Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Qupperneq 4

Skessuhorn - 23.10.2013, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Að duga – eða láta síldina drepast Leiðari Það var vertíðarstemning á bryggjunni í Stykkishólmi þegar blaðamaður Skessuhorns var þar á ferðinni í síðustu viku. Veður var stillt og smábát- arnir hver á fætur öðrum að koma til hafnar með fullfermi af rígvænni síld. Þeir þurftu ekki að róa langt til fiskjar, spölkorn út á fjörðinn. Veiðarfær- in voru heldur ekki af dýrari gerðinni; átján metra löngum netstubbum er hent út, lögð lagnet, og þau fljótlega dregin aftur upp og út þeim hrist spriklandi síld. Á bryggjuna mættu eldri sjómenn og táruðust jafnvel sum- ir, þá langaði svo mikið að taka þátt í þessu litla ævintýri sem var að ger- ast. Inni í vinnslu Agustson var mikið í gangi, unnið úr þessu úrvals hráefni verðmæt vara til útflutnings. Þjóðarbúið allt nýtur góðs af þessu. Þetta er lítil og falleg saga, falleg af því maður hefur ánægju af því þeg- ar vel gengur á einhverjum sviðum atvinnulífsins, ekki veitir af. Jafnvel þótt hlutur smábátanna af heildar úthlutun kvótans sé smáræði á við það sem stóru skipin fá í sinn hlut, gleðst maður yfir því sem þeir litlu fái þó eitt- hvað. Grátlegt er þó að vita til þess að við búum við kerfi þar sem nánast allur síldarkvótinn á lögheimili annars staðar, mest austur á fjörðum. Það- an koma stóru skipin hvert af öðru, fylla sig og þurfa síðan að sigla norður- eða suður fyrir landið til að landa í sínum heimahöfnum. Veiðireynslan frá því að síldin hélt sig á öðrum veiðislóðum ræður því. Kerfið bregst ekki við af því það er varið af hagsmunaöflum og er þar af leiðandi ósveigjanlegt. Íslenska sumargotsíldin er ólíkindatól. Á veturna leggst hún í dvala, eig- inlega í hálfgert híði eins og björninn og tekur út þroska. Kemur sér þá fyr- ir á einhverjum stað nærri landi. Á síðustu árum hefur hún í vaxandi mæli valið sér Breiðafjörðinn til vetrardvalar og nú síðustu vetur þröngan Kolg- rafafjörðinn. Þar drapst hún síðasta vetur í stórum stíl og er áætlað að ríf- lega fimmtíu þúsund tonn hafi drepist, fyrra hollið í desember og hið síðara í febrúar. Slíkur dauði nytjastofns er náttúrulega hamfarir og ekkert ann- að. Áætlað verðmæti þessa dauða fisks, hefði hann verið veiddur og nýtt- ur, er 5-6 milljarðar króna. Munar um minna. En hvað er gert til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig? Jú, að góðum íslenskum sið er stofnað- ur starfshópur til að koma með tillögur. Starfshópur embættismanna sem hefur beinlínis hag af því að vera lengi að vinna. Þrátt fyrir að nú séu átta mánuðir frá síðari síldardauðanum hefur starfshópur þessi ekki skilað nein- um tillögum að gagni. Málið er semsagt á byrjunarreit og íbúar í Grundar- firði eru teknir að ókyrrast. Lái þeim hver sem vill. Ekki síst hafa ábúend- ur á Eiði við Kolgrafafjörð áhyggjur, enda fylgdust þeir með því um síð- ustu helgi þegar fyrstu háhyrningarnir syntu inn fjörðinn. Af hverju? Jú, af því síldin var byrjuð að bunka sig inn á fjörðinn. Þeir vita þetta, aðrir Grundfirðingar og allir aðrir sem fylgst hafa með þessum máli vita að yfir- gnæfandi líkur eru á að síldardauðinn mun endurtaka sig, einungis er þetta spurning um tíma. Heimamenn vilja láta loka þessum þrönga firði undir brúnni og það strax. Þeir hafa ekki tíma til að bíða eftir að einhver nefnd sunnanfólks ljúki störfum. Þeir vilja ekki fá enn eina pláguna yfir sig sem felst í dauða tugþúsunda tonna af dauðri síld. Að láta síldina fara enn einu sinni inn í Kolgrafafjörðinn er sambærilegt og ef bóndi sem á hundrað kinda fjárhús hleypti fimm hundruð kindum í húsin og lokaði svo. Flestar myndu kindurnar troðast undir og kafna, rétt eins og síldin mun gera í sínu súrefnisleysi. Stjórnvöld sem ekki gera neitt í slíkum málum eru jafn vitlaus og bóndinn sem þannig hagaði sér. Það er gott og blessað að loka fyrir flæði sjávar inn í Kolgrafafjörð. Lík- lega tæki sú framkvæmd viku og kostnaðurinn yrði á að giska 100-200 milljónir króna. Raunrétt er að fara í þá framkvæmd strax og það er eng- inn tími til að bíða eftir umhverfismati. Hitt er svo annað mál að í mínum huga ætti sjávarútvegs- og umhverfisráðherra að tvöfalda núverandi kvóta í sumargotssíld og láta alla báta og skip sem sjófærir eru hefja veiðar á síld- inni tafarlaust. Það væri nú nær að verkefnalausir smábátar allt frá Akranesi og vestur á firði fengju leyfi til slíkra veiða fremur en að vera bundnir við bryggju. Nú kalla heimamenn á Snæfellsnesi eftir aðgerðum ráðamanna og nú dugar ekki lengur að setja málið í nefnd. Það er að duga, eða láta síldina drepast. Magnús Magnússon Karlmaður með heimilisfestu á Akranesi er í nýlegum dómi Hér- aðsdóms Vesturlands dæmdur fyr- ir tvær grófar og hættulegar lík- amsárásir fyrr á þessu ári í félagi við annan mann. Manninum er gert að sæta átta mánaða fangelsi, en fresta skal fullnustu fimm mánaða af refsingunni haldi ákærði almennt skilorð í þrjú ár frá uppkvaðningu dóms. Maðurinn var einnig ákærð- ur fyrir húsbrot í öðru brotanna, þar sem mennirnir réðust inn á heimili. Meðal annars var þar kastað sjón- varpi og leirpotti í heimilismann. Einnig var ákærða gefið að sök brot gegn landsstjórninni þar sem hann beitti lögreglumann ofbeldi í yfir- heyrslu á lögreglustöðinni á Akra- nesi. Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki áður gerst sekur um of- beldisbrot og játaði hann brot sín. Hann hefur frá árinu 2008 tvisv- ar sinnum gengist undir viðurlög hjá lögreglu fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferð- arlögum. Í apríl 2008 var ákærði í Holstebro í Danmörku dæmdur í 12 mánaða fangelsi og var frestað fullnustu 6 mánaða af refsingunni skilorðsbundið í tvö ár. Ákærða var gert að greiða brotaþola 150 þús- und krónur með vöxtum en einn- ig þarf hann að greiða tæplega 900 þúsund í málsvarnarlaun og ann- að kostnað sem tengist réttarhald- inu. Mál ákærða var klofið frá máli félaga hans, sem tók þátt í hinum grófu og hættulegu líkamsárásum, og vísað til lagaákvæðis sem heim- ilar dómara að aðskilja mál fyrir dómi. þá Potturinn í laugardagslottói Ís- lenskrar getspár var sexfaldur sl. laugardag og var fyrsti vinning- ur því hár, eða 62 milljónir króna. Eftir að tölurnar 3, 4, 5, 7 og 10 lágu fyrir kom í ljós að fyrsti vinn- ingur hafði skipst á milli tveggja heppinna spilara sem fengu því 31 milljón hvor í sinn hlut. Annar vinningshafinn keypti miða sinn í áskrift á netinu en hinn í Olís við Esjubraut á Akranesi. Þá má geta þess að 100 þúsund króna jókerv- inningsmiði var seldur í Olís Borg- arnesi. Skessuhorn óskar viðkom- andi innilega til hamingju. mm Háskólinn á Bifröst hefur byrj- að undirbúning að sýningu um ís- lenskt atvinnulíf og er stefnt að opnun hennar á Bifröst seinni hluta maímánaðar 2014. Sýning- in verður öllum opin og er ætluð bæði almenningi og ferðamönn- um. Henni er ætlað að draga upp fjölbreytta og jákvæða mynd af ís- lenskum fyrirtækjum og þýðingu þeirra fyrir samfélagið. Stjórnend- ur og starfsfólk fyrirtækjanna munu kynna starfsemi þeirra eftir marg- víslegum miðlunarleiðum og segja frá því hvaða verðmæti fyrirtæk- in eru að skapa og hvernig þau fara að því. Framtíðarsýn fyrirtækjanna verður ennfremur gerð skil. Sýn- ingargestir eiga að ná góðri snert- ingu við íslenskt nútímaatvinnulíf á sýningunni. Sýningin verður jafnframt útbú- in í sérstakri skólaútgáfu sem hægt verður að fara með milli grunn- skóla og framhaldsskóla til þess að kynna íslenskt atvinnulíf fyrir nem- endum. Sýningin getur þá staðið uppi í hverjum skóla í viku í senn þar sem samhliða yrðu skipulagð- ar sérstakar kynningar á atvinnulíf- inu. Með þessum hætti er unnt að styrkja mjög tengsl milli atvinnu- lífsins og skólanna. María Ólafsdóttir hefur nú ver- ið ráðin sýningarstjóri fyrir sýn- inguna. María starfaði sem blaða- maður á Morgunblaðinu um árabil og hefur auk þess víðtæka reynslu af vinnu við fjölmiðlun. Hún er með BA gráðu í blaðamennsku frá Há- skólanum í Sheffield og MA gráðu í þjóðfræði frá Háskóla Íslands. mm Í síðustu viku bættist nýr bátur við bátaflotann í Ólafsvík þegar Hug- borg SH 87 kom til hafnar. Eigandi Hugborgar SH er Eggert Bjarna- son. Hugborg er stálbátur smíðað- ur í Vélsmiðju Ol Olsen í Njarðvík árið 1988 og er 19 tonn að stærð. Eggert segir að hann muni fara á síldveiðar nú í vikunni en síðan sé fyrirhugað að fara á netaveiðar á þorski. Að sögn Eggerts var bát- urinn lengi á Skagaströnd. Kveðst hann hafa verið um eitt ár að stand- setja hann og laga til. Eggert bæt- ir við að nafnið Hugborg SH komi til út af því að hann hafi byrjað sína sjómennsku á báti með sama nafni þegar hann var 14 ára og nafnið hafi verið laust. Því hafi ekki ann- að nafn komið til greina. af Dæmdur fyrir grófar og hættulegar líkamsárásir Happadrjúgur lottómiði seldur á Akranesi María ráðin sýningarstjóri atvinnulífssýningar á Bifröst Nýr bátur til Ólafsvíkur Eggert Bjarnason Hugborg SH komin til Ólafsvíkur.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.