Skessuhorn - 23.10.2013, Side 39
39MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Kvennalið Snæfells í úrvalsdeild-
inni í körfunni átti ekki í erfiðleik-
um með Njarðvíkurstúlkur þeg-
ar liðin mættust í úrvalsdeildinni
í Hólminum á sunnudag. Heima-
stúlkur náðu góðri forystu strax
í upphafi og létu hana aldrei af
hendi. Staðan í hálflek var 49:25
og lokatölur 76:59. Chynna
Brown var stigahæst hjá
Snæfelli með 19 stig og níu
fráköst. Guðrún Gróa Þor-
steinsdóttir kom næst með
15 stig, Hildur Björg Kjart-
ansdóttir skoraði 12, Hildur
Sigurðardóttir 11, Eva Mar-
grét Kristjánsdóttir 11 og Hug-
rún Eva Valdimarsdóttir 8.
Snæfell hefur þar með unnið
þrjá síðustu leiki sína í deildinni
eftir að hafa tapað þeim fyrsta.
Næst sækja Snæfellskonur KR
heim í vesturbæinn nk. sunnu-
dag. þá/ Ljósm. Eyþór Ben.
Í síðustu viku var dregið í 32-liða úr-
slit í bikarkeppni karla í körfubolta
sem í vetur verður kennd við Powe-
rade. Snæfellingar þurfa þá að sækja
Laugdæli heim á Laugarvatn og
Skallagrímur fer á höfuðborgarsvæð-
ið til leiks við annaðhvort Hauka b
eða Stjörnuna b. Það er eini leikur-
inn í forkeppni, þar sem 33 lið voru
skráð til leiks. ÍA fær Fjölni úr Graf-
arvogi í heimsókn á Akranes en bæði
leika liðin í 1. deild Íslandsmótsins
og eiga því að standa nokkuð jöfn að
vígi. Bæði Skallagrímur og Snæfell
ættu hins vegar samkvæmt bókinni
að fara nokkuð létt í 16-liða úrslit-
in. Leikir í 32ja liða úrslitunum fara
fram dagana 1.-3. nóvember nk. þá
Skallagrímsmenn unnu sinn fyrsta
sigur í úrvaldsdeildinni þennan vet-
urinn þegar þeir sigruðu Ísfirðinga í
leik í Borgarnesi á sunnudagskvöld-
ið. Nokkrar sveiflur voru í leiknum.
Skallagrímsmenn voru miklu betri
í fyrri hálfleiknum en Ísfirðingar
sóttu sig mjög í seinni hlutanum.
Skallagrímsmenn reyndust sterk-
ari þegar á reyndi og sigur þeirra,
80:77, var öruggari en tölurnar bera
með sér. Leikaðferð Skallagríms-
manna heppnaðist að taka Smith
leikstjórnanda gestanna úr umferð.
Fyrir bragðið varð sóknarleikur Ís-
firðinga óskipulagður og pirrings
gætti hjá gestunum. Skallagrímur
var þó með aðeins þriggja stiga for-
skot eftir fyrsta leikhluta en munur-
inn jókst síðan og var orðinn tíu stig
í hálfleik, 46:36.
Vel hefur verið lesið yfir gest-
unum í leikhléinu því þeir komu
grimmir til seinni hálfleiks. Þeir
náðu að reita muninn niður í tvö
stig fyrir lok þriðja leikhluta. Ísfirð-
ingum tókst svo að jafna við upp-
haf lokakaflans 68:68. Skallagríms-
menn sýndu yfirvegun og náðu aft-
ur að rífa sig frá gestunum og leggja
grunn af sigrinum, sem áður seg-
ir var öruggari en lokatölur gefa
til kynna, 80:77. Hjá Skallagrími
var Mychal Green stigahæstur með
24, Páll Axel Vilbergsson 23, Grét-
ar Ingi Erlendsson 14, Davíð Guð-
mundsson 5, Orri Jónsson 5, Eg-
ill Egilsson 5, Davíð Ásgeirsson 2,
Sigurður Þórarinsson 1 og Trausti
Eiríksson 5. Hjá Ísfirðingum var
Jason Smith stigahæstur með 22.
Skallagrímsmenn sækja Stjörnuna
heim í næstu umferð, nk. fimmtu-
dagskvöld, annað kvöld. þá
Skagamenn byrja vel í 1.
deildinni í körfubolt-
anum. Liðið er taplaust
eftir tvær fyrstu um-
ferðirnar og framundan er
fyrsti heimaleikur tímabilsins þeg-
ar ÍA tekur á móti liðinu Vængjum
Júpiters á Jaðarsbökkum á föstu-
dagskvöldið. VJ er í hópi liða sem
eru enn án stiga í deildinni. ÍA vann
fremur auðveldan sigur á Augna-
bliki í Kópavogi sl. sunnudag, 99:60.
Bandaríkjamaðurinn Jamarco War-
ren lét sér duga að skora 40 stig í
leiknum en hann hefur farið vel af
stað með Skagamönnum í 1. deild-
inni og skorað 86 stig í fyrstu tveim-
ur leikjunum. Áskell Jónsson kom
næstur í liði Skagamanna í leiknum
gegn Augnabliki með 16 stig, Birkir
Guðjónsson skoraði 9, Dagur Þór-
isson 8, Ómar Örn Helgason 7,
Örn Arnarson 7, Þorsteinn Helga-
son 6 og þeir Erlendur Þór Otte-
sen, Sigurður Rúnar Sigurðsson
og Jón Rúnar Baldvinsson tvö stig
hvor. ÍA hefur nú fjögur stig eftir
tvo leiki, eins og Tindastóll, en Þór
frá Akureyri er á toppnum með sex
stig eftir þrjá leiki.
þá
Barnamaraþon alþjóðlegu samtak-
anna „Save the Children“ mun fara
fram í dag, miðvikudaginn 23. októ-
ber. Samkvæmt heimildum Skessu-
horns munu börn úr grunnskólum
á Vesturlandi taka þátt í hlaupinu í
fyrsta sinn. Hlaupið nefnist Kapp-
hlaup um lífið og er ætlað að vekja
athygli á baráttunni gegn barna-
dauða sem hægt er að koma í veg
fyrir. Samtökin Save the Child-
ren vinna sérstaklega að minnkun
barnadauða í heiminum með her-
ferð sinni „Every one“ og Barna-
heill tekur þátt í herferðinni fyr-
ir hönd Íslands. Markmiðið með
herferðinni er þrýsta á valdhafa um
allan heim að beita sér á alþjóða-
vettvangi fyrir því að bæta aðstæð-
ur barna í löndum þar sem hung-
ur og skortur á heilbrigðisþjónustu
er stór þáttur í barnadauða en 6,9
milljón börn undir fimm ára aldri
létu lífið í heiminum árið 2011.
Kapphlaupið um lífið er árleg-
ur viðburður og stefnt er á að gera
það enn stærra og gefa fleirum kost
á að taka þátt. Erlendis hefur hlaup-
ið verið haldið fimm sinnum en um
er að ræða heilt maraþon sem börn
á aldrinum 11 – 13 ára hlaupa í
boðhlaupsformi 200 metra hvert. Í
fyrra var Ísland með í fyrsta sinn en
þá var hlaupið í 40 löndum. grþ
Á heimasíðu Knattspyrnu-
félags ÍA er greint frá því
að Kári Ársælsson og Haf-
þór Ægir Vilhjálmsson verði
ekki með Skagamönnum á næsta ári.
Samningar þeirra beggja runnu út nú
í haust. Hafþór Ægir gekk til liðs við
Skagamenn nú í sumar frá Grindvík-
ingum en Kári kom til Skagamanna
í febrúar 2012 frá Breiðabliki. Fram
kemur einnig á heimasíðunni að
miklar líkur væru á því að lykilleik-
mennirnir Ármann Smári Björns-
son, Jóhannes Karl Guðjónsson og
Garðar Gunnlaugsson yrðu áfram
með Skagamönnum á næsta ári. Jó-
hannes Karl og Ármann Smári eru
enn samningsbundnir ÍA. þá
Snæfellingar rétt sluppu fyrir horn
þegar þeir mættu Skallagrími í há-
spennuleik þegar Vesturlandslið-
in mættust í Borgarnesi sl. fimmtu-
dagskvöld. Um hörkuspennandi og
jafnan leik var að ræða sérstaklega
á lokakaflanum. Borganesingurinn
og Skallagrímsmaðurinn fyrrverandi
Hafþór Ingi Gunnarsson kláraði
leikinn fimm sekúndum fyrir leikslok
fyrir Hólmarana með tveimur stigum
frá vítalínunni. Mychal Green reyndi
skot út erfiðri stöðu undir lokin sem
geigaði. Snæfellingar komu sterkari
til leiks og voru tíu stigum yfir eftir
fyrsta leikhluta, 28:18. Skallagríms-
menn náðu að rétta sinn hlut í öðrum
leikhluta, en voru sex stigum und-
ir í hálfleik, 49:43. Jafnræði var síð-
an með liðunum í þriðja leikhluta og
ljóst að lokakaflinn yrði mjög spenn-
andi. Skallagrímsmönnum tókst
fljótlega að minnka fimm stiga mun-
inn og leikurinn var hnífjafn allt til
loka. Mikil spenna var síðan á loka-
sekúndunum eins og áður segir.
„Nei nei, það er bara gaman að
spila í Borgarnesi. Ég hef áður tek-
ið einhver vítaskot þarna og það var
bara gaman að vera í þeirri stöðu að
taka þessi skot,“ sagði Hafþór Ingi
Gunnarson í sem skoraði síðustu
stigin, í samtali við karfan.is að leik
loknum. Nýi bandaríski skotbak-
vörðurinn hjá Snæfelli, Vanes Dion
Cooksey, átti feiknagóðan leik. Þótt
hann væri nánast nýlentur skoraði
hann 30 stig og reyndist sínu liði
ómetanlegur í jöfnum leik. Hafþór
Ingi kom næstur með 14 stig, þá Jón
Ólafur Jónsson með 13, Kristján Pét-
ur Andrésson og Sveinn Arnar Dav-
íðsson skoruðu 8 stig hvor, Finnur
Atli Magnússon 5, Sigurður Á Þor-
valdsson og Stefán Karel Ólafsson 4
hvor og Pálmi Freyr Sigurgeirsson 3.
Hjá Skallagrími var Mychal Green
atkvæðamestur með 24 stig, Páll Axel
Vilbergsson skoraði 18, Grétar Ingi
Erlendsson 14, Orri Jónsson 10, Eg-
ill Egilsson 5, Davíð Ásgeirsson 4 og
Davíð Guðmundsson 3.
Skallagrímur fær KFÍ í heimsókn
á sunnudaginn og stefna þar vænt-
anlega á sín fyrstu stig í deildinni í
vetur. Snæfell sem fékk núna sín tvö
fyrstu stig í deildinni fá meistara-
efni KR í heimsókn í næstu umferð.
Fer sá leikur fram í Hólminum nk.
fimmtudagskvöld.
þá/ Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.
„Kapphlaupið um
lífið“ þreytt í dag
Góð byrjun Skagamanna
í körfuboltanum
Fyrsti sigur
Skallagrímsmanna
Kári og Hafþór
Ægir ekki með
Dregið
í 32-liða úrslit
Auðveldur sigur Snæfellskvenna
Snæfell vann í háspennu Vesturlandsslag