Skessuhorn - 23.10.2013, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Hvaða íslenski matur finnst
þér bestur?
Ingibjörg Gestsdóttir
Mér finnst slátur alveg æði.
Jakob Ólason
Steiktur fiskur.
Fjóla Ásgeirsdóttir
Lambakjöt sem ég elda sjálf.
Bjarni Maron Sigurðsson
Ég myndi segja bjúgu.
Spurning
vikunnar
(spurt á Akranesi)
Jóhanna Elva Ragnarsdóttir
Það er kjötsúpa.
Á næstu dögum mun Dýrfinna
Torfadóttir gullsmiður á Akranesi
halda upp á starfsafmæli en hún hef-
ur nú verið með sjálfstæðan rekstur
í 30 ár. Í tilefni af því verður 30%
afsláttur af vörum í verslun hennar
föstudaginn 1. nóvember næstkom-
andi. Ása Gunnlaugsdóttir gull-
smiður verður einnig með kynn-
ingu á sínum vörum frá kl. 14 – 18.
Einnig má geta þess að Tax free
dagar verða í verslun hennar, sem
og mörgum öðrum á Akranesi, nú
um helgina.
Allur ágóði til styrktar
meistaraflokki kvenna
Dýrfinna ætlar þó að gera gott betur
því laugardaginn 2. nóvember verð-
ur hún með markað í anddyri gull-
smíðaverkstæðis síns við Stillholt 16
á Akranesi. „Ég verð með markað á
skóm, fatnaði, töskum og jafnvel
gömlu skarti sem er síðan áður en
ég fór að læra og var bara að föndra
heima hjá mér,“ segir Dýrfinna
um markaðinn. Hún á stórt safn af
skóm og verður mikið af þeim til
sölu. Fatnaðurinn er hluti af 30 ára
safni og er í ýmsum stærðum í sam-
ræmi við sveiflukennt vaxtarlag eig-
andans í áranna rás, eins og fram
kemur í kynningu á Vökudögum.
Öll innkoman mun renna óskipt til
meistaraflokks kvenna í knattspyrnu
hjá ÍA. „Fólk spyr örugglega hvers
vegna meistaraflokkur kvenna? En
ástæðan er sú að þær hafa bara stað-
ið sig svo vel og komust upp í úr-
valsdeildina í sumar,“ segir Dýr-
finna en hún hefur alltaf fylgst með
fótbolta með öðru auganu þrátt fyr-
ir að hafa ekki spilað hann sjálf.
Samdráttur á Akranesi
en aukning í Reykjavík
Dýrfinna opnaði gullsmíðaverk-
stæði og verslun á Akranesi 2001 og
hefur orðið vör við miklar breyting-
ar eftir hrun, mest síðan 2011. Hún
selur einnig skartgripi í Reykjavík,
hjá Ófeigi á Skólavörðustíg. „Ég hef
fundið miklar breytingar út af sam-
drætti, sérstaklega hérna á Akranesi
en svo hefur verið aukning í Reykja-
vík. Það er jafn mikil aukning þar
eins og samdráttur hér, það bjargaði
mér í rekstrinum að vera þar líka en
ekki bara hérna,“ heldur hún áfram.
Þessi munur á milli svæðanna skýr-
ist af ferðamannastrauminum á höf-
uðborgarsvæðinu en um 90% af
viðskiptavinum Dýrfinnu í Reykja-
vík hafa verið ferðamenn. „Þetta er
spurning um að sækja á réttu miðin,
þeir fiska sem róa,“ segir hún.
En það er engin uppgjöf hjá Dýr-
finnu þrátt fyrir að salan á Akra-
nesi hafi dregist saman. „Ég vil
halda rekstrinum hér og taka þátt í
að byggja upp samfélagið hér. Mér
hefur verið boðið ýmislegt í Reykja-
vík en hér vil ég vera. Ég vil halda
verkstæðinu opnu fyrir almenning
og mér líður vel í hópnum sem er
hérna í þessu húsnæði. Þetta eru
flottar stelpur sem eru hér í Hár-
stúdíó, Face og á Fótaaðgerðastofu
Guðrúnar. Ég hlakka eiginlega allt-
af til að fara í vinnuna og það kemur
aldrei upp hjá mér leiði,“ segir hún.
Eftir að Dýrfinna flutti á Akranes
frá Ísafirði hefur hún fundið að hún
er tilbúin að fara hvert sem er og er
sátt þar sem hún er í hvert skipti.
Henni finnst gott fólk á Skaganum.
„Fólkið mætti samt alveg meta það
sem það hefur hérna. Hér er stutt
í allt, menningarlífið fjölbreytt,
frábær íþróttaaðstaða og skólarn-
ir góðir. Það finnst allt til alls hér.
En fjarlægðin gerir fjöllin blá og
mennina mikla! Skagamenn mættu
alveg kíkja fyrst hér heima áður en
þeir sækja þjónustuna í bæinn. Þetta
skerðir þjónustu sífellt meira, það
þrífst ekkert hér nema matvöru-
verslanir og fatabúðir,“ segir hún og
vill hvetja Akurnesinga til að nýta
sér þjónustuna á Akranesi betur.
Handsmíðar allt sjálf
Dýrfinna hefur orð á því að eftir
hrunið hafi margir farið að föndra
heima hjá sér og kalla sig hönnuði
en einnig hefur hún séð breyting-
ar á vinnu gullsmiða. „Margir gull-
smiðir eru farnir að láta steypa vör-
una. Fólk sér engan mun á hvort
skartgripurinn er handsmíðaður eða
steyptur. Fólk mætti spyrja oftar að
því en útlendingarnir virðast átta sig
betur á því. Það væri gaman að vita
hversu mörg prósent gullsmiða eru
með handsmíðað í dag. Ég myndi
vilja að varan væri stimpluð hvort
hún er handunnin eða bara hönn-
uð eftir einhvern,“ segir hún. „En
maður þarf að fylgja tækninni líka.
Ég finn að ég þarf að fara meira út í
netsölu því þróunin er þar og mað-
ur þarf að fylgja henni,“ heldur hún
áfram.
Dýrfinna hefur verið dugleg að
fara á námskeið og halda sér við en
hún fær einnig reglulega nema til
sín á samning. „Ég viðurkenni að
það er gott að fá unga nema hérna
inn, þeir efla mann og eru nútíma-
væddir. Bergrós Kjartansdóttir er
hjá mér núna en hún gerir mikið af
prjónamynstrum fyrir Ístex og kem-
ur með alveg nýja vídd inn í skart-
gripahönnun,“ segir hún. Dýrfinna
vill að lokum hvetja fólk til að koma
og styrkja meistaraflokk kvenna en
opið verður frá kl. 13 – 17 laugar-
daginn 2. nóvember.
grþ
Rólegt hefur verið hjá framhalds-
skólum Vesturlands síðastliðna
viku en miðannarfrí og námsmats-
dagar hafa sett mark sitt á skólalíf-
ið á Akranesi og í Borgarnesi und-
anfarna daga. Þó er alltaf eitthvað
um að vera, bæði í námi og félags-
lífi nemenda.
Heimsókn í leikskóla í
Borgarnesi
Nemendur í íþróttafræði 1A06 í
Menntaskólanum í Borgarfirði fóru
á dögunum í heimsókn í leikskólana
Ugluklett og Klettaborg. Þar sáu
þau um 60 mínútna hreyfistund-
ir. Leikskólabörnunum var skipt í
hópa og svo var farið í leiki jafnt úti
sem inni og danstíma. Heimsóknin
er hluti af áfanga sem snýst að mestu
leyti um þjálfun barna á aldrinum 3
– 12 ára og kunnu bæði nemendur
og kennarar á leikskólunum vel að
meta þessa tilbreytingu.
Skammhlaupsball á
Akranesi
Skammhlaupsball FVA var hald-
ið 10. október síðastliðinn og var
aðsóknin góð. Ballið var haldið á
Gamla Kaupfélaginu og Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson sá um að halda uppi
stuðinu. Þema kvöldsins var átt-
undi áratugurinn og voru nemend-
ur hvattir til að mæta í fötum frá
þeim tíma. Fjölmargir nemendur
úr Menntaskóla Borgarness kíktu í
heimsókn á ballið en boðið var upp
á rútuferð til og frá Akranesi um
kvöldið. Nemendur voru að venju
hvattir til að skemmta sér án áfengis
og ógilti ölvun miðann. Edrúpott-
urinn var á sínum stað en 80 manns
tóku þátt í honum í þetta skiptið.
Vinningshafinn fékk myndavél og
minniskubb að launum þannig að
það borgar sig að taka þátt. Þeir sem
taka þátt í edrúpottinum á busa-
balli, Skammhlaupsballi og jólaball-
inu eiga möguleika á að vinna í hin-
um árlega „ofuredrúpotti“ en dreg-
ið verður úr honum eftir jólaballið.
Eins og sjá má á myndunum mættu
fjölmargir nemendur uppáklæddir í
„80‘s“ föt og skemmtu sér konung-
lega. grþ
Framhaldsskólahornið
Krakkarnir í NFFA mættu að sjálfsögðu klædd eftir þema kvöldsins.
Ljósm. NFFA.
Á myndinni eru Elísabet Ásdís, Helga Guðrún og Herdís Ásta úr MB að stjórna leik
með stelpum í Uglukletti. Ljósm. Menntaskóli Borgarfjarðar.
Nemendur voru margir skrautlega
klæddir á Skammhlaupsballi FVA. Hér
eru Aníta Eir Einarsdóttir og Daníel
Ólafsson.
Ljósm. Freyja Kristjana Bjarkadóttir.
Dýrfinna gullsmiður á starfsafmæli og heldur markað
Þessir bleiku skór og veski verða til
sölu á markaðinum ásamt fjölmörgu
öðru en Dýrfinna hefur verið með
sannkallaða skódellu í mörg ár og
segir að skór séu hennar skart.
Dýrfinna að störfum á smíðaverkstæði sínu.
Fallegir brúðarskór Dýrfinnu og veski
í stíl eru meðal þeirra hluta sem verða
til sölu á markaðinum.