Skessuhorn - 23.10.2013, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 16. árg. 23. október 2013 - kr. 600 í lausasölu
10 töflur
25%
afslát
tur
ÚRVAL FISK-
OG KJÖTRÉTTA
MÁN–FÖS
11.00–18.00
OPIÐ:
WWW.SHIPOHOJ.IS
BORGARNESI
HÖFUM TEKIÐ Í SÖLU
ILMVÖRUR FRÁ CHANEL
FYRIR DÖMUR OG HERRA
TAX FREE FIMMTUDAG
TIL LAUGARDAGS
NÝTT NÝTT
Síldarstúlkan Högna Ósk Álfgeirsdóttir er hér nýkomin í land úr róðri með Fríðu SH, brosandi og hreistruð eftir að hafa tekið þátt í að fylla bátinn. Hún var á vertíð í
vetrarfríi frá námi við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Skessuhorn fór dagstund í síðustu viku á síldarvertíð í Hólminum.
Sjá umfjöllun á blaðsíðum 26 – 27. Ljósm. mþh
Í gærmorgun var undirritaður verk-
samningur vegna framkvæmda við
endurgerð Akratorgs á Akranesi sem
byrja á næstu dögum. Eins og fram
hefur komið í Skessuhorni verður
nú farið í fegrun og snyrtingu torgs-
ins en ekki að sinni ráðist í gatna-
framkvæmdir. Regína Ásvaldsdótt-
ir bæjarstjóri og Snjólfur Eiríksson,
eigandi SE-Garðyrkju, undirrituðu
verksamninginn en fyrirtækið var
með lægsta tilboðið í framkvæmd-
irnar, eða 45 milljónir króna. Unn-
ið verður eftir verðlaunatillögu frá
árinu 2006 sem felur í sér þá grunn-
hugmynd að skapa torg sem verð-
ur ankeri menningar, viðburða og
þjónustu á Akranesi. Verkinu er
skipt í tvo áfanga og er reiknað með
að þeim fyrri ljúki 1. desember næst-
komandi eða í byrjun jólaföstu, en
verklok við seinni áfangann verði
10. júní næsta sumar. Framo kom
við undirskriftina að hugað hafi ver-
ið að því við útfærslu breytinganna
sem verða á torginu að gróður verði
þar enn meiri en gert var ráð fyrir
í verðlaunatillögunni frá 2006. Í til-
kynningu vegna undirskriftar verk-
samningsins segir að Akratorg hafi
lengi verið miðpunktur mannlífs
og menningaviðburða á Akranesi.
Breytingar á torginu, ásamt öðr-
um sem fylgja á í kjölfarið er ætlað
að vera liður í að fegra ásýnd gamla
miðbæjarins.
Fjögur tilboð bárust í verkið.
Lægsta tilboðið kom frá SE-garð-
yrkju ehf, eða 45 milljónir króna
eins og áður segir. Skóflan hf.
bauð 48.860.000 kr., Lóðaþjónust-
an ehf 50.026.000 kr. og Þróttur
ehf 54.754.000 kr. Kostnaðaráætlun
hönnuða var 44.156.000 kr.
þá
Síðastliðið mánudagskvöld stöðv-
uðu lögreglumenn á Akranesi bif-
reið og er ökumaður hennar grun-
aður um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Við yfirheyrslur neit-
aði maðurinn að gefa upp dvalar-
stað og þar sem hann á sér nokkra
sögu er varðar fíkniefni þótti rétt
að kanna málið nánar. Í gærmorg-
un tókst að upplýsa hvar dvalar-
staður hans er og í framhaldi af því
var gerð húsleit í íbúð mannsins á
Akranesi. Þegar inn kom blasti við
afar fullkomin aðstaða til ræktunar
marijúana og í henni voru 25 stór-
ar plöntur. Lögregla lagði hald á
plönturnar ásamt öllum búnaði.
mm
Lögðu hald
á 25 plöntur
Framkvæmdir á Akratorgi að hefjast
Samankomin vegna undirskriftar verksamnings: Einar Benediktsson bæjar-
fulltrúi, Sigurður Páll Harðarson framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, Regína
Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Snjólfur Eiríksson frá verktakanum SE-garðyrkju og Íris
Reynisdóttir garðyrkjustjóri.