Fréttablaðið - 30.03.2015, Side 2
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
BÓKMENNTIR Rauða hrafnsfjöðr-
in, verðlaun fyrir forvitnilegustu
kynlífslýsingu ársins í íslenskum
skáldverkum,
féll í skaut Soff-
íu Bjarnadótt-
ur fyrir bókina
Segul skekkja.
Verðlaun-
in voru veitt
í níunda sinn
á aðalfundi
Lestrarfélagsins
Krumma á laugardagskvöld.
Alls voru tilnefningarnar sex
talsins, í fyrra hlaut Sjón verðlaun-
in fyrir bókina Mánastein. - gló
Rauða hrafnsfjöðrin veitt:
Forvitnilegasta
kynlífslýsingin
SOFFÍA
BJARNADÓTTIR
MENNING Tæplega fimm metra hár ljósastaur skreytir nú svalir íbúðar
á sautjándu hæð við Vatnsstíg 18. Ljósastaurinn er hluti af listaverki
eftir Kristin E. Hrafnsson og er leyfi borgarinnar fyrir því tímabund-
ið fram til 15. september.
Leyfi frá húsfélaginu til bráðabirgða í eitt ár fylgdi umsókn eig-
anda íbúðarinnar, Sigurðar Gísla Pálmasonar. Að ári liðnu á að skoða
„hvort einhver óæskileg áhrif hafi komið í ljós“. - ibs
Nýtt listaverk gleður eiganda þakíbúðar við Vatnsstíg:
Ljósastaur á svölunum á 17. hæð
LIST Stjórn húsfélagsins gaf leyfi fyrir listaverkinu til eins árs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BRETLAND Læknum í London tókst
með kjarnsýrugreiningu að einangra
litninga sem valda vöðvavisnun.
DNA-strok var tekið af tilvonandi
móður með erfðasjúkdóm og gallinn
í erfðalyklinum fundinn Þá var farið í
hefðbundna glasafrjóvgunarmeðferð,
þar sem tekið var lífsýni af fóstur-
vísunum til að komast að því hverjir
þeirra væru laus við sjúkdóminn.
Sonur konunnar er nú orðinn
þriggja mánaða og hraustur, laus við
vöðvavisnun.
- ie
Bylting í barneignum:
Losa fóstur við
erfðasjúkdóma
SPURNING DAGSINS
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Frábært
verð!
Guðbjörg, gengur illa að berja
þetta í fólk?
„Já, það gengur illa að berja fólk,
það virðist ekki gera sér grein fyrir
afleiðingunum.“
Guðbjörg Ludvigsdóttir, læknir á endur-
hæfingardeild Grensási, er andvíg því að
rýmka heimildir til að stunda bardagaíþróttir
hér á landi.
STJÓRNMÁL Silja Dögg Gunnars-
dóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins, hefur ásamt fleiri
þingmönnum lagt fram frumvarp
til breytinga á atvinnu leysis-
tryggingum. Lagt er til að ef
fangi hefur stundað nám, vinnu
eða starfsþjálfun til samræmis
við lög um fullnustu refsinga, þá
teljist hann tryggður samkvæmt
atvinnuleysistryggingalögum.
„Við erum sannfærð um að
þessi lagabreyting myndi fækka
endurkomum í fangelsi landsins
og það hlýtur að vera samfélags-
legt markmið í sjálfu sér,“ segir
Silja Dögg. - kbg
Frumvarp í þágu fanga:
Fangar vinni
sér inn bótarétt
REYKJAVÍK Minningarathöfn um Farkhundu, 27 ára
gamlan kennaranema, sem var myrt á hrottalegan
hátt af stórum hópi manna í Kabúl 19. mars síðastlið-
inn, var haldin í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Farkhunda var myrt af trúarofstækismönnum fyrir
rangar sakir. Hefur morðið vakið sterk viðbrögð í
Afganistan og um allan heim.
Í Kabúl brugðu konur á það ráð að bera kistu Farkh-
undu til grafar og neita karlmönnum um að snerta
hana þvert á hefðir Afgana sem leyfa konum að jafn-
aði ekki að taka þátt í jarðarförum. Á þriðjudaginn
var gengu þúsundir saman í Kabúl til þess að krefjast
réttlætis fyrir Farkhundu.
Í Ráðhúsi Reykjavíkur mættu gestir með útprentað-
ar myndir af Farkhundu. Fatima Hussaini las ljóð til
minningar um Farkhundu og Þórhildur Sunna Ævars-
dóttir hélt stutta tölu. Gestir rituðu nöfn sín á undir-
skriftarlista til þess að hvetja afgönsk stjórnvöld til
þess að taka harðar á ofbeldi gegn konum í Afganistan
og tryggja réttlæti fyrir Farkhundu. Í lok athafnar-
innar var kertum fleytt á Reykjavíkurtjörn í minn-
ingu Farkhundu.
Minningarathafnir og kröfugöngur hafa verið
farnar víða annars staðar í heiminum undir yfir-
skriftinni Réttlæti fyrir Farkhundu. Þá hafa notend-
ur Facebook og Twitter birt greinar og myndir og
skipulagt viðburði henni til heiðurs undir kassamerk-
inu #JusticeForFarkhunda. - kbg
Ljóðaupplestur og kertafleyting á minningarathöfn um afganska konu:
Krafan réttlæti fyrir Farkhundu
MINNINGARATHÖFN Víða um heim hafa verið haldnar minn-
ingarathafnir um Farkhundu og nú í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VESTMANNAEYJAR Elliði Vignisson
gagnrýnir framgöngu Fjármála-
eftirlitsins en í gær yfirtók Lands-
bankinn allar eignir og skuldbind-
ingar Sparisjóðs Vestmannaeyja,
þar með talið útlán og innlán við-
skiptavina.
Sjóðurinn hafði óskað eftir
fresti til að skila Fjármálaeftir-
litinu endurskoðuðum ársreikn-
ingi fyrir 2014 og upplýsti þá um
fyrirsjáanlega mikla verðrýrnun
á útlánasafni sparisjóðsins sem
gæti leitt til þess að eigið fé hans
yrði uppurið.
Fjármálaeftirlitið sendi sjóðn-
um bréf 22. mars og veitti fjögurra
daga frest til að skila stofnuninni
endurskoðuðum ársreikningi fyrir
2014 og einum degi lengur til að
skila inn ítarlegri greinargerð þar
sem fram kæmi til hvaða ráðstaf-
ana stjórn sparisjóðsins hygðist
grípa til að koma eiginfjárgrunni
sjóðsins í lögbundið horf.
„Það voru engir þjóðhagslegir
hagsmunir í húfi. Mér þykir mjög
margt skrýtið í framgöngu Fjár-
málaeftirlitsins, aðeins örfáir
dagar voru gefnir í frest en það er
kveðið á um það í lögum að frest-
urinn geti verið allt að sex mán-
uðir. Þar sem ríkið er einn aðaleig-
andi að sjóðnum hefði átt að gæta
meðalhófs,“ segir Elliði.
Bæjarstjórinn segir málefni
Sparisjóðsins verða rædd á næsta
bæjarstjórnarfundi á miðvikudag.
Vestmannaeyjabær á tíu prósenta
hlut í Sparisjóði Vestmannaeyja og
Elliði segir fulla ástæðu til þess
að hann skoði lagalega stöðu sína
gagnvart gjörningi Fjármálaeftir-
litsins.
„Ólíkt öðrum eigendum spari-
sjóðsins erum við stjórnvald.
Okkur ber samkvæmt rannsóknar-
reglu að kynna okkur málið til hlít-
ar og hljótum því að kanna lagalega
stöðu okkar.“
Í ársreikningi sjóðsins sem var
skilað til Fjármálaeftirlitsins þann
26. mars 2015 kom fram að eigin-
fjárgrunnur sjóðsins væri nei-
kvæður um 87 milljónir króna og
eiginfjárhlutfall hans neikvætt um
1,1 prósent.
Fram kom í yfirlýsingu stjórnar
sparisjóðsins og sparisjóðsstjóra og
áritun endurskoðenda án álits að
enn væri óvissa um endanlegt virði
eignasafns sparisjóðsins og veru-
legur vafi um rekstrarhæfi hans.
Síðustu daga hafa innstæðu-
eigendur í auknum mæli tekið út í
reiðufé eða fært innlán sín í spari-
sjóðnum til annarra innlánsstofn-
ana.
Þannig hefur hreint útflæði inn-
stæðna sjóðsins rýrt laust fé hans
um helming á tímabilinu og sjóðn-
um ekki tekist að tryggja aðgang
að nægu lausu fé til að mæta
áframhaldandi útflæði í sama
mæli.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Bæjarstjóri ósáttur
með framgöngu FME
Sparisjóður Vestmannaeyja fékk aðeins fjögurra daga frest til þess að skila endur-
skoðuðum ársreikningi. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, furðar sig á
flýtinum og segir að meðalhófs hafi ekki verið gætt hjá Fjármálaeftirlitinu.
Í EYJUM Sparisjóður Vestmannaeyja var stofnaður árið 1942. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Mér
þykir mjög
margt skrýtið
í framgöngu
Fjármálaeftir-
litsins, aðeins
örfáir dagar
voru gefnir í frest en það
er kveðið á um það í
lögum að fresturinn geti
verið allt að sex mánuðir.
Elliði Vignisson,
bæjarstjóri Vestmannaeyja.
LANDBÚNAÐUR Í reglubundnu eftir-
liti með salmonellu í kjúklingaslátrun
liggur fyrir rökstuddur grunur um
að salmonella hafi greinst í einum
kjúklingahópi Reykjagarðs.
Umræddur kjúklingahópur var
rannsakaður áður en honum var
slátrað án þess að salmonella hafi
fundist. Sýnin eru enn í greiningu
hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum og verða send
til staðfestingar á sýkladeild Land-
spítalans. Endanleg staðfesting mun
væntanlega liggja fyrir í næstu viku.
Reykjagarður hefur nú þegar
hafið innköllun afurða með rekjan-
leikanúmerið 001-15-08-1-01. Neyt-
endur sem hafa keypt kjúklinga
með þessu rekjanleikanúmeri eru
beðnir að skila vörunni þangað sem
hún var keypt eða til Reykjagarðs á
Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Tekið skal fram að ef áprentuð-
um leiðbeiningum á umbúðum um
eldun er fylgt, er ekki talin hætta
á að fólki smitist af salmonellu ef
kjarnhiti nær 72°C.
- kbg
Reykjagarður kallar inn kjúklinga úr nýlegri slátrun vegna gruns um smit:
Grunur um salmonellusmit
SÝNIN ENN Í GREININGU Sýnin
eru enn í greiningu hjá Tilraunastöð
Háskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR
2
9
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
5
0
-3
A
A
0
1
4
5
0
-3
9
6
4
1
4
5
0
-3
8
2
8
1
4
5
0
-3
6
E
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K