Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Page 20

Skessuhorn - 23.10.2013, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 Þrátt fyrir ýmsar sviptingar í byggðaþróun og búskaparháttum á Íslandi um aldir, einkum síð- ustu áratugina, eru enn í landinu nokkrar jarðir sem haldist hafa í ábúð sömu ættarinnar um aldir. Ein þeirra er Grund í Skorradal. Allt frá árinu 1671 hefur búið þar sama ættin. Þar býr í dag ásamt fjölskyldu sinni Davíð Péturs- son oddviti Skorradalshrepps, sem trúlega er sá sveitahöfðingi í landinu í dag sem hvað lengst- an starfsaldur á að baki í sveit- arstjórn. Næsta vor þegar gengið verður til kosninga verður Dav- íð búinn að sitja 48 ár í hrepps- nefnd. Þá ætlar hann reyndar að biðjast undan kosningu. Lög um kjör til sveitastjórna gera ráð fyr- ir að þeir sem gegnt hafi störf- um þurfi ekki að taka kjöri í jafn- langan tíma. „Þannig að ég verð þá stikkfrí næstu 48 árin,“ seg- ir Davíð og hlær, en blaðamað- ur Skessuhorns heimsótti hann og Jóhönnu konu hans á Grund einn góðviðrisdaginn í haust. Missti föður sinn fimm ára Davíð er þriðji í röð fjögurra barna þeirra Péturs Bjarnasonar á Grund og Guðrúnar Davíðsdóttur frá Arnabjarnarlæk. Elstur er Bjarni sem lengi starfaði hjá Samvinnu- tryggingum og síðan Sjóvá. Næst- elst er Guðrún og yngstur Jón, en bæði störfuðu lengi hjá Flugfélagi Íslands og síðan Flugleiðum. Dav- íð var aðeins fimm ára þegar Pét- ur faðir hans varð bráðkvaddur í svefni, aðeins 41 árs að aldri og þá var Guðrún kona hans þrítug. Þau systkini frá Grund Pétursbörn eiga síðan eina hálfsystur, Áslaugu Þor- geirsdóttur. Sjö árum eftir að Pétur dó tók Guðrún saman við frænda hans Þorgeir Þorsteinsson frá Mið- Fossum, sem reyndist þeim Grund- arbörnum hinn besti faðir. Davíð segir að vitaskuld hafi föðurmissir- inn verði mikið áfall fyrir alla. Þeg- ar Davíð fæddist árið 1939 var gamli tíminn ennþá ráðandi í Skorradaln- um eins og í öðrum sveitum lands- ins. Rafmagnið kom ekki í dalinn fyrr en 1957 og hús voru kynt með mó, taði og hrísi sem nóg var af í Skorradal. Hestar voru brúkaðir til heyskapar og aðdrátta. Fyrsta drátt- arvélin kom á Grund 1947, Farmall A, 17 hestafla vél. „Á þessum tíma var það þannig að börn til sveita fóru að vinna strax og þau gátu tek- ið til hendinni. Á vorin fór mikill tími í að koma taðinu úr fjárhús- inu í þurrk og í mótökuna. Það var stutt í mógrafirnar hérna hjá okkur á Grund,“ segir Davíð. Bylting við tilkomu Farmalsins Á Grund var ágætt bú á þess tíma mælikvarða. Davíð segir að á heima hjá sér hafi dráttarhestarnir verið mikið brúkaðir í heyskapnum fram að þeim tíma sem dráttarvélin kom. „Það þurfti tvo dráttarhesta fyr- ir sláttuvélina og þeir nýttust síðan við rakstrarvélina og að ýta heyinu saman í galta og sátur. Véltæk tún voru slegin fyrst með hestasláttu- vélinni og síðan traktornum. Túnin voru ekki stór og við heyjuðum tals- vert á engjum. Það land þurfti mik- ið til að slá með orfi og ljá, þannig að mikinn mannskap þurfti því oft til að raka heyinu saman. Yfirleitt voru í sveit hjá okkur fjórir til fimm krakkar yfir sumarið, sem unnu að heyskapnum ásamt öðru heimil- isfólki. Heyið var bundið í sátur á enginu og síðan flutt heim í reið- ingi á klyfjahestum. Líka var notuð heygrind til að flytja heyið heim. Undir henni voru kerru- eða vagn- hjól og á grindina komust um það bil fjórir baggar í einu,“ segir Davíð þegar hann lýsir heyskaparháttum þess tíma. Hann segir heyskapinn og ýmsa aðdrætti hafa orðið mikið léttari með tilkomu dráttarvélanna. Þá var til dæmist minni vinna við að koma heyi í hlöðu. Talíu var komið fyrir í stafni hlöðunnar og galtarnir eða bólstrarnir dregnir inn í hana. Í vegavinnu níu ára Farskóli var í Skorradal á þeim tíma sem Davíð var að alast upp. „Það var skóli hérna á bænum í hálfan mán- uð og síðan á bæjum fram í dalnum í jafnlangan tíma. Þannig að þetta voru alls þrír mánuðir sem ég var í skóla á vetri, frá 10-14 ára. Þá var tekið svokallað fullnaðarpróf ferm- ingarvorið. Kennari okkar öll árin var Sigurður Jónsson frá Brún, hestamaður, hagyrðingur og lista- skrifari, mjög góður kennari,“ seg- ir Davíð. Hann fór reyndar að vinna utan heimilis sumarið áður en hann byrjaði sitt barnaskólanám. „Sumar- ið sem ég var níu ára var ég í vega- vinnu. Þessi ár var unnið að vegar- lögn hérna fram dalinn. Allt efni á staðnum var nýtt í veginn. Þar sem hann fór í gegnum tún eða engi voru kantarnir snidduhlaðnir, en jarðýta ýtti upp í vegstæði á melum. Vagn- hestar voru síðan leigðir á bæjunum og ég fylgdi hesti hérna að heima í vegagerðina, var svokallaður kúskur eins og það var kallað,“ segir Davíð. Aðspurður um íþróttir og leiki seg- ir hann að krakkarnir á Grund hafi fengið tíma til leikja, en ekki hafi þeir farið á milli bæja til að leika sér. Tíminn þótti nýtast betur í annað. Þrír vetur í Reykholti Börnin á Grund fengu að njóta framhaldsmenntunar eftir ferm- ingaraldur, en skólaskylda náði að- eins þangað á þessum tíma. „Það var venjulegast þannig að tvö okkar systkina voru í Héraðsskólanum í Reykholti á sama tíma. Efnin þóttu ekki meira en hæfileg til þess og það var af þeirri ástæðu sem ég beið í tvo vetur eftir fermingu að fara í skóla. Það má segja að það hafi ver- ið í fyrsta skipti sem ég fór að heim- an. Ég var þrjá vetur í Reykholti. Lauk þaðan námi eftir landspróf. Til gamans má geta þess að haustið sem ég fór í þriðja bekk byrjaði ég ekki fyrr en liðið var á haustið, eða 15. október. Þórir skólastjóri, odd- viti Reykholtsdalshrepps, réði mig til að keyra ofan í nokkrar heim- reiðar í Reykholtsdal og gaf mér frí frá námi tvær fyrstu vikur haustsins. Hér á Grund var þá til vörubíll og ég náði á þessum tíma að vinna fyr- ir skólagjöldum vetrarins.“ Davíð segir að þetta hafi verið mjög góðir vetur í Reykholti. „Ég er ekki í vafa um að héraðsskólarnir voru mjög mikilvægar og merkar skólastofn- ir. Það hafði mjög góð uppeldisleg áhrif að vera á heimavist. Fólk lærði með því að taka tillit hvert til ann- ars. Félagslíf var líka gott og fjörugt í Reykholti. Landsprófið gaf tæki- færi á inngöngu í menntaskóla. Ég hefði gjarnan viljað fylgja mínum bekkjarfélögum í Menntaskólann á Akureyri, þeim sem fóru þangað. Það voru samt tæplega aðstæður til þess, þá voru engin námslánin. Ég var hikandi en sótti samt um. Fékk síðan svar seint í ágústmánið að ég kæmist að í skólanum en þá var það eiginlega orðið of seint.“ Unnið með búinu Eins og áður segir var á árum áður meðalstórt bú á Grund, en þar er í dag fremur lítið bú, enda hefur búum verið að fækka og þau stækk- að á seinni árum. Þegar mest var voru á Grund 17-20 mjólkandi kýr, en mjólkurframleiðslu var þar hætt árið 2010. Kindurnar voru venju- lega 170-180, en í dag eru þar tæp- lega 300, bústofn Péturs sonar þeirra Davíðs og Jóhönnu sem tek- inn er við búskap á jörðinni. Davíð segir að ætíð hafi verið nóg að gera heima við á Grund, meðal annars við húsbyggingar á jörðinni. Dav- íð var einnig að vinna utan heim- ilis þegar færi gafst. Vann t.d. einn vetur í frystihúsi Fiskivers á Akra- nesi í fiskmóttöku og saltfiski. Hann vann í skógræktinni í Skorra- Hitaveitan stærsta málið á löngum ferli í sveitarstjórn Spjallað við Davíð Pétursson á Grund í Skorradal Davíð og Jóhanna með fyrstu níu af ellefu barnabörnum sínum. Tvö hafa bæst í hópinn síðan þessi mynd var tekin. Heita vatnið byrjað að streyma hjá bormönnunum vorið 1994. Auk þeirra eru á myndinni f.v. Grímur Björnsson jarðvísindamaður og Ágúst Árnason í Hvammi. Davíð á skrifstofunni heima á Grund. Ljósm. þá. Grundarhjón ásamt börnunum. Frá vinstri talið: Jens Davíðsson, Guðrún Davíðs- dóttir, Davíð Pétursson, Jóhanna Guðjónsdóttir, Guðjón Elías Davíðsson og Pétur Davíðsson

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.