Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Side 29

Skessuhorn - 23.10.2013, Side 29
29MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 17, 2. desember 2013. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@avs.is og bréflega á póstfangið AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Háeyri 1, 550 Sauðárkrókur. Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir þrjá flokka: a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunar- verkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir fullnægjandi framvindu verkefnisins áður en styrkumsókn er afgreidd. b. Smá- eða forverkefni Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða verkefna til undirbúnings stærri verkefna á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð er allt að einni milljón króna og skal verkefninu lokið innan tólf mánaða frá úthlutun. c. Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum Veittir eru styrkir til verkefna, sem stuðla að nýjum störfum og aukinni verðmætasköpun í sjávarbyggð- um. Horft er til ýmissa verkefna, sem geta tengst t.d. framboði á sjávarfangi, ferðaþjónustu, nýjum vörum eða þjónustu. Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og hámarksupphæð styrkja er þrjár milljónir króna. Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar. Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is. AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum atvinnuvega- ný sköpunar- ráðuneytisins og veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs. AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Háeyri 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 453 6161 ∙ www.avs.is MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI Eiríkur J. Ingólfsson ehf. Sólbakka 8 • Borgarnesi • ejiehf@simnet.is Eiríkur 894 5151 • Ingólfur 892 8610 Sumarhús • Gluggar • Hurðir • Fög Sk es su ho rn 2 01 3 91 stuttmynd var valin til sýning- ar á alþjóðlegu stuttmyndahátíð- inni Nothern Wave sem fram fer í Grundarfirði í næsta mánuði. Að þessu sinni verður hátíðin hald- in í fyrsta sinn í nóvember, en síð- ustu fimm árin hefur hún farið fram í mars. Ástæðan er mikil fjölgun ferðamanna á svæðinu á vormánuð- um sökum háhyrninga sem hafa gert sig heimakæra í firðinum á þessum tíma. Sem fyrr er það Dögg Móses- dóttir sem er skipuleggjandi hátíð- arinnar. „Engir hvalir ættu að vera sýnilegir 15. nóvember næstkom- andi, en í staðinn verða sýndar fjöl- þjóðlegar stuttmyndir í samkomu- húsi Grundarfjarðar sem ættu að laða að annars konar ferðamenn,“ segir Dögg. Hún segir að hátíðin í ár bjóði í raun upp á heimsreisu þar sem myndirnar verða flokkaðar eftir heimshlutum en aldrei fyrr hefur verið jafn fjölbreytt úrval þjóðerna með mynd á hátíðinni. „Myndirn- ar eru margar hverjar hápólitísk- ar og ágætis speglun á ástandið í hverju landi fyrir sig. Töluvert er um kvenleikstjóra á hátíðinni í ár og áhugavert að sjá hvert stefnir en stuttmyndaformið er byrjunarreitur leikstjóra framtíðarinnar og má því segja að myndirnar gefi vísbend- ingu um það sem koma skal.“ Fjöldi verðlaunamynda er á hátíð- inni í ár, m.a. tvær stuttmyndir sem sýndar voru á Cannes fyrr á þessu ári. Hin íslenska Hvalfjörður og hin íranska “More than two hours” sem fjallar um þá erfiðleika sem ungt og ógift par stendur frammi fyrir þeg- ar að það þarf læknisaðstoð upp á líf og dauða. „Á hátíðinni má einn- ig finna gæðamyndir frá framandi löndum eins og Kazaksthan, Íran, Afganistan, Kyrgyzstan og Uzbek- istan. Verðlaunamyndin Sandiq frá Uzbekistan sem leikstýrt er af hinni ungu Sabina Sagadeev. Hún segir frá sambandi ömmu og barnabarni og gefur góðar innsýn inn í hefð- ir tengdar dauðanum í Uzbekistan. Önnur áhugaverð mynd er finnsk- rússneska heimildarmyndin Ra- kastan sinua kyyneliin (Cry Tears of Happiness) sem fjallar um útóp- ískar og þjóðernissinnaðar ungliða- hreyfingarbúðir Pútíns í Rússlandi, þar sem rússnesk ungmenni koma saman og dansa edrú við teknó- tónlist á milli þess sem þau dásama leiðtoga sinn.“ Dögg segir að á hátíðinni verði einnig boðið upp á fjölbreytt úrval hreyfimynda og teiknimynda og í fyrsta sinn býður Northern Wave átíðin upp á ókeypis vinnusmiðju. „Við fáum Margaret Glover, banda- rískan handritshöfund og framleið- anda sem starfar við London Film School, til að sitja í dómnefnd há- tíðarinnar að þessu sinni. Aðrir meðlimir dómnefndar verða leik- stjórarnir Silja Hauksdóttir og Haf- steinn Gunnar Sigurðsson en í dóm- nefnd tónlistarmyndbanda eru þeir Jim Beckmann og Benedikt Reyn- isson. Fastir liðir eins og venjulega eru svo viðburðir á borð við tón- leika, ball og hina vinsælu fiskirétt- akeppni sem landsliðskokkurinn Leikstjórar framtíðarinnar á Northern Wave í Grundarfirði Myndin „Cry Tears of Happiness“ fjallar um útópískar og þjóðernissinnaðar ungliðahreyfingarbúðir Pútíns í Rússlandi. Úr írönsku myndinni “More than two hours,” sem fjallar um þá erfiðleika sem ungt og ógift par stendur frammi fyrir þegar það þarf læknisaðstoð upp á líf og dauða. Atriði úr verðlaunamyndinni Sandiq frá Uzbekistan. Hrefna Sætran dæmir í. Þónokkur fjöldi erlendra leikstjóra, sem eiga mynd á hátíðinni, hafa boðað komu sína á hátíðina í ár, flestir frá Rrúss- landi og Austur Evrópu. Enginn ætti þar af leiðandi að vera svikinn af vetrarhelgi í Grundarfirði þrátt fyrir fjarveru háhyrninga,“ segir Dögg Mósesdóttir. Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á: www.northernwave- festival.com mm

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.