Skessuhorn - 28.08.2013, Qupperneq 28
ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
„Verkefnastaðan er góð fram að ára-
mótum en við sjáum ekkert fram
á næsta ár,“ segir Óskar Sigvalda-
son framkvæmdastjóri Borgarverks
í Borgarnesi. Hann segir að meira
hafa verið að gera þetta árið en í
fyrra og veltuaukninguna 20% milli
ára. Stærstu verkefnin í sumar segir
hann hafa verið verk á Strandavegi
í Steingrímsfirði, þriggja kílómetra
kafla frá Djúpvegi í átt að Drangs-
nesi. Þá var mikil vinna við endur-
bætur á yfirborði Þverárfjallsvegar
við Sauðárkrók, þar sem lagt var yfir
30 km og að hluta slitlagið styrkt
með sementi. Þá er Borgarverk með
þjónustuverkefni fyrir Vegagerðina
um endurbætur á slitlagi þjóðvega
á Norður- og Austurlandi, frá Þórs-
höfn í norðri suður í Hvalfjarðar-
botn að Vestfjörðum meðtöldum.
Óskar segir að í haust verði
stærstu verkefnin styrking og yfir-
lögn á Hvammstangavegi og breikk-
un þjóðvegarins efst í Norðurárdal
við Fornahvamm. Í sumar voru 40
starfsmenn hjá Borgarverki en núna
á haustmánuðum verða þeir tæplega
30 að sögn Óskars. Hann segir að
það sama sé upp á teningnum nú og
undanfarin ár, óvissa með verkefni á
næsta ári, en það þýði þó ekki annað
en að vera bjartsýnn.
þá
Starfsmenn Háskólaseturs Snæ-
fellsness í Stykkishólmi hafa lengi
stundað rannsóknir á æðarfugli og
hefur nú bæst í þeirra hóp. Tho-
mas Holm Carlsen frá Noregi hefur
tekið til starfa hjá setrinu í samstarfi
við vinnuveitanda sinn, Biforsk í
Noregi. Thomas stefnir á doktors-
nám við Háskóla Íslands með æð-
arfugl sem rannsóknarverkefni en
æðarfuglinn er einmitt sérsvið Há-
skólasetursins.
Vegna verkefnisins sótti Háskóla-
setrið um styrk til Rannís síðastliðið
vor. „Thomas rannsakar eiginleika
æðardúns og langar okkur að tengja
þær mælingar við ástand fuglana
sjálfra, sem sagt líkamsástand og
varpárangur, taka blóðsýni til að
mæla streituhormón og svo fram-
vegis,“ segir Jón Einar Jónsson for-
stöðumaður Rannsóknaseturs Há-
skóla Íslands á Snæfellsnesi. sko
Slæmt veðurútlit er fyrir föstudag
og laugardag á norðanverðu land-
inu. Veðurspáin er að mörgu leyti
lík veðrinu frá því í fyrra í byrjun
september á síðasta ári. Það hafði
m.a. í för með sér mikinn fjárskaða
á Norðurlandi. Í ljósi spárinnar
hefur almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra haft samband við lög-
reglustjóra allt frá Blönduósi austur
á Seyðisfjörð vegna veðurútlitsins
og í framhaldinu voru haldnir sam-
ráðs- og upplýsingafundir með al-
mannavarnanefndum, sveitarstjór-
um, bændum og fleirum. Ákveðið
var í gærmorgun að fylgjast áfram
með veðurspánni og hefja smölun
sauðfjár eftir atvikum.
Samkvæmt veðurspá sem gerð
var í gærmorgun fyrir föstudag,
gengur í norðvestan 18-23 m/s
norðvestan til á landinu með mikilli
rigningu, en snjókoma ofan 200-
300 metra yfir sjávarmáli. Norð-
vestan og vestan 15-23 á suðvest-
ur- og vesturlandi og rigning. Mun
hægari vindur á austanverðu land-
inu og úrkomulítið. Hiti frá einu
stigi síðdegis norðvestan til, upp í
12 stig austast. Á laugardaginn er
spáð norðan og norðvestan 15-23
m/s fyrir hádegi, en hægari vind-
ur verður norðaustan til. Talsverð
eða mikil rigning norðan til á land-
inu, en snjókoma í meira en 200-
300 metra hæð yfir sjó. Úrkomulít-
ið sunnanlands. Norðvestan 13-18
norðaustan til síðdegis með rign-
ingu á láglendi, annars slyddu eða
snjókomu, en dregur úr vindi og
úrkomu vestan til. Hiti 1 til 9 stig,
kaldast í innsveitum norðan til og
frystir þar um nóttina.
Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra beinir því sérstaklega
til ferðaþjónustuaðila að þeir upp-
lýsi viðskipavini sína um veðurspár
og ráðleggi þeim frá ferðalögum á
norðanvert hálendið um helgina.
Miðað við veðurspár er líklegt að
það snjói víða á fjallvegi og því sér-
staklega mikilvægt að upplýsingar
berist til ferðamanna sem eingöngu
eru búnir bifreiðum til sumarakst-
urs. Þeir sem hyggja á ferðalög eru
hvattir til að fylgjast vel með veð-
urútliti á www.vedur.is og færð á
vegum www.vegagerdin.is áður en
haldið er af stað.
mm
Thomas Holm Carlsen í æðarvarpi á Vestfjörðum árið 2012.
Nýr starfsmaður við háskólasetrið
Fimmtungs aukning verkefna
milli ára hjá Borgarverki
Viðbúnaður vegna slæmrar
veðurspár á Norðurlandi