Skessuhorn


Skessuhorn - 03.07.2013, Síða 29

Skessuhorn - 03.07.2013, Síða 29
29MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Betri þjónusta fyrir þig Nú hafa reikningar frá okkur fengið nýtt útlit eftir samráð og samstarf við viðskiptavini okkar. Við þökkum þeim, sem veittu okkur aðstoð við þetta skemmtilega verkefni, kærlega fyrir hjálpina. Nýja útlitið er byggt á óskum viðskiptavina um samræmi, einfalda uppsetningu og áherslu á það sem skiptir mestu máli. Á nýjum reikningum er auðveldara að sjá hver orkunotkunin er í raun og veru. Það er miklvægt, bæði fyrir þig og okkur. „Ég sé reikningana mína núna í nýju ljósi. Framsetningin er skýr og nýju yfirlitin veita mér góða yfirsýn yfir mánaðarlegan orkukostnað heimilisins.” Geir Jónsson, viðskiptavinur. „Á nýju yfirlitunum sé ég á einum stað þau atriði sem skipta máli þegar ég bóka reikninga frá Orkuveitunni. Reikningarnir er nú einfaldari og upplýsingar aðgengilegri.” Evlalía Kristjánsdóttir, Hagkaup / Bókhald. Nánari upplýsingar um nýju reikningana okkar má finna á or.is og orkanmin.is Takk fyrir að vera í sambandi! Ís le n sk a s Ia .Is IS L 64 49 3 0 6/ 13 Nafn: Björgvin Óskar Bjarnason Starfsheiti/fyrirtæki: Vegtæknir hjá Tæknideild Vegagerðarinnar á Norðvestursvæði. Fjölskylduhagir/búseta:Kvæntur Ingu Láru Bragadóttur og eigum við tvo syni og þrjár dætur. Áhugamál: Á öllu sem er áhuga- vert í lífi og listum (af öllum toga) enda fróðleiksfús og forvitinn. Félagsmál eru ofarlega í forgangi og flest er tengist íþróttum. Golf og Hamarsvöllur eru stór hluti af félagslegu lífi mínu síðustu áratug- ina. Vinnudagurinn Þriðjudaginn 25. júní 2013. Vaknaði að venju kl. 05.41 og snéri mér næstum á hina hliðina enda staddur á gistiheimili í Grundar- firði og vinnufélagir mínir í teym- inu ekkir tilbúnir í slaginn fyrr en kl. 8.00. Við, tveir starfsmenn Vegagerðarinnar og tveir sérfræð- ingar frá Verkfræðistofunni Mann- viti, vorum á svæðinu til að setja niður sírita til að mæla sjávarföll, hitastig, seltu og súrefni, á nokkr- um stöðum í Kolgrafafirði (vegna síldardauðans) og mæla þá inn. Upp úr kl. 8.00 vorum við mættir út í Kolgrafafjörð og þegar búnir að koma niður einum sírita. Nú þurfti að finna þeim næsta stað eða rétt- ara sagt að komast að honum land- leiðina. Ég reyndi að komast fjör- una á Bobbanum (bílnum mínum) en gafst fljótlega upp fyrir grútn- um og mögulegum sandbleyt- um. Síðan var reynt að komast á staðinn yfir móana en ekki reynd- ist unnt að komast alla leið, hvað þá með vel lestaða efn- iskerru aftan í. „Mann- vitsmennirnir“ sjósettu þá gúmmí- bátinn og hófu könnun sjóleiðina, sem er meira mál því mikið efni þarf í að virkja svona rita. Ákveð- ið var að „geyma“ þennan stað og einbeita sér að hinum tveimur þar sem setja átti niður flóðmæla. Báð- ir voru í mynni Urthvalafjarðar, sem Kolgrafafjörður gengur inn af. Á Eyrarodda (Klumbur) vest- an fjarðar og við Bjarnarhafnar- fjall eða mögulega Akureyjar aust- an megin. Um hádegisbilið slóst ég í för með Þórarni hjá Landmælingum (Tóta Sig) og Jóni Erlings. Tóti var kominn með mælingastokk LMÍ (tölvu) með nýuppfærðu forriti til að mæla í nýrri alstöð Vegagerð- arinnar trigonometrískan hæðar- flutning frá fastmerkjum við sírita í þekkt merki í hæð (hallamæld). Ákveðið var að fara í fyrsta sírit- ann inn í Kolgrafafirði og koma hæðum á fastmerki og sírita. Ein- hverjir byrjunarörðugleikar voru með „nýja forritið“ í alstöðinni, en þetta blessaðist allt saman og við vorum búnir með þetta verk um kl. 17:30. Eftir þetta fór ég að leita að fast- merki við norðanvert Eyrarfjall til að „loka“ mælingu frá Eyrarodd- anum, sem ég fann auðvitað ekki. Ég var á leiðinni „heim“ í Grund- arfjörð þegar Tóti og Jón hringdu og vildu flytja hæðir frá mælistöð og sírita 3 á Eyraroddanum því veðurspá fyrir morgundaginn væri válynd, jafnvel þótt við værum ekki búnir að finna fastmerkið. Sú mæl- ing gekk bærilega en mælt er í 250 metra sigtum til beggja handa. Mælingum lauk rétt fyrir kl. 21 og vorum við Jón komnir í hús á gistiheimilinu um kl. 21:20 og réð- umst á nestið okkar eins og menn. Burstaði tennurnar, fór með bæn- irnar, kyssti bangsann minn (ekk- ert endilega í þessari röð) um kl. 22 og sofnaði fljótt. Fastir liðir alla daga? Í mælingum eru engir fastir lið- ir til. Verkefnin eru eins ólík og þau eru mörg eins og aðstæðurnar. Mælingar eru í eðli sínu alltaf eins en þó aldrei eins. Hvað stendur upp úr eftir vinnu- daginn? Eftirminnilegasta upplifun í þess- ari mælingaferð sem tók 5 daga og er ekki lokið sem stendur, var þrennt. Súlukastið rétt við nefið á manni. Höfrungahlaup inn í firði og síðast en ekki sízt að sjá seli í flæðarmálinu eða 6-8 metra frá okkur, veiða og sporðrenna þorsk- um meðan þeir góndu forvitnum og saklausum augum á okkur. Var dagurinn hefðbundinn? Það er ekki til hefðbundinn dagur í mælingum. Þessi mælingaferð var að vísu meira öðruvísi. Hvenær byrjaðir þú í þessu starfi? Eftir að ég sagði upp starfi mínu hjá SÍS (Hetti) eða 1. sept. 1980. Er þetta framtíðarstarfið þitt? Gæti alveg hugsað mér það. En einu ríkisstarfsmennirnir sem mega vinna eftir sjötugt er forset- inn og alþingismenn, svo ég verð settur í vinnuhelsi eftir 21 mánuð hvort sem mér líkar verr eða bet- ur. Hlakkar þú til að mæta í vinn- una? Svo sannarlega. Enda yfirleitt sá sem tekur þjófavörnina af í fyrir- tækinu á morgnana. Dag ur í lífi... Mælingamanns hjá Vegagerðinni

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.