Skessuhorn - 03.07.2013, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Hann er ekki lofthræddur sá sem
stjórnar þessari gröfu, enda eins
gott þar sem grafan er nánast lóð-
rétt efst í fjallshlíðinni. Þessa dag-
ana er unnið að því að skipta um
þrýstipípu við Rjúkandavirkjun og
liggur hún frá stíflunni niður bratta
fjallshlíðina fyrir ofan stöðvar-
mannvirkin.
þa
Að undanförnu hefur verið unn-
ið að breytingum á aðstöðu ferða-
þjónustunnar í Fossatúni í Borgar-
firði. Að sögn Steinars Berg Ísleifs-
sonar staðarhaldara í Fossatúni er
markmið breytinganna að efla fjöl-
breytni þess sem í boði er. Ný inn-
keyrsla hefur verið gerð á staðnum
og sú gamla lögð af og er nú ekið
beint að þjónustuhúsi tjaldsvæð-
isins. Þá hefur innréttingum veit-
ingahússins verið breytt og kom-
ið fyrir rými fyrir söluvörur. Stein-
ar segir að áhersla verði lögð á að
selja vörur sem Fossatún framleiðir
á borð við bókina Tryggðatröll eft-
ir Steinar og Brian Pilkington, sem
þýdd hefur verið á fjögur tungumál,
Tröllalandsboli o.fl. Veitingastaður
Fossatúns ber nú heitið Kaffi Vín-
yll og er fortíð Steinars Bergs sem
tónlistarútgefanda þar allsráðandi.
Búið er að hengja myndir af völd-
um plötum sem hann gaf út á veggi
veitingastaðarins og fleiri gripi
sem þeim tengjast til að gefa réttu
stemninguna. Gestir eiga þess kosts
að fá að velja sér vinylplötu til að
spila úr stóru plötusafni Steinars
sem er á staðnum meðan veitinga
er notið. Nýr og fjölbreyttur mat-
seðill hefur loks verið tekin í notk-
un með gómsætum réttum og segir
Steinar að gæði og sanngirni í verð-
lagningu séu höfð í fyrrirúmi.
Tröllagarðurinn margfrægi á
staðnum hefur rúmlega tvöfaldast
eftir að tröllagolfi og tröllatenn-
is var bætt við í sumarbyrjun, en
Steinar segir garðinn njóta sívax-
andi vinsælda. „Þetta eru hvoru-
tveggja fótboltaleikir sem slegið
hafa í gegn hjá gestum svæðisins
sem í vaxandi mæli hafa áttað sig á
að leikirnir og þrautirnar eru hann-
aðar til þess að yngri sem eldri,
hægir og snöggir, geta átt gæða-
stundir saman og keppt í skemmti-
legum og dálítið öðruvísi leikjum,“
segir Steinar. Hljómsveitin Gra-
sasnar ætla síðan að spila nokkr-
um sinnum í Fossatúni í sumar og
munu þeir koma næst fram laugar-
daginn 6. júlí kl. 21:30. Hljómsveit-
in mun leika lög af plötu sinni, Til
í tuskið, sem kom út fyrr á þessu
ári, en jafnframt kynna nokkur ný
lög til sögunnar. Steinar hvetur alla
Borgfirðinga og Vestlendinga til að
mæta og eiga góða stund með Gra-
sösnum. Ókeypis er inn og tilboðs-
verð á bjór.
hlh
„Það lítur ágætlega út hjá okkur í
sumar, komnar góðar bókanir fyrir
júlí og ágúst. Þetta fór vel af stað í
vor en síðan kom svolítill afturkipp-
ur seinnipartinn í júní. Mér sýn-
ist að veðurfarið hafi þar spilað inn
í. Annars hef ég aldrei kynnst jafn
veðursælum stað og hérna á Laug-
um. Það þarf litla sól til að hér hitni
verulega og oft á tíðum er hérna
mikill hitapottur, þannig að fólk
nýtur þess að vera hérna í kyrrð-
inni á veröndinni,“ segir Gunnar
Rafnsson hótelstjóri á Hótel Eddu
á Laugum í Sælingsdal. Þetta er
fjórða sumarið sem Gunnar veitir
hótelinu á Laugum forstöðu en það
er opið frá júníbyrjun til loka ágúst-
mánaðar. Hótel Edda á Laugum er
eins og önnur Edduhótel í landinu
í Icelandair hótelkeðjunni.
Bætt í
markaðssetninguna
Það er þó eins og of fáir viti af þessu
vinalega og glæsilega hóteli rétt við
þjóðveginn, en mjög stutt er frá
Vestfjarðavegi í Laugar. Gunnar
segir að nýting á Laugum sé ekki
jafngóð og á mörgum Edduhót-
elanna. „Það hefur þó verið auk-
ið í markaðssetninguna síðustu 2-3
árin og það er eins og það sé að-
eins að skila sér. Ég finn líka fyr-
ir því að eftir að Rósa Björk Hall-
dórsdóttir kom til starfa hjá Mark-
aðsstofu Vesturlands er kynninga-
starf á landshlutanum orðið mark-
vissara en áður. Það sem er líka
að gerast, er að samstarf milli að-
ila í ferðaþjónustu á svæðinu er að
aukast. Þannig þarf það að vera að
allir vinni saman og beini kröftun-
um í eina átt,“ segir Gunnar. Stað-
festingu á þessum orðum fékk ein-
mitt blaðamaður í heimsókn sinni á
Laugar. Meðan við Gunnar spjöll-
uðum saman kíkti þarna við Guð-
mundur Halldórsson vert á Sveita-
setrinu Vogi á Fellsströnd. Erind-
ið var að fá lánuð reiðhjól á Laug-
um, en samvinna er á milli þess-
ara staða með leigu og lán á hjólum
fyrir ferðahópa.
Í plúshópi Eddu
hótelanna
Hótel Edda á Laugum er í gæða-
flokknum Edda plús. Það var um
aldamótin síðustu sem sveitafélag-
ið Dalabyggð stofnaði félagið Da-
lagistingu ásamt fleiri aðilum. Þá
var gerð upp gamla heimavistin á
Laugum og henni breytt í glæsileg
hótelherbergi. Þau eru 22 að tölu,
17 tveggja manna og fimm eins
manns. þremur einsmanns her-
bergjum er hægt að tengja tveggja
manna herbergjunum þannig að
þau henti fyrir fjölskyldufólk.
Hverju herbergi fylgir annað-
hvort sturta eða bað. Fyrir þrem-
ur árum var síðan endurgerður
stór salur sem kallaður er Gyllti
salurinn og tekur um 60 manns í
sæti. Hann nýtist sem bæði setu-
stofa og samkomusalur og þar er
gjarnan yfir sumarið haldnir tón-
leikar og aðrar uppákomur. „Sal-
urinn hentar einkar vel fyrir tón-
leika, hljómburðurinn er svo ein-
staklega góður,“ segir Gunnar
en það voru Hótel Edda, sveit-
arfélagið Dalabyggð og UMFÍ,
sem stóðu sameiginlega að fram-
kvæmdum við Gyllta salinn. Sem
kunnugt er starfrækir UMFÍ að
vetrinum Ungmenna- og tóm-
stundabúðir á Laugum.
Leggja áherslu á
hráefni af svæðinu
Laugar er eins og áður segir einkar
skjólgóður og fallegur staður í
notalegu umhverfi. Sundlaug er á
staðnum og stutt út í fjölskrúðuga
náttúru og skemmtilegar göngu-
leiðir. Hótelgestir á Laugum
njóta morgunverðarhlaðaborðs
frá klukkan hálfátta á morgnana
til klukkan tíu. Þá er opnuð tería
þar sem gestir geta nálgast sam-
lokur, salöt og drykki yfir daginn.
Veitingastaðurinn er síðan opnað-
ur klukkan 18, þar sem boðið er
upp á fjölbreyttan matseðil, auk
smárétta. „Við leggjum áherslu á
að nýta í okkar matseðil hráefni
af svæðinu,“ segir Gunnar. Starfs-
menn sumarhótelsins á Laugum
eru 18. Gunnar segir að lítill hluti
þeirra séu heimamenn og ástæðan
sé sú að svo virðist sem lítið fram-
boð sé á vinnuafli í Dölum.
þá
Hefur aldrei kynnst jafn veðursælum stað
Spjallað við Gunnar Rafnsson sem stýrir Hótel Eddu á Laugum
Í Hótel Eddu á Laugum eru 22 glæsileg herbergi.
Gunnar Rafnsson hótelstjóri á Laugum
í Sælingsdal.
Byggingar Hótel Eddu nær í mynd. Fjær er íþróttahúsið og fleiri byggingar sem
m.a. eru nýttir að vetrinum fyrir ungmennastarf.
Á ystu brún við endur-
nýjun aðrennslislagnar
Betrumbætur í Fossatúni
Athyglisverðar endurbætur hafa verið gerðar á veitingastað Fossatúns, sem nú heitir Kaffi Vínyll.