Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 „Borgarnes er happíness, eng- ar áhyggjur, ekkert stress. Skalla- grímur er alltaf fress, enda eru þeir frá happíness.“ Svo syngur Magn- ús Valdimarsson betur þekktur sem Maggi Mix í lagi sínu ,,Borgarnes er happíness.” Lagið sendi hann frá sér fyrir tæpum tveimur árum. Maggi var þá nýfluttur í Borgar- nes og nýbúinn að kynnast Skalla- grímsliðinu í körfubolta sem hann tileinkaði lagið. Fyrir þá sem ekki þekkja til Magga Mix þá er hann ein skærasta netstjarna Íslendinga. Frá 2009 hefur hann verið iðinn við að senda frá sér efni úr eigin smiðju á borð við tónlistarmyndbönd og matreiðsluþætti á myndbandavef- num YouTube. Myndböndin hafa notið sívaxandi vinsælda og mælist heildaráhorf þeirra nú yfir 600 þús- und. Því hafa fjölmargir Íslend- ingar fræðst og skemmt sér við að horfa á myndbönd Magga mix aftur og aftur. Boðskapur Magga er ekki flókinn. Markmið hans er að vera hress, kátur og jákvæður stuðbolti og þannig minna fólk á að gleyma ekki að njóta lífsins í hinu daglega amstri. Blaðamaður Skessuhorns tók þennan hressa stuðbolta tali í síðustu viku og ræddi við hann um frægð hans og frama í netheimum. Byrjaði með laginu „Sexí bomba“ „Þetta byrjaði raunar allt þegar ég setti saman lagið ,,Sexí bomba” þegar ég var 16 ára,“ segir Maggi Mix við upphaf spjalls. „Ég er fæddur árið 1985 þannig að þetta var 2001. Þá var ekkert Facebo- ok og ekkert YouTube. Ég söng ,,Sexí bomba” á einni skemmtun í Kópavogi, þaðan sem ég er frá. Einhver í salnum tók upp lagið og setti það á netið. Myndbandinu var deilt víða á netinu í gegnum tölvu- pósta og tenglasíður. Þannig fékk lagið góða útbreiðslu. Þá komst Maggi Mix fyrst á kortið. Ég hélt áfram að grúska í músík. Um leið tileinkaði ég mér myndbandagerð og klippingar með því að læra af efni sem ég fann á netinu. Í byrjun ársins 2009 stofnaði ég síðan mitt svæði á YouTube og byrjaði að setja inn myndbönd. Í fyrstu fékk ég lít- il viðbrögð en síðan jókst áhorfið. Ég stofnaði síðan sérstaka Magga Mix Facebook síðu í apríl 2009. Þá fór boltinn að rúlla,“ segir Maggi. Hann hefur síðan svo sannarlega sópað að sér aðdáendum úr öllum áttum. Þúsundir fylgjast með Góður meirihluti íslensku þjóð- arinnar notar nú samfélagsmiðla Internetsins. Höfuð og herðar ber Facebook hér á landi. Talið er að tæplega 80% af landsmönnum 14 ára og eldri séu notendur miðils- ins, flestir daglegir notendur. Sama gildir um aðra vinsæla samfélags- miðla á borð við Instagram, Twitter og Snapchat. Óhætt er að segja að Maggi Mix hafi slegið í gegn í þessu umhverfi. Þegar þetta viðtal er fært í letur er fjöldi þeirra sem fylgjast með síðu hans á Facebook 28.872. Til samanburðar þá eru fylgjendur fréttastofu RÚV á Facebook 5.389, eða hér um bil sex sinnum færri. Þess utan á Maggi 54.146 fylgj- endur á Instagram og um 1.368 fasta áskrifendur á YouTube. „Þetta er allt þjóðinni að þakka verð ég að segja,” segir Maggi spurður um þennan árangur. ,,Hún held- ur manni gangandi og eru margir glaðir og jákvæðir yfir því sem ég er að gera. Ég á líka dyggan aðdá- endahóp. Maður sér marga sem eru duglegir að splæsa í „læk“ á Facebo- ok og Yotube aftur og aftur og deila efninu mínu áfram. Síðan skiptir máli að vera alltaf hress. Það er sá gír sem ég set mig alltaf í þegar ég bý til efni. Flestir Íslendingar vilja vera gleðimegin í lífinu, þess vegna vilja þeir fylgjast með Magga Mix,“ segir Maggi sem notar broskallinn klassíska sem sitt vörumerki. „Glaðasti köttur í heimi“ Efnið sem Maggi hefur sent frá sér er fjölbreytt. Fyrirferðarmest eru tónlistarmyndböndin við lög- in hans og matreiðsluþættir. Einnig er að finna hjá honum margvísleg innslög með bröndurum og góðum ráðum til að nota í tilhugalífinu - svokallaðar „pikkupplínur.“ „Lög- in og matreiðsluþættirnir hafa ver- ið vinsælust. Þekktustu lögin hafa hingað til verið ,,Opið á gamlárs- dag,” sem er íslenska útgáfan af lag- inu Gangnam style sem var mjög vinsælt í hitteðfyrra og lagið ,,Safa- ríkur Sjomle.” Þá hefur lagið mitt ,,Glaðasti köttur í heimi” notið vin- sælda. Mér fannst kettirnir gleym- ast meðan sungið var um hundana í fyrra og því skellti ég í eitt lag,” segir Maggi. Öll þrjú lögin hafa fengið yfir 100 þúsund áhorf á You- Tube. ,,Pinnamatur í partý, eitthvað til að narta í” ,,Markmið matreiðsluþáttanna er síðan sýna fólki að hægt er að búa til einfalda og fína rétti á ódýran hátt. Þetta eru í rauninni sparnað- arráð frá mér til fólks. Mér fannst ég þurfa að sýna fólki að það þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna hráefni í góða rétti. Bara fara í skápinn, rífa eitthvað gott úr hill- unum og búa til einfalt mix,” segir Maggi sem hefur látið fleygar setn- ingar flakka í matreiðsluþáttunum. ,,Einu sinni var ég með þátt um pinnamat í partýum. Ein setning sem ég lét falla í þættinum var mjög grípandi: ,,Pinnamatur í partý eitt- hvað til að narta í.” Það þarf ekki að hafa þetta flókið til að fá fólk með,” bætir hann við hress í bragði. Treður upp fyrir fólk Maggi segist hafa kynnst ýmsu eftir að hann fór að verða áberandi á net- inu og vekja athygli. ,,Sumir hafa verið mjög dónalegir við mig, kall- að mig illum nöfnum í kommenta- kerfum og á Facebook. Það er auð- vitað leiðinlegt að fá svoleiðis yfir sig. Mest var um þetta fyrst þegar ég fór að koma fram. Viðbrögðin hafa sem betur fer breyst og hefur viðmótið skánað mikið með árun- um. Einn og einn er þó enn með leiðindi og reynir maður að leiða það hjá sér. Maður hefur líka lært að tækla umhverfið sem maður hefur stigið inn í eftir að ég byrj- að á YouTube. Þannig hefur maður þroskast í þessum bransa. Í dag er mér yfir heildina afskaplega vel tek- ið. Fólk er yfirleitt jákvætt og hresst í minn garð.” Vinsældir Magga hafa orðið það miklar að hann er oft beðinn um að koma fram í partýum, veislum og á viðburðum í skólum svo dæmi sé tekið. ,,Maður er að prófa sig áfram í þessum hluta bransans. Sumir vilja að ég taki lagið þeg- ar ég treð upp. Aðrir óska eftir að ég segi nokkra brandara eða fari með góðar pikkupplínur. Enn aðr- ir vilja að ég segi eitthvað jákvætt um lífið og tilveruna. Ég hef kom- ið fram víðsvegar um landið á síð- ustu árum og á nokkrum stöðum á Vesturlandi eins og á Akranesi, í Borgarnesi og á Bifröst. Síðan nýti ég möguleika netsins líka í þessu. Undanfarið hef ég komið með þá nýjung að senda frá mér sérsniðin myndskeið eftir pöntunum sem eru þá spiluð á einhverjum viðburð- um. Nýlega sendi ég til dæmis víd- eó til nokkurra skóla í landinu þar sem ég sagði nokkra brandara og kom með jákvæð skilaboð. Því var vel tekið,” segir hann. Maggi bend- ir áhugasömum á heimasíðu sína, maggimix.is. Þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um atriðin sem hann býður upp á. Fólk verði hresst og skemmtilegt Maggi er nú búsettur í Kópavogi þar sem hann er alinn upp. Hann á hins vegar íbúð í Borgarnesi þar sem systir hans býr. Hann kveðst vera með annan fótinn í Borgar- nesi. ,,Það er fínt að koma í Borg- arnes, sérstaklega á sumrin. Maður nýtur þess að ganga um götur bæj- arins, skella sér í sundlaugina og nýta það sem bærinn hefur upp á að bjóða. Þess vegna samdi ég lagið ,,Velkomin í Borgarnes” í fyrra þar sem ég syng um það sem bærinn hefur upp á að bjóða,” segir hann um bæinn og hvetur alla til að kíkja á lagið á YouTube. Það kveður síðan við bjartsýnis- tón þegar blaðamaður spyr hann um næstu skref í bransanum. „Það er bara að njóta lífsins og vera já- kvæður. Ég er núna í smá lífs- stílsbreytingu og er á fullu í rækt- inni í Kópavogi. Maður á nóg eft- ir og ég er á besta aldri. Síðan eru ýmis verkefni í pípunum sem von- andi verða að veruleika á næstunni. Þá er bara um að gera fyrir fólk að fylgjast vel með á netinu, læka við Magga Mix síðurnar og síð- ast en ekki síst að halda áfram að vera hresst og skemmtilegt,” segir Maggi Mix, hress að vanda. hlh Vörumerki Magga Mix er sjálfur bros- karlinn. Alls ekki svo galið! „Borgarnes er happíness, engar áhyggjur, ekkert stress“ Rætt við netstjörnuna og stuðboltann Magga Mix Maggi Mix í góðum gír. Maggi Mix í myndbandi sínu við lagið ,,Opið á gamlársdag.” Lagið er íslenska útgáfan af laginu vinsæla ,,Gangnam style” og eins og sjá má tekið upp að hluta í Borgarnesi. Margir hafa myndað sig með Magga Mix. Hér er hann með Páli Óskari á góðri stundu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.