Skessuhorn - 03.07.2013, Síða 15
15MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Auglýsing um breytingu á
aðalskipulagi vegna Akursbrautar 5
(Akurshóll) á Akranesi
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum
þann 11. júní s.l. að auglýsa svonefnda lýsingu
vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi
vegna Akursbrautar 5.
Aðalskipulagsbreytingin tekur til óbyggðs svæðis við
Akursbraut 5, milli Akursbrautar 3 og Akursbrautar 9
og 11A, nefnt Akurshóll.
Kynning lýsingarinnar fer fram með þeim hætti
að hún er birt á heimasíðu Akraneskaupstaðar
(www.akranes.is) og liggur frammi í þjónustuveri
kaupstaðarins að Stillholti 16–18, Akranesi.
Upplýsingar eru einnig veittar hjá Umhverfis- og
framkvæmdasviði á sama stað.
Ábendingum og athugasemdum við lýsinguna skal
skila skriflega til byggingar- og skipulagsfulltrúa
Stillholti 16–18, Akranesi eða á netfangið
akranes@akranes.is, eigi síðar en 10. júlí 2013.
Byggingar- og skipulagsfulltrúi.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
„Held ennþá forustu, 2:24 uppi,
2:44 niðri, lærin orðin vel súr...
tvær ferðir eftir.“ Þetta voru skila-
boð sem Sigurjón Ernir Sturluson
sendi á Facebook síðu sína þeg-
ar hann tók þátt í Mt. Esja Ultra
mótinu sem fram fór 22. júní sl.
Sigurjón er 23 ára nemi í íþrótta-
fræði við HÍ og kemur frá Hnúki
í Hvalfjarðarsveit. Hann gerði sér
lítið fyrir og sigraði í þessari keppni
í næst erfiðasta styrkleikaflokki. Fór
hann upp og niður Esjuna fimm
sinnum í röð og er sú vegalengd 35
kílómetrar með hækkun upp á þrjá
kílómetra. Hlaupinu lauk hann á
tímanum 4:41,33. Hann hafði sett
sér það markmið fyrir keppina að
vera undir fimm klukkustundum að
ljúka því og tókst það gott betur.
„Aðalatriðið í svona keppnum
er að vera með nægilega næringu
og vökva auk þess að hafa haus-
inn í lagi,“ segir Sigurjón og bæt-
ir við að svo verði menn auðvi-
tað að hafa gaman að þessu. Á
sumrin starfar Sigurjón sem ofn-
gæslumaður hjá Elkem Ísland
auk þess sem hann bæði þjálf-
ar og æfir Boot Camp sem hann
segir að sé mjög góð þjálfun fyr-
ir svona keppnir og aðrar íþróttir
sem reyni mikið á líkamann. Að-
spurður um framtíðina ætlar hann
að taka þátt í fleiri fjallahlaupum
en sjálfum finnst honum þannig
hlaup mun skemmtilegri en venju-
leg götuhlaup. „Þarna þarf maður
að hugsa hvert skref, umhverfið er
fjölbreyttara og maður er að reyna
á miklu fleiri vöðva en í venjulegu
hlaupi, þannig að þetta er virkilega
skemmtilegt því það er svo margt
í gangi í einu.“ Stefnir hann með-
al annars á að taka þátt í Sjö tinda
hlaupinu í lok ágúst en hann hef-
ur unnið Þriggja tinda hlaupið hér
á landi síðustu tvö ár. Þessi fjölg-
un um fjóra tinda hræðir hann lít-
ið, enda Sigurjón alinn upp við
rætur Akrafjalls og telur að smala-
mennska þar til fjölda ára gefi
sér ákveðið forskot. „Ef allt fer
að klikka hækka ég bara í tónlist-
inni í eyrunum og læt hljómsveit-
ir á borð við Metallica og Oasis sjá
um að hvetja mig áfram á síðustu
metrunum,“ segir hann brosandi
að lokum.
jsb
Nafn: Kristinn Árni Guð-
mundsson
Aldur: 7 ára
Hvenær lestu? Bara á kvöldin
Áttu uppáhalds bók? Já, bók
sem ég á heima hún er Syrpa
(Andrés Önd).
Áttu einhvern uppáhalds höf-
und? Nei
Hvaða bók lastu síðast? Gull-
eyjuna
Viltu mæla með einhverri bók
fyrir aðra krakka að lesa? Það
er ein allavega. Hún heitir Hvers
vegna, hvenær, hvernig, hvar.
Bók með allskonar sögum.
Í hvaða skóla ertu? Brekkó
(Brekkubæjarskóla)
Sumarlesari
vikunnar
Sumarlesari vikunnar á Bóka-
safni Akraness heitir Kristinn
Árni. Krakkarnir eru að sögn
starfsfólks bókasafnsins duglegir
að mæta, en vel mega fleiri koma
og nýta sér góðan safnkost.
Sigurjón á verðlaunapalli í Mt. Esja Ultra 2013.
Sigraði Esjuna fimm sinnum í röð