Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
www.volkswagen.is
Fullkominn ferðafélagi
Tiguan Sport & Style kostar frá
6.180.000 kr.
Volkswagen Tiguan er einn best búni sportjeppinn á markaðnum.
Fullkomið leiðsögukerfi fyrir Ísland sér til þess að þú ratir alltaf rétta
leið. Svo getur komið sér vel að hafa rétta aukabúnaðinn.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isSmiðjuvöllum 17 · Akranesi · Sími 431 2622 · bilas.is
Volkswagen Tiguan fáanlegur með lykillausu aðgengi
„Samtök ferðaþjónustunnar
skora á Vegagerðina að falla frá
samningi við Samband sveitarfé-
laga á Suðurnesjum um almenn-
ingssamgöngur á milli Suður-
nesja og höfuðborgarsvæðisins.
Samningurinn felur m.a. í sér
einkaleyfi á akstri á milli Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE)
og Reykjavíkur og telja sam-
tökin nauðsynlegt að fella það
ákvæði niður þar sem ekki eru
forsendur fyrir einokun á leið-
inni, enda er samkeppni til stað-
ar sem sinnir þjónustu við flug-
farþega,“ segir í tilkynningu frá
samtökunum.
„Samtök ferðaþjónustunnar
hafa ítrekað bent á að forsend-
ur fyrir einokun á leiðinni milli
FLE og Reykjavíkur séu ekki til
staðar þar sem samkeppni hafi
ríkt á leiðinni í nokkur ár. Í ný-
legu áliti sem Samkeppniseft-
irlitið sendi frá sér vegna þessa
máls koma fram tilmæli þess eðl-
is að Vegagerðin taki samning-
inn nú þegar til endurskoðunar
og stöðvi framkvæmd útboðs-
ins og hefur innanríkisráðherra
einnig mælst til þess. Einnig
kemur fram í áliti Samkeppn-
iseftirlitsins að farþegum flug-
rútunnar hafi fjölgað um 66%
og að verð hafi ekki hækkað á
þeim tíma sem samkeppni hefur
ríkt en áður höfðu verð hækkað
reglulega.“ Samtök ferðaþjón-
ustunnar telja nauðsynlegt að
endurskoða sem fyrst núverandi
löggjöf um fólksflutninga enda
miklir gallar á löggjöfinni sem
hafa á áhrif á frelsi í athöfnum
fyrirtækja í ferðaþjónustu. mm
SAF gegn
einokun í
áætlunarakstri
Verktakafyrirtækið HS verktak ehf.
í Borgarnesi var tekið til gjaldþrota-
skipta miðvikudaginn 19. júní síð-
astliðinn. Meðal samningsbund-
inna verkefna, sem talið var að fyr-
irtækið hefði, er almenn áhaldahús-
vinna, gatnaviðgerðir, snjómokst-
ur og sláttur á opnum svæðum
samkvæmt samningi við sveitarfé-
lagið Borgarbyggð. Í kjölfar þeirr-
ar stöðu sem upp kom við gjaldþrot
HS verktaks hafa önnur verktaka-
fyrirtæki í Borgarnesi farið fram á
að fyrrgreind áhaldahúsvinna verði
boðin út. Við skoðun á málinu hafa
hins vegar verið upplýst mistök
sem gerð voru við samningsgerðina
milli Borgarbyggðar og HS verk-
taks ehf. árið 2011. Gera þessi mis-
tök málið vissulega snúið fyrir sveit-
arstjórn og alla málsaðila. Samn-
ingurinn sem í gildi hefur verið um
fyrrgreind verk undanfarin tvö ár,
er ekki við HS verktak ehf., held-
ur við Halldór Sigurðsson, fyrrum
eiganda HS verktaks ehf. Í samn-
ingnum er samningsaðili HS verk-
tak en kennitala Halldórs sjálfs til-
greind. Þetta staðfesti Páll S. Brynj-
arsson sveitarstjóri Borgarbyggðar í
síðustu viku, þegar málið var borið
undir hann.
Páll segir að upp hafi komið við
gjaldþrot HS verktaks ehf. að þrátt
fyrir að sveitarfélagið hafi átt að
ganga til samninga við HS verktak
í ljósi lægsta boðs, þegar verkið var
boðið út árið 2011, hafi samning-
urinn sem skrifað var undir verið í
nafni HS verktaks en með kenni-
tölu Halldórs Sigurðssonar. Upphaf
málsins megi rekja til ársins 2007
þegar Halldór Sigurðsson bauð
fyrst í fyrrgreind verk undir eigin
nafni og hafi Borgarbyggð gengið
að samningum við hann þá. Fjórum
árum síðar hafi sveitarfélagið fram-
kvæmt útboð á áhaldahúsvinnunni
og hafði Halldór í millitíðinni stofn-
að fyrirtæki utan um umsvif sín; HS
verktak ehf. Það var HS verktak ehf.
sem átti lægsta boð í verkið í útboð-
inu 2011 og taldi sveitarfélagið sig
hafa gengið til samninga við það,
en ekki Halldór persónulega. Við
samningsgerðina segir Páll að mis-
tök hafi engu að síður verið gerð og
hafi kennitala Halldórs sjálfs verið
á samningnum og hann sé því lög-
formlegur samningsaðili. Páll segir
að af þessum sökum sé nú uppi lög-
fræðilegt álitamál um hvort sveitar-
félagið þurfi að bjóða út verkið að
nýju eða samningurinn við Halldór
Sigurðsson verði látinn renna sitt
skeið. Núverandi samningur gildir
til 1. maí 2015. Þá er einnig álita-
mál hvort skiptastjóri þrotabús HS
verktaks ehf. þurfi á nokkurn hátt
að koma að málinu, en lögfræðing-
ur Borgarbyggðar og skiptastjórinn
munu funda í þessari viku.
Íhugar að kæra
Jökull Fannar Björnsson hjá JBH
ehf. í Borgarnesi átti þriðja lægsta
boð þegar tilboð voru opnuð í
verkið 26. maí 2011. Jökull seg-
ir að fullkomlega væri eðlilegt við
þær aðstæður sem upp eru komn-
ar að sveitarfélagið bjóði hið snar-
asta verkið út að nýju. Augljóslega
hafi verið brotið á þeim sem buðu í
verkið árið 2011 og ekki fengu, eft-
ir að samið hafi verið við annan lög-
aðila en þann sem átti lægst boð.
„Þá undrast ég að slík mistök, eins
og nú er að koma í ljós að gerð voru
við samningsgerðina, geti yfirhöfuð
átt sér stað. Ég hyggst ráðfæra mig
við lögfræðing minn um hvort mál-
ið verði kært,“ segir Jökull Fannar í
samtali við Skessuhorn.
Að lokum má geta þess að mjög
álíka aðstæður komu upp hjá Akra-
neskaupstað í nýliðnum mánuði
þegar verktakafyrirtæki sem haft
hafði umsjón með slætti á opnum
svæðum á Akranesi varð gjaldþrota.
Akraneskaupstaður ákvað þá með
hraði að fara í útboð á slættinum og
var búið að semja við nýjan verktaka
innan hálfs mánaðar. mm
Frá Borgarnesi.
Mistök gerð við samning um
áhaldahúsvinnu í Borgarbyggð