Skessuhorn


Skessuhorn - 07.03.2012, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 07.03.2012, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 7. MARS Guð mund ur á Tind­ um kvað um ná granna sinn sem lík ast til hef­ ur sett held ur djarf lega á hey in eða þá að hann hef ur lent í því sama og mað ur inn sem varð bæði hey­ og ket laus og af sak­ aði sig með þess um orð­ um: ,,Pest in brást mér al veg.“ Vet ur hvern mig vant ar hey verð því bú stofn skerða. Í bestu árum bregst mér ei bjarg ar laus að verða. Þetta er indi um þorr ann er lík lega orð ið nokk uð gam alt en samt eng in þörf á að það gleym ist: Þorri mér þyk ir derr inn, þrjót ur inn brúna ljót ur. Hratt svo að hljóðna drótt ir, Hræ svelg ur upp sig belg ir. Hníp ir hrafn á gnípu hagls ná inn skýt ur gagli rýk ur svo upp með roki reið ur um byggð og heiði. Tími þorra blót anna er nú að mestu lið inn þó ein staka góu gleði skjóti sér nið ur á daga­ talið. Ekki veit ég ná kvæm lega hvar Gest ur Ó lafs son var stað sett ur þeg ar hann orti þetta en greini lega hef ur leg ið held ur vel á hon um: Þetta er mik il guða gjöf, glóð í hverj um dropa. Það er bara tíma töf að tala á milli sopa. ,,Allt tek ur enda sem okk ur er veitt,“ sagði skáld ið og svo fer um flesta hluti. Það sem er í tísku á ein um tíma geng ur sér til húð ar og verð ur gam al dags og al gjör lega ,,síð asta sort.“ Veð ur far ið skán ar ef það er slæmt og versn­ ar ef það er gott. Þær stúlk ur sem einu sinni voru ung ar verða seinna eldri og þroskaðri og ætli þetta sé ekki eitt hvað líkt með karl kyn ið. Stef án Sveins son forn bóka sali kvað: Áður fyrri ung ar drós ir yndi kveiktu í sálu minni. Nú tek ég ást við tó baks dós ir. ­ Tím inn breyt ir hugs un inni. Og á ekki svo ó lík um nót um kvað Bjarni Hall dórs son: All ir dag ar eiga kvöld, all ar næt ur dög un það er hugg un þeim sem köld þyk ir lífs ins ögun. Séra Björn heit inn Jóns son tók á sín um yngri árum tölu vert verk lega í nef ið en stein­ hætti því síð an. Þá kvað Ingi Stein ar Gunn­ laugs son: Kvatt hef ur hann korn in smá klút og pontu gef ið. Nú er fög ur sjón að sjá á séra Birni nef ið. Eins er það með þekk ing una. Hún tek­ ur alltaf stöð ug um breyt ing um og ekki lík­ legt að mann kyn ið sé kom ið að ein hverj um enda mörk um henn ar. Þekkt ur há skóla pró­ fess or í ,,útt land inu“ sagði við nem end ur sína: ,,Helm ing ur inn af því sem ég kenni ykk ur er vit leysa. Því mið ur veit ég ekki hvor helm ing­ ur inn það er.“ Þetta er auð vit að grund völl­ ur gagn rýnn ar hugs un ar. Mörg um þótti það á sín um tíma und ar leg kenn ing að mann kyn­ ið væri kom ið af öpum. Þá orti Jón Jóns son frá Auð kúlu: Nú er ekki á verra von vill an um sig gref ur, Krist ur apakatt ar son kannske ver ið hef ur. Jón Bene dikts son frá Höfn um orti líka út­ legg ingu af Bibl í unni með sín um hætti: Ef þú slærð á ást ar strengi ó gæf an er jafn an vís. Ekki var hann Adam lengi óð als bóndi í Para dís. Það er löngu þekkt að það sem menn þrá heit ast verð ur þeim ekki alltaf til efni þeirr­ ar full sælu sem þeir bjugg ust við þótt þeim hlotn ist það sem þráð var. Má líka í þessu sam hengi benda á vísu sem ég heyrði eign aða manni sem sá æsku ást ina nokk uð um breytta eft ir ald ar fjórð ung eða svo. Reynd ar hef ég heyrt bæði fleiri til efni og jafn vel fleiri höf­ unda til nefnda en vís an er alla vega tær snilld: Fann ég eigi orð in þá er ég segja vildi varð þó feg in eft irá að ég þegja skyldi. Ekki veit ég eða alla vega man ekki um höf­ und eft ir far andi vísu en hann hef ur alla vega talið kon urn ar til helstu frum þarfa lífs ins, sem þær vissu lega eru: Kon urn ar ég mik ils met og marg ar þekki og held ur vil ég hafa ket ­ en hafa það ekki. Jón Bjarna son frá Garðs vík orti um unga fólk ið sem alltaf hef ur ver ið ungt og mér sýn­ ist að ætli að halda því á fram um hríð: Ung ir menn í minni sveit marg ir ó rótt sváfu þeg ar fög ur fyr ir heit fal leg augu gáfu. Enn þá glepja gamla menn göm ul fyr ir bæri. Suma þeirra angra enn ó nýtt tæki færi. Það er vel þekkt að þessi svo kall aða al vara lífs ins tek ur sinn toll af lífs orkunni og marg­ ur verð ur held ur glað ur í sinni þeg ar helg in nálg ast. Krist ó fer Árna son á Skaga strönd orti í vonsku veðri á laug ar dags morgni: Líf ið virð ist ein tómt ok upp sé mynd in dreg in. Við hver Djöf uls viku lok verð ur mað ur feg inn. Þór hild ur Sveins dótt ir frá Hóli í Svart ár dal orti þessa ör lít ið kald rana legu kveðju: Þótt þú nat inn safn ir sjóði, svona fer um göm ul kynni. Aldrei hef ur ljúfu ljóði lið ið vel í ná vist þinni. Það er nokk uð ann ar blær yfir vísu Björns Blön dal: Oft er kátt við kvæða mál kitl aði dátt að ríma, þar ég átti yl í sál und ir hátta tíma. Þess ir bless að ir for ráða menn þjóð ar inn­ ar virð ast helst aldrei geta orð ið sam mála um eitt eða neitt og standa svo ráða laus ir gagn­ vart vanda mál un um. Alla vega hafa þeir far­ ið sér mjög hægt að und an förnu við það þó nauð syn lega starf að auka til trú al menn ings á stjórn mála mönn um. Það eru nú lið in all mörg ár síð an Jónas Tryggva son frá Finns tungu orti það sem virð ist jafnsatt enn í dag: For sjá þjóð ar fok in burt, fækka tek ur ráð um sönn um, stund um þeg ar stórt er spurt standa svör í vitr um mönn um. Gaml ir sveita menn sem flutt ir eru í kaup­ stað ina verða stund um svo lít ið ó ró leg ir á vor­ in. Kannske ekki ó líkt og kem ur fram í loka­ vís unni eft ir Ás grím Krist ins son: Þiðn ar fönn í fjalla skor fagn ar borg ar gest ur sem er alltaf und ir vor eins og stroku hest ur. Með þökk fyr ir lest ur inn, Dag bjart ur Dag bjarts son Hrís um, 320 Reyk holt. S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Vísnahorn Þiðn ar fönn í fjalla skor - fagn ar borg ar gest ur Brynja Valdi mars dótt­ ir, 26 ára frá Akra nesi, hlaut ný lega við ur kenn­ ingu fyr ir fram úr skar­ andi ár ang ur í námi á haustönn í tón list ar skól­ an um Berklee í Boston í USA. Marg ir kann ast ef til vill við Brynju frá því hún tók þátt í annarri þátta röð Idol stjörnu­ leit ar inn ar árið 2005 hér á Ís landi. „Ég byrj aði í skól an um vor ið 2009 og er að læra við skipta fræði með á herslu á tón list, eða Music Business/Mana­ gement. Fyrstu tvö árin var ég í söng­ og fram­ komu þjálf un á samt öllu sem til heyr ir tón list; eins og tón fræði, tón heyrn og þjálf un á hljóð færi. En seinni tvö árin hef ég ver ið að læra um við skipta hluta tón list ar heims ins, hvern ig brans inn virk ar og allt til heyr andi hon um.“ Að spurð seg ir Brynja að það að kom ast á Dean´s list, eins og við­ ur kenn ing in er köll uð ytra, vera eins og að kom ast á úr valslista fyr ir nem end ur sem hljóta topp ein kunn­ ir, eða með með al ein kunn hærri en 9,5. „ Þetta er vissu lega mik ill heið­ ur og mun hjálpa mér bæði í skól­ an um eins og t.d. með að fá for­ gang með skóla styrki og ann að sem til heyr ir nám inu. Einnig hjálp ar þetta með at vinnu eft ir nám. Svo er þetta hvatn ing til að standa sig vel á fram.“ Brynja hóf nám í Tón list ar skól­ an um á Akra nesi þeg ar hún var sjö ára en byrj aði ekki að syngja fyrr en hún var 13 ára. Þá seg ir hún að á hug inn hafi vakn að fyr ir al­ vöru. Þó byrj aði hún ekki að æfa söng fyrr en um 16 ára ald ur inn, þá klass ísk an söng. „Mig hafði alltaf dreymt um að fara til út­ landa í nám sem inni­ hélt fleiri svið tón list ar. Ég vildi læra eins mik ið og hægt var. Mér finnst tak mark að það sem mað­ ur get ur lært heima mið­ að við Banda rík in auð vit­ að. Þessi reynsla hér úti hef ur gef ið mér margt og ég hef lært af svo mörgu at vinnu fólki í tón list og tengsla net ið í skól an um er stór kost legt. Mað ur fær inn blást ur af því að um gang ast svona hæfi­ leik a ríka nem end ur og tón list ar fólk, auð vit að er sam keppn in líka mik il en metn að ur inn eykst líka í kjöl far ið.“ Skól inn sem Brynja stund ar nám sitt við, Berklee Col lege of Music, var stofn að ur árið 1945 með þá meg in reglu í huga að besta leið­ in til að und ir búa nem end ur fyr­ ir fer il í tón list væri að læra um og leggja rækt á sam tímatón list. Rúm­ lega 4100 nem end ur frá 80 lönd um eru við nám í skól an um. sko All Senses ferða þjón ustuklas inn, sem starf að hef ur á Vest ur landi síð­ an vor ið 2005 og er einn elsti ferða­ þjón ustuklas inn á Ís landi, hélt fund í Land náms setr inu í Borg ar nesi í vik unni sem leið. Þar á kváðu fé lag ar að end ur skoða og styrkja sam starf ið þannig að ferða þjón ust­ an á Vest ur land verði sem sýni­ leg ust. „Meg­ in á hersl an verð ur lögð á sam starf og stuðn ing við Mark­ a ð s s t o f u Vest ur lands en einnig að vera öfl­ ugt tengsla­ net með al að­ ila inn an ferða þjón­ ust unn ar,“ seg ir Anna Dröfn Sig ur jóns dótt ir hjá Ensku hús un um við Langá og for mað ur klas ans. Í upp hafi var meg in mark mið All Senses að mark aðs setja Vest ur land sem eina heild, auk þess sem á hersla var lögð á fræðslu­ og gæða starf og mynda öfl ugt tengsla net og þekk­ ingu á starf semi hvors ann ars til að geta kynnt og selt Vest ur land ið bet ur til ferða manna. Þessi mark­ mið eru í raun enn í fullu gildi en klas inn tel ur að þeim verði best náð með nánu sam starfi við Mark aðs­ stof una. All Senses stóð með al ann­ ars að stofn un Mark aðs stofu Vest­ ur lands á samt Ferða mála sam tök­ um Vest ur lands og SSV. Mark aðs­ stof an hef ur síð an tek ið að sér sam­ eig in leg kynn ing ar­ og mark aðs­ mál fyr ir lands hlut ann. „Öfl­ ugt tengsla net er ó met­ an legt þar sem menn miðla þekk ingu og fróð leik sín á milli. Þetta vilja fé lag ar treysta enn bet ur og vera sterkt bak land við Mark aðs stof­ una. Klas inn mun því halda á fram starf­ semi sinni með vinnufund um og annarri skemmti legri starfs semi. Eins og alltaf frá upp hafi er klas inn op inn öll um sem á huga hafa á at vinnu­ grein inni,“ seg ir Anna Dröfn. Ný stjórn klas ans skipa auk Önnu; Shelagh Smith í Grund ar­ firði og Arn grím ur Her manns son hjá Ice 8x8 ehf. á Langjökli. Þór­ dís G Arth urs dótt ir hef ur ver ið verk efn is stjóri frá upp hafi og mun hún starfa á fram með klas an um. Þeir sem hafa á huga á að vera með í All Senses sam starf inu geta skráð sig hjá Þór dísi, á net fang inu; tga@ simnet.is. mm Fé lag ar í All Senses á kveða að halda ó trauð ir á fram Brynja Valdi mars dótt ir tón list ar nemi í Boston. Brynja stend ur sig vel í tón list ar námi ytra

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.