Skessuhorn - 23.10.2013, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Greinargerð
um myrkurgæði
LANDIÐ: Starfshópur um
myrkurgæði á Íslandi hef-
ur skilað umhverfis- og auð-
lindaráðherra greinargerð
sinni þar sem settar eru fram
þrettán tillögur um að varð-
veita myrkurgæði og sporna
við ljósmengun á Íslandi,
bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Hópurinn bendir á að myrk-
urgæðum hafi hrakað veru-
lega á Íslandi undanfarna
áratugi, sérstaklega á höf-
uðborgarsvæðinu, og telur
að ljósmengun sé meiri hér-
lendis en á sambærilegum
svæðum í grannlöndunum.
Í greinargerðinni segir að
myrkurgæði séu hluti af lífs-
gæðum almennings og einn-
ig er bent á gagn sem ferða-
þjónusta hefur af myrkur-
gæðum, svo sem í norður-
ljósaferðum og ýmissi ann-
arri vetrarferðamennsku.
Þá tengjast myrkurgæði og
orkusparnaður í bókhaldi
fjölskyldna, sveitarfélaga og
ríkis. Greinargerð starfs-
hópsins er gefin út rafrænt
og má skoða hana á slóð á
vef umhverfisráðuneytisins.
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
12. - 18. okt.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 5 bátar.
Heildarlöndun: 22.233 kg.
Mestur afli: Ebbi AK:
10.406 kg í þremur lönd-
unum.
Arnarstapi 7 bátar.
Heildarlöndun: 77.498 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eð-
varðs SH: 31.532 kg í sex
löndunum.
Grundarfjörður 9 bátar.
Heildarlöndun: 251.739 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.218 kg í einni löndun.
Ólafsvík 18 bátar.
Heildarlöndun: 136.625 kg.
Mestur afli: Kristinn SH:
28.908 kg í fimm löndunum.
Rif 10 bátar.
Heildarlöndun: 188.462 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
73.866 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 25 bátar.
Heildarlöndun: 127.214 kg.
Mestur afli: Ronja SH:
10.290 kg í fimm löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Saxhamar SH –RIF:
73.866 kg. 16. okt.
2. Hringur SH – GRU:
66.218 kg. 16. okt.
3. Grundfirðingur SH –
GRU: 49.331 kg. 13. okt.
4. Sóley SH – GRU:
41.788 kg. 13. okt.
5. Farsæll SH – GRU:
39.294 kg. 15. okt.
mþh
Séntilmenn vilja
gera leikvöll
BIFRÖST: Á fundi byggð-
arráðs Borgarbyggðar í lið-
inni viku var lagt fram bréf
Sjentilmannaklúbbsins á
Bifröst með beiðni um að-
stoð sveitarfélagsins við
kaup á leiktækjum á leik-
völl á Bifröst. Samkvæmt
áætlun er gert ráð fyrir að
leikvöllurinn muni kosta
um tvær milljónir króna.
Byggðarráð samþykkti að
fela sveitarstjóra að ræða
við fulltrúa klúbbsins áður
en ákvörðun um stuðning
verður tekin.
–mm
Vilja fækka
héraðsvegum
B O R G A R B Y G G Ð :
Byggðarráð Borgarbyggð-
ar fjallaði í síðustu viku um
bréf frá Vegagerðinni þar
sem kynnt var fyrirhuguð
niðurfelling héraðsvega af
vegaskrá þar sem ekki væri
lengur föst búseta við við-
komandi vegi. Byggðarráð
samþykkti að benda Vega-
gerðinni á að í einhverj-
um tilfellum er föst búseta
við vegina. Aðspurður um
hvaða vegi er um að ræða,
segir Páll S Brynjarsson
sveitarstjóri að fjórar heim-
reiðar hafi verið umræddar
í bréfi Vegagerðarinnar þar
sem föst búseta hefur fallið
niður. „Þetta er m.a. heim-
reiðin að Hesti í Andakíl,
en þar er komin föst búseta
á aftur og Hestur auk þess
nokkuð stór vinnustaður,“
segir Páll. Hinir bæirnir
eru Iðunnarstaðir í Lund-
arreykjadal, Klapparholt í
Borgarhreppi og Hítarnes-
kot á Mýrum.
-mm
Aukin umferð
um í septem-
ber
HVALFJ: Umferð í Hval-
fjarðargöngum í septem-
ber var 1,4% meiri en í
sama mánuði í fyrra. Vega-
gerðin mældi á sama tíma
verulega meiri aukningu
umferðar á hringveginum
eða um 4,6% að jafnaði. Á
fyrstu þremur fjórðungum
ársins 2013 hefur umferð
verið meiri undir Hval-
firði í sjö mánuði en minni
í tvo, apríl og ágúst, en á
sama tímabili í fyrra, segir
í tilkynningu á heimasíðu
Spalar. Í heildina tekið hef-
ur umferðin í göngunum
aukist um liðlega 2% það
sem af er árinu. Vegagerðin
mældi 4,6% aukningu um-
ferðar á landinu í septem-
ber á 16 talningarstöðum á
hringveginum. Umferðin
þar hefur aukist um 3,5%
fyrstu níu mánuði árs-
ins, sem er mesta aukning
á þjóðvegunum frá árinu
2007. Aukningin er mest
á Austurlandi frá áramót-
um eða um 12% en minnst
í grennd við höfuðborgar-
svæðið og á Norðurlandi,
um 3% á hvoru svæði.
–þá Stillholti 14
Akranesi
Sími: 431 2007
Opið á Tax Free dögum:
Fimmtudag: 10-18
Föstudag: 10-18
Laugardag: 10-16
Tax Free dagar
24.–26. október
15% afsláttur af öllum keyptum vörum líkt
og erlendir ferðamenn fá á Íslandi
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
Skipverjar á línubátnum Geysi SH
urðu fyrir því óhappi sl. sunnudags-
morgun þegar verið var að leggja
línu skammt frá Ólafsvík að stýr-
isslanga fór í sundur með þeim af-
leiðingum að leita varð aðstoð-
ar nærstadds báts til að taka bát-
inn í tog. Svo vel vildi til að Þórdís
SH var í grenndinni og kom Geysi
til hafnar í Ólafsvík. Nýrri stýriss-
löngu var snarlega reddað svo hægt
væri að ljúka róðurinn. Fór Geysir
því skömmu síðar til sjós á ný til að
vitja línunnar sem var úti. Á mynd-
inni sést Þórdís SH koma með
Geysi til hafnar í Ólafsvík.
af
Nýbyrjaðar eru framkvæmd-
ir við endurnýjun hitaveitulagnar
á rúmlega eins og hálf kílómeters
kafla í landi Innri- og Ytri Skelja-
brekku og Neðri-Hrepps í Borg-
arfirði. Áætlað er að þessum fram-
kvæmdum ljúki um mánaðamótin
nóvember og desember. Stutt er
síðan lagnir á nærliggjandi svæði
voru endurnýjaðar, svo sem í árs-
byrjun 2011 þegar endurnýjaðir
voru um 370 metrar í landi Efri-
Hrepps. Samkvæmt upplýsingum
frá Eiríki Hjálmarssyni upplýs-
ingafulltrúa Orkuveitu Reykjavík-
ur verður búið að skipta út göml-
um asbestslögnum í stál á 20,4 km
í lagnakerfinu í Borgarfirði, þegar
framkvæmdum við Skeljabrekku
og Neðri-Hrepp verður lokið í
haust.
Að sögn Eiríks hófst þetta stóra
endurnýjunarverkefni 2005. Af að-
veituæðinni er búið að endurnýja
alls 17,2 km. Auk þess hafa ver-
ið endurnýjaðar eftirtaldar lagn-
ir: Frá dælustöð í Brún að aðveit-
unni um 1,4 km, Hvanneyrarlögn
um 0,45 km og Borgarneslögn um
1,35 km. Eftir er að endurnýja
tæpa 2,5 km undir Hestfjalli til
þess að kominn sé samfelldur stál-
kafli frá Varmalæk að dælustöð-
inni við Grjóteyri. Eiríkur segir að
þetta séu þeir kaflar sem hafa verið
hvað erfiðastir í viðhaldi og mikil
bót verði fyrir afhendingaröryggi
á heita vatninu þegar þeir eru frá.
Enn standa þó eftir um 45 kíló-
metrar í lagnakerfinu, sem skiptast
í grófum dráttum þannig: Aðal-
aðveitan 40,5 km, bæjarlögn frá
borholum í Laugarholti og Bæ að
dælustöð við Brún um 1,5 km og
Hvanneyrarlögn milli Mið-Fossa
og Hvanneyrar um 3 km. Enn eru
því eftir miklar og kostnaðarsam-
ar framkvæmdir hjá OR við end-
urnýjun í hitaveitulögnum í Borg-
arfirði. þá
Það væsir ekki um hrossin sem
ganga úti á Brimilsvöllum í gamla
Fróðárhreppnum á Snæfellsnesi.
Þessi skemmtilegi bær hefur nú bæst í
bæjarmyndina. Þegar betur er að gáð
er um að ræða skjól fyrir útiganginn.
Ekki veitir af, enda mörg hross á
Brimilsvöllum og þar blæs oft hressi-
lega. Skemmtileg lausn sem fegrar
umhverfið og vekur eftirtekt.
þa
Stýrisslanga sprakk og leita varð aðstoðar
Snyrtilegt skjól
fyrir hrossin
Starfsmenn verktakafyrirtækisins
Þróttar á Akranesi vinna að endur-
nýjun hitaveitunnar.
Hitaveituframkvæmdir við Skeljabrekku
Haldið verður áfram við endurnýjun lagnarinnar í áföngum allt frá Deildartungu
og að Akranesi.