Fréttablaðið - 30.03.2015, Side 46

Fréttablaðið - 30.03.2015, Side 46
Páskar MÁNUDAGUR 30. MARS 20158 ÖLMUSA FRÁ DROTTNINGU Á breskri tungu kallast skírdagur Maundy Thursday. Á þeim degi er þar haldin í heiðri trúarhefð sem kallast Royal Maundy. Í guðsþjón- ustu er sérstök athöfn þar sem konungborinn embættismaður dreifir litlum silfurpeningum til eldri safnaðarmeðlima sem tákn um ölmusu. Athöfnin var haldin í eða nærri London og síðustu öld hefur hún yfirleitt alltaf verið haldin í Westminster Abbey. Athöfnin sjálf og orðið Maundy draga nafn sitt af þeim til- mælum (mandatum) Jesú til lærisveina sinna við síðustu kvöldmáltíðina að allir menn ættu að elska hver annan. Á miðöldum fylgdu konungbornir Englendingar í fótspor Jesú og þvoðu fætur betlara og gáfu fátækum peninga. Elísabet II Englandsdrottning hefur nánast alla sína drottningartíð verið viðstödd þessa athöfn og gefið silfurpeninga. Reyktur lax, kavíar og egg fara vel saman á páskum. Hægt er að bera þessi egg fram í hádeginu með öðrum léttum réttum. Bragðgóður og fallegur réttur. Hægt er að nota grafinn lax vilji fólk það frekar. Til að gera 10 bita þarf: ● 10 þunnar sneiðar reyktur lax ● 5 harðsoðin egg ● dill og kavíar ef vill Skerið eggin til helminga. Takið hverja laxasneið og leggið fallega á eggið. Skreytið með kavíar og dilli. Hægt er að taka guluna úr egg- inu og hræra hana saman við túnfisksalat. Síðan er salatið sett ofan í holuna þar sem gulan var. Hægt er að útbúa fleiri tegundir af salötum, allt eftir smekk. Það má líka hræra eggjarauðuna með sýrðum rjóma, majónesi, sítrónusafa, graslauk, salti og pipar. Blandan er sett í sprautu- poka og sett fallega ofan í eggið. Laxinn er settur fallega ofan á blönduna. PÁSKAEGG MEÐ REYKTUM LAXI PÁSKAR Í KRISTNI OG GYÐINGDÓMI Einhverjar mikilvægustu hátíðir í bæði kristni og gyðingdómi eru páskarnir. Hvor tveggja trúarbrögðin fagna páskum en þó er verið að fagna ólíkum atburðum þar. Í kristni er verið að fagna upprisu Jesú Krists frá dauðum og því eru páskarnir sann- arlega gleði- og sigurhátíð en reyndar eru þeir elsta hátíð kristninnar. Kirkjufeðurnir kölluðu páskana hátíð hátíðanna og er því hver sunnudagur í raun endurómur af gleðisöng páskanna. Túlkun Gyðinga á upphafi páskahátíðarinnar má hins vegar lesa í Mósebók en þar tengist hún brottförinni af Egyptalandi þegar Móse leiddi Ísraelsmenn úr ánauðinni gegnum Rauðahafið og eyðimörkina í átt til hins fyrirheitna lands. Sjálfsmynd Ísraels- þjóðar og síðar gyðinga byggist talsvert á þessum frásögnum og þær hafa raunar svip- aða stöðu og sagnir íslenskra fornrita af landnámi, stofnun alþingis og kristnitökunni. Sögu páskanna má rekja langt aftur fyrir daga Krists og í raun aftur fyrir gyðingdóminn sem sjálfstæð þróuð trúarbrögð eða aftur til daga hinna fornu Hebrea eða Ísraels- manna. Heimild: Vísindavefurinn 365.is Sími 1817 BÚÐU ÞIG UNDIR STÓRSKEMMTILEGA PÁSKA Á STÖÐ 2 Frábærar bíómyndir, erlendir spennu- og grínþættir, vönduð íslensk dagskrá og fyrsta flokks talsett barnaefni. ÞAÐ ER ALLT SVO FRÁBÆRT UM PÁSKANA! GLEÐILEGA PÁSKA 2 9 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 5 0 -5 3 5 0 1 4 5 0 -5 2 1 4 1 4 5 0 -5 0 D 8 1 4 5 0 -4 F 9 C 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.