Skessuhorn - 30.10.2013, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Heppinn lottóspilari á Akranesi í
næstsíðasta laugardagslottói reynd-
ist vera ung þriggja barna móðir á
Akranesi. Hún er með lottómiða í
áskrift en keypti af tilviljun tíu raða
seðil að auki þar sem potturinn var
sexfaldur. Það var góða veðrið á
Akranesi í vikunni áður sem leiddi
til þessara happakaupa. Ákvað kon-
an að bóna bílinn, fór í Olís og
keypti sér bón, og ákvað að taka að
auki 10 raðir og Jóker. Það var svo
á laugardagskvöldið sem hún veitti
því athygli að margir vinir hennar á
Facebook voru að spyrjast fyrir hver
hefði keypt lottómiða í Olís á Akra-
nesi og unnið pottinn. Konan fór þá
út í bíl og náði í miðann sinn og ætl-
aði í fyrstu ekki að trúa sínum eig-
in augum. Nú getur konan og fjöl-
skylda hennar keypt draumabíl-
inn og er búin að greiða upp skuld-
ir, eins og segir á vef Íslenskrar get-
spár. Þess má geta að hinn vinnings-
hafinn í laugardagslottóinu dreymdi
fyrir vinningstölunum. mm
Brimilsvallakirkja á Snæfellsnesi var
vígð 28. október 1923 og varð því
90 ára sl. mánudag. Þetta er fyrsta
kirkjan á Brimilsvöllum en þar var
bænahús en áður var kirkja á Fróðá.
Miklar deilur urðu 1892 þegar
kirkjan á Fróðá var flutt til Ólafsvík-
ur. Lauk deilunum ekki fyrr en árið
1915 þegar Ólafsvíkursókn var skipt
á ný og kirkjan á Brimilsvöllum
reist. Var messað í félagsheimilinu
á Brimilsvöllum þar til nýja kirkj-
an var vígð. Voru á þessum tíma 140
manns í sókninni. Síðar varð Ólafs-
víkurprestakall ein sókn með tveim-
ur kirkjum.
Hátíðarmessa var síðastliðinn
sunnudag af þessu tilefni í fallegu en
köldu veðri. Að messu lokinni bauð
sóknarnefndin upp á kaffiveitingar á
Brimilsvöllum. Þar bárust kirkjunni
góðar gjafir í tilefni afmælisins.
Systkinin Sturla, Snorri og Auð-
ur Böðvarsbörn gáfu kirkjunni nýj-
ar sálmabækur í minningu móður
sinnar Elínborgar Ágústsdóttur en
hún var fædd í Mávahlíð og bar allt-
af sterkar taugar til kirkjunnar. Fjöl-
skyldan á Brimilsvöllum þau Vero-
nica, Gunnar og börn færðu kirkj-
unni nýja Biblíu og peningagjöf
sem nota á til endurbóta á kirkj-
unni. Sóknarpresturinn séra Óskar
Ingi Ingason tók við gjöfunum fyr-
ir hönd kirkjunnar. Að lokum voru
sálmabækurnar teknar í notkun með
því að kaffigestir sungu sálm núm-
er 402, Drottinn vakir en hann er
samin af Sigurði Kristófer Péturs-
syni frá Klettakoti í Fróðárhreppi.
Var sálmur þessi einn af uppáhalds-
sálmum Elínborgar Ágústsdóttur
og því tilvalið að taka þær í notkun
með því að syngja hann.
þa
Síðastliðinn föstudag var athöfn í sal
Félags eldri borgara á Akranesi og
nágrenni (FEBAN) við Kirkjubraut
á Akranesi. Þar voru mættar kon-
ur úr Lionsklúbbnum Eðnu á Akra-
nesi sem færðu FEBAN hjartastuð-
tæki að gjöf. Tækið er létt og með-
færilegt og leiðir notandann í gegn-
um endurlífgunarferilinn. Ingi-
mar Magnússon formaður FEB-
AN veitti tækinu viðtöku og þakk-
aði höfðinglega gjöf frá lionskon-
um. Hann kvaðst þó vona að ekki
kæmi til þess að nota þyrfti tækið í
húsinu, enda ekki góð aðstaða til að
koma sjúklingum þar milli hæða.
Hjartastuðtækið er að verðmæti
250 þúsund krónur. Það var Krist-
rún Líndal Gísladóttir formaður
líknarnefndar sem afhenti hjarta-
stuðtækið. Eðna var 30 ára á síð-
asta ári og hefur oft stutt við líkn-
armál og góð málefni á svæðinu. Í
líknarsjóðinn er aflað peninga með
ýmiss konar fjáröflunum, svo sem
með sölu dagatala sem byrjað verð-
ur á innan skamms. Dagatölin eru
myndskreytt með myndum sem fé-
lagar í Ljósmyndaklúbbnum Vitan-
um leggja til. þá
Líkt og undanfarin ár mun Sund-
félag Akraness gangast fyrir rekstri
Útvarps Akraness eina helgi í upp-
hafi aðventu. Nú verður útvarp-
ið í tuttugasta og fimmta skipti.
„Nú styttist í ómissandi menn-
ingarviðburð Sundfélags Akra-
ness. Helgina 29. nóvember til 1.
desember verður Útvarp Akraness
starfrækt á Akranesi. Foreldrar,
iðkendur auk margra annarra hafa
staðið að fjölbreyttri og vandaðri
dagskrá í gegnum árin að ógleymd-
um tæknimönnum sem hafa haldið
tryggð við félagið með vinnu sinni.
Fyrirtæki og stofnanir á Akranesi
hafa alltaf auglýst mikið í útvarp-
inu og með því stutt vel við sund-
íþróttina í bænum,“ segir í tilkynn-
ingu frá SA.
Rekstur útvarps í upphafi að-
ventu hefur skapað skemmtilega
menningarhefð á Akranesi. Fjöldi
Skagamanna tengir byrjun jóla-
undibúnings við útsendingarhelg-
ina, margir hlustendur fara alls
ekki út fyrir útsendingarsvæði út-
varpsins þessa helgi. Á næstunni
mun fyrirtækjum og stofnunum í
bænum berast boð um að auglýsa
í útvarpinu. Útvarpsnefnd biður þá
sem luma á hugmyndum eða vilja
vinna að þáttagerð að setja sig hið
snarasta í samband við Hjördísi
Hjartardóttur útvarpsstjóra á net-
fanginu haholt3@simnet.is mm
Bónferð þriggja barna móður
skilaði 31 milljón
Kristín Líndal Gísladóttir formaður líknarnefndar Eðnu, Ingimar Magnússon formaður FEBAN og Marína Kristín Óskarsdóttir
formaður Eðnu ásamt þeim sem viðstaddir voru athöfnina þegar hjartastuðtækið var afhent.
Eðnukonur gefa hjartastuðtæki til FEBAN
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður hefur fylgt útvarpi Akraness í gegnum
tíðina og lagt verkefninu ómælt lið.
Útvarp Akraness á aldar-
fjórðungs afmæli í ár
Svipmynd úr hljóðveri Útvarps Akraness en börn hafa þar skipað stóran sess í
gegnum tíðina.
Ábúendur á Brimilsvöllum og séra
Óskar Ingi.
Brimilsvallarkirkju bárust góðar gjafir á 90 ára afmælinu
Systkinin Snorri, Auður og Sturla sem ættuð eru frá Mávahlíð ásamt sóknarprest-
inum séra Óskari Inga.