Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 21

Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 21
21MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 dal nokkur vor og í sláturhúsunum á haustin. Fyrst tvö haust í afurða- sölunni á Kirkjusandi í Reykjavík og síðan vann hann nokkur haust í fláningu í sláturhúsi á Hurðarbaki í Reykholtsdal. En svo var það líka önnur aukavinna sem Davíð stund- aði um tíma og það var leigubíla- akstur, en Davíð hefur alltaf verið mikill áhugamaður um bíla. Fyrst átti hann tvo Chevrolet bíla. Þá Volkswagen bjöllu, en árið 1964 keypti hann Volvo Amason og frá þeim tíma segist hann eingöngu hafa átt þessa sænsku gæðabíla. Með tvö varadekk í leigubílnum Davíð keypti ásamt Bjarna bróður sínum 1959 Chevrolet Belair, sem Davíð segir hafa verið mjög góðan bíl. „Þennan bíl gerði ég út til leigu- bílaaksturs í nokkur ár. Mín aðalvið- skipti voru við skólasveina á Hvann- eyri þegar þeir voru að stelast á böll. Það tíðkaðist að nýta dekkin vel sem slitnuðu mikið á malarvegunum. Ég nýtti dekkin alveg inn í striga og var yfirleitt með tvö varadekk í bílnum og dugði stundum ekki til. Ég var líka með felgulykil, bætur og lím ef á þurfti að halda. Mín lengsta ferð með Hvanneyringa var á ball norð- ur í Húnaver. Það tók tíma sinn að fara þennan túr og ég var mættur alveg mátulega til mjalta milli átta og níu um morguninn. Annan túr sögulegan fór ég með Hvanneyr- inga á ball í Helgafellssveitina. Enn einn strákanna var einmitt úr þeirri sveit og við komum við í kaffi á bænum. Ferðin byrjaði nú ekki vel, því það punkteraði á síkjabrúnni við Ferjukot og þar með þurfti að setja annað varadekkið undir bílinn. Ég fór aldrei inn á böllin með strákun- um, beið bara í bílnum fyrir utan. Þar sem ég sit í bílnum fyrir utan og bíð eftir að ballið sé búið, heyri ég allt í einu suð sem ég kannað- ist við. Það var þá að renna loft úr einu dekki. Þar með var ég orðinn varadekkslaus og svolítið stressað- ur á heimleiðinni, en ég komst þó heim í þetta skiptið án þess að þurfa að affelga og bæta,“ segir Davíð og hlær. Della fyrir bílnúmerum Davíð er auk bílaáhugans þekktur fyrir að hafa dellu fyrir bílnúmer- um, en frægt er að bílar frá Grund eru með númer með röð sömu talna. Hann segir að þessi áhugi fyrir númerunum hafi byrjað þegar sýslumaður fór að útdeila númerum á dráttarvélarnar eftir bæjaröðinni. Þannig fékkst úthlutað á Grund Md-111. „Þar með kom áhuginn að fá góð númer. Árið 1954 var keypt- ur vörubíll á Grund og fékk hann númerið M-371, sem var náttúrlega alveg fráleitt. Eftir nokkra mánuði var komið að M-444 sem við feng- um á hann um haustið. Bjarni bróðir minn fékk síðan M-666, Jón bróðir M-999. Land-Rover sem við keypt- um 1966 fékk svo M-1010. Guð- rún systir fékk síðan M-1111 þegar hún eignaðist bíl. M-333 fór síðan á SAAB og eftir það á Range-Rover sem við Jóhanna keyptum saman. Dráttarvél númer tvö á Grund fékk númerið Md-666. Þriðja vélin fékk Md-444. Það númer var á Fiskilæk en ég útvegaði Jóni bóndi þar ágætt númer sem hann setti á sína vél, enda var honum alveg saman hvaða númer vélin bar. Fjórða vélin fékk síðan Md-333 eftir númeraskipti við Guðmund á Fitjum, en hann átti Zetor sem fékk í staðinn Md- 1300. Þegar ég fékk Volvo XC90 jeppa árgerð 2003, gáfu börnin mér einkanúmerið M-111. Jón Ólafsson í Borgarnesi hafði átt það númer,“ segir Davíð m.a. þegar hann rifj- ar upp ýmislegt í sambandi við bíl- númeraáhugann. Ungur hreppsstjóri Davíð segist alltaf hafa verið heima- kær og nóg hafi verið að starfa heima. Móðir hans hafi byggt fjós og hlöðu 1947, íbúðarhús 1954 og fjárhús og hlöðu 1967. Spurður hvenær hann hafi tekið formlega við búforræðum á Grund segir hann að það hafi gerst strax upp úr 1960, en Guðrún móð- ir hans stóð lengi fyrir búskapnum á Grund. Davíð var árið 1961, aðeins 22ja ára gömlum, sýnt það traust að taka við embætti hreppsstjóra í sveit- inni. Hann segir að því embætti hafi þó ekki fylgt mikil eða erilssöm verk eða skyldur. Aðallega í kringum rétt- ir á haustin um meðferð óskilafjár. Davíð segist alla tíð hafa verið ef- ins um að sú gríðarlega uppbygg- ing í sumarhúsahverfum í Skorra- dal ætti samleið með búskap í sveit- inni. Það má þó segja að tengslin við sumarbústaðaeigendur hafi orðið til þess að leiðir Davíðs og konu hans Jóhönnu Guðjónsdóttur lágu saman. Jóhanna var boðin af kunningjafólki sínu í sumarbústað í Skorradalinn. Jóhanna er ættuð frá Ísafirði en flutti með foreldrum sínum til Reykjavíkur ellefu ára gömul. Jóhanna og Davíð giftu sig 1. september 1973. Saman eiga þau fjögur börn. Pétur sem hef- ur byrjað búskap á Grund er þeirra elstur. Þá kemur Jens, Guðrún og Guðjón Elías er yngstur. Gagnlegar heimsóknir til tryggingaþega Davíð tók að sér um svipað leyti og hann gerðist hreppsstjóri umboð fyrir Samvinnutryggingar. Ári seinna tók hann við starfi gjaldkera Sjúkra- samlags Skorradalshrepps og gegndi því í tíu ár eða þar til sjúkrasamlög- in voru lögð niður. „Stundum var reikningum sem bárust til sjúkrasam- lagsins safnað saman og þeir síðan greiddir eftir stuttan tíma. Ég lét það þó ekki bíða og borgaði reikningana sem komu frá Kristjáni Sveins- syni augnlækni. Með þeim fylgdi sú orðsending frá Kristjáni; „þú send- ir greiðslu við tækifæri.“ Mér þótti vænt um þessa orðsendingu, fannst felast svo mikið traust í henni að ég borgaði reikningana frá Kristjáni næstum samdægurs.“ Davíð var mun lengur með umboð fyrir Samvinnu- tryggingar og seinna VÍS eða samtals í 48 ár, 1961-2009. Hann segir að tryggingaumboðið hafi vaxið hratt og orðið nokkuð stórt. Hann hafi þurft að aka 10-12.000 km á ári í því sambandi. „Um árabil innheimti ég öll iðgjöld með því að keyra heim til allra viðskiptavina, að minnsta kosti tvisvar á ári. Í þessum heimsóknum voru tryggingar skoðaðar og gerðar breytingar ef þörf þótti. Í einni slíkri innheimtuferð að Kleppjárnsreykj- um sagði Hjörtur skólastjóri mér að Sigurgeir bróðir sinn, sem ver- ið hafði skólabílstjóri undangengna vetur, væri hættur og fluttur á Reyk- hóla með allt sitt innbú. Sigurgeir tryggði hjá mér þannig að ég ákvað án þess að tala við hann að hringja í Samvinnutryggingar og láta flytja heimilistryggingu hans til Reykhóla á íbúðarhúsið hans þar. Viku seinna kviknaði í húsinu hans og það brann ásamt öllu innbúinu til kaldra kola. Sigurgeir var þakklátur þegar hann komst að því að tryggingar hans voru allar í góðu lagi og hann fékk strax fullar tryggingabætur.“ Davíð seg- ist hafa átt marga góða viðskipta- vini í tryggingunum. „Þar voru mörg fyrirtæki og þeirra stærst Sæmund- ur Sigmundsson í Borgarnesi, sem tryggði sitt fyrirtæki frá 1961-1991. Auk þess hafði Davíð Norðurleið, Ís- arn, Landleiðir, Akraprjón og Hót- el Akureyri í tryggingum, svo nokk- ur séu nefnd.“ Í hálfan mánuð á þingi Davíð segist alla tíð hafa verið tals- vert pólitískur og mikill sjálfstæð- ismaður. Undanfarin ár hefur hann setið í flokksráði Sjálfstæðisflokksins og fréttaritari Morgunblaðsins hefur hann verið í áratugi. Davíð var annar varaþingmaður flokksins kjörtíma- bilið 1983-´87 og sat á þingi í hálf- an mánuð undir lok þess tímabils í forföllum Friðjóns Þórðarsonar. „Þá voru umferðarlögin fyrirferðarmikil. Þá tókst með harðfylgi að koma í veg fyrir nýja númerakerfið á bílunum en það fór svo í gegn síðar,“ segir Dav- íð. Eins og áður segir hefur Davíð setið í sveitarstjórn frá árinu 1966 og sinnt oddvitastarfinu frá árinu 1970. Hann hefur haft einarðar skoðan- ir í sambandi við sameiningarmál sveitarfélaga og var í fylkingarbrjósti sinna sveitunga sem höfnuðu sam- einingu þegar sveitarfélagið Borgar- byggð varð til fyrir nokkrum árum og þar áður Borgarfjarðarsv eit. „Ég var þeirrar skoðunar og er enn að Borgarfjörður sunnan Hvítár, Borg- arfjarðarsýsla, átti að verða eitt sveit- arfélag. Hreppar á þessu svæði áttu alla tíð gott samstarf, fyrst í gegnum sýslunefnd og seinna héraðsnefnd,“ segir Davíð. Varðandi nýlega til- lögu bæjarstjórnar Akraness, þar sem Skorradalshrepp, Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit var boðið í samein- ingarviðræður, segir Davíð að íbú- arnir í sveitinni verði að ráða því. Lagning hitaveitunnar varð hitamál Þegar Davíð er spurður hvaða mál hann telji hafa verið hvað mesta framfaramálið í Skorradal í hans tíð í sveitarstjórn og oddvitastarf- inu, segir hann að það sé lagning hitaveitunnar. „Það var reyndar mikið hitamál í sveitinni á sínum tíma og olli því að fram kom hópur fólks sem náði meirihluta í hrepps- nefndinni eitt kjörtímabil. Eftir að Hitaveita Akraness og Borgar- fjarðar tók til starfa var áhugi hjá hreppsnefnd Skorradalshrepps að það yrði skoðað hvort hægt væri að tengjast henni, því hreppurinn tilheyrði þá svokölluðum köldum svæðum. Kjör sem okkur buðust að fá vatn frá HAB voru óásætt- anleg. Þá leituðum við til Krist- jáns Sæmundssonar jarðfræð- ings hjá Orkustofnun um að hann kannaði aðstæður og stjórnaði leit að heitu vatni. Hann staðsetti tíu til tuttugu rannsóknarholur sem Jökull Ólafsson ættaður frá Háa- felli í Skorradal framkvæmdi árið 1993. Að loknu þessu rannsókn- arstarfi ráðlagði Kristján okkur að bora vinnsluholur á Stóra-Drag- eyri við rætur Dragafells. Taldi hann rétt að semja við Jarðboranir um fast verð fyrir fyrstu 800 metr- ana og síðan dagtaxta frá því. Þetta var gert, umsamið verð var átta milljónir fyrir fyrstu 800 metrana og síðan 295.000 á dag eftir það. Sumir hreppsbúar voru afar ósátt- ir við þessa framkvæmd. Þeir töldu einsýnt að ekkert vatn fyndist en sjóðir hreppsins tæmast,“ seg- ir Davíð þegar hann minntist að- draganda Hitaveitu Skorradals. Borað á fullu Þegar kosið var til sveitarstjórnar vorið 1994 brá svo við að andstæð- ingar hitaveitu náðu þremur mönn- um í hreppsnefndina þannig að ein- ungis tveir úr gömlu hreppsnefnd- inni náðu kjöri. Var Davíð oddviti á Grund annar þeirra tveggja sem hélt velli í hreppsnefndinni. „Nýr meirihluti lét hafa eftir sér að fyrsta verk hans yrði að stoppa þessa vit- leysu. Gamla hreppsnefndin hafði þó völd í tvær vikur eftir kosningar og á þeim tíma var borað á fullu. Á föstudegi var borinn kominn niður á 800 metra og bormenn tóku helg- arfrí. Á mánudagsmorgun var síð- an byrjað að bora aftur. Um há- degi þann dag var hringt í mig og mér tjáð að í 816 metrum hafi bor- inn fallið um einn og hálfan metra. Þar væri víður vatnsgangur sem við dælingu virtist skila 25-30 sekúndu- lítrum af 90 gráðu heitu vatni. Var nú ekið í Borgarnes, keypt kampa- vín og skálað við bormenn fyrir góðu verki,“ segir Davíð. Jóhanna húsfreyja sagðist ekkert hafa skilið í því hvað Davíð ætlaði að gera þeg- ar hann bað hana að taka til fjölda kampavínsglasa, maður sem bragð- aði aldrei vín. Um kvöldið urðu svo hreppsnefndarskipti, en samstaða var ekki hjá nýja meirihlutanum um nýjan oddvita, þannig að Davíð var kjörinn í það starf áfram. Borholan var síðan virkjuð 1996. Heita vatn- inu var síðan 17. september það ár hleypt á og frá Hitaveitu Skorra- dals fengu ellefu lögbýli og 30-40 sumarhús vatn ásamt Skátaskálan- um. Orkuveita Reykjavíkur keyptu síðan reksturinn haustið 2005 og tók við honum formlega í ársbyrj- un 2006. Ferðast mikið erlendis Davíð segir að þau Jóhanna hafi átt gæfu að fagna frá því leiðir þeirra lágu saman. Seinni árin hafa þau ferðast mikið, farið í margar ferðir- með eldri borgurum í Borgarfjarð- ardölum innan lands og nokkrar ferðir til útlanda. Þegar blaðamað- ur spjallaði við Davíð voru hann og Jóhanna einmitt nýkomin úr ferð með eldri borgurum. Sú ferð var á höfuðborgarsvæðið og end- að í bíó, á myndina „Hross í oss,“ sem að miklu leyti var tekin í Borg- arfirði. Aðspurður um ferðalög- in til útlanda segir Davíð að fal- legasta borgin sé St. Pétursborg í Rússlandi, en þau Jóhanna hafa far- ið tvisvar til Rússlands og einu sinni til Kína. Þær ferðir segir hann hafa verið stórkostlegar. Spurður hvers vegna sjálfstæðismaðurinn hafi kos- ið að fara til þessara landa og þar sem kommúnisminn var allsráðandi lengi og er enn, segir Davíð snögg- ur upp á lagið. „Nú það er auðvitað til að sjá það enn betur hvað fólki vegnar betur undir stjórn hægri manna en vinstri manna,“ segir hann og hlær. Þau fóru til Banda- ríkjanna 1979 og sáu þá m.a. Niag- arafossana sem þeim þótti ægifagrir. Til London hafa þau farið og víðar um Evrópu. Á síðasta ári fóru þau Davíð og Jóhanna til Íslendinga- byggða í Kanada og sú heimsókn segja þau að verði lengi í minn- um höfð. „Það var sérkennilegt að koma á elliheimili í Gimli þar sem fólk á níræðisaldri talaði reiprenn- andi íslensku, en hafði sumt hvert aðeins einu sinni komið í heimsókn til Íslands. Þegar ég spurði eina konu hvort henni hafi ekki þótt víð- sýnna á Íslandi en í skóglendi Kan- ada, svaraði hún: „Mér fannst fjöll- in skyggja ansi mikið á útsýnið.“ Það fannst mér ansi sérkennilegt svar.“ Og þar með settum við Dav- íð punktinn yfir i-ið. Þótt spjallað hafi verið um sitthvað fleira í stof- unni á Grund þennan fallega haust- dag. þá Fráfarandi hreppsnefnd skálar í kampavíni fyrir frábærum árangri borunar eftir heitu vatni: Davíð Pétursson Grund, Ágúst Árnason Hvammi, Jón Eiríkur Einarsson Mófellsstaðakoti, Guðmundur Þorsteinsson Efri-Hrepp og Bjarni Vilmundarson Mófellsstöðum. Chevrolet Belair árg. ´59 sem lengst af var nýttur í leigubílaaksturinn. Bílarnir á Grund með bílnúmerin góðu sem Davíð hafði mikla dellu fyrir.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.