Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Þessa dagana er verið að ljúka
vinnu við að hreinsa upp leifarn-
ar af þjálfunaraðstöðu Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar á útiæf-
ingasvæði sem samtökin höfðu til
umráða í gömlu Lóranstöðinni á
Gufuskálum á Snæfellsnesi. Þar
með hafa ummerki eftir almanna-
varna- og björgunarskóla Lands-
bjargar á svæðinu verið fjarlægð og
skólinn þar heyrir sögunni til.
Mikið fé lagt fram
Slysavarnarfélag Íslands og Lands-
björg fengu Gufuskála til afnota
fyrir þjálfunarbúðir við leit og
björgun árið 1997. Tveimur árum
síðar hófst þar eiginleg starfsemi
félaganna. Um svipað leyti voru
þau sameinuð í ein samtök; Slysa-
varnafélagið Landsbjörg. Næstu
árin voru gerðar miklar breytingar
og lagfæringar á húsnæði og ann-
arri aðstöðu til að mæta kröfum um
alhliða þjálfunaraðstöðu. Fullbú-
in þótti hún mjög góð. Settar voru
upp tvær vel búnar kennslustof-
ur, setustofa og gengið frá útiæf-
ingasvæði fyrir alhliða þjálfun. Auk
þessa voru tvær samtals 30 manna
svefnpokaíbúðir, 70 manna mat-
salur með setustofu auk gistirýmis
í átta fullbúnum íbúðum fyrir sam-
tals 60 manns. „Það voru lagðar í
þetta eitthvað yfir 100 milljónir.
Þar af voru framlög frá ríkinu um
80 milljónir króna,“ segir Ingi Hans
Jónsson björgunarsveitarmaður til
margra ára og íbúi í Grundarfirði.
Hann var einn af þeim sem störf-
uðu mikið að því verkefni að koma
Gufuskálum á fót sem þjálfunar-
búðum fyrir fólk sem vinnur að ör-
yggis- og björgunarmálum.
Stutt saga
Þjálfunarbúðirnar voru um rétt
rúmlega tíu ára skeið notaðar af
björgunarsveitum Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar, kvenna- og ung-
lingadeildum, Björgunarskólanum,
auk lögreglu og slökkviliða hvað-
anæva af landinu. Félagsmönnum
gafst kostur á að leigja orlofsíbúð-
ir á svæðinu, ýmist eina helgi eða
viku í senn. Útivistarskóli samtak-
anna var staðsettur á Gufuskálum
yfir sumartímann. Hugmyndin að
baki honum var einkum að kenna
ungu fólki með áhuga á útivist og
fjallamennsku undirstöðuatriði í
slíkum íþróttum auk þess að þjálfa
það í björgunarstörfum til sjós og
lands. Fyrir réttu ári síðan var svo
tilkynnt að starfsmönnum Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar við al-
mannavarna- og björgunarskólann
að Gufuskálum yrði sagt upp.
„Okkur þótti og þykir enn mjög
sárt að hafa þurft að hætta starf-
seminni að Gufuskálum. Við fór-
um mjög vandlega yfir þetta á sín-
um tíma og þetta varð því miður
niðurstaðan. Það eru erfiðir tímar.
Við neyddumst til að forgangsraða
í okkar rekstri eins og svo marg-
ir aðrir. Það kom svo í ljós að aðil-
ar á borð við lögreglu og slökkvilið,
sem upphaflega voru inni í mynd-
inni sem notendur þjálfunarbúð-
anna, nýttu þær ekki jafn mikið og
lagt var upp með. Síðan komu aðr-
ir þættir inn, svo sem staðsetningin.
Það þótti langt að fara fyrir fólk til
að mynda austan af landi út á Snæ-
fellsnes,“ segir Hörður Már Harð-
arson stjórnarformaður Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar í samtali
við Skessuhorn.
-En var nauðsynlegt að rífa æf-
ingaaðstöðuna sem búið var að
leggja fjármuni í? Hefði ekki mátt
láta hana standa en halda frekar
öllum rekstri í lágmarki á meðan
þess væri beðið að aftur rofaði til í
efnahagsmálunum? „Það var aldrei
rætt. Krafan kom frá sveitafélaginu
að þetta yrði rifið og það var aldrei
gefið færi á umræðu um neitt ann-
að. Við höfum farið samkvæmt því
samkomulagi sem gert var við ríki
og sveitarfélag þegar lá fyrir að
Slysavarnarfélagið Landsbjörg ætl-
aði að hætta rekstrinum að Gufu-
skálum,“ segir Hörður Már.
Snæfellingar ósáttir
Margir heimamenn á Snæfells-
nesi eru ósáttir við þessi endalok
björgunarskólans á Gufuskálum.
„Vandamálið var að menn skildu
aldrei stóru hugsunina á bak við
þetta, hvorki forysta Landsbjarg-
ar né ýmsir aðrir viðbragðsaðil-
ar. Menn horfðu ekki til framtíðar.
Það vantar grunnmenntun í örygg-
ismálum hér á landi. Þá er ég ekki
bara að tala um björgunarsveitar-
menn heldur líka starfsgreinar á
borð við öryggisverði, lögreglu-
menn, fangaverði og tollverði.
Það var draumurinn að byggja upp
björgunarskóla fyrir þjóð sem býr í
hamfaralandi. Stjórnvöld tóku þess-
um hugmyndum fagnandi á þeim
tíma, annars hefðu þau ekki veitt
svo miklum fjármunum í verkefnið.
Mannaflaþörf á öryggis- og björg-
unarsviði er mikil og síst minni en
í ýmsum starfsgreinum. Það sem er
dapurlegast við þetta núna er að nú
er framhaldsskólakerfið tilbúið til
þátttöku og eru í raun ýmsir þeirra
að byggja upp braut í þessa veru.
Æfingasvæðið á Gufuskálum
bauð upp á tækifæri. Það var ekki
baggi. Þessa aðstöðu munu björg-
unarsveitirnar aldrei eignast aftur,“
segir Ingi Hans Jónsson. mþh
Íbúar Stykkishólms tóku eftir því
að stór floti af marglitum kajök-
um notaði hafnarsvæðið þar sem
bækistöð í síðustu viku. Fjöldi fólks
fór róandi í haustblíðunni á milli
skerja, hólma og eyja. Hér voru á
ferðinni námsmenn sem eiga í fyll-
ingu tímans að verða ný tegund
leiðsögumanna um íslenska nátt-
úru. Þetta fólk verður sérþjálfað í
að fylgja ferðamönnum í ævintýra-
ferðir um Ísland þar sem áhersla er
lögð á að komast í beina snertingu
við náttúruna.
„Við erum nýbúin að setja á stofn
nám í ævintýraferðamennsku hjá
Keili. Þetta er átta mánaða nám
og stiklar á helstu þáttum í afþrey-
ingaleiðsögn fyrir ferðamenn hér
á Íslandi. Þetta eru kajaksiglingar,
gönguferðir, fjallamennska, jökla-
ferðir og flúðasiglingar. Það er ein-
blínt á að mennta leiðsögumenn
fyrir ferðamenn sem koma hing-
að í svokallaðar afþreyingaferðir.
Með því er þá átt við fólk sem kem-
ur hingað til að upplifa Ísland og ís-
lenska náttúru með því að stunda
útivist af ýmsu tagi,“ segir Ragnar
Þór Þrastarson verkefnastjóri hjá
Íþróttaakademíu Keilis í Reykja-
nesbæ.
Hugurinn stefnir á meira
nám við Vesturland
Þegar blaðamaður Skessuhorns
hitti hópinn voru nemendurn-
ir nýkomnir að bryggju í Stykkis-
hólmshöfn. „Nú erum við hér að
kenna nemendunum að nota sjó-
kajaka svo þeir geti sinnt leiðsögn
í ferðum á þeim við landið. Stykk-
ishólmur og nágrenni er svæði á
heimsmælikvarða fyrir kajakfólk.
Við höfum dvalið hér í nokkra daga
við kennslu og æfingar, en förum
lengra út á Snæfellsnes í fyrramál-
ið. Þar ætlum við að reyna að finna
öldur sem brotna við ströndina og
láta kajakana sigla á þeim og lenda
í sandfjöru. Þannig æfum við lend-
ingar, hvernig koma á fólki gegnum
brim og upp í fjöru. Það er ákveð-
in tækni við það,“ útskýrði Ragnar.
„Okkur langar að gera miklu meira
hér á Vesturlandi og koma hér aft-
ur að ári.“
Samvinna vestur um haf
Námið í ævintýraferðamennsku
hér á landi er í samvinnu við há-
skóla í Kanada. „Það eru 16 nem-
endur og við erum þrír leiðbein-
endur með þann hóp. Við reyn-
um að halda fáum nemendum á
hvern kennara þannig að þeir fái
sem mest út úr náminu. Aðsóknin
hefur verið mjög góð. Við fylltum
námið þegar við fórum af stað með
fyrsta hópinn nú í haust. Þau verða
svo búin í vor að loknu átta mánaða
námi. Við erum í samstarfi við kan-
adískan háskóla sem heitir Thomp-
son Rivers University. Þeir eru með
tveggja ára nám þar í ævintýraferða-
mennsku. Við erum með fyrri part-
inn eða grunninn í þessu námi hér
á Íslandi, þannig að þeir sem vilja
mennta sig frekar geta þá farið til
Kanada og tekið seinna árið þar,“
sagði Ragnar Þór Þrastarson.
Vöntun á ævintýraleið-
sögumönnum
Námið er vissulega fjölbreytt og
hefur á sér ævintýralegan blæ. Í
haust var farið í fimm daga göngu-
ferð þar sem fólk var með allt sitt á
bakinu. Svo var skriðjöklanámskeið
og ísklifur í sex daga, eftir það var
námskeið á straumkajökum á Hvítá
í Árnessýslu og þar á eftir sjókajak-
námskeiðið við Snæfellsnes. „Eft-
ir þetta verður níu daga skyndi-
hjálparnámskeið. Síðan verður far-
ið á námskeið í flúðasiglingum eftir
jól auk þess sem bóklegi hlutinn er
tekinn þá og inn á milli allra nám-
skeiðanna sem verða utandyra.“
Ragnar segir að það vanti sárlega
fleiri leiðsögumenn sem geti tekið
að sér ferðamenn í leit að náttúru-
ævintýrum. „Það er gríðarlega vax-
andi og góður markaður. Vöntun-
in á menntuðum leiðsögumönnum
er mikil sem og öðru starfsfólki sem
getur sinnt þessum ferðamönnum.
Þetta er jú öðruvísi ferðamennska
en þessi hefðbundna. Við Íslend-
ingar búum á litlu landi þar sem
möguleikarnir til að þróa þessa
ferðamennsku eru geysimiklir. Hér
eru vegalengdir tiltölulega stuttar.
Það er auðvelt að ferðast milli ótrú-
lega fjölbreyttra staðhátta á stuttum
tíma og leyfa fólki að upplifa ótal
valkosti við útivistarsport í þessari
fallegu og einstæðu náttúru.“
mþh
Ævintýraleiðsögumenn mennta sig í Stykkishólmi
Ragnar Þór Þrastarson verkefnastjóri
hjá Íþróttaakademíu Keilis í
Reykjanesbæ nýkominn að landi í
Stykkishólmi.
Verðandi ævintýramenn æfa sig í kajakróðri í grennd við Stykkishólm í síðustu
viku. Finna má frekari upplýsingar um þetta nám á heimasíðu Keilis (www.keilir.
net). Ljósm. Keilir-TRU Adventure Studies.
Ungt fólk víða af landinu sótti dýrmæta þekkingu í björgunar- og öryggismálum í
æfinga- og kennslubúðunum á Gufuskálum. Þessi mynd var tekin á meðan allt lék
í lyndi.
Landsbjörg kveður björgunarsvæðið á Gufuskálum
Þessi mynd var tekin á Gufuskálum þar sem Svanur Tómasson hjá TS-Vélaleigu í Ólafsvík vann að því að rífa niður æfingaað-
stöðu Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu.