Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 23.10.2013, Blaðsíða 17
17MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 Íslenskir hnefaleikakappar tóku á móti dönskum félögum sínum í skemmtilegri hnefaleikakeppni sem Hnefaleikafélag Akraness stóð fyrir ásamt Æsi í Reykja- vík um sl. helgi. Keppt var í níu leikjum. Íslensku þátttakend- urnir voru frá Hnefaleikafélagi Akraness, Æsi og Hnefaleika- félagi Reykjavíkur. Hnefaleika- maður kvöldsins var Guðmund- ur Bjarni Björnsson frá Hnefa- leikafélagi Akraness. Hann sigr- aði Magnús Bjarka Snæbjörns- son frá Æsi, 3-0 örugglega í skemmtilegu einvígi. Guð- mundur Bjarni stjórnaði leikn- um frá fyrstu mínútu með öfl- ugum beinum höggum og þéttri vörn. Hann var ekki nema hárs- breidd frá því að ljúka leiknum með rothöggi. Margrét Ásgerð- ur Þorsteinsdóttir frá Hnefa- leikafélagi Akraness sigraði Isa- bella Corzzen frá Nyköbing FBK einnig 3-0. „Margrét sótti fast strax frá fyrstu lotu og var sigurinn aldrei í hættu. Þung- ur vinstri krókur og falleg bein högg, ásamt þéttri vörn, voru lykillinn að sanngjörnum sigri Margrétar,“ segir í tilkynn- ingu frá Hnefaleikafélagi Akra- ness. Marinó Elí Gíslason mætti ofjarli sínum í Jakob Sandford frá Rudersdal BK en þeir hafa att kappi áður þar sem Jakob hafði einnig sigur. Gísli Kvar- an mætti Bjarka Ómarsyni frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur og beið lægri hlut 3-0. mþh Guðmundur Bjarni hnefaleikamaður kvöldsins Guðmundur Bjarni Björnsson í hringnum. Gamlar og áður óbirtar myndir frá Akranesi teknar árið 1937, þegar Síldarverksmiðjan var reist Í framhaldi af grein Ásmundar Ólafssonar um Sig- urð Jónsson frá Hliðsnesi og vélsmiðjuna Héðinn (Skessuhorn 31/7 2013) þá sendi Sverrir Sveinsson, fyrrverandi forstjóri Héðins, Ásmundi nokkrar ljós- myndir sem faðir hans, Sveinn í Héðni, hafði tekið á Akranesi árið þegar Síldarverksmiðjan var reist. Héð- inn sá um þær framkvæmdir árið 1937, en bygginga- meistari var Ingimar Magnússon. Myndirnar voru skannaðar og hreinsaðar af Þórði Ólafssyni og verða þær afhentar Ljósmyndasafni Akraness til varðveislu. Hér verða sýndar nokkrar af myndunum, ásamt skýr- ingum. Bátur sem minnir á gamla tímann. Hér í Heimaskagasandinum var líklega fyrsta vörin á Skaganum, Heimaskagavör. Handan hennar var Miðteigsvör og Háteigsvör eða Réttarhúsavör. Bátabryggjan var járnbryggja á steyptum stein- stöplum og var hún byggð 1905-1908, kölluð bryggjan í Steinsvör. Steinsvör var áður álitin þrautalending Skagabátanna. Sunnan bryggjunnar eru Gelluklettar og Lausuklettar en milli þeirra er skarð, Þórðarskarð. Inn í Gellukletta gengur stór gjá „Gellan“, svo kölluð vegna mikils hávaða eða brests sem heyrðist þegar brimið og sjávaraldan sogaðist inn og skall niður í gjána. Fiskverkunarhús HB Granda eru steypt yfir hluta af Gellunni. Auk þeirra húsa sjást á myndinni m.a. Ármannshús, fiskverkunarhús Þórðar Ásmundssonar og beituskúrar. Milli þeirra og bryggjunnar var Hegraplanið, þar sem tekið var á móti fiskinum. Gatan sem lögð var fyrir aldamótin 1900 og er í framhaldi við bryggjuna er Bárugata, sem áður gekk undir nöfnunum Hvalvegur og Nýistígur. Lengst t.v. á myndinni sést í Bræðrapart við Breiðargötu 18. Það hús var flutt árið 2007 og stendur nú neðst við Suðurgötu og er nr. 20 við götuna. Kol og fiskur. Fremst á mynd eru menn að störfum í kolaporti Þórðar Ásmunds- sonar útgerðarmanns, en mótekja hafði um þetta leyti látið undan síga fyrir inn- flutningi á kolum. Fyrir ofan portið er fiskur í stæðum - þurrkaður og saltur - og breitt yfir. Grindur eru á fiskreitunum fyrir ofan, en Ólafur Ásmundsson verkstjóri lét þarna breiða á grindur, þó svo oftast væri breitt beint á klappirnar. Svæði þetta er u.þ.b. þar sem OLÍS (Suðurgata 10) er í dag. Aftast til hægri sést í Haraldarhús og Georgshús, sem síðar var flutt. Þá eru geymslur og útihús, þar sem nú er húsið Suðurgata 16. Handan götunnar við Háteig (sem áður gekk undir nöfnunum Auðarstígur og Laufásvegur) er hús Ólafs B. Björnssonar, þá Háteigshúsin, bæði gamla og nýja húsið, hlaða og fjós. Önnur hús við Háteig voru Sóleyjartunga, Þinghóll, Borg, Litliteigur, Viktorshús, Laufás, Minni-Borg og Ráðagerði, sem stóð við gatnamót Vesturgötu. Hlöðunni á Háteig var breytt í Stúkuhús, sem nú hefur verið flutt að Byggðasafninu á Görðum. Þinghóllinn er horfinn, en þangað var flutt húsið Neðri-Teigur (Suðurgata 18). Það er nú nr. 8 við Háteig. Litliteigur er einnig horfinn en húsið Laufás var flutt, og er nú sumarhús í landi Stóra-Fjalls í Borgarhreppi. Lengst til vinstri sést í nokkur hús við Bárugötu, m.a. Bárugötu 17 (Draugahöllina) sem Einar Sveinsson, arkitekt og síðar húsameistari Reykjavíkurborgar teiknaði í fúnkisstíl fyrir Ólaf Jónsson á Bræðraparti árið 1933 (húsinu hefur verið breytt). Einar teiknaði einnig Akraness Apótek fyrir Fríðu Proppé, lyfsala. Þá sést í þak stórhýsis bræðranna frá Hofi, Skafta og Einars Jóns- sonar, sem þeir létu byggja við Vesturgötu 19 skömmu áður en þeir drukknuðu með Kveldúlfi árið 1933. Fánaborg við Akraneshöfn 1937. Síldar-og fiskimjölsverksmiðja Akraness risin árið 1937. Prúðbúið fólk við Fagranesið, sem þá var í föstum ferðum milli Akraness og Reykjavíkur með fólk og póst. Skipið flutti jafnframt mjólk fyrir bændur sunnan Skarðsheiðar. Á myndinni má m.a. sjá nokkur hús í nágrenni við hafnarsvæðið, Sóleyjartungu, Þinghól, Háteigshúsin, hús Ólafs B. Björns- sonar, síðan Akur og þakið á Ásahúsi (Suðurgata 25); þá má greina Teigakot - síðasta torfbæinn á Skaga, Aðalból og Akraness Apótek, lengst til hægri. Um Fagranesið má segja að það var smíðað í Noregi 1934 úr eik og furu; 60 brl. og 150 ha Skandia vél. Eigendur voru Ármann Halldórsson á Hofteigi, sem var skipstjóri á skipinu og Leifur Böðvarsson. Skipið var lengt 1939 og mældist þá 70 brl. Það var selt 1942 hlutafélaginu Djúpbátnum á Ísafirði, og hélt nafni sínu Fagranes. Skipið var talið ónýtt og tekið af skrá 1963. Umbreyting í fiskvinnslu. Eitt fyrsta almenningshlutafélag landsins, Síldar-og fiskimjölsverksmiðja Akraness h.f. var stofnað 1937. Hluthafar voru um 180, allir sem vettlingi gátu valdið á Akranesi á þeim tíma. Fyrsti formaður var Ólafur B. Björnsson en framkvæmdastjórar þeir Haraldur Böðvarsson, Stur- laugur sonur hans og síðar Valdimar Indriðason. Verksmiðjan var umsvifamikil um árabil, rak útgerð vertíðarbáta; einnig togarann Víking, sem enn er í notkun og hefur lengi verið flaggskip flotans. Þá rak verksmiðjan Vélsmiðjuna h.f., en S.F.A. gekk síðar til samstarfs við Heimaskaga h.f. Síðan gengu þau fyrirtæki til sameiningar við flest önnur sjávarútvegsfyrirtæki á Akranesi, áður en öll þau fyrirtæki –HB h.f.- gengu til sameiningar við mörg önnur fyrirtæki hér sunnanlands, sem í dag eru rekin undir nafninu HB Grandi. Fremst á myndinni má sjá klettana frægu í Teigavör (út í stórstraumsfjöru), sem Oddur kaupmaður og fréttaritari í Brú fékk greitt fyrir 30 árum síðar, þegar aukið var við þróar- plássið, en Verksmiðjan var reist í landi Akurs, sem voru foreldrahús Odds Sveinssonar. Sindraportið - Teigavör og Hjallhúsið. Neðst á mynd og lengst til vinstri er port sem síðar var kallað Sindraportið, en það stóð á svæði u.þ.b. þar sem Hafnarvogin er nú, en þannig var að Víðir h.f. sem var umsvifamikið almenningshlutafélag hér, stofnað 1937, keypti togarann Sindra. Upphaflega hét skipið Víðir GK 450 og var smíðaður í Englandi 1915 úr stáli. Hann var 241 brl. með 450 ha 3 þjöppu gufuvél. Skipið rak á land í Hvalfirði 1949 og ónýttist. Þá lét Víðisfélagið árið 1943 smíða stærsta skip sem þá hafði verið smíðað á Akranesi. Dráttarbrautin tók að sér smíðina, en yfirsmiður var hinn góðkunni skipasmiður Eyjólfur Gíslason úr Reykjavík. Skipið, Víðir AK 35, var smíðaður úr eik, 104 brl., 320 ha Lister díesel vél. Víðir var seldur árið 1949; síðar eða 1952 var skipið selt Arnarey h.f., Djúpavogi. 1957 var nafninu breytt; hét þá Mánatindur SU 95. Skipið var talið ónýtt og tekið af skrá 1965. Á myndinni sést í Teigavörina, en rétt fyrir ofan hana, á sjávarbakkanum er Hjallhúsið; það var rétt fyrir ofan húsið Akur, sem ekki sést á myndinni. Hjallhúsið var líklega að stofni til fiskhjallur, byggður af Jóni halta Sigurðssyni í Melshúsum, sennilega rétt eftir 1870. Það var gert íbúðarhæft 10 árum síðar af Jóni Helgasyni frá Neðranesi. Margir bjuggu í Hjallhúsinu, m.a. Jón Kristjánsson frá Súgandafirði. Hann flutti hingað 1942 og bjó hann í Hjallhúsinu til 1949, síðar á Vesturgötu 121 (Götuhúsum). Jón var bæklaður af slysi, en hann starfaði hér við netagerð, og ferðaðist um Skagann á þríhjóla vélhjóli sínu. Gatan sem byggingar Síldarverksmiðjunnar standa nú við, var lögð síðar og nefnd Akursbraut eftir býlinu Akri, sem stóð nálægt þar sem nú er rannsóknarstofa SFA (og áður var Sjómannastofan, sem tók til starfa 1949). Húsið Akur var rifið, sem og Hjallhúsið. Á þessu svæði var áður sá frægi Oddsbær, en hann var byggður úr Teigakotslandi, nákvæmlega þar sem Sólbakki stendur nú (Akursbraut 17). Odds- bær fór í eyði um eða upp úr 1900. Sælustaðir stóðu u.þ.b. bak við Geirmundabæ, við Sólbakkann. Bærinn Halakot stóð fyrir ofan Halakotssandinn, á nokkurn vegin sama stað og Sælustaðirnir síðar, og síðan kom Sandgerði nr. 24 við Akurs- braut. Húsin aftast á myndinni eru mörg og tilheyra þau flest Suðurgötunni og Kirkjubrautinni, sem áður hét Óðinsgata. Ásmundur Ólafsson tók saman

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.