Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Viðburðadagatalið á vef Skessuhorns keyrir á sama gagnagrunni og við- burðaskrá flestra sveitarfélaga á Vestur- landi. Skráning á öðrum staðnum á því að tryggja birtingu á vef Skesshorns, í næsta blaði og síðan einnig á vef við- komandi sveitarfélags. Viðburðaskráin er fjölbreytt þessa dagana. Þar má m.a. finna músíkfund á þorra í Tónlistarskól- anum á Akranesi á fimmtudaginn, Pub Quiz í Edduveröld í Borgarnesi á föstu- dagskvöld og þorrablót eldri borgara í Samkomuhúsinu í Grundarfirði á laug- ardag. Kíkið á „Á döfinni!“ Norðaustanátt er í kortunum næstu daga og útlit fyrir litla sem enga úrkomu á suðvestanverðu landinu frá fimmtu- degi til mánudags. Úrkoman verður mest í formi snjóa eða slyddu norðan- og austan til á landinu. Hitastig verður um eða undir frostmarki. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: „Hvað finnst þér um niðurstöð- ur nefndar um afnám verðtrygging- ar?“ Flestum hugnast þær ekki. Finnst þær afleitar sögðu 58,08%, „góðar hug- myndir“ telja 16,67% svarenda, „hef ekki kynnt mér þær“ sögðu 17,68%, en tæp 8% höfðu ekki skoðun á spurningunni. Í þessari viku er spurt: Bragðar þú á þorrabjór á þorranum? Sjálfboðaliðar hjá Rauða krossinum vinna mikilvægt og þakklátt starf hvar- vetna í heiminum. Í Skessuhorni í dag er meðal annarra rætt við verslunarstjóra í RKÍ búðinni í Borgarnesi. Þar líkt og víða um land er tekið á móti notuðum fatn- aði, hann síðan flokkaður í Reykjavík, en föt send til sölu gegn vægu verði í versl- unum eftir það. Andvirði sölunnar renn- ur síðan til góðra verka. RKÍ fólk er Vest- lendingar vikunnar. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Fólk tilkynni um slösuð dýr BORGARNES: Illa slasað- ur köttur fannst í götukanti við Borgarbraut í Borgarnesi um miðjan dag á mánudaginn í lið- inni viku. Kötturinn var það illa á sig kominn að hann var aflífað- ur. Vegfarandi hafði orðið katt- arins var í vegkantinum og látið lögreglu vita. Þótti ljóst að kött- urinn hefði legið þar um hríð. Lögreglan í Borgarfirði og Döl- um vill brýna fyrir fólki að láta lögreglu, dýraeftirlitsmenn eða eigendur gæludýra vita ef það sér slösuð eða dauð gæludýr. Þá brýnir LBD fyrir eigendum gæludýra að tryggja að dýrin hafi merkingu, t.d. ól um háls með nafni og símanúmeri eigenda. –hlh Árangurslaus fundur hjá sátta- semjara GRUNDART: Samningafund- ur um kjaramálin var hjá sátta- semjara í gær, þriðjudag. Á fund- inum voru auk kjarasamninga á almennum vinnumarkaði til um- fjöllunar samningar starfsmanna hjá Elkem Ísland á Grundar- tanga, sérkjarasamningur starfs- manna fiskimjölsverksmiðjunn- ar á Akranesi og kjarasamningur starfsmanna Klafa sem sér um út- og uppskipanir á Grundartanga. Ýmsir möguleikar voru rædd- ir á fundinum um lausn vinnu- deilunnar. Samkvæmt færslu á heimasíðu Verkalýðsfélags Akra- ness var fundurinn gagnlegar og uppbyggilegar. Menn hafi skipst á skoðunum án þess þó að nein niðurstaða hafi fengist. -þá Styrkja nýju holl- vinasamtökin AKRANES: Bæjarstjórn Akra- ness samþykkti á fundi sínum 28. janúar sl. að veita 700.000 krónum í styrk til Hollvinasam- taka Heilbrigðisstofnunar Vest- urlands, sem stofnuð voru 25. janúar sl. að frumkvæði fjögurra einstaklinga á Akranesi. Tilgang- urinn með stofnun hollvinasam- takanna er að sameina íbúa á Vesturlandi í stuðningi við Heil- brigðisstofnun Vesturlands með því að setja á stofn regnhlífa- samtök. Ennfremur að safna fé til mikilvægra tækja. „Akranes- kaupstaður hefur mörg undan- farin ár barist fyrir auknum fjár- veitingum til starfsemi HVE, sent umsagnir til fjárlaganefnd- ar og lagt áherslu á að starfsemi HVE verði varin og ekki síður vakið athygli ráðamanna á þeim miklu möguleikum sem felast í nálægð Sjúkrahússins á Akra- nesi við höfuðborgarsvæðið. Það opnar fyrir að ýmis konar verk- efni/aðgerðir er hægt að fram- kvæma á stofnuninni og stytta um leið biðlista sem eru til stað- ar á Landspítala/háskólasjúkra- húsinu í Reykjavík á hinum ýms- um sviðum. Auk þess er mikil- vægur mannauður til staðar og sérþekking á sjúkrahúsinu sem byggst hefur upp í langan tíma og hætta er á að sá þáttur glat- ist ef verkefnum fækkar,“ segir í tilkynningu. Bæjarstjórn vildi styðja Hollvinasamtökin í verki og vonaðist jafnframt til að fleiri sveitarfélög á starfsvæði HVE á Vesturlandi fylgdu fordæminu eftir. -mm S K E S S U H O R N 2 0 1 4 PUB QUIZ Skaginn hf. á Akranesi og Kæli- smiðjan Frost hafa undirritað samning við P/f Pelagos, nýtt út- gerðarfélag í Færeyjum, um kaup Færeyinganna á nýju uppsjávar- vinnslukerfi. Það fer til uppsetning- ar í Fuglafirði og á að verða tilbúið eftir rúmlega hálft ár frá undirritun samnings. Verkefni þetta mun skapa fjölmörg störf í fyrirtækjum á Akra- nesi sem og hjá ýmsum samstarfs- aðilum Skagans og Kælismiðjunnar Frosts. Heildarverðmæti samnings- „Samkomulag hefur náðst um kaup IÁ hönnunar ehf. á Akra- nesi á 80% hlut í 3X Technology á Ísafirði. IÁ hönnun ehf. er fé- lag í eigu Ingólfs Árnasonar, fram- kvæmdastjóra Skagans hf. og Þor- geirs & Ellerts hf. á Akranesi. Kaupin eru háð samþykki Sam- keppnisstofnunar.“ Í tilkynningu vegna kaupanna segir að fyrirtæk- in hafi sérhæft sig í vinnslutengd- um kælilausnum og átt í marg- háttuðu samstarfi á undanförnum árum. Sameiginlega sérhæfa fyr- irtækin sig ekki bara í vinnslukerf- um fyrir rækju, bolfisk og uppsjáv- artegundir, heldur einnig í öðrum matvælaiðnaði. Vinnslulausnir frá fyrirtækjunum hafa verið notaðar víða um heim með framúrskarandi árangri.“ Þá segir í tilkynningu að með aukinni samvinnu, sem fyrirhuguð er í kjölfar samkomulagsins, gef- ist möguleiki á að samþætta mark- aðs-, vinnslu,- innkaupa- og þró- unarvinnu fyrirtækjanna. „Mik- il sérþekking er fyrir hendi jafnt á Akranesi sem og á Ísafirði. Hún verður áfram nýtt á hvorum stað fyrir sig til markaðssóknar, m.a. til að jafna sölusveiflur og til að efla heildarrekstur fyrirtækjanna enn frekar. Fjárhagsleg staða fyrirtækj- anna í dag er mjög sterk,“ segir að endingu í tilkynningu vegna kaup- anna. mm Enn ein stórsala búnaðar frá Skaganum og samstarfsaðilum ins er rúmir þrír milljarðar króna. Vinnslan í Fuglafirði verður við hlið Havsbrun, öflugrar fiskimjöls- verksmiðju, en eigendur hennar eru aðilar að P/f Pelagos ásamt útvegs- fyrirtækjunum Christian í Grótin- um og Framherji í Færeyjum. Sam- kvæmt áætlun Færeyinganna mun vinnsla hefjast í Fuglafirði strax í ágúst á þessu ári og miðast afköst- in fyrst í stað við 600 tonn á sólar- hring. Þá er stefnt að auka afköst- in í 1000 tonn síðar. Í tilkynningu frá Skaganum og Kælismiðjunni Frost segir að ýmsar nýjungar muni birtast í þessari nýju verksmiðju í Fuglafirði sem auka munu afköst og gæði vinnslunnar. Kælismið jan Frost annast alla uppbyggingu á frystikerfi verksmiðjunnar en syst- urfyrirtækin Skaginn hf. og Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi munu leiða vinnu við byggingu verksmiðjunn- ar ásamt Kælismiðjunni Frost og 3X Technology á Ísafirði. Í síðast- talda fyrirtækinu keypti einmitt IÁ hönnun, fyrirtæki Ingólfs Árna- sonar framkvæmdastjóra Skagans, 80% hlut í í síðustu viku. Færey- ingar munu síðan sjá um uppbygg- ingu húsnæðisins í samræmi við innri hönnun Skagans hf. Stærsta ár fyritækjanna til þessa Verksmiðjan í Fuglafirði verður byggð upp á svipaðan hátt og verk- smiðja sem sömu aðilar seldu fær- eyska fyrirtækinu Varðinn Pelagic á Tvøroyri árið 2012. Verksmið- jan í Tvøroyri tók á móti um 100 þúsund tonnum af hráefni á fyrsta heila rekstrarári sínu. Auk þessara tveggja stóru samninga í Færey jum er stutt síðan Skaginn hf. samdi við Skinney-Þinganes á Höfn um smíði vinnslulínu í nýja uppsjávar- vinnslu með 800 tonna afkastagetu á sólarhring. Hana á að afhenda 1. júní á þessu ári. „Það stefnir allt í að árið 2014 verði það umsvifamesta í sögu Skag- ans hf. og Þorgeirs & Ellerts hf. og lok uppbyggingar á nýju 1800 fer- metra húsnæði fyrir starfsemina á Akranesi gat því varla komið á betri tíma,“ segir Ingólfur Árna- son framkvæmdastjóri Skagans og Þ&E í fréttatilkynningu vegna ný- jasta samningsins. Ingólfur segir að lykillinn að þessu öllu saman liggi í metnaðarfullu starfsfólki sem fyrir- tækin hafi. Margir samstarfsaðilar Um 20 fyrirtæki víðs vegar af land- inu koma að uppbyggingu verk- smiðjunnar í Fuglafirði enda stórt verkefni sem ljúka þarf á skömm- um tíma. Auk fyrrnefndra fyrir- tækja koma að verkinu fleiri fyrir- tæki á Akranesi á borð við Blikk- verk sf, Vélsmiðju Ólafs Guðjóns- sonar ehf., Straumnes rafverktak- ar ehf. og Blikksmiðja Guðmund- ar ehf. Önnur innlend fyrirtæki eru Marel hf., Style technology ehf., Samhentir- kassagerð ehf., Jötun- stál ehf., Rafeyri ehf., Stýrivéla- þjónustan ehf., Benni Blikk ehf., Blikkrás ehf., Útrás ehf., HG verk- taki ehf., Frystitækni ehf. og Slipp- urinn. mm Ingólfur Árnason framkvæmdastjóri Skagans og Þorgeirs & Ellerts og Eyðun Rasmussen frá Christian í Grótinum í Færeyjum handsöluðu samninginn um miðja síðustu viku. Stærsta einstaka verkefni Skagans til þessa var hönnun og smíði búnaðar í uppsjávarvinnslu hjá Varðin Pelagic í Færeyjum árið 2012. Skrifað var undir samning um verkefnið í mars en því var engu að síður lokið fjórum mánuðum síðar. Nýjasta verk- efnið er svipað að umfangi. IÁ hönnun á Akranesi kaupir ráðandi hlut í 3X Technology á Ísafirði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.