Fréttablaðið - 30.03.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.03.2015, Blaðsíða 4
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Það er ljóst í mínum huga að ef gestum fjölgar áfram eins og spár segja til um, sem allt bendir til, þá þarf að fara að flytja inn töluvert af vinnuafli til að mæta þessu. Edward H. Huijbens, prófessor við Háskólann á Akureyri. FERÐAÞJÓNUSTA Fyrirsjáanlegri þörf á fjölgun starfsmanna innan íslenskrar ferðaþjónustu verður ekki mætt öðruvísi en með því að flytja inn erlent vinnuafl. Fjöldi sérhæfðs starfsfólks er í engu samræmi við ferðamannastraum- inn til landsins, hvað þá að hann uppfylli kröfur ef spár um fjölgun ganga eftir. „Það er ljóst í mínum huga að ef gestum fjölgar áfram eins og spár segja til um, sem allt bendir til, þá þarf að fara að flytja inn tölu- vert af vinnuafli til að mæta þessu. Eins og staðan er í dag búum við ekki yfir nægjanlegum fjölda með færni til að mæta fjölda gesta og tryggja gæði þjónustu,“ segir Edward H. Huijbens, prófessor við Háskólann á Akureyri og sér- fræðingur við Rannsóknamiðstöð ferðamála. Ný greining Landsbankans sýnir þróunina svart á hvítu. Þar er vitnað til talna Hagstofunn- ar en samtals fjölgaði starfandi hjá gististöðum, veitingastöðum, flutningum með flugi, ferðaskrif- stofum, ferðaskipuleggjendum og annarri bókunarþjónustu úr 9.200 manns árið 2008 upp í 11.000 árið 2012 og 14.600 árið 2014. Í greiningu Ólafs Más Sigurðs- sonar, sérfræðings hjá Hagstofu Íslands, sem unnin var að beiðni Morgunblaðsins nýlega, kemur fram að fólki sem starfar við ferðaþjónustu og tengdar greinar fjölgaði um 2.700 árið 2014. Í heild sinni fjölgaði starfandi fólki um 2.800 á tímabilinu. Þannig eru vís- bendingar um að vöxtur ferðaþjón- ustunnar sé að baki nær allri fjölg- un starfandi fólks á síðasta ári. Nánar spurður um sérhæft starfsfólk innan ferðaþjónust- unnar segir Edward enga stefnu fyrir liggjandi er varðar menntun og stjórnun þjónustugæða í grein- inni, og úr því þurfi að bæta með hraði. Til að mæta ferðamanna- SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ P Á S K A E G G NÝTT Sækja þarf vinnuafl að utan Íslenskt vinnuafl hrekkur ekki til að manna öll þau störf sem skapast með fyrirsjáanlegri fjölgun ferðamanna. Störfum í ferðaþjónustu fjölgaði um 58,7% milli 2008 og 2014. Fjölga þarf sérmenntuðu fólki í greininni. Gústaf Steingrímsson, hagfræðingur í hagfræðideild Landsbankans, gerði grein fyrir nýrri greiningu um ferðaþjónustuna í landinu á ráðstefnu bankans um ferðaþjónustuna í vikunni. Með gestum af farþegaskipum losaði fjöldi ferðamanna milljónina árið 2014, en Landsbankinn spáir að þeir verði 1.170 þúsund á þessu ári, 1.340 þúsund árið 2016 og 1.450 þúsund árið 2017. Forsendur bankans um þróun áranna á eftir gera ráð fyrir að innan sjö ára losi ferðamenn hérlendis tvær milljónir. Helmingi fleiri ferðamenn árið 2021HAFNARFJÖRÐUR Formanni hafnar stjórnar Hafnarfjarðar- kaupstaðar var heimilt að áminna starfsmann Hafnarfjarðarhafn- ar vegna brots í starfi. Yfirmað- ur starfsmannsins, hafnarstjóri, hafði neitað að framkvæma þá ákvörðun stjórnar að áminna starfsmanninn. Þetta er mat lögmanns Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, Sólveigar Gunnarsdóttur, sem kemur fram í minnisblaði hennar um heimildir stjórnarformanns til athafna í starfsmannamálum hafnarinnar. Var uppi ágreiningur um hvort áminningarferli bæjarins væri í anda laga um vinnurétt. - sa Valdsvið í hafnarstjórn: : Mátti áminna starfsmanninn SAMFÉLAG 79 þúsund gestir sóttu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á síðasta ári. Það jafngildir því að um fjórð- ungur landsmanna hafi sótt sin- fóníutónleika í fyrra. Þar af voru gestir á tónleika Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands um 76.500 manns á móti ríflega 2.600 gestum á tón- leika Sinfóníuhljómsveitar Norð- urlands. Hagstofa Íslands telur fjölda áheyrenda á innlenda tón- leika Sinfóníuhljómsveitar Íslands vafalaust skýrast að miklu leyti af tilkomu tónlistar- og ráðstefnu- hússins Hörpu. - kbg 79 þúsund gestir árið 2014: Fjórðungur á sinfóníutónleika 4 gráða hækkun gæti orðið á hitastigi á jörðinni á hundrað árum gangi ýtrasta spá Vísindanefndar um loftslagsbreytingar eftir. Nefndin spáir að hækkunin verði bilinu 1,8 til 4,0°C. Heimild: Umhverfisstofnun. MIKIL FJÖLGUN Tilkoma Hörpu skilar sér í meiri ásókn í tónleika. FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR GESTIR Hugsa þarf fyrir því hvernig á að manna þúsundir starfa sem fylgja sífelldri fjölgun ferðamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA straumnum með innlendu vinnu- afli þurfi tilfærslur milli greina, og að beina ungu fólki í ferðamála- skóla – bæði í starfstengt nám og ferðamálafræði. Þegar eru erlendir starfsmenn algengir innan raða starfsmanna íslenskrar ferðaþjónustu. Strax árið 2008 sýndi rannsókn sem var unnin innan félagsvísindasviðs Háskóla Íslands fyrir Vinnumála- stofnun að tæplega tvö af hverjum þremur fyrirtækjum í ferðaþjón- ustu höfðu þá erlent starfsfólk í vinnu. svavar@frettabladid.is ERLENT Arababandalagið samþykkti í gær að Sádi-Arabía skyldi halda áfram loftárásum sínum í Jemen. Sádar og bandamenn þeirra hafa undanfarna daga varpað sprengj- um á höfuðborgina Sanaa, með það að markmiði að lama varnir upp- reisnarhreyfingar Húta. Hútar, sem eru sjía-músl- imar, hafa farið með stjórn í Jemen síðan forseti landsins, Abd Rabbuh Mansour Hadi, hrökklaðist frá völdum í janúar. Hadi hefur í framhaldinu sakað Íran um að standa á bak við upp- reisnina. Fjölmörg lönd hafa lokað sendi- ráðum í Jemen og kallað sendiherra sína heim eftir valdarán Húta. Þá var bandarískt herlið sem hefur barist árum saman við Al Kaída í landinu kallað heim í þessum mán- uði. - ie Arababandalagið samþykkir framhald lofthernaðar Sádi-Arabíu í Jemen: Sádar herða sókn gegn Hútum HAFNARFJÖRÐUR FH skuldar Hafnarfjarðarbæ 18 milljónir króna í gatnagerðargjöld frá því Risinn, knattspyrnuhús félagsins, var byggt. Félagið vill að að skuldin verði afskrifuð. Þetta kemur fram í bréfi Viðars Halldórssonar, for- manns FH, til Hafnarfjarðar. Bréfið var rætt í bæjarráði sem vill frekari upplýsingar um málið. Forsvarsmenn FH segjast hafa fengið loforð um að félagið þyrfti ekki að greiða skuldina. - sa Íþróttafélag vill afskrifa: Skulda bænum átján milljónir STRENGJABRÚÐUR Abd Rabbuh Mansour Hadi kallaði Húta strengja- brúður Írans um helgina. MYND/AP Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá DYMBILVIKAN Norðanátt á landinu fram á skírdag með éljum fyrir norðan og bjartviðri syðra. Því næst tekur við austlæg átt með úrkomu um sunnanvert landið en sú gula verður líklega mest áberandi fyrir norðan um páskahelgina. -3° 7 m/s -2° 7 m/s -1° 5 m/s 0° 13 m/s 5-10 m/s. 10-18 m/s N- og A-til, annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 12° 24° 6° 13° 18° 7° 10° 8° 8° 22° 13° 27° 27° 27° 21° 9° 8° 9° -2° 10 m/s 0° 7 m/s -1° 8 m/s -2° 15 m/s -2° 12 m/s -1° 11 m/s -7° 12 m/s -2° -2° -4° -3° -2° -3° -2° -3° -3° -4° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur MIÐVIKUDAGUR Á MORGUN 2 9 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 5 0 -4 E 6 0 1 4 5 0 -4 D 2 4 1 4 5 0 -4 B E 8 1 4 5 0 -4 A A C 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.