Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Ljósleiðari að
ósk Neyðarlín-
unnar
DALIR: Á fundi umhverfis-
og skipulagsnefndar Dala-
byggðar á dögunum var tek-
in fyrir umsókn frá Neyðar-
línunni um framkvæmdaleyfi
fyrir lagningu ljósleiðara frá
Sauðhúsum í Laxárdal að
Kambsnesi í sömu sveit.
Nefndin samþykkti umsókn-
ina með fyrirvara um sam-
þykki frá eigenda Sauðhúsa
sem ekki liggur fyrir. Um-
hverfis- og skipulagsnefndin
minnir á að tvær vatnslagn-
ir þvera fyrirhugaða ljósleið-
arlögn, það er við bæina sem
eru þarna á milli, Saura og
Áss.
–þá
Dráttarbíll með
æki út af vegi
LBD: Dráttarbíll með aft-
anívagn rann útaf veginum
á Holtavörðuheiði í hálku
og krapa í vikunni sem leið.
Lögreglan telur að dekk-
in á ækinu hefðu sum hver
mátt vera betri. Ökumað-
urinn var einn í bílnum og
sakaði hann ekki. Bíllinn og
aftanívagninn stórskemmd-
ust og var flutningafyrirtæki
fengið til að flytja tækin af
vettvangi. Nokkrar umferð-
artafir urðu vegna þess að
ækið lokaði annarri akrein-
inni. Fjögur umferðaróhöpp
urðu í umdæmi lögreglunn-
ar í Borgarfirði og Dölum í
liðinni viku, flest á teljandi
meiðsla á fólki.
–þá
Keppni í golfi
AKRANES: Lokið er fjór-
um mótum af sex í haust-
mótaröð Bílvers og Gras-
Tec og spennan farinn að
aukast hjá Golfklúbbnum
Leyni á Akranesi. Mjótt er á
munum hjá efstu mönnum.
Í flokki þerra sem eru með
0-17 í forgjöf heldur Jón
Ármann Einarsson forystu
með 57 punkta. Í sætum tvö
til fjögur koma Brynjar Sæ-
mundsson, Tryggvi Bjarna-
son og Guðjón Viðar Guð-
jónsson á 54 og 53 punkt-
um. Skor Brynjars hefur ver-
ið sveiflukennt á milli móta
en Tryggvi og Guðjón hafa
stöðugt bætt sig. Í flokki
18+ er engu minni spenna.
Þar leiðir Halldór Friðgeir
Jónsson með 62 punkta eft-
ir þrjá mjög góða hringi og
fast á hæla hans koma Magn-
ús Daníel Brandsson með
59 punkta og Gestur Svein-
björnsson með 58 punkta.
Gestur náði besta hringnum
á haustmótaröðinni í fjórða
móti þegar hann kom inn á
25 punktum. Í liðakeppn-
inni sitja Þrír endajaxlar og
Brunaliðið á toppnum eð 116
punkta. Þessi lið hafa skipst á
að verma toppinn. Spilað er
um hverja helgi hjá Leyni í
mótaröðinni meðan tíð end-
ist, en eins og áður segir eru
tvö mót eftir.
–þá
Næturlokanir í
þessari viku
HVALFJ: Hvalfjarðargöng
eru lokuð á nóttunni í þess-
ari viku vegna framkvæmda
og viðhalds. Einnig verður
lokað að minnsta kosti eina
nótt í næstu viku en það skýr-
ist þegar nær dregur, segir í
tilkynningu frá Speli. Lok-
að er frá miðnætti til klukk-
an 6 að morgni til og með
aðfararnætur föstudagsins
1. nóvember. Meginástæða
lokunar nú er að skipt verð-
ur um alls 4,5 km langar raf-
magnsleiðslur að blásurum í
loftinu enda á milli í göng-
unum. Útilokað er að vinna
að þessu verkefni nema loka
göngunum á meðan. Að verki
loknu verða öryggiskröfur
ESB-tilskipunar frá 2004,
sem tók gildi á Íslandi með
reglugerð 2007, uppfylltar
að öllu leyti og ríflega það.
Þá verður unnið áfram við að
steypa vegaxlir meðfram ak-
brautum ganganna og stefnt
að því að ljúka kaflanum öðr-
um megin að norðanverðu í
þessari lotu. Að auki er unn-
ið að reglubundu viðhaldi
búnaðar og mannvirkis. Í til-
kynningunni segir að vegfar-
endur séu beðnir velvirðing-
ar á óþægindum sem nætur-
lokanirnar kunna að valda,
en útilokað er að hafa annan
hátt á. –þá
Kvíga í veg
fyrir bíl
LBD: Í liðinni viku slapp
stálpuð kvíga úr fjósi og út á
nærliggjandi veg í Hálsasveit
í Borgarfirði. Hljóp kvígan
í myrkrinu beint í veg fyr-
ir fólksbíl sem var ekið þar
um. Allir sem í bílnum voru
sluppu með skrekkinn en
bíllinn stórskemmdist. Af-
lífa þurfti kvíguna eftir þetta
óhapp.
–þá
Björgunarsveitin Klakkur í Grund-
arfirði tók á dögunum í notk-
un nýja mótora í björgunarbátinn
Reyni SH. Báturinn var með göml-
um mótorum sem fylgdu honum
þegar hann var keyptur frá Eng-
landi 2008. Gömlu mótorarn-
ir voru af árgerð 1995 og orðnir
gamlir og úr sér gengnir. Ekki var
hægt að treysta á þá lengur. Björg-
unarsveitin þurfti að taka lán til að
fjármagna þessi kaup og er nú að
leita að styrkjum upp í þessa mikil-
vægu fjárfestingu. Nýju mótorarn-
ir eru 75 hestöfl hvor og af gerð-
inni Evinrude. Þessir mótorar eru
mun hagkvæmari í rekstri og eyða
minna bensíni. Það þýðir meiri
drægni fyrir bátinn sem getur skipt
miklu máli. Samhliða nýju mótor-
unum voru allar raflagnir endur-
nýjaðar í bátnum sem og siglinga-
ljósin en sett voru upp siglingaljós
með led-perum. tfk
Þessa dagana er að ljúka frágangi
við viðbótar kennslustofur á lóð
Grundaskóla á Akranesi. Fyrir
nokkrum árum þurfti að koma fyr-
ir lausri kennslustofu á lóðinni til
að taka við fjölgun barna í skóla-
hverfinu. Sú þróun heldur áfram
og fyrir þetta skólaár var ákveð-
ið að bæta við annarri kennslu-
stofu, auk þess að byggja tengi-
gang á milli þeirra. Þráinn Gísla-
son byggingameistari er verktaki
við byggingu og uppsetningu nýju
kennslustofunnar sem er rúmir
sjötíu fermetrar fyrir utan tengi-
bygginguna, en sú kennslustofa
sem fyrir var er um 80 fermetrar.
Kennsla mun byrja í nýja skóla-
rýminu á næstu dögum.
Hrönn Ríkharðsdóttir skóla-
stjóri Grundaskóla segir að nauð-
synlegt hafi verið að bæta við nýrri
kennslustofu nú í haust sökum
þess að fjölgað hafi um eina bekkj-
ardeild í skólanum. Þar með muni
viðbótar kennsluhúsnæðið ásamt
tengibyggingunni nýtast mun bet-
ur en áður. Lausa kennslustofan
sem fyrir var hafi ekki nýst fyrir
bekkjarkennslu vegna þess hversu
fjölmennir bekkirnir eru. Hún hafi
því verið nýtt í sérkennslu og ýms-
an stuðning. Hrönn segir að haust-
ið 2016 í síðasta lagi verði svo að
bæta við þriðju lausu kennslustof-
unni vegna þess að þá fjölgi enn
um bekkjardeild í skólanum.
þá
Björgunarsveitarmennirnir Svavar Áslaugsson og Sveinn Pétur Þorsteinsson voru
að prufukeyra nýju mótorana fyrir síðustu helgi.
Klakksmenn endurnýja
mótora björgunarbátsins
Hluti iðnaðarmanna sem vinna að
frágangi kennslustofanna: Ágúst
Hjálmarsson rafvirki, Þráinn Gíslason
byggingameistari og Hlynur Sigur-
dórsson rafvirki.
Viðbótar kennslustofur að verða
tilbúnar við Grundaskóla
Viðbótarkennslustofurnar tvær á lóð Grundaskóla.