar- fræðingur og matarbloggari „Ég veit fátt betra en að eiga rólegar stundir með góðri bók. Ég hef reynd- ar ekki lesið mikið af glæpasögum en það eru þó nokkrar í þessum f lokki sem virkilega kalla á mig. Þar má nefna nýút- komna bók Sólveigar Pálsdóttur, Flekk- laus, en hún er að fá góða dóma enda f lottur höfundur hér á ferð. Ég er mjög spennt fyrir Dansað við björninn eftir Roslund og Thunberg sem er byggð á sönnum atburðum. Hér er víst á ferðinni bók sem enginn áhugamaður glæpa- sagna eða góðra bóka má láta fram hjá sér fara og ég mun klárlega ekki gera það. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki enn lesið bók eftir Jo Nesbo en mig hefur lengi langað til að lesa fyrstu bók hans, Rauðbrysting. Hún er víst nokkuð þung í byrjun þar sem margar sögupersónur eru kynntar til leiks en ef maður kemst í gegnum fyrstu 30 blaðsíðurnar er fram- haldið víst alveg magnað.“ Góðir krimmar í páskafríinu Páskarnir eru frábær tími til að líta í góðan krimma enda flestir landsmenn í nokkurra daga fríi og eiga góðan tíma aflögu fyrir lestur bóka. Fréttablaðið spurði fjóra einstaklinga hvaða krimma þeir væru til í að lesa í páskafríinu og voru svörin af ólíkum toga. HLUSTAÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER #BYLGJANBYLGJAN989 ÍVAR GUÐMUNDS ER Í LOFTINU MILLI KL. 10:00 - 13:00ALLA VIRKA DAGA 2 9 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 5 0 -7 A D 0 1 4 5 0 -7 9 9 4 1 4 5 0 -7 8 5 8 1 4 5 0 -7 7 1 C 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.