Skessuhorn


Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 29
29MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Opinn dagur í Brákarhlíð Laugardaginn 2. nóvember á milli kl. 15:00 og 17:00 Gestum er boðið að skoða heimilið, bæði nýju hjúkrunarálmuna sem og þann hluta eldra húss sem búið er að endurbæta. Einnig verða til sýnis og sölu munir í handavinnustofu. Vöfflukaffi verður selt gegn vægu gjaldi, allur ágóði rennur í ferðasjóð heimilisfólks í Brákarhlíð. Hlökkum til að sjá ykkur! Allir velkomnir Ýmislegt hefur verið á döfinni hjá Nemendafélagi Menntaskólans í Borgarfirði síðustu vikuna. Þeim var boðið að fara með 25 nemendur á menningarkvöld NFNV á Sauðár- króki síðastliðinn föstudag og voru nemendur á síðasta ári í forgangi að fá miða. Menningarkvöldið var vel heppnað og nóg um að vera. Þar var meðal annars dragsýning, lík- amsmálning og uppistand. Í fram- haldi af því fóru nemendur á dans- leik á Sauðárkróki og loks var gist í skólanum þar. „Undanfarnar vik- ur eru líka búin að vera bíómynda- kvöld reglulega hjá okkur. Þá hitt- ist fólk bara og slakar á saman,“ seg- ir Daði Freyr formaður nemenda- félagsins. Áframhaldandi skemmti- legir viðburðir eru væntanlegir. „Það sem helst er framundan núna er „West – Side“ keppnin. Við erum á fullu að undirbúa enda styttist í að hún verði haldin. Svo er Hrekkja- vökuball í næsta mánuði en þá mæta allir í grímubúning á ballið,“ bæt- ir hann við. Sunneva Lind vann Edrúpottinn Á Skammhlaupsballinu sem Skessu- horn sagði frá í síðasta tölublaði gátu nemendur skráð sig í svokall- aðan Edrúpott. Einn vinningshafi var dreginn upp úr pottinum og hlaut hann verðlaun. Í þetta skipt- ið var nafn Sunnevu Lindar Ólafs- dóttur dregið upp úr edrúpottinum. Sunneva Lind er fyrsta árs nemi á félagsfræðibraut í FVA. Hún fékk að launum myndavél og minniskort. „Þetta er allt í lagi, bara svolítið mikil breyting frá grunnskólanum,“ segir Sunneva aðspurð um hvernig henni finnst lífið í fjölbraut á Akra- nesi vera. „Það eru fleiri sem drekka á böllunum. Á báðum böllunum sem hafa verið í vetur hefur verið einhver ölvun en þegar maður fór á böll í grunnskóla var náttúrulega enginn að drekka,“ bætir hún við. Sunneva segir þó að það sé alls ekki mikið um ölvun og flestir taki þátt í edrúpottinum. Hún telur að þessi hvatningarverðlaun virki hvetjandi fyrir nemendur og hjá flestum er stefnan tekin á að vera með í „of- uredrúpottinum“ sem dregið verð- ur úr í desember, en til að vinna hann þarf viðkomandi nemandi að hafa verið edrú á öllum dansleikjum fram að því. Sunnevu þótti gaman á Skammhlaupsballinu en hún fór þangað ásamt vinum sínum úr skól- anum. „Það er allur vinahópurinn minn sem tekur þátt í edrúpottinum og enginn þeirra er að drekka. Það var rosalega gaman á ballinu,“ segir hún að lokum og bætir við að ekki hafi spillt að fá verðlaunin. Hún var þó ekki á staðnum þegar dreg- ið var, en frétti fljótt af vinningnum í gegnum vinina. Leiklistarnámskeið hjá NFFA Nemendafélag Fjölbrautaskólans á Akranesi verður með leiklistarnám- skeið fyrir nemendur um helgina. „Námskeiðið verður haldið hér í skólanum og skráningin byrjaði strax eftir síðustu helgi. Það er leik- listarklúbburinn sem heldur nám- skeiðið en einnig verða Halli Melló og Helga Haralds sem koma að þessu,“ segir Margrét Helga Ísak- sen, formaður NFFA. „Svo er West – Side að fara að byrja en við erum líka á fullu að reyna að finna dag- setningar fyrir fleiri uppákomur.“ Forvarnarfræðsla og hugsað um heilsuna á Snæfellsnesi Nýnemar í Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga fengu á dögunum heim- sókn frá Magnúsi Stefánssyni í Ma- rita-fræðslunni. Marita-fræðslan er verkefni sem fræðir börn, unglinga og foreldra þeirra um skaðsemi fíkniefna. Magnús hélt fyrirlestur og fræðslu fyrir ungmennin. Stað- reyndir um fíkniefni, kannabis og áhrif neyslu þeirra voru aðaláhersl- an í fyrirlestrinum. Magnús fór líka inn á skaðsemi áfengisdrykkju sem vímugjafa og tók umræðu um harð- ari efni eins og MDMA, sem hef- ur verið mikið fjallað um í fjölmiðl- um undanfarið. Vel var mætt á fyr- irlesturinn og hlustuðu nýnemar af áhuga á Magnús. Herkúleskeppnin er haldin í ann- að sinn í skólanum þessa dagana. Hún var haldin í fyrsta sinn í fyrra og tengist verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli. Markmiðið með Herkúleskeppninni er að hvetja nemendur til að hreyfa sig og hugsa um heilsuna. „Þetta er liðakeppni og byggist á því að safna klukkutím- um af hreyfingu. Það er þá þann- ig að ef einn í liðinu fer í ræktina í klukkutíma, þá skráist sá klukku- tími á liðið. Svo fer einhver ann- ar í fótbolta í tvo tíma og þá skrá- ist það líka og þannig safnast þetta upp,“ útskýrir Guðmundur Jens- son, formaður NFSN. „Við tökum þátt í West - Side núna fljótlega og það fellur inn í Herkúleskeppnina. Þeir sem taka þátt í íþróttum á West – Side fá tímana skráða í Herkúles líka,“ heldur hann áfram. En nemendur í FSN hugsa líka um fleiri þætti sem stuðla að góðri heilsu. „Þemað í Heilsueflandi framhaldsskóla verkefninu núna er geðrækt og við leggjum mikla áherslu á svefn. Unglingar eru nán- ast hættir að sofa, þeir hanga bara í tölvunni og alls konar tækjum þann- ig að við leggjum áherslu á að þeir passi upp á svefninn,“ segir Guð- mundur Jensson. grþ Vökudagar, hin árlega lista- og menningarhátíð á Akranesi, hefj- ast í dag. Eins og sjá má á mið- opnu blaðsins kennir ýmissa grasa á Vökudögum þetta árið en þeir standa til 9. nóvember næstkom- andi. Fjöldinn allur af tónleikum, myndlistarsýningum, ljósmynda- sýningum og fleir viðburðum eru á dagskrá. Ýtarlega var fjallað um Vökudagana í síðasta tölublaði Skessuhorns. Á Safnasvæðinu í Görðum fara nokkrir viðburðir fram: Náttúruverk sýnd með tvenns konar hætti Föstudaginn 1. nóvember verða tvær sýningar opnaðar á Safnasvæð- inu milli kl. 16 og 20. Guttorm- ur Jónsson verður með sýningu á skúlptúrum unnum úr grjóti. „Fyr- ir mér er hvert grjót einstakt og ber að meðhöndla sem slíkt. Fyr- irfram ákveðnar hugmyndir þurfa að aðlagast eðliseiginleikum þess, formi og þéttleika. Niðurstaðan er sáttmáli milli mín og náttúrunnar. Með verkum mínum er ég að reyna að sýna hvað býr í grjótinu,“ seg- ir Guttormur sjálfur um verk sín. Kristín Tryggvadóttir verður með myndlistarsýninguna Óbeislað- ur kraftur sem unnin er með krafta náttúrunnar í huga. Sýningin er af- rakstur vinnu síðastliðinna tveggja ára þar sem efnisnotkun er aðal- lega olía, blek, kol og ýmis fljót- andi efni, sem gefa oft af sér undra- verð áhrif og efniskennd í verk- in. Kristín fæst við aðdráttaraflið og togkraftinn í glímu sinni við lit- ina. Kristín hefur undanfarið unnið á mjög stóra striga og fleti og gefa þeir henni aukið rými og frelsi til mikillar tjáningar. Afhending menningarverðlauna Þá verður afhending menningar- verðlauna Akraneskaupstaðar 2013 í Safnaskálanum kl. 16:30 á föstu- daginn. Árlega veitir Akraneskaup- staður sérstök menningarverðlaun til þeirra fyrirtækja, félagasamtaka eða einstaklinga sem hafa stuðlað að eflingu menningar- og listalífs á Akranesi. Mikil leynd hvílir yfir því hver það er sem hlýtur verðlaunin og verður það ekki gefið upp fyrr en á staðnum. grþ Kristín Tryggvadóttir vinnur að undirbúningi sýningarinnar Óbeislaður kraftur. Myndlist og menningarverð- laun á Safnasvæðinu Framhaldsskólahornið West – Side keppni framhaldsskólanna er framundan „The Ragnars,“ sigurliðið í Herkúles keppninni í fyrra. Sunneva Lind Ólafsdóttir edrúpotts- vinningshafi og frændi hennar Albert Páll Albertsson á leið á Skammhlaups- ballið, klædd eftir þema kvöldsins sem var áttundi áratugurinn. Magnús í Marita-fræðslunni upplýsir nýnema í FSN um skaðsemi fíknefna.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.