Skessuhorn


Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Bláfánanum flagg- að í ellefta sinn STYKKISH: Í gær afhentu full- trúar frá Landvernd smábáta- höfninni í Stykkishólmi Bláf- ánann í 11. sinn. Bláfáninn var fyrst afhendur Stykkishólmshöfn 13. júní 2003 en smábátahöfnin í Stykkishólmi var fyrsta höfnin til að hljóta þessa alþjóðlegu við- urkenningu hér á landi. Bláfán- inn er alþjóðlegt merki fyrir hafn- ir sem uppfylla ströng skilyrði í umhverfis- og öryggismálum og hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis smábátahafna og baðstranda. Smábátahöfnum er veittur Bláfáninn hafi þær lagt sig fram um að vernda umhverf- ið, bæta öryggismál og aðstöðu í höfninni og veita fræðslu um nátt- úruna og umhverfisvernd. –mm Baski með mynd- listarnámskeið AKRANES: Skagamaðurinn og myndlistarmaðurinn Baski mun halda námskeið í listmál- un á Safnaðasvæðinu á Akranesi í sumar. „Námskeiðið er ætlað hvort sem er fyrir byrjendur eða lengra komna. Á þessu skemmti- lega námskeiði mun Baski meðal annars kenna aðferðir við mynd- byggingu með kolum og blý- anti og einnig meðferðir á olíu- litum, akrýl, bleki og vatnslitum. Á námskeiðinu verður myndefni sótt í umhverfi Safnasvæðisins og nágrennis þess. Markmiðið með námskeiðinu er að hafa gaman af að skapa og teikna það sem fyrir augu ber og eins að örva ímynd- unaraflið,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Sjá nánar á vef- síðunni museum.is –mm Faxi og Skuggi fá styrk BORGARBYGGÐ: Byggðarráð Borgarbyggðar ákvað á síðasta fundi sínum að veita hestamanna- félögunum Skugga og Faxa styrk í kjölfar erindis sem frá þeim barst. Tilefnið er Íslandsmótið í hestaí- þróttum sem félögin halda í Borg- arnesi dagana 11. – 14. júlí nk. og er styrkupphæð samtals 850.000 kr. sem fer í uppbyggingu á félags- svæði Skugga. Þá ákvað byggðar- ráð að veita Faxa 150.000 kr. styrk vegna 80 ára afmælis félagsins í ár. Fjárhæðin verður tekin af framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem er hærra en áætlun sveitarstjórnar gerði ráð fyrir. Nánar er greint frá væntanlegu Íslandsmóti í hestaí- þróttum í Skessuhorni í dag. –hlh Áform um gagnaver verði kynnt HVALFJ.SV: Sveitarstjórn Hval- fjarðarsveitar ítrekaði fyrri bókun sína um úthlutun á landi í sveitar- félaginu undir gagnaver og ann- an léttan umhverfisiðnað í landi Eystra-Miðfells og Kalastaða- kots á fundi sínum þriðjudaginn 25. júní sl. Landið er utan skipu- lagssvæðis. Að sögn Laufeyjar Jó- hannsdóttur sveitarstjóra voru lögð fram frekari gögn um verk- efnið á fundinum frá fyrirtæk- inu Borealis Data Center sem ber ábyrgð á því. Laufey segir að vilji sveitarstjórnar sé nú sem fyrr sá að fyrirtækið standi fyrir kynning- arfundi fyrir íbúa sveitarfélagsins um verkefnið, en það sé forsenda þess að erindi BDC fái afgreiðslu hjá sveitarstjórn. BDC spurðist fyrir um landið umrædda í lok síð- asta árs en það er þriðja fyrirtækið sem lýst hefur áhuga á landi undir gagnaver í Hvalfjarðarsveit. -hlh Vaxandi starfsánægja BORGARBYGGÐ: Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð- ar sl. fimmtudag voru lagð- ar fram niðurstöður úr Cranet rannsókn Háskólans í Reykja- vík um starfsánægju starfsfólks sveitarfélagsins. Niðurstöður sýna að vaxandi starfsánægju gætir meðal starfsfólks sveitar- félagsins í sjö matsflokkum af átta frá því að rannsóknin var síðast gerð árið 2007. Í öllum matsflokkum er Borgarbyggð yfir landsmeðaltali. Alls tóku 23 starfsmenn sveitarfélagsins þátt í könnuninni. -hlh Rúður brotnar AKRANES: Lögreglunni á Akranesi barst tilkynning um að sex rúður hefðu verið brotn- ar í Sementsverksmiðjunni og það líklega gerst helgina 22.- 23. júní sl. Unnið er að rann- sókn málsins og í tilkynningu frá lögreglu segir að upplýs- ingar væru vel þegnar ef ein- hver hefur orðið var við eitt- hvað misjafnt á þessum slóð- um. Þá var ökumaður bifreið- ar færður á lögreglustöð í vik- unni. Prófanir bentu til þess að hann hafi verið undir áhrifum kókaíns, amfetamíns og kanna- bisefna. –þá Guðný ráðin byggingafulltrúi HVALFJ.SV: Á fundi sveita- stjórnar Hvalfjarðarsveitar 25. júní sl. var samþykkt að ráða Guðnýju Elíasdóttur í starf byggingafulltrúa sveitarfélags- ins. Alls sóttu þrír um stöð- una. Á fundinum var einnig ákveðið að ganga frá samningi við Landlínur um verktöku á verkefnum á sviði skipulags- mála út árið. Að sögn Laufeyj- ar Jóhannsdóttur sveitarstjóra verður skoðað í upphafi næsta árs hvort auglýst verði laust til umsóknar staða skipulagsfull- trúa sveitarfélagsins sem annist verkefnin sem nú fara á könnu Landlína. –hlh Matvælastofnun svipti í liðinni viku búið á Brúarreykjum í Borgarfirði leyfi til framleiðslu matvæla til dreif- ingar og sölu. Bannið á við ram- leiðslu, sölu og dreifingu á mjólk og kjötvörum og er ótímabundið. Undanfarin ár hefur Bjarni Bærings Bjarnason verið í forsvari fyrir fyrir- tækið og umráðamaður búsins en um það er rekið einkahlutafélag. Eins og Skessuhorn greindi frá í síðustu viku var búið á Brúarreykjum föstudag- inn 21. júní sl., í annað skipti á sex mánuðum, svipt framleiðsluleyfi en ástæða bannsins nú var að í umferð á búinu voru dýralyf sem ekki hafði verið löglega aflað. Sigurborg Daða- dóttir yfirdýralæknir staðfesti í sam- tali við Skessuhorn að bæði þessi mál hefðu verið í gangi og tengjast Brúar- reykjabúinu. „Notkun ólöglega feng- inna lyfja á búum heyrir undir Mat- vælastofnun, en hins vegar er það Lyfjastofnunar að rannsaka hvernig standi á að lyfin komust í umferð og notkun á búinu,“ segir Sigurborg. Sigurborg segir að í kjölfar þess að andmælaréttur Bjarna Bærings, fyr- ir hönd Brúarreykjabúsins, verði lið- inn, komi í ljós hvort eitthvað nýtt hafi þá komið fram í málinu sem kalli á endurskoðun ákvörðunar Matvæla- stofnunar um að búinu verði bannað að framleiða, selja og dreifa matvæl- um. Hún segir að í lögum um dýra- vernd geti Matvælastofnun svipt ein- stakling heimild til að sjá um dýr til bráðabirgða, þar til dómur fell- ur komi til málaferla vegna slíkrar stjórnsýsluákvörðunar. Slík málaferli geti tekið mánuði eða jafnvel nokk- ur ár sé vísað til reynslunnar. Bjarni Bærings hefur tvívegis verið kærður fyrir illa meðferð á dýrum, segir Sig- urborg. Hlutafélag er um rekstur kúabús- ins á Brúarreykjum. Fyrrum sam- býliskona Bjarna Bærings er stjórn- arformaður í því fyrirtæki, en Bjarni og hún hafa undanfarin ár deilt og eru málaferli í gangi milli þeirra um eignarrétt og fleira á búinu. Sigur- borg segir að vissulega reyni nú á stjórnarformann fyrirtækisins, því augljóst sé að einhver annar þurfi að koma að bústörfum á Brúarreykjum fyrir hönd þess, þar sem nokkuð ljóst sé að Bjarni Bærings virðist vera ófær um að framleiða örugg matvæli og halda dýr. mm/ Ljósm. Mats. Um miðjan júnímánuð hófust dýpkunarframkvæmdir í höfninni á Reykhólum og er að ljúka þessa dagana. Færðir voru tæpir sjöþús- und rúmmetrar af efni úr höfninni og fluttir út undir Hrúteyjarröst- ina þar nokkru fyrir utan. Dýpkun- in í höfninni núna var í tengslum við nýjan hafnargarð sem gerður var við Reykhólahöfn fyrir tæpum tveimur árum. Sveinn Ragnarsson formaður hafnarstjórnar Reykhóla- hrepps segir að með dýpkuninni sé verið að breikka innsiglingarrenn- una og auka öryggi báta í höfninni. Í framhaldinu verði svo komið fyr- ir flotbryggju í höfninni fyrir trill- ur og minni báta. Hagtak var með lægsta tilboð í dýpkunina og er grö- fupramma og flutningapramma frá fyrirtækinu beitt við framkvæmd- ina. Að sögn Sveins hafnarstjórn- arformanns mun dýpkunin kosta tæpar 20 milljónir króna. þá Brúarreykjabúið svipt leyfi til dreifingar og sölu matvæla Dýpkunarframkvæmdir á Reykhólum Dýpkunartækin við bryggju á Reykhólum. Ljósm. bae.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.