Skessuhorn - 30.10.2013, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Fyrr á þessu ári var blásið til hönn-
unarsamkeppni um lopapeysu úr ís-
lensku ullinni ásamt ritgerðarsam-
keppni um forystufé. Hugmyndin
kviknaði í kjölfar aftaka veðurs sem
gekk yfir Norður- og Norðaustur-
land í september 2012 með skelfi-
legum afleiðingum fyrir búfénað
á svæðinu. Hönnunarsamkeppnin
fékk heitið Óveðurspeysan, hönn-
unarsamkeppni til heiðurs íslensku
sauðkindinni. Úrslit í keppninni
voru tilkynnt síðastliðinn laugar-
dag á Kjötsúpudeginum á Skóla-
vörðustíg í Reykjavík. Reyndist það
vera Aðalheiður Lára Guðmunds-
dóttir í Grundarfirði sem varð hlut-
skörpust í samkeppninni um óveð-
urspeysuna. Þema samkeppninn-
ar var óblíð veðrátta. Aðalheið-
ur hafði séð keppnina auglýsta og
ákvað að taka þátt. Þetta er í fyrsta
skipti sem hún tekur þátt í keppni
af þessu tagi en er þó enginn ný-
græðingur í prjónaskap. „Ég byrj-
aði að prjóna þegar ég var fimm ára
gömul og er búin að prjóna dag-
lega í mörg ár. Það má segja að ég
hafi verið á undan þessari prjóna-
tísku sem er núna,“ segir Aðalheið-
ur í samtali við Skessuhorn.
Hugmyndin fæddist
í garnið
Hugmyndin að peysunni kvikn-
aði þegar Aðalheiður var hjá for-
eldrum sínum en þau búa að Ytri –
Knarrartungu á Snæfellsnesi. „Ég
hafði verið að hjálpa þeim á bæn-
um en það var skítaveður fram eftir
vori. Einn daginn horfði ég í Búða-
hraunið og fékk hugmynd. Ég melti
hugmyndina í sumar og svo byrjaði
ég að prjóna. Hugmyndin fæddist
bara í garnið,“ segir hún.
Peysa Aðalheiðar heitir Kafla
en alls bárust 140 peysur í sam-
keppnina. Dómnefnd um peysuna
sem skipuð var þeim Huldu Há-
konardóttur frá Ístexi, Jóhönnu
Pálmadóttur, sauðfjárbónda á Akri
og Gísla S. Einarssyni frétta-
manni hjá RÚV. Þau
voru sammála um að
Kafla væri vel að því
komin að bera titilinn
Óveðurspeysan 2013.
Í greinargerð dóm-
nefndar segir: „Þessi
peysa er óveður!
Það þarf kannski
ekki að hafa mikið
fleiri orð um það.
Þessi peysa er mik-
ið meira en flík. Hún
er ekki síður myndverk. Mynd-
verk sem lýsir því sem um er að
ræða. Myndverk sem lýsir óblíðri
íslenskri náttúru í hnotskurn. Þessi
peysa fangar athyglina og rífur fólk
með sér upp á hálendið, út í hraun
og inn í kolsvarta hríðina.“ Það var
tvennt sem heillaði dómnefndina
sérstaklega. Annars vegar var það
litasamsetningin í peysunni og hins
vegar mynstrið sem er að dóm-
nefndarinnar sögn það óreglulegt
að ekki sé hægt að kalla það eigin-
legt mynstur.
Kafla jarmaði sér til lífs
Nafnið á peysunni er sérstakt en
það á sér skemmtilega sögu. „Pabbi
átti mosótta kind þegar ég var lít-
il. Ég sagði alltaf að hún væri köfl-
ótt í framan og því fékk hún nafn-
ið Kafla. Svo var það einu sinni í
vondu veðri að hana fennti í Búða-
hrauni ásamt öðrum kindum. En
Kafla lét alltaf heyra í sér ef hún
heyrði umgang. Það var því þannig
að þegar nágranninn gekk framhjá
staðnum sem hún var, þá jarmaði
hún. Það má því segja að hún hafi
jarmað sér til lífs,“ segir Aðalheið-
ur. Henni fannst það táknrænt fyr-
ir þessa keppni, þar sem hún fékk
hugmyndina í Búðahrauninu og til-
efnið var þessi söfnun. Aðalheiður
var að vonum ánægð með að hafa
unnið í samkeppninni en verðlaun-
in voru ekki af verri endan-
um. Hún fékk 100 þús-
und krónur, flugmiða fyrir tvo með
Flugfélagi Íslands og gistingu ásamt
kvöldverði á Icelandair hóteli.
Fullorðnir sendu
inn ritgerðir
Alls bárust í ritgerðarsamkeppn-
ina 39 ritgerðir, sögur og ljóð og
var þema hennar forystufé. Fyrstu
verðlaun hlaut ritgerð nr. 9 sem bar
heitið Skeggi og var send inn und-
ir dulnefninu Skegglaus. Höfundur
reyndist vera Jón Hólmgeirsson frá
Akureyri. Athygli vakti að einungis
fáar af þeim ritgerðum sem bárust í
keppnina voru eftir börn eða ung-
linga. Þetta bendir til þess að með
breyttri búsetu í landinu og breytt-
um búskaparháttum fari þekking á
eiginleikum forustufjár þverrandi
og sé í raun bundin við takmarkað-
an hóp fullorðins fólks.
grþ/ Ljósm. Hörður Kristjánsson á
Bændablaðinu.
Félagsfundur var haldinn í Neðri-
bæjarsamtökunum í Borgarnesi
síðastliðinn mánudag í Edduver-
öld. Að sögn Sigríðar Margrétar
Guðmundsdóttur var farið yfir
verkefni liðins árs sem aðallega fól-
ust í að halda Brákarhátíð og sækja
um styrk í Framkvæmdasjóð ferða-
þjónustunnar til göngustígagerð-
ar og sögumerkinga. Í fjárhagsáætl-
un Borgarbyggðar var gert ráð fyrir
fimm milljónum til verkefnisins og
frá Framkvæmdasjóði fengust fimm
milljónir. Stígagerðin verður alfar-
ið í höndum Borgarbyggðar.
Á fundinum fór Hjalti Rósin-
krans Benediktsson yfir fjármál-
in. Félagið stendur vel og á um 500
þúsund í sjóði. Þá fór Guðrún Jóns-
dóttir yfir áherslur sem lagðar voru
til grundvallar umsókninni í Fram-
kvæmdasjóðinn og sýndi myndir af
þeim stöðum sem mikilvægt er að
laga og með tilliti til umhverfis og
merkinga. Það er aðallega Suður-
nesið og gönguleiðin upp að minn-
ismerkinu um Brák og leiðin frá
Landnámssetri út í Englendinga-
vík og fyrir Vesturnesið. Fram kom
á fundinum að nauðsynlegt væri
að setja upp lýsingu á hluta þess-
ara leiða.
Stofnendur víkingafélagsins
Glæsis í Grundarfirði, þeir Þor-
grímur og Markús Ingi mættu á
fundinn. Glæsir er ungt félag með
um 60 skráða félaga og þar af um
20 mjög virka. Félagið hefur skap-
að vettvang fyrir bæði börn og full-
orðna að vinna saman að skapandi
og skemmtilegum verkefnum til
góðs fyrir bæjarfélagið. Glæsismenn
sýndu gestum á fundi Neðribæjar-
samtakanna afrakstur vinnu sinn-
ar sem var fallegt handverk allt frá
öxum, hjálmum og hringabrynjum
til vattasaumaðra sokka, skófatnað-
ar, leðurveskja og skartgripa.
Eftir að gestirnir voru horfnir til
síns heima tók Páll við af Guðrúnu
og útskýrði frekar hvar göngustíga-
málið væri statt. Búið er að hanna
stíg sem lagður verður ofarlega
í fjöruborðinu á Suðurnesinu en
byggð verður brú á hluta leiðar-
innar. Gert er ráð fyrir að allt fjár-
magnið þ.e. 10 milljónir fari í sjálfa
göngustígagerðina á þessu ári, en á
næsta ári verði gert ráð fyrir fjár-
magni til sögumerkinga.
Bjarni slökkviliðsstjóri bar fram
þá hugmynd að nafni samtakanna
yrði breytt í Hollvinir Borgarness
þar sem nafnið Neðribæjarsamtök-
in leiði til þess að fólki finnist vett-
vangur samtakanna einskorðast við
neðri bæinn. Hugmyndin var bor-
in upp til atkvæða og samþykkt ein-
róma. Sigríður Margrét tók að sér
að láta breyta nafninu.
Rætt var um hvaða verkefni væri
brýnt að vinna á næsta ári. Eftir-
farandi verkefni voru samþykkt: Í
fyrsta lagi að aðventuhátíð og jóla-
markaður fari fram. Hátíðin yrði
sambærileg við þá sem Júlía hafði
frumkvæði að í fyrra með góðum
árangri en þennan dag yrði líka
jólamarkaður. Athugað hvort hægt
er að fá Mjólkursamlagshúsið lánað
þennan eina dag. Skúli Halldórs-
son sér um jólamarkaðinn. Þá verð-
ur gleðileikurinn Guðdómlegi sett-
ur upp eins og fyrri ár 27. desemb-
er, það er ef einhver fæst til að taka
framkvæmdina að sér. Hér með
auglýst eftir framkvæmdastjóra
og leikstjóra. Ákveðin var hreins-
un fjörunnar, fjarlægja oddhvassa
steina sem liggja í leðjunni. Um-
sjónarmenn Ingibjörg Hardgrave
og Anna Ólafsdóttir. Mætti víkka
þetta úr í alsherjar hreinsunardag.
Ákveðið að gera sögukort af Borg-
arnesi með grafiskum teikningum
af húsum. Gönguleiðir merktar og
helstu þjónustustaðir. Sambærileg
kort hafa verið unnin í Reykjavík
og á Ísafirði sem hafa notið mikilla
vinsælda. Sigursteinn Sigurðsson
hefur umsjón með verkefninu. Loks
verður Brákarhátíð með svipuðu
sniði og í fyrra. Verkefnisstjóri ósk-
ast. Athugað verður með að fá aftur
listamann til að vinna með börnum
og unglingum. Fá hlaupahópinn
Flandra til að sjá um Brákarhlaup-
ið. Helga, Hrafnhildur Tryggva-
dóttir og Anna Dóra Ágústsdótt-
ir voru endurkjörnar skreytinga-
spírur fyrir gula og bláa hverfið,
og Hildur Hallkelsdóttir og Guðný
Guðmarsdóttir koma nýjar inn fyr-
ir rauða hverfið. Nokkrar umræður
sköpuðust um öll verkefnin og mik-
ill hugur í fólki að láta til sín taka.
mm
Nafni Neðribæjarsamtakanna breytt í Hollvini Borgarness
Grundfirðingur vann hönnunarsamkeppni um Óveðurspeysu
Fyrstu verðlaun í
ritgerðarsamkeppn-
inni um Forystusauði hlaut ritgerðin
Skeggi eftir Jón Hólmgeirsson frá
Akureyri. Í öðru sæti varð ritgerðin
Leitir eftir Birgi Rúnar Davíðsson
frá Akureyri. Þriðju verðlaun hlaut
ritgerðin Forystufé eftir Áslaugu Jó-
hannesdóttur úr Reykjavík.
Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir
hlaut fyrsta sæti í keppninni. Hér er
hún ásamt stúlku úr ungmennafélag-
inu Aftureldingu í Mosfellsbæ sem
sýndi vinningspeysuna Köflu.
Vinningshafar í hönnunarsamkeppninni ásamt stúlkum sem sýndu peysurnar. Í
þriðja sæti varð peysa undir nafninu Vedda sem hönnuð var af Marsibil Baldurs-
dóttir á Selfossi. Í öðru sæti varð peysan 20. apríl en hönnuður hennar er Berglind
Sveinsdóttir í Hnífsdal. Í fyrsta sæti var peysan Kafla, hönnuð af Aðalheiði Láru
Guðmundsdóttur í Grundarfirði.