Skessuhorn


Skessuhorn - 29.09.2010, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 29.09.2010, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER Frétt ir Skessu horns ná víða en sjald an eins langt og dæmi er um í þess ari viku. Í síð ustu viku fjöll uð­ um við um starfs manna eklu í fisk­ vinnslu fyr ir tæk inu G.Run í Grund­ ar firði þrátt fyr ir mik ið at vinnu­ leysi í land inu. Frétt in barst eins og eld ur í sinu um alla helstu vef­ miðla lands ins og að sögn Guð­ mund ar Smára Guð munds son­ ar fram kvæmda stjóra fyr ir tæk is­ ins stopp aði ekki hjá hon um sím­ inn eft ir að hún fór í loft ið. Að al­ lega hafi það ver ið mæð ur á höf uð­ borg ar svæð inu á hinni lín unni í leit að vinnu fyr ir ung ling inn á heim­ il inu. Nokkr ir ís lensk ir starfs menn hafi ver ið ráðn ir í kjöl far ið. Morg­ un inn eft ir að frétt in birt ist höfðu grísk ir blaða menn síð an sam band og vildu fá að fjalla um mál ið í sjón­ varps þætti sín um ytra. Hvern ig er á stand ið tveim ur árum eft ir hrun? Frétta mað ur inn Pavlos Tsimas og upp töku mað ur hans X von is Tsix­ pak is voru stadd ir í Grund ar firði síð ast lið inn mánu dag. Þeir vinna fyr ir frétta þátt inn Mavro Kouti sem er sýnd ur tvisvar í mán uði á sjón varps stöð inni Mega Chann­ el en það er stærsta sjón varps stöð lands ins. Krepp unni á Ís landi svip­ ar tölu vert til þeirr ar sem herj ar á Grikk land og mun nálg un frétta­ mann anna vera sú að bera sam an ís lenskt og grískt á stand. „Við kom um til lands ins föstu­ dag inn 24. sept em ber og för um út aft ur mið viku dag inn 29. sept­ em ber,“ sagði Pavlos í sam tali við Skessu horn. „Við erum að kanna hvern ig á stand ið er á Ís landi tveim­ ur árum eft ir hrun. Hvað hef ur gerst? Hvern ig hef ur póli tískt líf breyst á Ís landi? Flest ir við mæl­ end ur okk ar eru á höf uð borg ar­ svæð inu en þessi frétt er sú eina sem við vinn um af lands byggð inni. Við erum með al ann ars að kanna hvern ig krepp an hef ur haft á hrif á sjáv ar út veg inn í land inu,“ sagði Pavlos en að hans mati er mun ur­ inn á Ís landi og Grikk landi sá að Ís­ land er þeg ar búið að ná botn in um en Grikk land ekki. Kjör fisk vinnslu fólks verði bætt „Frétt Skessu horns frá því í síð­ ustu viku vakti gríð ar leg við brögð hátt og lágt í stjórn kerf inu. Á stand­ ið fór mis vel og illa í menn en ég fékk með al ann ars langt bréf frá Vinnu mála stofn un sem átti að skýra út fyr ir mér hvern ig kerf ið virk ar,“ sagði Guð mund ur Smári varð andi við brögð in sem hann fékk eft ir að frétt in fór í loft ið. Hann seg ir bæði sam tök at vinnu lífs ins og sam tök fisk vinnslu stöðva hafa sýnt vilja til að bæta kjör fisk vinnslu­ fólks en frétt in vakti með al ann ars við brögð verka lýðs fé laga sem segja nauð syn legt að hækka laun þessa fólks. „Kjara samn ing ar verða laus­ ir í haust og í samn inga við ræð um verð ur lögð mik il á hersla á að bæta kjör fisk vinnslu fólks ­ sem verð­ ur gert. Fyr ir nokkrum árum voru gerð þau mis tök að keyra bón us­ inn nið ur í þeim til gangi að hækka grunn laun in. All ir töp uðu á þess­ um breyt ing um bæði starfs fólk og vinnu veit end ur. Ég tel að það ætti að bæta veru lega bón us greiðsl urn ar en þá bæt ist fram leiðslu geta fyr ir­ tækj anna og geta þeirra til að borga hærri laun verð ur meiri,“ sagði Guð mund ur Smári að lok um. ákj Góð ir gest ir frá Nor egi í heim sókn Norsk ir Ís lands vin ir komu í helg ar heim sókn um síð ustu helgi og eyddu drjúg um hluta henn­ ar á Vest ur landi, eink um í Döl un­ um. Þetta voru fjór menn ing ar frá Trömsö í Nor egi sem komu til að kynna sér upp bygg ingu safna og menn ing ar tengdr ar ferða þjón ustu hér á landi. Þeir komu m.a. við á Byggða safn inu í Görð um á Akra­ nesi, Land náms setr inu í Borg ar­ nesi og á Ei ríks stöð um í Döl um, auk þess að kynna sér söfn og set­ ur á Granda í Reykja vík, Stokks eyri og Eyr ar bakka. Rekja má heim sókn þessa til kunn ings skap ar Svein Ludvig sen nú ver andi fylk is stjóra í Trömsö og fyrr ver andi sjáv ar út vegs ráð­ herra Nor egs og vara for seta norska þings ins við Sig urð Sig ur björns­ son hóp ferða bíls stjóra og lög reglu­ mann frá Víg holts stöð um í Döl um. Á Víg holts stöð um var gest un um boð ið upp á grill að lamba kjöt hjá þeim hús bænd um Mel korku Bene­ dikts dótt ur og Sig ur birni Sig urðs­ syni. Það fannst gest un um toppa all an veislu mat í þess ari helg ar­ ferð. Heim il is fólk á Víg holts stöð­ um bætti um bet ur þar sem því var kunn ugt um tón list ar á huga gest­ anna. Þeim var því boð ið í Hjarð ar­ holts kirkju þar sem mætti þeim pí­ anó leik ur Hall dórs Þórð ar son ar og sax ó fón leik ur hinn ar öldnu kempu Rík arðs Jó hanns son ar. Melorka hús freyja á Víg holts­ stöð um seg ir að það hefði ver ið sér­ stak lega gam an að taka á móti þess­ um gest um sem um tíð ina hefði sýnt Ís lend ing um, ekki síst henn ar fólki úr Döl un um, mikla vin semd en Svein Ludvig sen hef ur oft kom­ ið til lands ins á seinni árum. Sig­ urð ur son ur Mel korku seg ir að vin­ skap ur sinn við Svein hafi byrj­ að þeg ar hann hitti hann fyr ir til­ vilj un í Þórs mörk fyr ir tæp um tíu árum þeg ar Svein var þar stadd ur á ferða lagi með nor rænu ráð herra­ nefnd inni. „Frá þeim tíma höf um við ver ið góð ir vin ir og nú seinni árin hef ur hann gist hjá mér í Kópa vog in um þeg ar hann hef ur kom ið til lands­ ins. Þeim fjór menn ing um fannst gríð ar lega spenn andi að kynna sér hvern ig við stönd um að upp bygg­ ingu safna mál anna og nýt um hand­ verk ið. Þeim fannst mjög fræð­ andi að hitta þau Kjart an og Sirrý í Land náms setr inu og einnig höfðu þeir mjög gam an að kíkja við hjá séra Geir Waage í Reyk holti. Það var margt sem fyr ir augu bar sem þeim fannst mjög for vitni legt og spenn andi eins og t.d. á Gón hóli á Eyr ar bakka þar sem er ver ið að byggja upp gam alt þorp í gömlu fisk verk un ar húsi,“ seg ir Sig urð ur Sig ur björns son. þá Gest irn ir norsku ný bún ir að skoða Ei ríks staði. Frá vinstri talið: Kjell Kol bein sen banka stjóri Spare bank í Trom sö, Gunn ar Nils­ sen ráð gjafi í ferða þjón ustu, Per I. Ar on sen hót el eig andi og at hafna mað ur í Trom sö, Skjöld ur Orri Skjald ar son, Svein Ludvig­ sen fylk is stjóri í Trömsö og Sig urð ur Sig ur björns son. Ljósm. bae. Móð ir hinn ar 18 ára gömlu Hrafn hild­ ar Emmy Carl son sá frétt ina á vef miðl­ um lands ins síð ast lið inn mið viku dag og hringdi í G.Run í leit að vinnu fyr ir dótt ur sína. Hún var ráð in sam dæg urs. Grísk ir frétta menn á Snæ fells nesi vegna frétt ar Skessu horns Guð mund ur Smári fram kvæmda stjóri G.Run á samt grísku frétta mönn un um. Frétta menn irn ir voru með al ann ars að kanna hvern ig krepp an hef ur haft á hrif á sjáv ar út veg inn. Fisk vinnslu fólk að störf um.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.