Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Breytt útlit
Breytt útlit hefur nú göngu sína á
ný eftir sumarfrí og verður á dag-
skrá um það bil í öðru hverju tölu-
blaði. Gestur okkar í Breyttu út-
liti er Ásdís Óskarsdóttir, starfs-
maður í Íþróttamiðstöðinni á Jað-
arsbökkum á Akranesi.
„Fyrst setti ég multilift andlits-
krem og yfir allt andlit farða frá
Dior. Farðinn heitir Nude og gef-
ur jafna, fallega áferð og ljóma og
hann helst vel. Á augu notaði ég
ljós- og dökkbláan augnskugga,
svartan maskara og svartan eyel-
iner. Þá var ég með ferskjubleikan
kinnalit frá Nyx, Mac varalit og
Nyx gloss (perfect) á varir,“ segir
Anna Sigga förðunarfræðingur.
Ásdís fór einnig í klippingu og
litun hjá Steffu á hársnyrtistofunni
Mozart. „Ég klippti hárið stutt og
tjásaði mjög mikið, smá „pönkfíl-
ingur. Setti svo dökkbrúnan lit og
lýsti svo upp nokkra enda í tjás-
unum með strípuefni. Eftir það
blés ég hárið og mótaði. Þetta út-
lit er að koma inn fyrir veturinn,
tjásað hár en ekki of stutt, “ seg-
ir Steffa hár-
snyrtir.
Steffa og
Anna Sigga
eru nýkomn-
ar heim frá
L u n d ú n u m
þar sem þær
fóru meðal
annars á sýningar og kynntu sér
nýjustu tískustrauma í förðun og
hárgreiðslum. Þær breyttu útliti
Ásdísar í takt við það.
grþ
Anna Sigga og
Stefa hafa um sjón
með Breyttu út liti.
Englamömmur á Akranesi héldu
góðgerðartónleika á alþjóðlegum
degi barnmissis 15. október síðast-
liðinn. Þær vilja koma á framfæri
kæru þakklæti til allra sem studdu
málefnið á einn eða annan hátt
og áttu þátt í að gera tónleikana
glæsilega. Vel tókst til að safna
fyrir bættri aðstöðu þeirra sem
missa börn sín og voru mörg fyrir-
tæki sem styrktu málefnið. Engla-
mömmur vilja færa Steðja, Mod-
eli, Subway, Tónlistarskóla Akra-
ness, Ölgerðinni, Skessuhorni,
Prentmeti, Stefi, Íslandspósti,
Smáprenti og Valitor þakkir fyrir
þeirra framlög. Síðast en ekki síst
færa þær þakkir þeim sem komu á
tónleikana eða lögðu inn á styrkt-
arreikninginn.
grþ/ Ljósm. Hilmar Sigvaldason.
Frá Sögufélagi Borgarfjarðar
Félagið á ennþá til sölu nokkur eintök af Íbúatali 2011,
er út kom s.l. vor.
Þeir sem vilja tryggja sér ritið geta haft samband við:
Rannveigu Þórisdóttur, Vesturgötu 17, Akranesi,
sími 431-2963, 894-8036 netfang: oskararn@simnet.is
Sævar Inga Jónsson, bókavörð í Safnahúsi Borgarfjarðar,
sími 430-7208 netfang bokasafn@safnahus.is
Snorra Þorsteinsson, Hrafnakletti 2 Borgarnesi,
sími 437-1526, 898-9248 netfang snorri@ismennt.is
Þá er einnig minnt á Borgfirðingabók 2013, er kom út um
miðjan ágúst.
Trúnaðarmenn munu með ánægju afgreiða hana til þeirra er
áhuga hafa.
Sögufélagið sendir öllum héraðsbúum ósk um
góðan og gleðiríkan vetur.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flottar yfirhafnir
fyrir flottar konur
St. 38-52
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum
Meistaraflokkur karla 1. deild
Föstudaginn 25. október kl. 19.15
ÍA – Vængir Júpiters
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Englamömmur þakka fyrir sig
Margar hljómsveitir og tónlistarmenn gáfu vinnu sína og
komu fram á tónleikunum.
Þær Englamömmur sem komu að tónleikunum ásamt Sigrúnu
Ósk Kristjánsdóttur sem var kynnir kvöldsins.
Tindatríóið og Sveinn Arnar Sæmundsson tóku lagið.
Systkinin Helga Ingibjörg og Guðmundur Böðvar Guðjónsbörn
voru meðal þeirra sem fram komu. Þarna er Guðmundur
Böðvar að koma fram í fyrsta skipti opinberlega og stóð sig
með sóma við hlið sviðsvanrar systur sinnar.
„Eftirspurnin var enn meiri en við
reiknuðum með og búum þó að góðri
reynslu á þessu sviði,“ segir Jón Gunn-
laugsson umdæmisstjóri VÍS á Vestur-
landi um viðbrögð íbúa við skínandi
húfum fyrir börn sem fyrirtækið bauð
viðskiptavinum með F plús. Á skrif-
stofunum sjö í umdæminu sem nær
til Stranda í norðri, hafi 1.650 húfum
verið dreift. Þar af liðlega helmingn-
um á Akranesi, eða 850 stykkjum.
Á landsvísu svarar fjöldi húfa til þess
að fjögur af hverjum tíu börnum 3ja
til 12 ára hafi fengið húfu. Jón segir
gaman að taka þátt í þessu skemmti-
lega verkefni enda lifni óneitanlega
yfir skrifstofunum á þeim tíma sem
börnin streymi að. „Með því að stuðla
að meiri sýnileika þeirra aukum við
líka öryggið í umferðinni. Ekki veit-
ir af eftir því sem myrkrið vex með
degi hverjum. Húfurnar koma þó ekki
í stað hefðbundinna endurskinsmerkja
heldur eru góð viðbót með þeim.“
-fréttatilkynning
VÍS húfur vinsælar á Vesturlandi
Diljá Fannberg Þórsdóttir í Borgarnesi.
Ingunn Sigurðardóttir og Þula í
Borgarnesi.