Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Side 40

Skessuhorn - 23.10.2013, Side 40
ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Klassískt íslenskt jólahlaðborð Verð kr. 7.600 Jólahlaðborð og gisting kr. 14. 600 á mann í tveggja manna herbergi m/morgunverði kr. 16. 600 á mann í eins manns herbergi m/morgunverði Tilboð fyrir hópa í síma 437 1119 Pantanir í síma 437 1119 eða á info@hotelborgarnes.is Hótel Borgarnes Egilsgata 16 310 Borgarnes Sími 437 1119 · Fax 437 1443 www.hotelborgarnes.is info@hotelborgarnes.is Jólahlaðborð á Hótel Borgarnes Verð 7.600 kr. 22. 23. 29. og 30. nóvember Nemendur í árgangi 1996 og holl- vinir Grundaskóla á Akranesi færðu skólanum á dögunum glæsilega tölvusmásjá að gjöf. Tölvusmásjá- in mun án efa gagnast nemendum skólans vel í framtíðinni en með slíku tæki er hægt að skoða smádýr og hluti í mikilli stækkun. Einnig er hægt að vista myndirnar og vinna með í tölvu. Nemendur og starfs- fólk Grundaskóla færa krökkunum úr 1996 árganginum bestu þakkir fyrir þessa góðu gjöf og hlakka til að vinna með smásjána. grþ Fagráð í hrossarækt hefur tilnefnt tíu hrossabú og -ræktendur til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasam- taka Íslands fyrir árangur í ræktun- arstarfi. Verðlaunin fyrir besta búið á að veita í Sunnusal Hótels Sögu laug- ardaginn 16. nóvember næstkom- andi. Vestlendingar eiga þrjá fulltrúa í þessum hópi. Það eru búin Einham- ar, Hrísdalur og Lambanes. Einhamar við Akranes, sem er bú Hjörleifs Jónssonar og Sifjar Ólafs- dóttur, átti fimm hross sem voru sýnd í ár. Það eru Bylgja, Bára, Darri, Dagg- ar og Dósent. Meðalaldur hestanna er 4,4 ár. Darri, Daggar og Dósent eru allir fjögurra vetra. Daggar var þriðji hæsti fjögurra vetra hesturinn í ár með 8,19 í aðaleinkunn. Dósent varð fjórði með 8,17 í aðaleinkunn. Meðal- tal aðaleinkunna hrossanna er 8,11. Fjögur hross voru sýnd í fullnað- ardóm í ár frá Hrísdal í Eyja- Mikla- holtshreppi í eigu Gunnars Sturlu- sonar og Guðrúnar Margrétar Bald- ursdóttur. Það voru Hrynur, Stegg- ur, Nökkvi og Harpa. Öll hross- in eru fjögurra vetra nema Hrynur sem er sex vetra. Meðalaldur þeirra er 4,5 ár. Steggur frá Hrísdal er sjötti hæst dæmdi fjögurra vetra hestur- inn í ár. Hann hlaut 8,14 í aðalein- kunn. Hrynur er fimmti hæst dæmdi sex vetra stóðhesturinn í ár með 8,45 í aðaleinkunn. Meðaltal aðaleinkunna hrossanna er 8,11. Frá Lambanesi komu fjögur hross til dóms; Djásn, Hersir, Laxnes og Höll. Lambanes er í eigu Agnars Þórs Magnússonar og Birnu Tryggvadótt- ur Thorlacius. Meðalaldur þessara hrossa er 4,25 ár. Öll eru þau fjögurra vetra nema Djásn sem er fimm vetra. Hersir frá Lambanesi er hæst dæmdi fjögurra vetra stóðhesturinn í ár með 8,38 í aðaleinkunn. Laxnes er fimmti hæst dæmdi fjögurra vetra stóðhest- urinn í ár með 8,16 í aðaleinkunn. Meðaltal aðaleinkunna hrossanna er 8,04. iss/mþh. Ljósm. Iðunn Silja Svansdóttir. Hestakerra losnaði aftanúr jeppa- bifreið á Heydalsvegi í vikunni sem leið og valt út fyrir veg, en jeppinn hélst á veginum. Tvö hross voru í kerrunni og drapst annað þeirra í veltunni en hitt slapp lítið skadd- að. Talið er að öryggissplitti hafi losnað úr dráttarbeislinu og við það hafi kerran losnað aftan úr jeppan- um. þáGunnar Sturluson og Nökkvi frá Hrísdal. Þrjú af tíu bestu ræktunarbúum Íslands eru á Vesturlandi Birna Tryggvadóttir og Laxnes frá Lambanesi. Sigurður Sigurðsson og Dósent frá Einhamri. Hestur drapst þegar kerra valt Grundaskóli fær glæsilega gjöf

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.