Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Qupperneq 18

Skessuhorn - 23.10.2013, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 Alvarlegt umferðarslys þar sem 30 manns og þrjú ökutæki komu við sögu, þar á meðal hópferðabíll, var sviðsett í Borgarfirði síðast- liðinn laugardag þegar viðamikil hópslysaæfing fór þar fram. Búið var að koma fyrir bílhræjum við Hátún skammt ofan við Klepp- járnsreyki í Reykholtsdal. Rúta og tveir fólksbílar áttu að hafa lent í árekstri, rútan oltið, annar smábíllinn hafnað á hvolfi ofan í skurði en sá þriðji brann. Fólk var ýmist látið eða misjafnlega mikið slasað. Þegar æfing sem þessi er sett á svið eru virkjaðir allir þeir viðbragðsaðilar sem leitað yrði til kæmi til slyss af þessu umfangi. Reynt er að líkja sem best eftir raunverulegum aðstæðum á slysa- vettvangi og þeir sem léku sjúk- linga og slasaða voru farðaðir til að gera aðstæður eins raunveru- legar og unnt var. Veður var með besta móti fyrir æfinguna; bjart og stillt, en um fjögurra gráðu frost. Um eitt hundrað manns tók þátt í æfingunni; leikarar og viðbrags- aðilar. Það var Borgarfjarðardeild Rauða kross Íslands sem stýrði skipulagi æfingarinnar en í aðdrag- anda hennar fyrir ári var skipað- ur undirbúningshópur sem í voru Magrét Vagnsdóttir, Brynjólf- ur Guðmundsson, Haukur Vals- son, Linda Kristjánsdóttir, Theó- dór Þórðarson, Guðni Eðvarðs- son og Jökull Helgason. Með- al þeirra viðbragðsaðila sem tóku þátt í hópslysaæfingunni má nefna lögregluna í Borgarfirði og Döl- um auk fulltrúa frá Ríkislögreglu- stjóra, Slökkviliði Borgarbyggð- ar, fjórar björgunarsveitir, sjúkra- flutningafólk, læknar og hjúkr- unarfræðingar frá Heilbrigðis- stofnun Vesturlands auk félaga í RKÍ. Fjöldahjálparstöð var opnuð í grunnskólanum á Kleppjárns- reykjum. Æfingin hófst um klukk- an 11 á laugardagsmorgun og var lokið um tveimur tímum síðar. Þá var öllum þátttakendum boð- ið í miðdegismat á Bifröst í boði Rauða krossins í Borgarfirði. Þar hitti svo skemmtilega á að karla- kórinn Söngbræður, sem var á æf- ingu vegna væntanlegs söngferða- lags, tók tvö lög fyrir hópinn. Allir læri af reynslunni Margrét Vagnsdóttir er formað- ur Rauða krossins í Borgarfirði og var ásamt fleirum í undirbúnings- hópi fyrir æfinguna ásamt fulltrú- um annarra viðbragðsaðila. Mar- grét segir að undirbúningur fyrir æfinguna hafi staðið yfir í eitt ár. Í samtali við blaðamann segir hún að æfingin hafi gengið mjög vel en af henni megi margt læra. „Fulltrúar allra viðbragðsaðila munu hittast í þessari viku og fara yfir æfinguna í heild sinni. Hver viðbragðsaðili skoðar sinn þátt og í framhaldi þess gerum við skýrslu um æfinguna. Þá verður ákveðið hvert verður fram- hald verkefnisins. Loks er stefnt að gerð hópslysaáætlunar,“ segir Mar- grét. Hún vildi að endingu koma á framfæri þakklæti til allra sem þátt tóku í æfingunni og ekki síst hjónunum í Hátúni, þeim Sigrúnu Hjartardóttur og Einari Steinþór Traustasyni, sem lögðu mikið á sig við undirbúning og gerð vettvangs hópslyssins. mm Um hundrað manns tóku þátt í hópslysaæfingu í Borgarfirði Margrét Vagnsdóttir formaður RKÍ í Borgarfirði. Hér er búið að breiða plast yfir rútuna og koma hita inn í hana með hitablásara frá slökkviliðsbíl og verið að undirbúa flutning slasaðra af vettvangi. Ástand slasaðra skráð í fjöldahjálparstöðinni. Hjúkrunarfræðingar og læknar unnu það verk. Töluvert mæddi á sjúkraflutningafólki og öðrum viðbragðsaðilum að flytja slasaða í fjöldahjálparstöðina. Mikið slasaður einstaklingur á leið í sjúkraflutning. Búið um sjúkling til flutnings. Á þriðja tug bíla og björgunartækja var á svæðinu. Læknir metur ástand slasaðs á vettvangi. Fulltrúi ríkislögreglustjóra á vettvangi um svipað leyti og fyrsta útkall var að berast til viðbragðsaðila. Þá þegar stóð bíll í ljósum logum. Haukur Valsson, Ásgeir Sæmundsson og Einar Steinþór Traustason við lok æfingarinnar. Laganna verðir ásamt Hauki Valssyni meta hér stöðuna þegar æfingin var vel á veg komin. Björgunarsveitarfólki úthlutað verkefnum á slysstað.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.