Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Íbúar Vesturlands eru minntir á tvær
stórhátíðir sem fara fram um næstu
helgi á Vesturlandi. Annars vegar eru
Írskir dagar haldnir hátíðlegir á Akra-
nesi og hins vegar fer Fjórðungsmót
hestamanna fram á Kaldármelum. Loks
má nefna sitthvað fleira, eins og Safn-
adag sem haldinn verður hátíðlegur
víða, m.a. á Hvanneyri. Þá mun lands-
mót UMFÍ fara fram á Selfossi.
Spáð er suðaustan 3-8 m/sek og bjart-
viðri í dag, en stöku síðdegisskúrum.
Hiti 10 til 15 stig að deginum. Á morg-
un fimmtudag er spáð norðaustlægri
átt, 3-8 m/s, en annars skýjuðu veðri og
stöku síðdegisskúrum. Hiti 8 til 13 stig.
Á föstudag er gert ráð fyrir vaxandi
suðaustanátt, 10-15 m/s og rigningu
seinni partinn. Hiti verður 10 - 12 stig.
Um helgina er spáð áfram suðlægum
áttum með rigningu og skúrum. Lítil-
lega kólnar í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvert er uppáhalds sumarveðr-
ið þitt?“ Drjúgur meirihluti lesenda
segir að „Sól og blíða“ sé uppáhalds
sumarveðrið eða 66,9%. „Skýjað en
milt“ sögðu 21,2% og „rok og rigning“
7,4%. Þá sögðu „sól og vindur“ 2,2%,
„rigning“ 1,7% og „annað“ 0,6%.
Í þessari viku er spurt
Hver er uppáhalds íslenska matjurtin?
Félagar í björgunarsveitinni Berserkj-
um í Stykkishólmi eru Vestlendingur
vikunnar eftir vel heppnaða björgun-
araðgerð þegar Þórsnes II strandaði við
Skoreyjar sl. fimmtudagsmorgun.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Tíu lömb á
„grillið“
LBD: Alls var ekið á tíu lömb
í umdæmi lögreglunnar í Borg-
arfirði og Dölum í liðinni viku.
Bændur eru þessa dagana að
reka eða aka sínu fé á fjall. Að
sögn lögreglu er enn margt
lambfé á vegsvæðum víðs vegar
og því betra að gæta sín. Íslensk-
ur rútubílstjóri sem var með er-
lenda túrista á ferð í Lundar-
reykjadal lenti í því óhappi að
aka yfir lamb sem drapst. At-
burðurinn hafði mikil áhrif á
útlendingana og var rútubíl-
stjórinn um tíma orðinn með-
virkur í dramatíkinni. Í dagbók
lögreglunnar segir að íslensku
húsfreyjunni sem átti lambið
hafi ekki orðið eins mikið um
þegar hún fjarlægði hræið og
þarna komið vel í ljós sá mun-
ur sem er á íslensku sveitafólki
og erlendum borgarbúum sem
kannski sjá aldrei blóð. -þá
Lögreglan í há-
lendiseftirliti
LBD: Einn lögreglumað-
ur frá lögreglunni í Borgar-
firði og Dölum var sendur í
hálendiseftirlit með TF-Gná,
þyrlu Landhelgisgæslunnar
um helgina. Flogið var vítt og
breitt um hálendið. Sérstak-
lega var litið eftir utanvega-
akstri sem og akstri á lokuðum
svæðum, en ekkert kæruvert
sást í þessari ferð. Að sögn lög-
reglu stendur jafnvel til að fara
í aðra slíka ferð um hálendið í
sumar, enda margir fjallvegir í
umdæminu sem þarf að fylgjast
með. Tvö verkefni komu upp á
Kaldadal í liðinni viku. Í öðru
tilvikinu lentu erlendir ferða-
menn á jeppa útaf veginum en
héldust þó á réttum kili í stór-
grýtisurð. Voru þeir aðstoðað-
ir af íslensku ferðafólki við að
komast aftur upp á veginn og
til byggða. Þá festu kanadískir
ferðalangar jeppa sinn nálægt
Prestahnúki eftir að hafa villst
inn á þann afleggjara af Kalda-
dalsveginum, en fólkið var á
leiðinni í Húsafell. Björgun-
arsveitin Ok fór og dró ferða-
mennina upp og aðstoðaði þá
til byggða. –þá
Fékk hjólið yfir sig
AKRANES: Keppandi í moto-
krossi á Akranesi um liðna
helgi var fluttur á sjúkrahús-
ið á staðnum til aðhlynning-
ar. Hafði hann dottið í braut-
inni og fengið hjólið yfir sig.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var ekki að sjá neina
áverka á honum. Maðurinn
vankast við fallið og þótti því
öruggara að kanna betur ástand
hans. –þá
Sveitamarkaðir í
Reykholtsdal
BORGARFJ: Framfarafélag
Borgarfirðinga stendur fyr-
ir sveitamarkaði í gömlu hlöð-
unni í Nesi í Reykholtsdal,
dagana 13. og 27. júlí næst-
komandi. Aðgangur er að raf-
magni og vatni og kostar bás-
inn 3.000 krónur. „Sveitamark-
aðir fyrra sumars gengu von-
um framar og voru einstak-
lega skemmtilegir. Borgfirð-
ingar allir er hvattir til að taka
þátt,“ segir í tilkynningu frá
Framfarafélaginu. Áhugasam-
ir um sölubás hafi samband við
Hönnu Sjöfn í síma 858-2133
eða sendi fyrirspurn á sveita-
kaffi@gmail.com -mm
Óstofnað félag, Þurrfiskur ehf,
áformar að koma upp fiskþurrkun
á Refsstöðum í Hálsasveit í Borg-
arfirði. Starfsleyfistillaga og at-
hugasemdafrestur við hana var
auglýst í Skessuhorni fyrir hálf-
um mánuði. Frestur til að skila at-
hugasemdum við starfsleyfistillög-
una er til 19. júlí nk, en hún ligg-
ur frammi á skrifstofu Borgar-
byggðar til þess tíma. Starfsleyfi
verður ekki gefið út fyrr en sam-
þykkt deiliskipulag liggur fyr-
ir. Samkvæmt þeim upplýsingum
sem sveitarstjórn Borgarbyggðar
hefur fengið fyrir áformaðri starf-
semi er að starfsmenn verði 10-15
í fyrsta áfanga en síðan 25-30 þeg-
ar vinnslan verði komin í full af-
köst eftir stækkun.
Í umsókn um starfsleyfi segir að
Þurrfiskur ætli undir fiskþurrk-
unina 1041 fermetra einangrað
stálgrindarhús sem áður var notað
sem fjós að Refsstöðum. Að hinu
óstofnaða félagi standi nokkur öfl-
ug fiskvinnslufyrirtæki á Suður- og
Vesturlandi. Um starfsemina segir
í umsókninni að hún verði þurrk-
un á fiskafurðum til manneldis, að
mestu fyrir Nígeríumarkað. Gert
er ráð fyrir að hægt verði að þurrka
um 4.000-5.000 tonn hráefnis á ári
í núverandi húsnæði. Fyrir liggi
hugmyndir um byggingu ríflega
1.300 fermetra viðbótarhúsnæðis.
Þegar hún yrði tilbúin verði heild-
arframleiðslan 10.000 tonn á ári.
Bak við félagið Þurrfisk ehf er
félagið JHS sem starfar á höfuð-
borgarsvæðinu og er einnig með
starfsemi í Englandi. Þeir aðilar
voru með áform um fiskþurrkun í
sláturhúsinu í Búðardal á vormán-
uðum en hurfu frá þeim. Ástæður
sem forsvarsmenn JHS tilgreindu
voru einkum mikill kostnaður við
öflun orku til vinnslunnar og einn-
ig að ekki virtist sátt meðal íbúa í
Búðardal um staðsetningu vinnsl-
unnar. Starfsleyfi fyrir fiskþurrk-
unina er auglýst vegna reglugerð-
ar í lögum sem kveður á um slíkt ef
um mengandi starfsemi geti verið
að ræða. Í umsókn um starfsleyfið
er m.a. tilgreint að ríkjandi vindátt
geri það að verkum að útblástur frá
vinnslunni muni berast frá byggð á
óbyggt svæði fyrir ofan Refsstaði.
þá
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
ákvað á fundi sínum þriðjudaginn
25. júní sl. að hafna öllum tillög-
um að ljósleiðaravæðingu sveitar-
félagsins sem borist höfðu í kjölfar
auglýsingar um verkefnið sem birt-
ist í lok apríl. Í bókun sveitarstjórn-
ar segir að fjórir aðilar hafi sýnt
ljósleiðaravæðingunni áhuga en að
loknum viðræðum við þá gerðu
þrír af þeim grein fyrir með hvað
hætti þeir hygðust koma að verk-
efninu. Þetta voru Míla, Gagna-
veita Reykjavíkur og Rafteymi. Í
bókun sveitarstjórnar segir að meg-
in ástæðan fyrir höfnun tillagna sé
kostnaðarþátturinn og er vísað til
þess að uppbygging og kostnað-
arþátttaka sveitarfélagsins í verk-
efninu er mun meiri en ásættanlegt
er, ekki síst þegar tillögur gerðu ráð
fyrir að eignarhaldi á kerfinu verði
ekki Hvalfjarðarsveitar.
Að sögn Laufeyjar Jóhannsdóttur
sveitarstjóra heldur undirbúnings-
vinna að útboði ljósleiðaravæðing-
arinnar áfram þrátt fyrir að tillög-
um fyrirtækjanna þriggja hafi verið
hafnað. Laufey segir að tvær leið-
ir hafi verið opnar varðandi fram-
kvæmd og fjármögnun við verk-
ið og hafi samstarf við aðila á fjar-
skiptamarkaði verið önnur þeirra.
Með ákvörðun sinni hefur sveitar-
stjórn hafnað þessari leið og verð-
ur því unnið samkvæmt hinni leið-
inni, leið opins útboðs. Laufey seg-
ir að verið sé að vinna að frágangi
útboðsgagna í samstarfi við Verk-
fræðistofuna Eflu og er vonast til að
útboð verið framkvæmt við fyrsta
tækifæri. Sveitarstjórn Hvalfjarðar-
sveitar hefur samþykkt að veita um
130 milljónir króna í verkið á þessu
ári og 150 milljónir á næsta ári.
hlh
Í síðasta Skessuhorni greindum við
frá þeim óvenjulega atburði í sveit-
inni þegar tvíburafolöld fæddust í
Nýjabæ og komust bæði á legg.
Síðastliðinn föstudag fæddist svo
óvenjulega smávaxið folald í næsta
nágrenni, eða á bænum Stóra-
Kroppi í Borgarfirði. Svo virð-
ist sem folaldið hafa verið seint
að komast á fætur og að hryssan
Ninna frá Leysingjastöðum II, hafi
verið farin að ýta nokkuð kröftug-
lega við því, til að reka það af stað,
þar sem sást á folaldinu að krafs-
að hafði verið í það. Hestfolald-
ið er þrátt fyrir smæð fullkomlega
rétt skapað, en um 20 cm lægra
en meðal folald, eða rétt rúmir 70
cm yfir herðakambinn. Venjulega
þurfa folöld að beygja sig niður til
að drekka hjá mæðrum sínum, en
þetta folald þarf að teygja sig upp í
spenann. Til að byrja með beygði
hryssan sig niður á móti því svo
það næði upp. Auk þess getur fol-
aldið gengið undir kviðinn á móð-
ur sinni. Bryndís Brynjólfsdóttir,
sem hefur umsjón með hrossunum
á Stóra-Kroppi, telur að folaldið
hafi fæðst mánuði fyrir tímann og
að það geti útskýrt hversu smávax-
ið það er.
kf
Ráðhús Hvalfjarðarsveitar.
Ljósleiðaravæðing
Hvalfjarðarsveitar fer í útboð
Hér má sjá hversu lítið folaldið er í samanburði við annað á svipuðu reki.
Óvenjulega smávaxið folald
Sá smávaxni við hlið Ninnu móður sinnar.
Fiskþurrkun áformuð á Refsstöðum