Skessuhorn - 05.02.2014, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 6. tbl. 17. árg. 5. febrúar 2014 - kr. 600 í lausasölu
Fermingarboðskort
www.framkollunarthjonustan.is
Jón Jónsson
ÚTSÖLULOK
Laugardag
8. febrúar
ÚTSÖLUVÖRUR
50%
AFSLÁTTUR
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Þórarinn Eldjárn segir
sögu Barónsins á
Hvítárvöllum
Næstu sýningar:
7. febrúar kl. 20:00 UPPSELT
8. febrúar kl. 17:00 UPPSELT
15. febrúar kl. 17:00 Örfá sæti laus
2. mars kl. 16:00
Miðapantanir í síma 437 1600 og
landnam@landnam.is
Miklir bókaflutningar áttu sér stað
í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borg-
arnesi mánudaginn 28. janúar síð-
astliðinn. Þá var unnið við að rýma
bókasal Héraðsbókasafns Borgar-
fjarðar á annarri hæð hússins þar
sem til stóð að leggja nýtt teppi á
gólf salarins. Um flutninginn sá
hópur körfuboltaiðkenda í 8. flokki
hjá Skallagrími ásamt foreldr-
um, forráðamönnum og starfsfólki
Safnahússins. Að sögn Sævars Inga
Jónssonar héraðsbókavarðar tók
flutningurinn um fjóra tíma og var
góð stemning í hópnum á meðan á
honum stóð. Gróflega má áætla að
um 25.000 bækur hafi verið færðar
til í flutningunum. Teppalagning-
in stóð yfir í eina viku og var bóka-
safnið lokað á meðan. Bækurnar
voru að endingu fluttar aftur á sinn
stað og var bókasafnið opnað aftur
á mánudaginn í liðinni viku.
hlh/ Ljósm. Guðrún Jónsd.
„Okkur vantar aðstoð – við erum
úti við Faxaflóa – Yfir - Báturinn er
farinn að leka mikið og við erum að
fara í flotgallana.“ Þannig hljómaði
neyðarkall sem heyrðist um borð í
björgunarbátnum Margréti Guð-
brandsdóttur frá Akranesi þar sem
björgunarsveitarmenn voru stadd-
ir á æfingu skammt frá Akranesi
um nónbil á sunnudaginn. Eftir
neyðarkallið barst ekki tilkynning
frá sjálfvirku tilkynningaskyldunni
eða neyðarsendum og ekki sáust
neyðarblys á lofti. Sama neyðarkall
heyrðu starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar einnig en það barst á alþjóð-
legri neyðarrás skipa. Ekki náðist
aftur samband við þann eða þá sem
sendu neyðarkallið. Samstundis
var boðuð víðtæk leit allra tiltækra
björgunaraðila allt frá Reykjanesi í
suðri til Rifs í norðri. Leit fór fram
af sjó og úr lofti með þátttöku fimm
þyrla, margra báta og skipa og um
tvö hundruð einstaklinga sem til-
tækir voru frá björgunarsveitunum.
Auk þyrlanna TF-LÍF og TF-GNÁ
frá Landhelgisæslunnar, tóku þátt í
leitinni finnskar þyrlur sem staddar
voru hér á landi vegna æfingarinnar
Iceland Air Meet 2014. Björgunar-
sveitarmenn gengu fjörur og marg-
ir voru á útkikkinu. Seint á sunnu-
dagskvöldinu var leitinni frestað
og staðan endurmetin. Þá var fólki
reyndar farið að gruna að um gab-
bútkall hafi verið að ræða enda ekki
vitað um neina sem saknað var af
sjó.
Leitarsvæðið var takmarkað út
frá sendum á Bláfjöllum og Fróð-
árheiði. Var með þeim hætti hægt
að minnka það, en leitarsvæðið
náði engu að síður frá Malarrifi að
Garðskaga. Landhelgisgæslan og
Landsbjörg leituðu ítarlega á aust-
anverðum Faxaflóa meðan finnsku
björgunarþyrlurnar leituðu á norð-
an- og vestanverðum Faxaflóa. Þá
tók björgunarskipið Björg frá Rifi
m.a. þátt í leitinni og var á svæðinu
sunnan við Snæfellsnes. Norðaust-
an hvassviðri var á Faxaflóa þegar
leitin fór fram á flóanum. Svæðis-
stjórn 4 var virkjuð og var til húsa
á Akranesi en auk þess var samhæf-
ingarstöðin í Skógarhlíð í Reykja-
vík virkjuð. Norðaustan hvassviðri
var á Faxaflóa meðan leitin stóð yfir
á sunnudaginn og skilyrði því frem-
ur slæm til leitar.
Eftir hádegi á mánudaginn ákvað
Landhelgisgæslan að engar for-
sendur væru til áframhaldandi leit-
ar að hinum meinta bát. Slá verður
því föstu að um platútkall hafi verið
að ræða. Slíkt er litið afar alvarleg-
um augum enda vítavert. mm
Fluttu
bókaflóð
Víðtæk leit eftir að neyðarkall barst –
sennilega var um gabb að ræða
Horft norður eftir Faxaflóa á
sunnudaginn.
Ljósm. Anton Örn Rúnarsson BA.
Þessa mynd tók Anton Örn Rúnarsson
félagi í Björgunarfélagi Akraness um
borð í björgunarbáti félagsins, Mar-
gréti Guðbrandsdóttur.
Stjórnstöð á svæði 4 hjá Landsbjörgu
var til húsa á Akranesi. Ljósm. ki.
Félagar úr Björgunarsveitinni Brák
í Borgarnesi komu við á Akranesi
síðdegis á sunnudaginn og tóku elds-
neyti. Ljósm. ki.