Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 6

Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 Missti stjórn á bílnum LBD: Ökumaður jeppabif- reiðar á suðurleið, missti stjórn á bifreið sinni á hálkubletti sem hafði myndast á Borgarfjarðar- búnni um liðna helgi. Snerist jeppinn og hafnaði með fram- endann á vegriðinu skammt þar frá sem unnið er að viðgerð á yfirborði brúargólfsins. Öku- maður hélt för sinni áfram en lögreglan náði að stöðva akst- ur hans við Hvalfjarðargöng- in. Töluverðar skemmdir urðu á bifreið mannsins en hún var þó ökufær. Að sögn lögreglu urðu einnig skemmdir á vegr- iði brúarinnar en sem betur fer hélt það jeppanum inni á brúnni því annars hefði hann hafnað út í beljandi straumnum þar sem állinn er hvað dýpstur. –þá Sjóðsstjóri dæmdur fyrir fjárdrátt AKRANES: Í nýlegum dómi Héraðsdóms Vesturlands er kona sem í byrjun ársins var sjóðsstjóri verslunar Bónus á Akranesi sakfell fyrir fjárdrátt. Hún var dæmd til að sæta fang- elsisvist í 90 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveim- ur árum haldi ákærða almennt skilorð. Þá var hún dæmd til að greiða Högum hf, eigendum Bónusverslana, 980.500 krón- ur með vöxtum sem og 60.000 krónur í málskostnað. Ákærðu er gefið að sök að hafa dregið sér fé við uppgjör í þrjá daga, frá 19.-21. febrúar, um og yfir þrjú hundruð þúsund krónur í hvert skipti. –þá Grímshússfélagið fær styrk BORGARNES: Byggðar- ráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í liðinni viku að styrkja Grímshússfélagið í Brákarey um 1,5 milljón króna á þessu ári til að vinna áfram að endurbyggingu hússins. Verð- ur fjárhæðin tekin af öðrum framkvæmdaliðum sem áætlað- ir voru í Brákarey. –mm Byggingavísitala hækkar LANDIÐ: Vísitala bygging- arkostnaðar reiknuð um miðj- an október nú í ár var 119 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 0,2% frá fyrri mán- uði. Verð á innfluttu efni hækk- aði um 0,7% og skýrir það hækkun vísitölunnar. Vísitalan gildir í nóvember 2013. Á síð- ustu tólf mánuðum hefur vísi- tala byggingakostnaðar hækkað um 3,5%. –mm JBG vélar leggja göngustíg BORGARNES: Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lögð fram nið- urstaða um verðkönnun vegna lagningar göngustígs við Suð- urklett í Borgarnesi. Samþykkt var að láta kanna hvort ástæða sé til að breyta legu stígsins. Einnig var samþykkt að fela umhverfis- og skipulagssviði að semja um verkið við JBH-vélar ehf. sem voru með lægsta verð- ið, eða tæpa 1,5 milljón króna. Verkið verður unnið í haust. –mm Viðbúnaður vegna neyðarblyss AKRANES: Björgunarfélag Akra- ness var kallað út klukkan 22 síðast- liðið föstudagskvöld þegar tilkynn- ing barst til Landhelgisgæslunnar um að ljós, sem gæti verið neyðar- blys, hefði sést á lofti suð-suðvestur af Akranesi. Björgunarsveitin hélt á svæðið á tveimur bátum og leitaði til miðnættis. Þegar ekkert fannst var ákveðið, í samráði við Land- helgisgæsluna, að hætta leit. Veður og aðstæður voru með albesta móti meðan leitin fór fram, tunglskin og sléttur sjór . -mm Framlengdu um- sóknarfrest BORGARBYGGÐ: Umsókn- arfrestur um stöðu skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi hefur verið framlengdur til 24. október. Í frétt Borgarbyggðar kemur fram að „leitað er að einstaklingi með mik- inn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í góðu samstarfi við aðra starfsmenn skól- ans. Starfsemin skal einkennast af fjölbreytni, sveigjanleika og víð- sýni, þar sem tekið er tillit til mis- munandi þarfa, áhuga og getu nem- enda.“ –mm Frá Briddsfélagi Borgarfjarðar BORGARFJ: Mánudaginn 21. október sl. var fjórði upphitunartví- menningur Briddsfélags Borgarfjarð- ar spilaður í Logalandi. Aðeins átta pör mættu til leiks en það kom ekki í veg fyrir harða baráttu. Hvann- eyringarnir Sveinbjörn og Lárus voru í feiknastuði og skoruðu 65%, Þórir og Kristján virðast vera bún- ir að samstilla sig að mestu og urðu í öðru sæti með tæplega 55% skor, þriðja sætinu deildu svo Guðmund- ur og Elín, annars vegar, og Eyjólf- ur og Magnús, hins vegar, með 51% skor. Þegar öll smáatriði voru kruf- in kom í ljós að Guðmundur og Elín höfðu unnið innbyrðis viðureign- ina. Næsta mánudag verður fimmti og síðasti upphitunartvímenningur- inn en sjálfur Aðaltvímenningur BB hefst svo annan mánudag. –fréttatilk. Ýmsir ráku upp stór augu þegar þeir sáu hátt í 20 hús- bíla á tjaldstæðinu við Kal- mansvík á Akranesi um liðna helgi, komið fram yfir miðjan október. Hér voru á ferð félagar í Húsbílafélag- inu sem voru á sinni síð- ustu samkomu áður en bíl- um verður komið í vetrar- geymslu. Allir þessir bílar eru búnir miðstöðvarupp- hitun þannig að ekki væsti um fólk þrátt fyrir lágt hita- stig. mm/ Ljósm. Hilmar Sigvaldason. Svo virðist sem hreyf- ing sé komin á að bæta vegasamgöngur frá Barðaströndinni á suðurfirði Vestfjarða og fara hina umdeildu leið í gegnum Teigs- skóg. Einar Kr. Guð- finnsson alþingismað- ur tekur undir sjón- armið Hönnu Birnu Kristjánsdóttur inn- anríkisráðherra sem hefur lýst því yfir að hún vilji fara í gegnum Teigsskóg. Einar segir ljóst að ráðandi menn hjá Vegagerðinni vilji líka fara þá leið. „Staðan í málinu er þannig að við viljum fara út með Þorskafirði í gegnum Teigsskóg og frá Hallsteinsnesi yfir Djúpafjörð að Melanesi. Þar með yrðum við líka laus við torleiðir eins og Ódrjúgs- háls og Hjallaháls. Við teljum þessa leið betri, öruggari og hagkvæmari leið en núverandi leið fyrir utan það að við að fara hana sparast gríðar- legir fjármunir. Reiknað hefur ver- ið út að þessi leið er 3,5-4 milljörð- um ódýrari en að kosta upp á lag- færingar núverandi vegar. Þar eru kaflar sem eru hreinlega ónýtir og mikil torleiði allt árið, ekki síst að vetrinum,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson í samtali við Skessuhorn. Einar Kristinn segir að þröskuldurinn í þessu máli í dag sé að Skipulagsstofn- un hafi hafnað fyrirliggj- andi tillögum að nýju um- hverfismati. „Það er ljóst að fara þarf aðra leið að því máli og vonumst við þannig til að koma með lausn sem leiðir til framkvæmda sem stenst umhverfismat og lög,“ segir Einar. Í samtali við Skessuhorn sagði hann að ljóst væri að ganga yrði þannig frá málum að land- eigendur og andstæðingar þess að fara með veginn í gegnum Teigs- skóg gætu ekki náð sínu fram með málarekstri eins og hingað til. Hann sagði að vegur í gegnum Teigsskóg- inn þýddi að auki umtalsverða veg- styttingu frá því sem nú er. „Það er ljóst að eins og málin standa í dag er ákveðinn landshluti, suðurfirð- ir Vestfjarða eru útilokaðir frá árs- samgöngum og þannig má það ekki verða áfram. Þetta er sú leið sem fara verður svo raunhæft er að þetta landssvæði fái viðunandi samgöng- ur á næstu árum,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson. þá Einar Kristinn Guðfinnsson alþingis- maður og forseti Alþingis. Leita leiða til að vegur um Teigsskóg verði að veruleika Þegar ekið er suður Hjallaháls er farið um afar hættulegan vegarkafla. Þá blasir þetta skilti við og svo margumræddur Teigs- skógur á hægri hönd. Ljósm. gó. Húsbílafólk lauk sumrinu á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.